Alþýðublaðið - 05.05.1951, Blaðsíða 5
Laugardagur 5. maí 1951
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Jón Hjálmarsson:
ÞAÐ ER MÁLA SANNAST,
•ao nú um þessar mundir
•er sérstök ástæða fyrir
íslenzka alþýðu að staldra við
og íhuga gjörla vígstöðu og af-
komumöguleika hins starfandi
manns í voru þjóðfélagi. Það
er augljós staðreynd, sem á
engan hátt er hægt að snið-
.ganga, að lífskjör vinnandi
stétta í þessu landi hafa rýrn-
að að mun á yfirstandandi ári.
Orsakir þær er til þess liggja
eru fyrst og' fremst tvær, og
eru þær almenningi svo gjör-
kunnar, að óþarft er þar um að
•orðlengja. Sú er fyrr má telja
•Og kalla má hina ískyggileg-
ustu er atvinnuleysið, sem
xnjög hefur færzt í aukana síð-
astliðið ár og sums staðar kveð
ið svo rammt að, að um algera
ördeyðu er að ræða. Á hinu
leitinu er svo hin geigvænlega
vöruverðshækkun, seríi' orðið
hefur nú upp á síðkastið, svo
að segja jöfnum höndum á
nauðþurftum almennings eins
•Og á óþarfa varningi.
Það segir síg sjálft hve ramm
xir vandi er að hverjum verka-
manni kveðinn, þegar tímabil
hrörnandi atvinnu fer í hönd,
hvað þá þegar um fullkomið at-
vinnuleysi er að ræða, sem því
miður er of algengt nú til dags.
Og vissulega er það fullkomið
atvinnuleysi, ; þegar fullvinn-
andi og starfsfúsir menn hafa
aðeins 300 til 400 kr. í kaup yf-
ir mánuðinn eðg laklega það,
jafnvel tímum saman, en sú er
þó raunin á og það í æði mörg-
um tilfelluríi. Og hverja mögu-
leika hafa verkarnenn, er við
slíka vá eiga að etja, á að sjá
sér og sínum farborða við slík
skilyrði sem þessi? Það er aug-
Ijóst mól, að á því eru engin
föng. Hér er þó vissulega ekki
nema hálfsögð sagan. Þessu til
viðbótar kemur svo hið mikla
dýrtiðarflóð, sem nú hefur ver
ið sleppt lausu yfir þjóðfélagið.
Það eitt út af fyrir sig ógnar
svo afkomu alls þorra laun-
þega, að jafnvel þótt um sæmi-
lega stöðuga vinnu væri að
ræða, er ógerlegt fyrir velflesta
þeirra undir að rísa.
Mergurinn málsins er sá, að
í dag er það mjög torráðin
jkrossgáta öllum þorra manna,
hvernig þeir geta lifað af laun-
um sínum, og fyrir allmörgum
er það gersamlega óleysanleg
Herkúlesarþraut.
Á sama tíma og þessi óheilla
þróun fyrir launalýð allan á
sér stað, safna atvinnu/ekndur
©g heildsalar auð fjár. Sérrétt-
indastéttirnar eru skipaðar
fólki, er nýtur þess að það á
fjármagn og atvinnutæki.
Þetta fólk hefur af þessari eign
sinni ríkulegt lífsframfæri,
enda þótt það komi ekki að
hinu minnsta leyti að fram-
leiðslustörfunum sjálft og leggi
ekki neitt á sig til ýköpunar
verðmætanna.
Vissulega er sköpun verð-
mætanna, þ. e. a. s. framleiðslu
störfin sjálf, hinn stóri gerandi
í þjóðarbúskapnum og grund-
völlurinn undir gervallri lífsaf
komu allra landsins barna. En
skipting þeirra verðmæta, sem
framleiðslan. skapar, hefur
löngum verið og er enn það
þrætumál, sem seint verður til
lykta leitt svo allir aðilar uni
við sitt hlutskipti. Það er um
skiptingu verðmætanna. sem
deilan stendur. Hér er það, sem
vegi skilur með atvinnurekend
um og launalýð. Þessi deila hef
ur jafnan verið mjög hörð, en
þó mun það sannast mála að
um nokkurt skeið hafi hún eigi
verið svo hörð sem nú og sókn
atvinnurekenda til enn auk
inna ítaka í þjóðarverðmætun-
um fer harðnandi með
degi hverjum. í öruggu skjóli j
núverandi ríkiss.tjórnar. sem ;
fast hefur lagzt á sveif með at- j
vinnurekendum í þessu máli og i
hagað aðgerðum sínum svo að
framleiðendum sé tryggður
verulegasti hlutinn.
