Alþýðublaðið - 20.06.1951, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
i
Miðvikudagur 20. júní 1951.
r
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Sto'án Pjetursson.
Auglýsingastjóri: Emilía Möller
Ritstjórnarsími: 4901 og 4902.
Auglýsingasímú 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Hinir nýju riddarar
iýðræðisins
MORGUNBLAÐIÐ leggur
mikla stund á að túlka mál-
stað lýðræðisins nú til dags
og fordæmir ærið óvægilega
einræðisstefnu kommúnista.
Sama er að segja um for-
ustumenn Sjálfstæðisflokksins.
Einn þeirra er Gunnar Thorodd
sen, borgarstjóri íhaldsins í
Reykjavík. Hann hélt ræðu á
þjóðhátíðardaginn og minntist
á viðsjár heimsstjórnmálanna.
Margt af því, sem borgarstjór
anum hugkvæmdist sjálfum í
þessu sambandi, var greindar-
lega hugsað og prýðilega fram
sett. Hámark ræðu hans var þó
tilvitnun í kvæði Tómasar.
skálds Guðmundssonar, Að Ás-
hildarmýri ,þar sem gerður er
þessi snilldarlegi samanburður
á nazismanum og kommúnism-
anum: „í gær var hún máske
brún þessi böðulshönd, sem
blóðug og rauð í dag sínu vopni
lyftir“. Þannig kemur skáldið
orðum að þeirri skoðun sinni,
að kommúnisminn sé í dag
sama hættan fyrir friðinn og
frelsið í heiminum og nazism-
inn var, þegar Hitler sálugi
stóð á tindi valda sinna.
Höfundur forustugreinar
Morgunblaðsins í gær leggur út
af þessu og er svo kappsfullur,
að hann gerir sig sekan um mál
fræðivillu, sem bendir til þess,
að hann væri mjög vanbúinn
undir gagnfræðapréf. Síðan seg
ir hann orðrétt: „Fyrir áratug
var sú böðulshönd, sem ógnaði
hamingju og öryggi mannkyns-
ins, brún á lit. Þá grúfði skuggi
nazismans yfir þjóðunum . . .
Nú grúfir skuggi ko'Snmúnis-
mans yfir heiminum. Nú er böð
ulshöndin rauð“.
Allt er þetta gullvægur sann
leikur. En Morgunblaðið var
þó ósköp lengi að átta sig á
hættu nazismans, og sömu sögu
var að segja um flesta forustu-
menn Sjálfstæðisflokksins.
Þess vegna taka ýmsir lítið
mark á því, þó að þessir aðilar
þykist nú öllum öðrum skelegg
ari málsvarar lýðræðisins. Verk
in eru miklu öruggari mæli-
kvarði á lýðræðisást manna og
flokka en orðin, þó að góð séu
út af fyrir sig. Það er því at-
hyglisvert að kynna sér stað-
reyndir þeirra að þessu gefna
tilefni.
Gunnar Thoroddsen bar
þýzka nazismanum söguna mjög
á aðra lund í ræðu sinni á þjóð
hátíðardaginn í ár en hann
gerði í tímariti sínu Þjóðinni
fyrir síðari heimsstyrjöldina.
Nú er enginn vandi að sjá
hættu nazismans. Adolf Hitler
er týndur á öskuhaug sögunnar.
En á árunum fyrir styrjöld-
ina reyndi á kappann Gunnar
Thoroddsen. Og hvernig stóðst
hann þá próf afstöðunnar til
nazismans? Hann dáðist að
Þýzkalandi Hítlers ekki máske
alveg eins, en þó á líkan hátt
og kommúnistar vegsama Rúss
land Stalins í dag.
En ekki tekur betra við, ef *
Verð á kjólum hér og bar. — Kona segir sögu
og biður um skýringar. — Fagrir dagar. — Ungu
piltarnir frá Akranesi.
