Alþýðublaðið - 29.07.1951, Qupperneq 4
4
ALÞÝRUBLAÐIÐ
Sumíudágurr 29. júlí 1551'.
Útgefandi: AlþýCuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Auglýsingastjóri: Emilía Möller
Ritstjórnarsími: 4901 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900,
fvri
Háskóla Islands
HINGAÐ TIL LANDS kemur
í þessari viku góður gestur í
boði Háskóla íslands. Það, er
hinn helmskunni danski vís-
indamaður Niels Bohr. Hér mun
hann f’ytja opinberan fyrirlest-
ur í hátíðasal háskólans á föstu-
dagskvöld.
Það ér vel farið, að háskól-
inn skuli hafa boðið þessum
frægasta núlifandi vísindamanni
Norðurlanda hingað heim í því
skyni, að hann kynni ísler.ding
um fræði sín og áhugamál. Niels
Bohr er kunnastur fyrir atóm-
rannsóknir sínar og því ekki
ósennilegt, að hann geri þær
að umræðuefnii. Hann ieggur
mikla áherzlu á, að kjarnorkan
verði notuð í friðsamlegum til-
gangi og að því sé stefnt, að
hún verði mannkyninu til heilla
en ekki ófarnaðar. Gaf hann út
í fyrrasumar opið bréf til sam
einuðu þjóðanna, þar sem hann
ræddi það mál af mikilli hrein
skilni og rökvísi. Sá málflutn
ingur hans vakti athygli um
víða veröld.
Vissulega er það góður siður,
að Háskóli íslands bjóði erlend-
um fræðimönnum hingað heim
í því skyni, að þeir kynni ís-
Iendingum skoðanir sínar og
niðurstöður. Við seigum þess
miklu lakari kost að fylgjast
með í þeim efnum en aðrar þjóð
ir, þó að segja megi, að fiar-
staða landsins sé úr sögunni.
Fámennið er okkur fjötur um
fót, svo og fátæktin, sem af
því leiðir. Bækur um vísinda-
leg efni önnur en norræn fræði
eru fáar gefnar út hér á landi
og af vanefnum. Tímaritin láfa
þessi mál yfirleitt liggja í lág-
inni. Bókaútgáfan á íslandi
bætir því engan veginn úr þess
ari þörf. Auðvitað geta mnrgir
íslendingar lesið um vísinda-
leg efni á erlendum málum, en
þó mun óhætt að fullyrða, að
heimsóknir erlendra fræði-
manna séu mikilsverð kynning,
sem vert sé að leggja áherzlu
á í framtíðinni. Háskóli íslands
er kjörinn til að hafa þá starf-
semi á hendi.
Það er vel farið, að ráða-
menn háskó’ans hafa komið
auga á skyldu stofnunarinnar í
þessu efni. Hitt er annað mál,
að háskólinn þyrfti að rækja
þetta hlutverk af meira kappi
en raun hefur á orðið til þessa.
Honum á að vera það metnaðar
mál að bjóða hingað heim
nokkrum frægum vísindamönn
um og hugsuðum á hverju ári
og velja þá með glöggu tilliti
til viðfangsefna þeirra og áhuga
mála. Vissulega er erfitt fyrir
Ieikmenn að gefa ráðamönnum
háskólans leiðbeiningar um val
slíkra manna. Þó skal bent á
mann, sem hingað ætti að bjóða
fyrr en síðar og fá til að flytja
hér opinberan fyrirlestur. Það
er brezki heimspekingurinn
Bertrand Russell, sem nýlega
hlaut bókmenntaverðlaun Nó-
bels og er frægur um allan hinn
Veifingasðla
er byrjuð á SySri-Brú við
Sogsfossa
Tekið á mótl gestum alla daga
siðmenntaða heim fyrir rit sín.
Samgöngur milli íslands og
Bretlands eru svo greiðar, að
því verður ekki truað, að slíkri
heimsókn Russells yrði ekki við
komið, þó að hann sé orðinn ald
urhniginn maður. Russell hef-
ur verið og er enn víðförull,
og það væri honum líkt að hafa
gaman af að heimsækja ísland.
