Alþýðublaðið - 23.04.1920, Síða 1
1920
Alþbl. kostar I kr. á mánuði.
Tekjuhalli Þjóðverja.
Khöfn, 21. apríl.
Símaö frá Berlín, að tekjuhalli
I>jóðverja á fjárh&gsárinu sé tveir
miijarðar marka.
Kapp beiðist friðlands.
Khöfn, 21. apríi,
Símfregn frá Stokkhólmi segir,
að Kapp hafi sótt til svensku
stjórnarinnar um að hann megi
«iga friðland í Svíþjóð.
Tekjuafgangur Englendinga.
Khöfn, 21. aprfl.
Símað frá London, að tekjuat-
-gangur Englands á fjárhagsáætiun
sé 300 miljónir króna, sem not-
aðar skulu til að minka ríkisskuld-
irnar.
Tyrkjafriður.
Khöfn, 21. aprfl.
Foch áætlar, að 300 þúsund
manns þurfi til þess að koma
íriði á í Tyrklandif
Fangaskifti.
Khöfn, 21. apríl.
Símað frá London, að Litvinoff
hafi undirskrifað samning um
fangaskifti milli Rússa, Belga og
Prakka. Gagnkvæm uppgjöf póli-
tískra saka. Frakkland og Belgfa
skuldbindá sig til þess, að skifta
sér ekki af innanríkismálum Rússa.
Föstudaginn 23. apríl
Viðavangshlau pii.
Aðkomumenn sigra.
Víðavangshlaupið hófst, eins og
til stóð, í gær kl. 2 — eða öllu
heldur 5 mínútum yfir tvö; leið-
inlegt afspurnar fyrir íþróttamenn,
sem þó ættu að kunna stundvísi.
Veður var hið bezta, sólskin og
blíða, en færðin á skeiðinu var
ekki hin ákjósanlegasta, sem sjá
mátti á hlaupurunum, er þeir
komu að marki, forugir upp á
herðar.
Að þessu sinni tóku fleiri þátt
í hlaupinu, en nokkru sinni áður,
eða 21 maður. Voru 8 frá »Ár-
mannic hér í bæ, þeir:
Ágúst Jóhannesson, Ásgeir Ás-
geirsson, Einar Markússon, Ingi-
mar Jónsson, Ottó Marteinsson,
Sveinn Björnsson, Valdimar Svein-
björnsson og Þorbergur Ólafsson.
8 voru úr íþróttafélagi Reykja-
víkur, þeir:
Bjarni Jónsson, Einar Stefáns-
son, Gísli Sigurðsson, Haraldur
Ólafsson, Jón B. Jónsson, Konráð
Kristjánsson, Sigurjón Eiríksson
og Þórður Hjartarson,
5 voru frá U. M. F. Drengur
og Afturelding í sameiningu, þeir:
Ágúst Jónsson, Ellert Eggerts-
son. Magnús Jónsson, Þorgeir
Jónsson og Þorgils Guðmundsson.
Fyrstur varð Þorgils Guð-
mundsson frá Valdastöðum að
marki, og rann hann skeiðið á
14 mínútum og 15 sekúndum.
Næstur varð Konráð Kristjáns-
son frá Iitlu-Tjörnum f Ljósavatns-
skarði (var nr. 3 í fyrra); munaði
minstu að hann yrði fyrstur. Var
Þorgils á eftir houum þangað til
á sfðasta augnabliki, að hann
vatt sér fram fyrir hann og náði
marki broti úr sekúndu (*/s) á
undan honum. Geymdi Þorgils,
eins og vera ber, nokkuð af orku
sinni til hins siðasta, og lagði alla
áherzlu á síðustu faðmana. En
Konráð mun hafa haldið sig ör-
90. tölubl.
uggan, og virtist fremur lina á
sprettinum síðast; hefði honum
vafalaust verið gefið að sigra,
hefði hann gáð sín.
Þriðji maður var Ingimar Jóns-
son, héðan úr bæ, og var annar
maður honum því nær jafn. Þeir
voru stutt á eftir þeim fyrstu. Sá
seinasti var rúmlega 2 mín. á
eftir þeim fyrstu.
Þegar gert var út um hlaupin,
kom það upp úr kafinu, að Ung-
mennafélögin höfðu sigrað, og
hlutu þau verðlaunagripinn, sem
ætlaður er því íélagi, sem vinnur.
Eftirtektavert er það við þessi
hlaup, að aldrei hefir náðst eins
góður hraði. Skeiðið var í fyrra
runnið af Ólafi Sveinssyni á 14
mín. og 27 sek. Sömuleiðis er það
hvöt fyrir reykvfska íþróttamenn,
að herða sig meira en þeir gera
við fþróttaiðkanir, að tveir fyrstu
hlaupararnir eru sveitamenn. Má
það merkilegt heita, að knatt-
spyrnumenn skuli ekki taka þátt
í þessu hlaupi, þar sem það er
vitanlegt, að bezti stuðningur
þeirrar íþróttar eru hlaup.
Vafalaust verður þessi ósigur
reykvfskra íþróttamanna til þess
að hvetja þá til starfa, og ekki
verður sigur Ungmeunafélaganna
síður til að hvetja þeirra menn
til þess að halda því, sem unnið
er. En þegar kappið er komið,
gengur alt betur. Ef það þá end-
ist til næsta sumars.
1. y.
Hagnisemi. Eins og bæjarbú-
um er kunnugt, létu margir at-
vinnurekendur ekkert vinna hjá
sér f gær, vegna þess að það var
sumardagurinn fyrsti. Nokkrir létu
þó vinna til hádegis. En meðal
þeirra, sem lengur létu vinna var
borgarstjórinn K. Zimsen. Hana
lét verkamennina vinna til kl. 4.
Og stóð það heima, að þá var
lokið þeim útiskemtunum, er til
var stofnað í gær. Hugulsamur er
Knútur! Verkam.