Alþýðublaðið - 02.12.1950, Blaðsíða 4
i
ALÞÝÐUBLAÐJÐ
Laugardagur 2. desember 1950
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal; þing-
fréttaritari: Helgi Sæmundsson; auglýs-
ingastjóri: Emilía IKöller. Ritstjórnar-
I símar-: 4901 og 4902. Auglýsingasími
4906. Afgreiðslusími 4900. ASsetur: Al-
þýðuhúsið. ; |»
Arl|yðuprenW?ií|jæ| „ ,
Hreinar línur
ÞEGAR Alþýðuflokkurinn
lýsti yfir því eftir alþingiskosn
ingarnar í fyrrahaust, sem
gengu honum, eins og kunnugt
er, í mót, að hann teldi öðrum
standa það nær en sér, að
standa að stjórnarmyndun,
tóku blöð borgaraflokkanna
þeirri j-firlýsingu með þeirri
gáfulegu fyndni, eða hitt þó
heldur, að Alþýðuflokkurinn
væri ,,ao draga sig út úr stjórn-
málum“ fyrst um sinn, eins og
það var orðað.
Að sjálfsögðu gerði Alþýðu-
flokkurinn ekkert annað en
það, ssm sjálfsagt var í lýðræð-
is- og þingræðislandi, með til-
Hti til þess, sem á undan var
gengið. í>að stjórnarsamstarf,
sem staðið hafði með borgara-
flokkunum og Alþýðuflokkn-
um þrjú undanfarin ár, hafði
verið rofið af Framsóknar-
flokknu’;i, og flokkarnir gengið
til kosninga með mjög ólík
stefnumál í innanlandsmálun-
um. Og í kosningunum hafði
einmitt Framsóknarflokkurinn
unnið mest á, en Alþýðuflokk-
urinn borið skarðastan hlut frá
borði. Það var því ekkert eðli-
legra og sjálfsagðara en að Al-
þýðuflokkurinn skoraðist und-
an því að standa að stjórnar-
myndun, og það því heldur,
sem það var augljós stefna
bsggja borgaraflokkanna að
láta hina nýju stjórn knýja
fram gengislækkun krónunnar,
sem Alþýðuflokkurinn hafði
fyirr kosningarnar lýst sig al-
gerlega andvígan.
Alþýðuflokkurinn hafði því
frýjunarorð og heimskulegar
háðglósur borgarablaðanna,
eins og vænta mátti, að
engu, og lét borgaraflokk-
ana eina um það að mynda
stjórn og taka á sig á-
byrgð þeirra óhappaverka,
sem að var stefnt. Þeir höfðu
líka óneitanlega fengið til
þeirra umboð þjóðarmeirihlut-
ans í kosningunum, þótt ólík-
iegt verði að teljast, að það
hafi verið gefið í fullri vitund
þess, hvað koma myndi.
*
Hið nýafstaðna flokksþing A1
þýðuflokksins lýsti sig einum
rómi samþykkt þessari afstöðu
flokksforustunnar í fyrrahaust.
Og það taldi það alveg rétt, að
flokkurinn skyldi engan þátt
eiga í myndun stjórnar, sem
vitað var, að myndi hafa að að-
alstefnumáli gengislækkun án
nokkurrar tryggingar fyrir því,
að varðveitt yrðu þau kjör, sem
almenningur átti þá við að búa.
Var flokksþingið og einróma
þeirrar skoðunar, að Alþýðu-
flokkurinn hlyti að vera í ein-
beittri málefnalegri andstöðu
við núverandi ríkisstjórn í inn-
anlandsmálunum, þar sem
stefna hennar og starfshættir
sýndu, og það því meir, sem
lengur liði, að hagsmunir al-
mennings eru fyrir borð born-
ir, bæði með hækkandi verðlagi
og vaxandi atvinnuleysi.
: Þessi afstaða hins nýafstaðna
þings Alþýðuflokksins kemur
eins og menn sjá dálítið illa
heim við háðglósur borgarablað
anna um það, að Alþýðuflokk-
urinn sé ,,að draga sig út úr
stjórnmálum“; enda hefur sann
ast að segja ekkert orðið við
það vart undanfarna mánuði, og
eru borgarablöðin sjálf þess ó-
rækust vitni með daglegum
ramaveinum sínum út af skel-
eggri andstöðu flokksinií iCtíð. þá
óheillastefnu, sem samstjórn
borgaraflokkanna ‘ ' hu1 *' íýigir.'