í þessu sambandi er einnig
ástæða til að vekja máls á því,
hvort háskólinn muni ekki sjá
sér fært að auka þetta verksvið
og bjóða einnig hingað heim
öðru hvoru frægum skáldum og
rithöfundum til að lesa hér upp
úr ritum sínum. Mörgum mun
enn í minni, er norsku þjóð-’
skáldin Nordahl Grieg og Arn-
ulf Overland lásu hér upp úr
ljóðum sínum, Það voru ógleym
anlegar stundir. Væri ekki á-
stæða til að gera meira að slík-
um heimsóknum en raun hefur
enn á orðið? Ekki er hægt að
bera því við, að samgöngurriar
leyfi ekki þau ferðalög, sem hér
um ræðir. ísland er í þjóðbraut,
og útlendingar hafa mikinn hug
á að ferðast hingað. Það mvndi
því ekki standa á þeim, hvorki
fræðimönnum né skáidum og rit
höfundum, að efna til íslands-
ferða. Við getum sjálfum okkur
um kennt, ef þessar heimsóknir
komast ekki í framkvæmd.
Háskóli íslands hefur þegar
látið það mál vel til sín taka að
bjóðahingað erlendum fræði-
mönnum til fyrirlestrahalds, og
hinir opinberu fyrirlestrar á veg
um háskólans eru stórmerkileg
starfsemi, sem almenningi ber
að gefa gaum og notfæra scr.
Slíkt starf er þó því aðeins
hægt að vinna, að áhugi sé fyr-
ir hendi af hálfu þeirra, sem
njóta eiga. Vonandi heldur há-
skólinn áfram að bjóða hingað
erlendum fræðimönnum, og ósk
andi er, að honum takist valið
' oft jafnvel og nú, þegar Niels
Bohr leggur hingað leið sína á
vegum hans. Þess er og að vænta
að ráðamenn háskólans athugi
möguleika á því að fá skáld og
rithöfunda annarra þjóða í heim
sókn hingað til að lesa upp og
kynna íslendingum list sína. En
umfram allt er ástæða til að
leggja áherzlu á það við almenn
ing að veita þessari starfsemi
háskólans athygli og sýna í
verki, að hér sé raunverulega
verio að vinna í þágu hans. Það
yrði í senn áhrifamikil eggjun
og verðskulduð viðurkenning.
------------P----------
dsinda-
menn koma með
Gulffossi á fimmfud.
SJÖTÍU MANNA brezkur
vísindamannaleiðangur er
væntanlegur hingað til Iands
með Gullfossi á fimmtudaginn
og mun leiðangurinn dveljazt
hér til 15. september, en þá fer
hann aftur með Gullfossi.
------------*----------
10 000 smálesia
vöruflufningaskip
frá Ameríku
í GÆRKVÖLDI var væntan
legt til Reykjavíkur 10 þúsund
smálesta vöruflutningaskip frá
Bandaríkjunum, og e-" það með
vörur til varnarliðsins á Kefla
víkurflugvelli. Skip þetta heit
ir Minot Victor.
Eimskipafélag íslands sér
um afgreiðslu skipsins hér og
munu fjölmargir vörubílar
verða leigðir til flutninganr.a
suður á Keflavkurflugvöll. Við
Okkar á milli sagt
■ ■ ■
BJÖRN ÓLAFSSON viðskiptamálaráðherra er þessa dag-
ana að verja héndur sínar með opinberum vottorðum varðandi
rekstur eins af einkafyrirtækjum sínum, Coca-Cola. * * * Hér
á landi þykir það sjálfsagt, að menn verði ráðherrar, sitji í
xáðum og nefndum yfir verzlun og framleiðslu landsmanna, en
haldi áfram að reka einkafyrirtæki og gæta hagsmuna þeirra.'
* * * Þettamundi í nágrannalöndum okkar þykja reginhneyksli,
og þykir þar sjálfsagt, að menn slíti öllum samböndum við
einkafyrirtæki, er þeir taka opinber embætti.
