Alþýðublaðið - 03.06.1951, Side 7
Sunnudagur 3. júní 1951
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Framhald af 3. síðu.
gáfu og ánöfnuðu björgunar-
skútusjóðnum mestallar eigur
sínar.
I fyrstunni var ætluni \ að
slíkt skip, sem væri að störfum
fyrir Vestfjörðum, yrði einvörð'
ungu björgunarskip, en síðar
var horfið frá því og ákveðið að
útvega skip, sem hefði á hendi
bæði björgunarstörf og strand-
gæzlu fyrir þessum landshluta.
Var árið 1945 gerður samning-
ur milli ríkisins annars vegar
og Slysavarnafélags íslands og
slysavarnadeildanna á Vest-
fjörðum hins vegar um, að rík-
issjóður léti smíða slíkt skip, en
slysavarnafélagið og slysa-
varnadeildirnar ó Vestfjörðum
legðu fram 200 þúsundir króna
til smíðarinnar. Svo var kveðið
á í samningnum, að björgunar
störf skyldu verða látin sitja í
fyrirrúmi fyrir öðrum störfum,
en skipið að jafnaði vera við
Vestfirði frá 1. október til maí-
loka og höfuðbækistöð þess á
ísafirði. Skipið var síðan byggt
í Danmörku. Það kom hingað
21. apríl í fyrra og var látið
heita María Júlía í höfuð þeirr-
ar konu, sem gaf aleigu sína til
að koma því upp.
María Júlía er nokkru stærra
1 skip en Sæbjörg smálestir
' og gengur 10—12 sjómílur, að-
alvél þess er 470 hestafla Pett-
er-Diesel vél, og búið er það
öllum nauðsynlegum siglinga-
tækjum, auk þess sem það hef-
ur útbúnað til landhelgisgæzlu
og fiskirannsókna.
BJÖEGUNARSKIP
NORÐLENDINGA
Björgunarskip Islendinga
eru því enn ekki nema tvö, en
senn er von á einu til viðbótar,
björgunarskipi fyrir Norður-
land. Hafa slysavarnadeildirn-
ar á Norðurlandi þegar safnað
m;klu fé til þeirra kaupa, eiga
á f jórða hundrað þúsund krón-
ur í sjóði. Mun þess væntan-
lega ekki langt að bíða, að ráð-
stafanir verði gerðar til að út-
vega skipið, sem á að annast
björgunarstörf og aðstoð við
fiskibáta fyrir Norðurlartdi.
(Frh. af 1. síðu.)
góðum greiðsluskilmálum við
skipasmíðastöðina. Má það
greiða helming kaupverðsins
með jöfnum afborgunum á
fimm árum.
Það hefur og sótt um leyfi
fjárhagsráðs til þess að láta:
smíða þessi skip, en ekki mun
fjárhagsráð en hafa ráðið af
um þá málaleitun félagsins.
FLOTINN EYKST.
Fari svo að Eimskipafélag
íslands kaupi nýtt skip í stað
Fjallfoss, eins og það ráðgerir
nú, og láti smíða tvö skip í
Danmörku, en selji Selfoss,
eykst skipastóll þess um eitt
skip, auk þess sem lestatala
skipanna hefur þá aukizt
meira en sem því nemur, þar
eð nýju skipin eru jafnan
stærri. Þá á það eftir aðeins
eitt skip, sem smíðað er fyrir
stríð, Brúarfoss, en hann kom
hingað til lands árið 1927. Hin
öll eru ný.
Hrakningar.
Framh. af 5. síðu.
Menn voru fegnir komu okk-
ar og höfðum við verið taldir
af og sjálfsagt hefði þarna
orðið stórslys, ef þeir Jóakim
og Þórarinn hefðu ekki verið
nálægt um daginn. Gifta þeirra
var gifta okkar allra, og víst er
um það, að enginn talaði fram-
ar um þ.að að siga varðskipun-
um á þá, þótt vafi léki á urn
þáð, hvorum megin þriggja
mílna línu þeir plægðu ölduna.
Engir mannskaðar*. urðu á
Sandi í þessu v.eðri og náðu öll
skipin landi um daginn í heima
vör þau er togararnir björguðú
•ekki, nema skip það, er Sveinn
frá Lág stýrði, en það var
minnsta skipið, sem áður seg-
ir Sveinn sigldi inn um og
varð togaranna var. Þegar há-
setar ræddu um að biðja tog-
arana ásjár, sagði Sveinn, að
hann kysi heldur að drepa sig
á siglingunni en að láta helvít-
is Englendingana drepa sig. En
Sveinn gerði hvorugt, hann
sigldi beitivind inn fyrir Brim-
ilsvelli og tók land heilu og
höldnu á Kletti síðari hluta
dags. Þessi för Sveins þótti hin
frækilegasta. Um Guðmund
Jónsson á Sigurfara var þetta
kveðið:
Keyrir glaður keipajóinn
knár Sveinsstaða Guðmundur
orkuhraður áls um móinn,
aflamaður víðkðnndur.
Guðmundur Guðbjörnsson
féll út af bryggju á Siglufirði
og drukknaði. Hann var þá
skipstjóri á m.b. Ingimundi
gamla.
S. E. Ó.
ALLIANCE
sjomonnum
um land allt kveðjur sínar
r < r
Um leið og við þökkum
þeím fyrir gott samstarf
á liðnum árum, *
árnum við þeim heilla
■
Alliance h.f.
NZKIR SJOMENNI
í tilefni af sjómannadeginum sendir
sínar beztu liamingjuóskir9 þakkar ykkur gott samstarf á liðnum
árum og óskar ykkur allra heilía í framtíðinni.
Sjómannafélag Reykjavíkur