Það er nefnilega sitt hvað, áð
vera í stjórnarandstöðu eða ;,að
draga sig út úr stjórnmálum“,
enda munu blöð borgaraflokk-
anna nú vera farin að gera sér
þéss fulla grein, þrátt fyrir
þvætting sinn síðastliðið haust
og vetur.
*
til stjórnarsamstarfs og sam-
vinnu við aðra flokka.
I þeirri ályktun eru þannig
dregnar hreinar línur milli Al-
þýðuflokksins og annarra
flokka, á báða bóga, —• milli
hans og borgaraflokkanna, og
milli hans og kommúnista.
Aðélfundarstörfum
L.íjj. lokíð
ai>I
AÐ ALFUND ARSTÖRFUIVI
Landssambands ísl. útvegs-
manna var lokið í fyrrakvöld,
en aðalfundinum sjálfum var
frestað þar til í næsta mánuði,
þar sem enn er ekki fyrir
hendi rekstrargrundvöllur fyr-
ÍBtjlylá .Í^UJid .) rí : í- ' ,!•!>: : 1 , .-jÚ;
Hvar er lögreglan? — Geta menn lirotið settar
reglur átölulaus^ ^ilYif1/!!/ áfjáandi? — Bréf og
saga.
Það er svo allt annað mál, að ; ir vélbátaflotann á komandi
Alþýðuflokkurinn getur, eins
og flokksþingið lýsti einnig yf-
ir, vel hugsað sér og átt sam-
starf við hvern þann lýðræðis-
flokk í landinu, sem fsngist til
fylgis við þá stjórnarstefnu,
sem horfir til umbóta og stefnir
að því að vernda og bæta kjör
almennings, halda uppi nægri
atvinnu og tryggja félagslegt
öryggi. En á því eru engar horf-
ur seni stendur, að slík stefna
verði ofan á hjá þeim flokkum,
sem nú fara með stjórn lands-
ins.
Alþýðuflokkurinn verður því
fyrirsjáanlega í stjórnarand-
stöðu fyrst um sinn; en í henni
mun hann, eins og flokksþing-
ið lýsti yfir, leggja ríka áherzlu
á, að hafa sem nánast samstarf
við lýðræðissinnuð samtök
verkalýðsins og launastéttanna,
svo og við samvinnuhreyfing-
una. Við kommúnista á hann
hins vegar enga samleið frekar
en áður, og vill ekkert samstarf
við þá eiga; enda lúta þeir, sem
kunnugt er, erlendu valdboði,
hafa einræði að markmiði og
ofbeldi að starfsaðferð, eins og
að orði er komizt í ályktun
flokksþingsins um afstöðuna
vetrarvertíð. — Stjórnarkjöri
lauk í fyrradag og var formað-
ur landssambandsins kjörinn
Sverrir Júlíusson, varaformað-
ur Loftur Bjarnason, Hafnar- á stjórnendum ökutækjanna.
Lögreglan sýnir þessum kæru-
firði og meðstjórnendur: Kjart
an Thors, Ásgeir G. Stefáns-
son, Sveinn Benediktsson,
Þórður Ólafsson, Ólafur Tr.
Einarsson, Jón Árnason, Akra-
nesi, Jóhann Sigfússon, Vest-
mannaeyj., Finnbogi Guð-
mundsson.
Var stjórnin öll endurkjörin
nema Finnur Jónsson alþingis-
maður, sem skoraðist eindregið
undan endurkjöri.
Varastjórn: Hafsteinn Berg-
þórsson, Jón A. Pétursson, Ól-
afur H. Jónsson, Oddur Helga-
son, Ingvar Vilhjálmsson, Bald
ur Guðmundsson, Jón Halldórs
son, Margeir Jónsson, Kefla-
vík.
í verðlagsráð landssambands
ins voru kjörnir eftirtaldir
menn: Aðalstjórn: Karvel Ög-
mundsson, Valtýr Þorsteins-
son, Ingvar Vilhjálmsson, Geir
Thorsteinsson, Jón Axel Pét-
UMFERÐARLJOSIN urðu til
mikilla bóta þegar þau komu,
en fyrst og fremst til þess að
skipuleggja bifreiðaumferðina á
bættulegum gatnamótum. Til
að byrja með fylgdi almenning-
ur allsæmilega ljósmerkjunum,
en smátt og smátt hefur hann
hætt því, og nú vaða menn oft
inn í umferðina eins og þeir eigi
götuna einir og öll ábyrgð hvíli
iausu lögbrjótum allt of mikla
linkind. Það er sjálfsagt að
begna stjórnendum ökutækja
þegar þeir fara ekki eftir ijós-
unum, en þaff er jafn sjálfsagt
að hegna vegfarendum, sem
ekki fara eftir þeim. Um þetta
efni fékk ég í gær eftirfarandi
bréf frá „Vegfaranda".