Viðskipti við Tékkóslóvakíu eru því miður að Ieggj-
ast niður vegna þess, hve illa gengur með afgreiðslu á vör-
um þaðan. * * * Hafa Islendingar til dæmis átt um 5 millj-
ónir inni þar um skeið. * * * Nú standa vonir til þess, að
hægt verði að fá bíla fyrir þetta fé, e. t. v. strætisvagna.
VIKUTÍÐÍNDI ráðast á landlækni fyrir að útrýma ekki
lúsinni og segja: „Ef hann hóaði saman læknahjörðinni og skip-
aði svo fyrir, að allir landsmenn væru skikkaðir til böðunar
eins og hundar og sauðfé einu sinni á ári, væri ekki ólíklegt, að
nafn hans mætti lifa um aldir.“ * * * Konur gerðu nýlega sam-
þvkkt um þetta og viljá „útrýma lús með öllu, og yrði íslenzka
þjóðin þá,.öndvegisþjóð í þeim enfum“. * * * Vilmundur getur
því gert sjálfan. sig ódauðlegan og þjóðina heimsfræga fyrir
lúsaleysi! Hvílkt tækifæri!
Málaferli eru nú að hefjast milli bæjarins og rafvirkja
um það, hve mildð beim beri að gera í Bústaðavegshúsuxi-
um og hver eigi að borga það, sem á milli ber, sem nemur
tugum þúsunda. * * * Óupplýst er ennþá, hver á að borga
viðgerðirnar á hinum miklu sprungum, sem kornið hafa
fram í húsunum. * * * Sums staðar þurfti að brjóta niður
heil loft og steypa á nýjan leik.
NÆSTA ÁR verða ólympisku leikarnir aðalverkefni frjáls-
íbróttamanna, en því er hvíslað, að 1953 verði háð landskeppni
við Holland og Belgíu.
SÍLDVEIÐI hefur brugðizt svo við Skotland, að Skotar
hafa selt mikið af tunnum hingað til lands, og þykir hörmung
mikil, sem von er, að þurfa að selja tómar tunnurnar.
MÓTVIRÐSSJÓÐURINN, sem í eru þeir peningar, er
korna imi fyrir sölu á vörum, er Marshall gefur landsmönn-
um, nam, að því er Hagtíðindi skýra frá, 161 907 000 kr. í
Iok maímánaðar. 1
SÁ STAÐUR í landinu, sem vaxið hefur mest að rnann-
fjölda milli 1940 og 1950, er Kópavogur. * * * Þar voru 100
manns 1940, en 1500 í desembermánuði síðastliðnum. * * *
Stjórn þessarar byggðar verður stöðugt meira vandamál, því
að Reykjavík tekur helming útsvaranna.
ÓVÆRÐIN f BLAÐAMANNASTÉTTINNÍ: Gísli Ást-
þórsson er nú hlaupinn frá Morgunblaðinu, en blaðið var
búið að tilkynna, að hann væri eftirmaður ívars. * * * Eyj-
ólfur Eyjólfsson er einnig farinn frá Þjóðviljanum.
EINING bendir á, að íslendingar haldi nú heilagan þriðja
hvem dag í árinu þegar taldir eru saman sunnudgar, lögbundn-
ir helgidagar, hálfu laugardagarnir og 14—18 daga sumarfrí.
* * * Auk þess, segir blaðið, leggjum við embættismenn á hill-
una 65 ára, og þykir blaðinu þetta ríkmannlegt líf, hjá þjóð,
sem nú má líkja við sveitarómaga. * * * Eining segir: Skyldu
ekki sameinuðu þjóðirnar krossa íslendninga fyrir eindæma
rausn í lifnaðarháttum?
losun skipsins munu vinna sjö
vinnuflokkar, en uppskipunin
hefst á mánudagsmorgun.
