Alþýðublaðið - 03.06.1951, Side 5

Alþýðublaðið - 03.06.1951, Side 5
Sunnudagur 3. júní 1951 AU>VÐl.'BI.AÐIÐ L HRAKNINGAR I SIGFÚS BJARNASON, fram kvæmdastjóri Sjómannafélags Reykjavíkur, stundaði sjó frá |)ví hann var 14 ára að aldri, á hvers konar fiskiskipum, þar til hann réðist til Sjómannafé- lags Reykjavíkur árið 1948, éða í 30 ár. Hann hefur frá inörgu að segja frá sjómennsku árunum, eins og allir, sem siglt hafa. Hér birtist ein smásaga, sem hann sagði mér fyrir hokkru síðan: Vetrarvertíðina 1922 var ég háseti hjá Guðmundi Guð- björnssyni frá Sveinstöðum á Hellissandi. Guðmundur var á- gætur sjómaður, drengur góð- Uir, prúður í framgöngu og afla maður umfram flesta þar um slóðir á þeim tíma. Ég var þá 17 ára gamall, og ekki full- harðnaður, og þóttist því mað- air að meiri, að vera í skiprúmi hjá Guðmundi. Afli var góður og sjór sóttur af kappi. Guðmundur reri áttæring, Bem hét Sigurfari. Það var mik £ð skip og gott í sjó að leggja. Síðari hluta marzmánaðar voru góðar gæftir og fiskur Ziógur úti á grunninu við Kollu álinn. Venjulega var róið fyrir birtu og búið að leggja fyrsta kastið af lóðinni í birtingu. Einn róður á þessari vertíð er mér sérstaklega minnisstæð ur. Við rérum á venjulegum tíma og lögðum lóðirnar fram á grunnið. Öll skip frá Sandi voru á sjó þennan morgun, um 20 talsins. Á hverju skipi voru 10 til 12 menn. Þó var eitt skip minna í þessum flota, en það var sexæringur, sem Sveinn frá Lág stýrði. Þegar búið var að leggja fyrsta kastið og hálfnað að draga það, skall á ofsarok af suðri eða suð- vestri. Vindurinn stóð með Snæfellsjökii að vestan, en slík veður nefndu Sandarar skriðu- rok, og þóttu þau veðra verst. Á sömu miðum og róðrabát- arnir voru tveir botnvörpung- ar að toga um morguninn. Við félagar ræddum um það, að þeir væru nærri landhe’gis- línunni og höfðu menn mörg orð um að hringja til Reykja- víkur þegar í land kæmi og kæra yfirgang togaranna fyrir máttarvöldunum í höfuðstaðn- um, í von um að einn af víg- drekum landhelgisgæzlunnar yrði sendur á vettvang ti’ þess að taka í lurginn á hinum meintu veiðiþjófum. Veður óx brátt og þegar við vorum búnir að draga alla lín- una var komið ofsaveður með kröppum sjó og byl. Sumir bátarnir fóru frá línum sín- um ódregnum, þegar hvessa tók. Þeir náðu landi á Sandi eða í Keflavík. En þeir, sem drógu aha línuna, lentu í hrakningum. Þegar búið var að draga lóðina og jafna afl- anum, sem var dágóður, um skipið, var setzt undir árar og reynt að berja að landi. Venju lega réru hásetarnir, en for- maðurinn stýrði. í þetta sinn brá Guðmundur formaður út af þessari venju og settist und ir ár í austurrúmi, en lét aldr- aðan mann, sem Jónas hét, stýra. Skipinu var snúið beint upp í vindinn, menn lögðu sig alla fram við róðurinn og hver eggjaði annan. Sjórinn rauk yfir skipið, en það varði sig öllum stærri áföllum. Ef tir nokkra stund, var út séð um að nást mundi til lands-, á ár- um og var þá tekið að seglbúa. Á skipinu vöru' tvö möstur, laus, sem lögð voru niður í skipið, þegar ekki var sig’t. Á frammastri var rásegl og á afturmastri spritsegí, engin forsegl voru á skipinu. S;glt var með rifuðu for- segli, en órifuðu aftursegli. Það horfði inn um og var sigld ur bfeitivindur. Formaðurinn mun hafa ætlað sér að sigla fram hjá Rifi og ná landi á Brimi’svöllum eða inn á Kletti, en þangað var að minnsta kosti tveggja tíma sigling í h£g stæðum byr. Þegar búið var að tréreisa og seglbúa. hófst