VEGFARANDI skrifar: „Um-
ferðarljósin í Rvík eru dásam-
leg fyrir umferðina á þeim fjöl-
förnu gatnamótum, sem þau
hafa verið sett upp. Þyrfti þeim
að fjölga árlega eftir því sem
efni og gjaldeyrir leyfa. Ég
hygg að bifreiðastjórar fari yf-
irleitt eftir ljósamerkjunum,
aema þá með einstaka undan-
tekningum.
EN MÉR VIRÐIST gangandi
fólk velflest ekki hirða hætis-
‘ hót um Ijósamerkin og' ana yfir
ursson. Varamenn: Jón Gísla-!
son, Guðfinnur Einarsson, '•Tr- Einarsson, Skúli Thoraren-
Baldur Guðmundsson, Ólafur sen-
Uppeldisheimili vangœfra barna
SOFFÍA INGVARSDÓTTIR
hefur nú haft frumkvæði um
það, að konurnar þrjár, sem
sæti eiga á alþingi, flytja til-
lögu til þingsályktunar um
uppeldisheimili fyrir vangæf
börn og unglinga. Er tillag-
an á þá lund, að alþingi feli
ríkisstjórninni að hefja þeg-
ar undirbúning að stofnun og
starfrækslu uppeldisheimila
handa vangæfum börnum. í
greinargerö segja þingkon-
urnar þrjár:
, EITT AF nauðsynjamálum
þjóðfélagsins eru ráðstafanir
til hjálpar og viðreisnar börn
um og unglingum, sem óvið-
ráðanleg eru heimilum sín-
um, hafa gerzt brotleg við
landslög eða eru á siðferði-
legum glapstigum. Hið fyrsta
til úrbóta á þessu sviði er
að taka slík börn og ung-
menni úr óhollu umhverfi og
slæmum félagsskap. Fyrr
meir var þrautalendingin að
senda hið misheppnaða ung-
viði á góð sveitaheimili. Mörg
þeirra urðu að nýjum og
betri mönnum í breyttu um-
hverfi við fjölbreytt og þrosk
andi störf.
EN HIN SÍÐARI ÁR eru það
staðreyndir, að ókleift hefur
reynzt að koma nema litlum
hluta þeirra barna og ung-
linga, sem lent hafa á ein-
hvern hátt á glapstigum, í
sveit. Fæst sveitaheimili hafa
nú orðið tök á að bæta við sig
slíkum heimilismönnum né
kæra sig um það ýmissa or-
saka vegna.
AÐ ÞESSU ATHUGUÐU er
sýnt, að brýna nauðsyn ber
til, að komið sé hér upp upp-
eldisheimilum, fleiri eða
færri, þar sem afbrigðileg
börn og unglinga dveljast
undir handleiðslu hæfra
manHa vig nám og nytjastörf
í hollu umhverfi. í lögum um
vernd barna og unglinga 1947
er gert ráð fyrir slíkum stofn
unum. Nefnd, sem mennta-
málaráðherra skipaði árið
1949 til hjálpar og viðreisn-
ar börnum á glapstigum, hef
ur skilað rökstuddu áliti um
bráða nauðsyn á stofnun upp
eldisheimila, bæði fyrir eldri
og yngri drengi og fyrir ung-
lingstúlkur. Enn fremur upp
tökuheimili, þar sem aðstaða
sé til fyrir sérfróða menn að
rannsaka ástand og sálarlíf
vangæfra barna og unglinga.
STOFNUN slíkra heimila,
fleiri eða færri, hefur nokk-
urn kostnað í för með sér, en
sé þeim vol stjórnað og þau
vel í sveit sett, ætti rekstur
•þeirra að meira eða minna
leyti að geta staðið á eigin fót
um. Krefst þetta mál mikils
og góðs undirbúnings, sem
þyrfti að hraða. Að beztu
manna yfirsýn, er hinn
stærsti gróði þjóðfélagsins, ef
takast má með skynsamleg-
um aðgerðum að bjarga
mannsefnum, sem annars
færu forgörðum sökum af-
brota eða siðspillingar .
