Alþýðublaðið - 04.08.1951, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 04.08.1951, Blaðsíða 8
Gerizt áskrifendur að Alþýðublaðinu. I Alþýðublaðið inn á hvert heimili. Ilring- ið í síma 4900 og 4906 Alþýðublaðið fjaugardagur 4. ágúst 1951. Börn og unglingarj Komið og seljið | ALÞÝÐUBLAÐIÐ Allir vilja kaupa Alþýðublaðið Fræðsluráð vill að Ármann Halldórs- son verði fasf- ráðinn námsstjóri Á fundi fræðsluráðs 4. iúlí síðastliðinn var rætt um náms eftirlit í gagnfræðaskólum Reykjavíkur. en það eftirlit hefur Ármann Halldórsson h'aft á hendi frá 1. des. s.l. Lagði hann fram skýrslu um sta'rf sitt. Fræðsluráð telur sýnt. að nauðsynlegt er að starfi bessu vetði haldið áfram og leggur einróma til að Ármann Hall- dórsson verði ráðinn náms- stjóri áfram sem fastráðinn star'fsmaður. Fræðsluráð leggur til við fræðslumálastjóra, að auglýst- ar verði stöður þeirra kennara og skólastjóra við gagnfræða- stigið í Reykjavík, sem hafa ekki verið skipaðir, enda verði þeim tilkynnt bréflega, að þeir þurfi að sækja um starfið, ef þeir óska eftir að halda því á- frám. Háskó (afyr irfestu r Nfels Bohr í gær NIELS BOHR prófessor fiutti fyiirlestur í hátíðarsal háskólans í gærkveldi um kjarn orlcuvísindi og þýðingu þeirra fýrir líf nútíma kynslóðar. Áður en fyrirlesturinn hófst ávarpaði rektor háskólans dr. Alexander* Jóhannesson pró- fessor Bohr og bauð hann vel ko'minn, en snéri máli sínu síðan til áheyranda og kynnti þeim prófessorinn og störf hans. Að loknu erindinu ávaípaði Sigurður Norðdal prófessor Niels Bohr og komst m. a. þannig að orði að það væri von sín að stjórnmála mennirnir ynnu að lausn þeirra vandamála, sem kjarnorkunni fylgdu, af sama hugarfari og vísindamennirnir hefð áður urfhið, að lausn kjarnorkugát- unnar. Séinna um kvöldið hafði svo menntamálaráðherra boð inni fyrir Bohr prófessor og frú hans, kennara og prófessora háskólans og fleiri. Norrænu konurnar kvaddar á Akureyri Einkaskeyti AKUREYRI í gær. NÖRRÆNU KONURNAR létu í haf frá Akureyri klukkan 19 á miðvikudag. Mikill fjöldi bæj arbúa kvaddi þær á bryggj- unni. Jónas Jónsson kennari flutti þeim kveðjuorð, og þakk aði þeim komuna. Fararstjóri þakkaði af skipsfjöl. Kantötu- kór Akureyrar söng þjóð- söngva allra Norðurlandanna að lokum. Hafr, Nýafstaöið þirsg ILO saoiþykkti karla fyrir sömu mm fsland átti „af sparnaÖarástæöum“ eng an fulltrúa á þessu merka þinfifj! HIÐ ÁRLEGA ALLSHERJARÞING ALÞJÓÐAVINNU- MÁLASTOFUNNAR (I. L. O.) var háð í Genf í Sviss í júní- mánuði síðast liðnum. Aðildarríki stofnunarinnar eru nú orðin 64. Fjölgaði þeim um tvö á þessu þingi, sem samþykkti upp- töku Japans og vestur-jþýzka iýðveldisins. Skömmu áður en þingið hófst tók Júgóslavía upp sína fyrri aði’d að stofnuninni, en það ríki hafði ekki tekið þátt í störfum stofnunarinnar í næstum tvö ár og tilkynnt úrsögn sína úr samtökunum. Þing þetta er hið fjölmenn-1 asta, sem stofnunin héfur Haldj ið. Það sátu samtals 603 full- trúar og. áðstoðarfulltrúar . rík- isstjórna, vinnuveitenda og verkamanna frá 60 ríkjum Það voru því aðeins fjögur aðildar- ríki, sem