hin ægi’egasta sigling. Veðurofsinn var miki’l og svartabylur. svo að vart sást út fyrir borð- stokkinn. Formaður stýrði, en undir dragreipinu sat Jón Bjarnason frá Görðum á Helli sandi. Skipið gekk mikið. Það tók sjó til hlés og öðru hvoru skullu á því báruhnútar til kuls. Fjórir menn stóðu í austri og var ausið með tveim hríð, skarðaði í bylinn og við sáum framundan á hlé togara, sem hélt með hægri ferð upp í sjó og vind. Var þar á ferð inni annað hinna grunuðu skipa sem um var rætt í upphafi þessa máls. Veðrið hélzt ó- breytt og tvísýnt þótti um land töku. Formaður ákvað því að fe’la seglin og !áta róa að tog- aranum og biðja skipverja hans ásjár. Þegar skipverjar togarans urðu okkar varir, lögðu þeir skipinu og létu það flatreka fj'rir vindi og sjó. Við rérum sð togaranum á hlé- borða og þegar við komum að síðunni, voru margar hendur ‘á lofti til þess að innbyrða okkur. Skipið var enskt og hét Yokohama frá Grimsbjr, en skipstjórinn var íslenzkur. Jóa kim að nafni, ættaður frá j Flateyri « Önundarfirði. Jóa- kim var lengi síðar með enska togarann Sweeper og veiddi löngum í Faxaflóa, eins og kunnugt er. . - Þegar búið var að taka okk- ur alla upp á Yokohama, var sett sterk dráttartaug í Sigur- bjóðum. Skipið lét mikið á ] fara og honum fest aftan í tog- siglingunni, hóf sig upp á öldu arann. Viðtökur skipverja á toppana, skauzt ofan í öldu- dalina, byltist til og hjó skut og barka eins og sært dýr, sem berst fyrir fjöri sínu. Okk ur unglingunum, sem vorum lítt harðnaðir, þótti nóg um. Við gerðum ekkert annað en halda okkur og horfa á ham- farirnar. Ekki he’d ég að við höfum verið hræddir, þótt út- litið væri skuggalegt, hefur togaranum voru með ágætum. Okkur var veitt te og brauð, j við látnir fara úr vosklæðum og þau þurrkuð. Skipverjar léðu okkur þurr föt á meðan og veittu okkur aðgang að rúm um sínum í hásetaklefanum. Jóakim spurði Guðmund for- mann, hvort fleiri bátar væru á sjó, og sagði Guðmundur sem var. að margir bátar mjmdu þar víst mestu ráðið, að enga j vera á sjó frá Sandi og allir æðru var að sjá á formannin- j nauðulega staddir. Jóakim hóf um eða fullorðnu mönnunum. J þá leit að bátunum og lónaði Þegar við höfðum siglt um um nokkuð stórt svæði og Sigfás Bjarnason. þeytti eimpípuna í sífellu. Eftir nokkra stund fannst annar bát- ur, sem eins var ástatt með og okkur. Skipshöfn þess báts var tekin upp í togarann og fengu þeir sömu ágætis viðtökur og við- Y7okohama hélt áfram leit- inni um sinn, en án árangurs. Mj-rkur skall nú á og lónaði Yokohama þá upp pndir Ólafs- víkurenni cg lagðist fyrir akk- erum. Þar var þá fyrir togar- inn Belgaum, en skipstjóri á honum var Þórarinn Olgeirs- son. Hann hafði bjargað fjórum bátum og voru þeir allir festir við togarann með taugum. Tog ararnir lágu af um nóttina und- ir Enninu, en í birtingu slotaði verðinu og héldu þeir þá með alla bátana út á Sand og slepptu þeim íyrir utan varirn ar. Ólendandi var á Hellissandi. vegna brims, en við lentum allir heilu og höldnu í Krossa- vík, sem er aðeins utan við vör- ina á Sanöi. Þegar við vorum búnir að bjarga bátunum und- an sjó í Krossavík, skall aftur á stórviðri með blindhríð. Fraphald á 7. síðu. U: iómannadaourinn er háfíðhdagur tslenzkra sjómanna, sem sækja bjðrg á miðin, sigla sir iða um heim. Bæjarúfgerð Hafnarfjarðar óskar öllum sjómönnum gæfu og gengis í framiiðínnl i tilefni af degínum.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.