ÞETTA MÁL er vissulega at-
hyglisvert, og ber að vona, að
konunum þrem auðnist að
vinna fylgi karlanna 49 á al-
þingi og rnálið nái fram að
ganga.______________
Siína Karls, ein af
RauSu bókunum
komin úl
KOMIN ER ÚT ný unglinga-
saga, „Stína Karls“, eftir
Margaret Irvin Simmons, í
þýðingu Freysteins Gunnp.rs-
sonar skólastjóra. Bókin er gef
in út af Bókfellsútgáfunni og
er í bókaflokknum, Rauðu bæk
urnar, sem unnið hafa sér vin
sældir hjá börnum og ungling
um. Er þetta sjötta bókin í þeim
bókaflokki.
götuna á öfug ljós — alveg eins
og áður. Lögreglan horfir á
þetta, og er mér næst að halda
að hún hafi gefizt upp við að
kenna almenningi þessar svo
afar einföldu umferðarreglur.
HVERS VEGNA gerir nú
lögreglan í Reykjavík ekki
gangskör að því að kippa þessu
í lag? T. d. taka vissan tíma á
degi hverjum og líta vel eftir að
enginn brjóti, og sekta misk-
unnarlaust alla hina brotlegu.
En til gamans, en þó í alvöru,
skal hér sögð smásaga:
SÍÐAST LIDIÐ VOR vorum
við tveir í fólksbíl og ókum upp
Pósthússtræti, stöðvuðum bíl-
inn þar sem rautt. ljós gaf: til
kynna að umferð skyldi stöðv-
ast. Grænt ljós kom von bráðar
og ókum við af stað upp strætið
og út í Austurstræti. Kemur þá
jeppabíll á nokkurri ferð. Segi
ég við bílstjórann á okkar bíl að
hann skuli hemla, því ella aki
jeppinn á okkur. Hann hemlar
bílinn á miðri götu, en jeppinn
skýzt áfram vestur eftir Aust-
urstræti með mikilli ferð. M. ö.
o., jeppabíllinn braut umferð-
arreglurnar, ók á rautt ljós
með töluverðum hraða.
BÍLSTJÓRI SÁ, er með mér
var, tjáði mér að hér. væri lög-
reglujeppinn á ferðinni, en’da
sýndist mér lögregluþjónn við
stýrið. Ég vildi nú ekki láta
þetta vera svona óátalið, og
fórum við upp á lögreglustöð og
spurðum hver ætti fyrrnefndan
jeppa. Var okkur tjáð að það
væri jeppi, sem lögreglan hefði.
Sagði ég nú frá broti jeppans,
en þeir góðu menn þar sögðu að
ég skyldi fara á aðra hæð ög
kæra fyrir umferðardómstöln-
um að mér skildist. Ég og bíl-
stjórinn þangað. Jú, þar sátu
menn, sem ég sagði svo sörhu
sögu, en viti menn, þar var ekki
hægt að taka málið fyrir, þar
sem bíll lögreglunnar átti í
hlut, slík mál heyrðu undir
lögreglustjóra. Nú fór að vand-
ast málið. Ég hafði nú cngan
tíma til frekari snúninga og
nennti ekki að eltast við þetta
lengur. En mér finnst þetta afar
skrýtið, broslegt að sumu leyti
og athyglisvert að hinu leytinu.
í FYRRA eða hitt eS fyrra
var fyrirskipað að breyta ljós-
um á bifreiðum þannig, að þáu
lýstu frekar út á vegkantinn.
en ekki beint fram. Margir
hlýddu þessu, en ég sé marga
bíla, sem ekki hafa ennþá
breytt Ijósum. Eitthvað er nú
athugavert við löggæzluna, þeg
ar sumir sleppa við að fram-
kvæma það, sem aðrir gera, og
er þó alveg sjálfsagt öryggis
vegna.“
FINNLANDSVINAFÉLAG-
IÐ SUOMI heldur kvöldfagnað
í Breiðfirðingabúð miðviku-
daginn 6. des. næstkomandi-kl.
8.30 síðdegis. 6. des. er bjóðhá-
tíðardagur Finna. Fengu þeir
sjálfstæði þann dag' 1917. Nán-
ar verður sagt frá þessu hér í
blaðinu á sunnudag.
Fréttatilkynning. •