ekki sendu fulltrúa. Eitt þeirra var ísland, sem .,af sparnaðarástæðum sendi eng- an fulltrúa að þessu sinni1', eins og segir í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu um þingið. Á þinginu voru gerðar tvær alþjóðasamþykktir. Onnur þessara samþykkta fjallar um sömu laun tíl karla og kvenna fyrir jafn verðmæt störf og var hún samþykkt með 105 atkvæð- um gegn 33. Hvert það ríki, sem full- gildir þessa samþykkt, skuld 3 dauðaslys og 55 önnur meiriháítar slys vegna umferðar frá áramótum ------*----- Auk þess hafa orðið möré minni hátt< ar meiðsli og um 1000 bílar skemmst. í ÞEIM rúmlega 500 árekstrum, sem orðið hafa frá síð-« ustu áramótum og rannsóknarlögreglan hefur skýrslur um, hafa orðið þrjú dauðaslys og 55 önnur meiriháttar slys. Auk þesS hafa orðið fjölmörg minniháttar slys, þar sem fólk hefur að- eins skrámast og marist, en hefur ekki þurft að leggjast I sjúkrahús af völdum slysanna. ! Paul Ramadier, hinn nýi forseti ILO. Belgíumannsins Léon-Eli Tro- clets, er gegndi því embætti síðast liðið ár. Forseti var nú gjörinn Paul Ramadier, hinn bindur sig með því til þess a8, þekkti franski jafnaðarmanna koma á sem fyllstu samræmi í launagreiðslum milli karta og kvenna og skal beita til þess þeim aðferðum, sem bezt hæfa aðstæðum á hverj- um stað. Þar sem það telst nauðsyn- legt eða hentugt skal koma á óvilhöllu mati á störfum og þeim hæfileikum, sem þarf til þess að leysa störf af hendi. Framkvæmd grundvallar- reglu samþykktarinnar skal tryggja með lögum eða reglu- gerðum, heildarsamningum eða báðum þessum aðferðum sameiginlega.__________ Hin samþykktin, sem þingið gerði, fjallar um ákvörðun lág markslauna við landbúnaðar- störf og var hún samþykkt með 116 atkvæðum gegn 31. Auk þessa samþykkti þíngið fjórar álitsgerðir, tvær til á- réttingar og skýringa á fyrr- nefndum samþykktum og tvær um önnur efni. Samþykkt var fjárhagsáætl- un fyrir stofnunina fyrir árið 1952 og nema áætluð heildar- útgjöld fyrir það rúmlega 6 milljónum doílara. Upphæð þessa greiða aðildarríkin til stofnunarinnar eftir ákveðnum hlutföllum. Hlutur íslands af þessari upphæð nemur 0,12 c{,. Á þessu þingi fór fram stjórn arkosning til næstu þriggja ára. Stjórnin hélt fund að þingi loknu og kaus sér forseta í stað foringi og fyrrverandi forsæt- isráðherra í Frakklandi og verður hann forseti stjórnar- innar næsta ár. Samkvæmt upplýsingum,*' sem blaðið hefur fengið hjá rannsóknarlögreglunni, hafa á- rekstrarnir og slysin orðið af mörgum mismunandi ástæð- um. í 16 tilfellum voru öku- menn t. d. ölvaðir við akstur, í sumum tilfellum var um of hraðan og ógætilegan akstur að ræða, og í einstaka tilfelli voru öryggistæki bifreiðanna ekki í fullkomnu lagi. Eins og getið var um í blað- inu fyrir nokkrum dögum eru það rúmlega 1000 bifreiðar, sem skemmzt hafa í árekstrum frá áramótum, en rannsóknar- lögreglan hefur þegar skýrslur um 500 árekstra, en í sumum þeirra koma fleiri en tveir bíl- ar við sögu. Þá eru 12 tilfelli þar sem bifreiðum hefur verið ekið á hús og grindverk við garða. Nokkrir af bílunum, sem komnir eru á skrá