Raunin hef>-: líka orðið sú.
að hlutur atvinnurekenda vavð
ur æ meiri og laurþe0’r ganga
með skarðari hlut frá borði r:ú
en áður var. Svo mjög hefur nú
upp á síðkastið á þá hallað í
þessu efni, aðmöguleikar þeirra
til að sjá sér og sínum far-
borða eru nú orðnir-svo mjcg
knappir, að við liggur neyð e;g:
óvíða. Það er með öllu tilgant'S.
laust fyrir sérréttindastéttina
að reyna að telja fólki trú urn
það að málum þjóðfélags vors
sé nú svo komið, að kauphækk-
un til handa launþegum sé
þeim engin kjarabót, þjóðféiag
ið rísi ekki undir hetri afkomu
alþýðunnar. Því þeir sömu
menn, sem flytja fólkinu þenn-
an boðskap, lifa sökum sinnar
sérréttindaaðstöðu í vellysting-
um praktuglega, og ekki er á
þeirra hátterni að sjá, að þeir
telji glæsilega lífsafkomumögu
leika neina ppðvg. að minnsta
kosti þegar þeir sjálfir eiga í
hlut. Þessi kenning er með ö’lu
haldlaus, einfaldlega sökum
þess að þeir, sem hana flytja,
lifa á engan hátt eftir henni
sjálfir. Enda er þessi kenning
til þess eins fram sett, að fcðra
tilhneigingu atvinnurekend-
anna til þess að draga sem mest
an hluta verðmætanna í sínar
hendur við skiptingu þeirra á
milli þjóðfélagsþegnanna.
Atvinnurekendur hafa jafn- •
an hlotið megnið af þeim verð- j
mætum, sem þjóðinni á hverj- j
um tíma hefur auðnazt að |
skapa, enda þótt verkalýðurinn
hafi unnið verkin og verið hinn
raunverulegi gerandi við verð-
mætasköpunina og hafi vitan-
lega átt og eigi sinn óskoraða
rétt til þeirra. En þau verk
hafa til þessa verið minna met
in við útdeilingu afrakstursins.
Venjulega orðið að þoka fyrir
afli auðsins og svo er enn. En
fólkið krefst réttlætis. Eigin
starfsgeta verkalýðsins er það
einasta verðmæti, sem hann
hefur umráð yfir í lífsbarátt-
unni, og fullnægjandi laun fyr-
ir unna virínu, svo og fullkomið
kröfu þess um hlutdeild í þjóð
artekjunum.
Skynsamlegt mat á hinum þýð
ingarmiklu störfum, sem það
innir af hendi á hverjum tíma
hefur ekki ennþá verið á þau
lagt, og þau því síður vsrið
launuð að verðleikum. Þetta
er meginorsökin fyrir deilunni
um skiptingú verðmæta þeirra,
sem þjóðin ræður yfir. Og
þetta er jafnframt og að sjálf-
sögðu grunntónninn í þeim
kaupdeilum öllum, sem nú eru
í uppsiglingu víðs vegar um
landið. Hin síaukna rýrnun lífs
kjara alþýðunnar, serrr nú um
skeið hefur átt sér stað. staíar
beinlínis af þrásækni atvinr.u-
rekendavaldsins til þess að ná
undir sig æ stærri hluta þjóð-
arverðmætanna algerlega án
tillits til brýnustu þarfa hinna
vinnandi stétta. Aukin og bætt
aðstaða atvinnurekenaa til
sóknar fyrir hagsmunum
þeirra táknar vitaskuld vax-
andi erfiðleika fyrir albýðuna
á að halda sínum hlut óskert-
um, og vissulega er það mein-
ing þeirra að neyta sinnar
bættu aðstöðu til hins ýtrssta.
Þar sem allir afkomumögu-
leikar launþeganna byggjast á
því að þeir geti selt bað eina
verðmæti, sem þeir hafa.yfir að
ráða, sína eigin vinnu, á full-
nægjandi verði, þá lætur það
að líkum að það er hin brýn-
asta lífsnauðsyn fyri? þá að
vernda það sem bezt og ganga
sem tryggilegast frá því að það
nægi launþeg?num og skyldu-
liði hans fyllilega til lífsfram-
færis. Þess vegna þarf bað eng
an að undra, að alþýðm verði
oft og einatt að beita samtök-
um sínum af fullkominni al-
vöru til verndunar kjörum sín-
um og réttindum með því að
ákveða hæfilegt verð fyrir
unna vinnu. Og verkföll og
vinnudeilur eru aðeins afleið-
ing þess, að ekki hefur náðst
samkomulag um verðið á vinn
unni á milli launþegans og
vinnuveitandans, þ. e. a. s. það
hefur ekki náðst samkomulag
um skiptingu þeirra verðmæta,
sem framleiðslan gefur af sér.
Og enda þótt endanleg lausn
fáist venjulega ekki á ágrein-
ingsmálinu í gegnum þessar
deilur, þá eru þær þó óljúgfróð
mynd af meinsemdinni í voru
þjóðskipulagi. Sú kjaradeila,
sem alþýðan nú, næstu daga á
fyrir höndum, er aðeins
stækkuð mynd þess, er nú
hefur verið lýst, en verður vafa
laust mjög þýðingarmikil fyr-
ir launþegar alla. En hún er
þrátt fyrir það, aðeins eitt
þeirra hjaðningavíga, sem al-
þýðan er á hverjum tíma nauð-
beygð til að heyja til varnar
kjörum sínum og lífsréttind-
um.