rakinn er ferill Morgunblaðs-
ins. Það krafðist þess hástöfum
fram á stríðsár, að gagnrýni AI
þýðublaðsins á þýzka nazis-
manum væri þögguð niður. Það
Eá ekki einu sinni að sér, þó að
Adolf Hitler hleypti heiminum
í nýtt ófriðarbál. Hjarta þess
sló í takt við framsókn herskára
nazismans í árdögum síðari
heimsstyrjaldar. Koma brezka
herliðsins hingað til lands
breytti ekki einu sinni afstöðu
þess, og hefur þó Morgunblaðið
jafnan mikla tilhneigingu í þá
átt að veita hinum sterkasta að
málum. Fyrst þegar hjól styrj-
aldarinnar tók að snúast banda
mönnum í vil og Bandaríkja-
menn voru komnir til sögunn-
ar, gaf Morgunblaðið nazis-
mann á bátinn. Þá loksins gekk
það úr myrkri einræðishnpigð-
arinnar út í birtu lýðræðishyggj
unnar. En nú lætur Morgun-
blaðið eins og það og flokkur
þess hafi alltaf verið ljóssins
barn!
*
Arnulf Överland hefur kom-
izt þannig að orði, að lofsyrði
norsku afturhaldsblaðanna veki
tiffinningu svipaða þeirri að
vera faðmaður af þjófi. Og satt
að segja blöskrar manni, þegar
skriffinnar Morgunblaðsins og
stjórnmálamenn á borð við
Gunnar Thoroddsen reyna að
teljá þjóðinni trú um, að þeir
séu hinir sönnu og göfugu ridd
arar lýðræðisins og fordæma
brúnu og rauðu böðulshöndina
vandlætingarfullum orðum.
Þeir ættu að láta sér nægja bar
áttuna gegn kommúnismanum
og ekki að minnast á nazismann,
því að það er að nefna snöru í
hengds manns húsi.
Og Morgunblaðsskammir um
kommúnismann hrökkva
skammt til áhrifa, meðan aft-
urhaldið hagar stefnu sinni og
etarfi þannig, að stjórnmálaá-
standið í landinu er heppilegasti
jarðvegur, Sem kommúnistár
geta hugsað sér. Kpmmúnism-
Inn verður ekki sigraður með
orðum fremur en nazisminn,
og þeir, sem iátast vera lýð-
ræðissinnar, ættu að gera sér
far um að sýna í verki að þeir
séu þess verðir, að þeim sé trú-
að fyrir ábyrgð og skyldu.
Gunnar Thoroddsen á eftir að
sanna hæfni sína sem lýðræðis
sinni. Skriffinnar Morgunblaðs
ins hafa heldur ekki gengið
undir það próf. En það verða
þeir að gera, ef msrk skal tek-
ið á tali þeirra og skrifum um
lýðræðið og því trúað, að þeir
hafi upprætt illgresi nazism-
ans úr garði sínum. Baráttan
fyrir sigri -lýðræðisins er ekki
eðeins fólgin í fordæmingu á
einræðinu. Kjarni hennar á að
vera linnulaust starf fyrir betra
og réttlát-ara þjóðfé'agi. Og
þess vegna er lítið lið í Gunn-
ari Thoroddsen og Morgunblað
lnu í baráttunni fyrir sigri lýð
ræðisins.
------,---*---------
Reglur um réttindi
hermanna Atlants-
hafsbandalagsins
I GÆR samþykkti stjórn At-
lantshafsbandalagsins reglur
um réttindi hermanna banda.
lagsins, er hefðu hersetu í öðru
en þeirra eigin landi. Reglu-
gerð þessi hefur ekki verið birt
enn, en Eisenhower, stjórnandi
alls herstyrks bandalagsins,
sagði að reglugerð þessi mark-
aði tímamót í hernaðarsögu
veraldarinnar.
FERÐALANGUR SKRIFAR.
,JÉg tók eftir því, sem þú sagðir
fyrir nokkru í pistli þínum, að í
Danmörku færi verðlag mjög
hækkandi eins og annars stað-
ar í heiminum og að sáralítill
munur væri á verðlagi þar og
hér nema á matvörum, þar væri
verð þeirra lægra en hér, en <
hér væri það jafnvel dýrara en
flest annað.
ÉG HEF LÍKA ferðast undan
farið og ég er þér sammála um
þetta. En á einu vil ég vekja at-
hygli í þessu sambandi. Þeir,
sem fara utan eiga lítinn gjald-
eyri ef þeir reyna ekki að kaupa
sér einhverja flík. Kona, sem ég
þekkti átti tæp fjögur sterlings-
pund þegar hún kom til enskrar
borgar fyrir nokkru. Hún keypti
sér kjól og hann kostaði rúm-
lega þrjú pund. Hún var ánægð
með kaupin, enda var kjólinn
fallegur og efnið .sæmilega gott.