??Samkomulagsviljinn99 í Kaesong
VONIR STANDA nú aftur til
þess, að takast muni að ná
samkomulagi um vopnahlé í
Kóreu, hvernig svo sem fer
um síðari friðarsamninga. En
í meira en þrjár vikur hafa
fulltrúar kommúnista undan-
farið dregið samkomulag um
vopnahlé á langinn með ýms-
um mannalátum, sem bersýni
Iega voru tilraunir til þess að
breiða yfir ósigur þæirra í
Kóreu. Fyrst huggðust þeir
leika einskonar sigurvegara
og húsbændur á vopnahiés-
ráðstefnunni í Kaesong með
því að hafa þar varðlið og
hindra blaðamenn sameinuðu
þjóðanna í því að koma til
borgarinnar; og er þeir höfðu
orðið að hætta slíkum „æf-
ingum“ vegna yfirlýsts ásetn-
ings Ridgways hershöfðingja
að slíta vopnahlésráðstefn-
unni að öðrum kosti, fundu
þeir upp nýtt „skilyrði" fyrir
vopnahléi, sem átti að sýna,
að það væru þeir, sem settu
kostina; en það „skilyrði" var
á þá leið, að semja yrði um
brottflutning alls erlends her-
liðs úr Kóreu um leið og sam-
ið yrði um vopnahlé!
EFTIR AÐ fulltrúar kommún-
ista höfðu séð sér þann kost
vænstan að hverfa með allt
varnarlið sitt burt úr Kaesong
og hætta að skifta sér af
komu frjálsra blaðamanna
þangað, létu þeir um skeið
digurbarkalega um það, að á
þessu „skilyrði" fyrir vopna-
hléi í Kóreu myndi verða
staðið. Og svo sem til þess
að undirstrika það var fullyrt
bæði í útvarpi frá Moskvu og
Pyongyang, að frá því myndi
„ekki verða hvikað“. En er
fulltrúar kommúnista í Kaes-
ong sáu, að fulltrúar samein-
uðu þjóðanna myndu fljótlega
slíta viðræðunum, ef ekki
yrði fallið frá svo fáránlegu
skilyrði fyrir vopnahléi —
skuldbindingu um brottílutn-
ing hers sameinuðu þjóðanna
úr Kóreu áður en nokkur
trj’gging er fyrir því að varan
Iegur friður fáist í Iandinu!
— kingdu þeir öllum stóru
orðunum, féllu alveg frá
„skilyrðinu11, sem ekki átti að
hvika frá, og samþykktu dag-
skrá fyrir vopnahlésráðstefn-
una, þar sem ekki er gert
ráð fyrir neinum viðræðum,
hvað þá ákvörðunum um brott
flutning erlends herliðs úr
Kóreu fyrr en búið er að
semja um vopnahé, og bá á
nýrri ráðstefnu, sem skipuð
skuli fulltrúum frá stjórnar-
völdum hina stríðandi þjóða
og fyrirsjáanlega myndi ræða
brottflutning herliðsins í sam
bandi við tryggingar fvrir
varanlegum friði í Kóreu.
ÞE’ITA OFAN-Í-ÁT fulltrúa
kommúnista í Kaesong spáir
góðu um það, að samningar
takist, að minnsta kosti um
vopnahlé, í Kóreu; því að það
sýnir, að þeir vilja nú ýmis-
legt til vinna, að fá vopna-
viðskiptum hætt að minnsta
kosti í bili. Þeir virðast með
öðrum orðum, vera búnir að
fá sig fullsadda á tilraunum
sínum til þess „að reka her
sameinuðu þjóðanna í sjóinn“.
Þær tilraunir eru orðnar þeim
dýrar, og þar að auki vonlitl-
ar, nema því aðeins að Rúss-
ar kæmu nú loksins fram úr
fylgsnum sínum og létu sjálf-
ir hendur standa fram úr erm
um í stað þess að heimta nýj-
ar og nýjar blóðfórnir af Norð
ur-Kóreumönnum og Kínverj
um. En til slíkrar liðveizlu
virðast herrarnir í Kreml
hafa litla löngun. Þessvegna
létu þeir, er allt var komið í
óefni í Kóreu, Malik fara í
Framh. á 7. síðu.