Það er ærið oft, sem formæl-
endur atvinnurekenda kalla
vinnudeilur pólitískt brölt, og
nú um skeið hefur í hönd far-
andi kjaradeila verið stimpluð
sem slík. Það má ef til vill færa
nolckrar sönnur á að allar kjara
deilur séu pólitískar, sem sé
þær, að þær eru áwllt sprottn-
ar af misskiptingu verðmæt-
um skoðun bifreiða í Keflavíkurkaupstað.
Samkvæmt bifreiðalögum er hér með tilkynnt, að
aðalskoðun bifreiða fer fram í Keflavík frá mánudegin-
um 7. maí til fimmtudagsins 10. maí næstkomandi að
báðum' dögum meðtöldum.
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar sínar að
Vörubílastöð Keflavíkur og fer skoðunin þar fram oían-
greinda daga kl. 9—12 og kl. 13—16.30.
Þeir. sem eiga tengivagna eða farþegabjmgi á vöru-
bifreið, skulu koma með þau um leið og bifreiðin er færð
til skoðunar, enda falla þau undir skoðun jafnt og sjálf
bifreiðin.
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku-
skírteini.
Ógreiddur bifreiðaskattur, skoðunargjald og vá-
tryggingariðgjald ökumanna fyrir allt árið 1950 verða
innheimt um leið og skoðun fer fram. Séu gjöldin eigi
greidd við skoðun eða áður, verður skoðunin ekki fram-
kvæmd og bifreiðin stöðvuð þar til gjöldin eru greidd.
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir
hverja bifreið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bifreiða
skulu ávallt vera vel læsileg. Er því hér með lagt fyrir
þá bifreiðaeigendur, sem þurfa að endurnýja eða iag-
færa númeraspjöld á bifreiðum sínum, ao gera það taf-
arlaust nú, eða áður en bifreiðaskoðunin hefst.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á
ofangreindum dögum, verður hann látinn sæta ábyrgð
samkvæmt bifreiðalögum og bifreið hans tekin úr um-
ferð, hvar sem til hennar næst. Ef bifreiðareigandi. (eða
umráðamaður) getur ekki af óviðráðanlegum ástæðum
komið með bifreið sína til skoðunar á réttum tíma, ber
þeim að koma á Vörubílastöð Keflavíkur og tilkynna
skoðunarmönnum það. Slíkar tilkynningar í síma nægja
ekki.
Þetta er hér með tilkynnt öllum, sem hlut eiga að
máli til eftirbreytni.
Bæjarfógetinn í Keflavík, 2. maí 1951.
Alfreá Gislason.
anna á milli þjóðfélagsþegn-
anna. Frá þessu sjónarmiði
einu er til dæmis sú deila póli-
tísk, sem nú fer í hönd. En
vissulega skiptir það ekki má!i
hvaða nafn málpípur atvinnu-
rekenda gefa kjarabaráttunni.
„Þeir gefa ávallt eins og þeir
eru góðir til.“ Merguriiín máls-
ins er sá, að það er sama hvaða
stjórnmálaflokki launþeginn
fylgir, þá er þörf hans fyrir að
halda kjörum sínum í horfinu
sú sama; réttlæti við útdeil-
ingu þeirra auðæfa, sem þjóð-
in heíur yfir að ráða, er sama
lífsnauðsynin fyrir hann hvaða
skoðun sem hann annars kann
að hafa á þjóðmálum. Þess
vegna er það blekking og ann-
að ekki, þegar reynt er að
stimpla launabaráttu, sem þess
stimpla þessa launabaráttu sem
„pólitískt brölt“. Það er að-
lefi fil sölu
tvær góðar fjögurra herbergja íbúðir í Austurbænum,
og eina tveggja herbergja kjallaraíbúð.
Ennfremur mjög glæsilegt einbýlishús utan við
bæinn, ásamt góðu landrými.
ÓLAFUR ÞORGRÍMSSON hrl.
Austurstræti 14.
eins gert til þess að sá,i
tortryggni og ala á úlfúð
innbyrðis á milli launþeg-
anna og veikja þá þannig í
lífsnauðsynlegri kjarabaráttu.
Þessi tilraun atvinnurekenda
mun vissulega á engan hátt tak
ast, launþegarnir vita vissulega
hvar skórinn kreppir. Þeim er
Ijóst hver vá er fyrir dyrum
þeirra ef ekki er að gert. Og
þeim er að fullu Ijóst að þeir
einir með samtökum sínum eru
þess umkomnir að hrinda árás-
um og sókn atvinnurekenda og
vernda þar með kiör sín. og
mannréttindi.
Jón Hjálmarsson.
Kvenréttindafélag
/
Islands
heldur furíd "7. maí n. k.
kl. 8,30 s. d. í Aðalstræti
12.
Fundarefni:
1. Félagsmál.
2. Henrik Aubert ritstjóri
flytur erindi iiríí"Cam-
elli Collet.
' 3. Kvikmyndir frá Nor-
egi.
Félagskonur mega taka
með sér gesti.
Stjórnin.
i