Einn daginn, þegar hún var á
gangi hérna í Miðbænum, sá
hún í búðarglugga kjóla, sem
voru næstum því alveg eins og
kjóllinn, sem hún keypti.
HÚN FÓR inn í búðina og
spurði hvað kjólarnir kostuðu
og fékk það svar að þeir kostuðu
950 krónur. — Hvernig getur
þetta átt sér stað? Þó að pund-
in, sem konan átti hefðu verið
keypt á svörtum markaði, þá
hefðu þau ekki kostað nema 300
krónur. Þó að kaupmaðurinn,
sem seldi kjólana hefði keypt
sinn gjaldeyri á þessu verði og
lagt svo á kjólana 100 prósent
þá hefði það ekki orðið nema
600 krónur. Getur nokkar gefið
viðunandi skýringu á þessu?“
DAGARNIR 17. og 18. júní
voru óvenjulega góðir. Það er
óvenjulegt hér á landi að kvöld
in séu svo hlý og mild setn
mánudagskvöldið. Þá var steikj
andi hiti klukkan 11 um kvöld-
oð svo að þúsundirnar sem voru
á íþróttavellinum gengu um
heitar og rjóðar eins og um miðj
an sólheitan dag væri.
UNGU PILTARNIR frá Akra
n-esi, sem nú draga helzt að sér
athygli í knattspyrnuíþróttinni
koma manni skemmtilega á ó-
vart. Mér hefur alltaf þótt gam
an að horfa á knattspyrnukapp-
leiki, og sjaldan hef ég skemmt
mér eing vel, eins og horfa á
leiki Skagamanna. Þeir hafa
bersýnilega jiotið mjög góðrar
tilsagnar, og engin getur farið
í neinar grafgötur með það, að
allir hafa liðsmennirnir mikið
baráttuþrek og stálharðan vilja
til að sigra.
Tíl síðasta Kínverja
HVERSU OFT hefur ekki Þjóð
viljinn skrifað um skuggaleg-
ar fyrirætlanir ráðamanna í
Bandaríkjunum, að beita öðr-
um þjóðum, þar á meðal okk-
ur, fyrir sig í komandi styrj-
öld, — „láta þær vera í
fremstu víglínu", eins og
Þjóðviljinn hefur orðað það,
og taka á móti kjarnorkuárás
unum (auðsýnilega frá Rúss-
um), meðan Bandaríkjamenn
sjálfir ætli sér að njóta örygg
is á bak við breiða Atlantsála?
Þessi rógur er í seinni tíð að
minnsta kosti farinn að missa
marks; því að síðan Banda-
ríkjamenn tóku á sig hita og
þunga varnarstríðsins í
Kóreu, þar sem miklu fleiri
Bandaríkjamenn hafa látið líf
ið en hermenn allra hinna
sameinuðu þjóðanna til sam-
ans, er ákaflega erfitt að
sannfæra menn um það, að
Bandaríkin ætli að hlífa
sér og fórna öðrum fyrir sig
í nýrri stórstyrjöld, ef til
kemur. Margt fleira mætti
minna á, sem sýnir það, að
Bandaríkjamenn muni hvergi
láta sig vanta í fremstu víg-
línu. En þetta nægir.
EN ÞAÐ ER annað stórveldi í
heiminum í dag, sem með
miklu meira sanni verður sak
að um það, að siga öðrum
þjóðum út í stríð fyrir sig,
en hlífa sjálfu sér á bak við
víglínuna; og það er raun-
ar Rússland, — ríkið, sem
Þjóðviljinn er alltaf að lofa,
samtímis því, að hann sví-
vlirðir og níðir Bandaríkin.
Fyrir tæpu ári sendi það Norð
ur-Kóreumenn út í opinn
dauðann til þess að færa út
kvíar einræðisherrans í
Kreml austur í Asíu; og þeg-
ar svo margir Norður-Kóreu-
menn höfðu látið lífíð fyrir
Rússland á vígvöllum Suður-
Kóreu, að engin von var leng
ur til þess, að þeir fengju lok-
ið því verki, ,sem Rússar
ætluðu þeim, voru Kínverjar
sendir á blóðvöllinn. Hins
vegar koma Rússar sjálfir
hvergi nærri að öðru leyti en
því, að þeir leggja til vopn-
in og gefa fyrirskipanirnar. Á-
samt Norður-Kóreumönnum
eiga Kínverjar framvegis að
leggja til mannslífin. Upp á
þau býti eru Rússar bersýni
lega reiðubúnir ' að halda
Kóreustyrjöldinni iáfram og
að berjast til síðasta Kín-
verja!