hjá lögregl- unni, hafa lent 4—5 sinnum í árekstri á þessu ári, og enn aðr ir 2 sinnum, en langflestir hafa þó ekki lent í óhappi nema einu sinni. Gott veiðiveður og sæmileg síldveiði á ausfursvæðinu ------•----- Raufarhafnarverksmiðjan hefir nú tek ið á móti samtals um 100.000 málum. AÐ ÞVÍ ER FRÉTTIST FRÁ RAUFARHÖFN í gærkveldi höfðu nokkur skip fengið allgóða veiði. Síldarflotinn hélt sig mestmegnis austan við Langanes og við Digranes. í gærkveldi var gott veiði veður og kyrrt og voru allar skipshafnir í bátum. Raufarhafnarverksmi’ðjan var í gær búin að taka á móti 100.000 mái’um og eru þrær hennar að fyllast, því verksmiðjan bræðir ekki nema 5000 mál á sólarhring eða því sem svarar fullfermi úr fimm skipum. Síldartorfurnar voru allstór- ar og fengu nokkur skip mjög góð köst eða allt að 900 mál- um. Þau skip, sem voru aust- ast á miðunum, fóru með fram sinn til Seyðisfjarðar, en þar hófst bræðsla á síld á fimmtu- dag. Einnig fóru nokkur skip með síld til Vopnafjarðar og Bakkafjarðar þar sem söltun er nú hafin. Mikil rauðáta er nú í sjónum fyrir Norðurlandi og hefur átu magn í síldinni tvöfaldazt á nokkrum dögum, og þykir þnð góðs viti. Aftur á móti óttast menn göngu síldarinnar suður á bóginn með austurlandinu, ef svo færi að hún hóldi þaðan austur í haf. Síldin mun hafa veiðzt syðst við Bjarnarey sunnan Vopnafjarðar. ----------«---------- í REYKJAVÍK var 17 stiga hiti í gærdag, og álíka hiti var á ýmsum stöðum hér sunnan- lands í Keflavík var 18 stiga hiti en norður á Akureyri 14 120 útlendingar koma með Heklu í SUMAR HAFA KOMIÐ fleiri erlendir ferðamenn til íslands með Heklu, en nokkm sinni fyrr. Erlendir farþegar í ferðum þessum hafa venjulega verið um 80, en með Heklu, sem er væntanleg til Reykja- víkur á miðvikudaginn kemur er 120 manna hópur, og er það fjölmennasta erlendi ferða- manna hópur sem hingað hefur komið með Heklu rr Þorsfeinn Ingólfs- son" kominn úr fveggja mán- aða útivisf i TOGARINN Þorsteinn Ing- ólfsson kom til Reykjavíkur í fyrrakvöld eftir tveggja mán- aða útivist. Þorsteinn fór á veiðar í Norður-íshafi 8. júnf síðastliðinn. Tók hann salt og olíu í Hammersfest í Noregi og hélt veiðunum áfram unz hann hafði fengið fullfermi, en þá sigldi hann beint af miðunum til Esbjerg í Danmörku og seldi saltfiskinn þar beint upp úr skipi, en Danir munu síðant selja þennan farm til Ítalíu, Afli Þorsteins Ingólfssopar* mun hafa verið um 230 lestir auk fiskimjöls og lýsis. Tveir aðrir bæjartogarar, þeir Jón Baldvinsson og Pétur Halldórsson, hafa einnig verið á fjarlægum miðum að undan- förnu, Pétur Halldórsson við Grænland og Jón Baldvinsson við Bjarnareyjar, og mun ef til vill vera í ráði, að þeir sigli einnig með afla sinn til Es- bjerg, eins og Þorsteinn Ing- ólfsson. -----------♦----------- Jörundur landar enn Einkaskeyti AKUREYRI í gær TOGARINN JÖRUNDUR landar í Krossanesi í dag um 3000 málum síldar, og er þetta önnur síldarlöndun hans. Síðustu daga hafa þessir bát ar landað í KroSsanesi: Kristján 263 málum og Snæfell 137.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.