NÚ ERU KÍNVERJAR að vísu
margir, svo sem kunnugt er,
og Kóreustyrjöldin getur hald
ið lengi áfram áður en þeir
eru allir. En það er ægi-
leg blóðfórn, sem Kínverjar
eru nú þegar búnir að færa í
Kóreu fyrir hina kaldrifjuðu
valdamenn í Kreml síðan í
nóvember síðastliðið haust, er
kínverskur her var fyrst send
ur inn í landið; og það eru
takmörk fyrir því, hve lengi
jafnvel fjölmennasta þjóð
veraldarinnar, eins og Kín-
verjar, getur haldið áfram
að fylla skörð eins og þau,,
sem höggvin hafa verið í her
þeirra í Kóreu á rúmu hálfu
ári. Herfróðir menn hafa bent
á þá staðreynd, að stöðugt hef
ur verið að draga úr áhlaup-
um Kínverja austur í Kóreu.
Þau voru hörðust fyrst, en
hafa orðið máttlausari, er
fram liðu stundir, þrátt fyrir
algert skeytingarleysi um
mánnfall. Þetta kemur til af
því, segja hinir herfróðu
menn, að Rússar byrjuðu á
því, að senda úrvalslið Kín-
verja á blóðvöllinn og síðan
hefur orðið að grípa til lélegri
og lítt æfðari hermanna til
þess að fylla í skörðin.
EN JAFNVEL þótt lengi sé
hægt að halda því áfram, má
mikið vera, ef sú spurning er
ekki farin að hvarfla að hin-
um kínversku hermönnum,
hvað tefji þátttöku rússneskra
hermanna í þessum leik og
fyrir hvað Kínverjar séu e:g
inlega að berjast þar — og
fórna lífi sínu? Því að víst
munu Kínverjar ekki hafa lát
ið sér detta það í hug, er þeir
fóru inn í Kóreu í fyrra
haust, að Rússar myndu fórna
þeim fyrir sig svo sem nú
er komið á daginn, án þess að
leggja til nokkurt lið sjálfir.
Og þó að Rússar kunni að vera
reiðubúnir til þess að berj-
ast til síðasta Kínverja, þá
er ólíklegt, að Kínverjar sjálf
ir kæri sig um, að halda áfram
slíku stríði fyrir þá, hversu
lengi, sem kann að reynast
hægt að reka þá til þess.
ÞAÐ VERDUR heldur ekki
annað séð nú, en að Akurnes-
ingar muni vinna þetta mót —•
og verður þetta þá í fyrsta skipti
sem utanbæjarlið ber sigur úr
býtum í. þessari hörðu keppni.
Það er gaman að því og getur
orðið til þess að hvetja ungu
Reykvíkingana til að iðka þcssa
íþrótt af enn meiri kostgæfni,
■en mér finnst að knattspyrnan
sé í afturför hjá liðunum í
Reykjavík.
Hannes á horninu.
Sfykklshólms, Flat-
fjarðareyja
TIL STYKKISHÓLMS, Flat-
eyjar og inn um Breiðafjarðar-
eyjar er fyrirhuguð ferð hjá
Breiðfirðingafélaginu um
næstu helgi vestur á Breiða-
fjörð og kvikmyndun fram-
kvæmd ef veður leyfir.
Áætlað er að leggja af stað
úr Reykjavík kl. 13.30 á laug-
ardag n.k. og koma aftur eftir
miðnætti á sunnudag. Á þess-
um tíma er ætlazt til að farið
verði um Stykkishólm, vestur
í Breiðafjarðareyjar með aðal-
viðkomu í Flatey, hinu óvið-
iafnanlega litla landi kyrrðar-
innar og töfrá^hinnar heillandi
náttúru, landsins, þar sem
klukka tímans stóð í hálfa öld,
en vísifingur framvindunnar
og trúarinnar á stórfelldar
framfarir hratt öllu af stað að
nýju. Þarna mætist menning
Framh. á 7. síðu.