Alþýðublaðið - 29.09.1951, Síða 1
w Veðurúííst?
Austan og suðausian gola,
skúraleiðingar síðdegis.
Forustugreiní |
Norræn samvinna.
XXXII. árgangur.
Laugardagur 30. sept. 1951
221. tbl.
B r
ÍiL í
Útvarpsrœða viSskiptamálaráðherrans:
ra á að halda áfram!
Heildsalinn í viðskiptamálaráð-
herrastól telur álagningu ,hóflega'
ngja
■ r <1*1
icö?r
Ummæli fru Bodil Begtrup sendi-
tierra í tilefni af norræna deginum.
----—:--------
í TILEFNI AF NORPiÆNA DEGINUM í dag sneri Al-
þýðublaðið sér til sendiherra Dana á íslandi, frú Bodil
Begtrup, og bað hana um að láta því í té nokkur orð um
það starf, sem dagurinn er helgaður. Varð frúin góðfús-
lega við þeirri beiðni og fara orð hennar hér á eítir:
„Órjúfandi bönd, snú- '
in úi' þúsund þráðum,
tengja hinar norrænu
þjóðir. Persónulega og
menningarlega, stjórn-
málalega og fjárhagslega
eru þær hver annarri ná-
komnar, og nú í dag vinn
ur Norræna félagið glæsi
legt og markvíst starf til
grundvallar raunhæfum
skilningi og náinni sam-
vinnu á mörgum sviðum.
Norræna félagið hefur
sett sér raunhæft mark-
mið, og það er mér ein-
stök ánægja að fly.tja því
kveðjur og árnaðaróskir fjTrir hönd dönsku þjóðarinn-
ar á þessum merkisdegi, því að það er trú mín, að
einmitt Norræna félagið leggi mikilsverðan skerf til þeirr-
ar viðleitni að tengja þjóðir vorar nánum vináttuböndum.
Og það er einlæg ósk mín, að það megi sem bezt takast.“
J
Bodil Begtrup.
Framdi fáheyrt brot á velsæmlsskyldu
og hlufleysisskyldu ríkisútvarpsins
------
BJÖRN ÓLAFSSON viðskiptamálaráðherra
gerði í útvarpsræðu í gærkveldi skýrslu verðgæzlu-
stjóra um verzlunarokrið, síðan verðlagseftirlitið var
afnumið, að umtalsefni og virtist litlar áhyggjur hafa
út af henni. Taldi hann skýrsluna sýna, að verzlunar-
•álagningin væri „yfirleitt hófleg“ nema helzt á svo-
kölluðum bátavörum. Dæmin um óhóflega álagningu
væru tiltölulega fá og „engin sönnun þess, að ráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar hefðu verið rangar, heldur
þvert á móti um hitt, að verðlagið leiti nú til jafnvæg-
is“. Því verði, sagði hann, hið frjálsa verðlag látið
haldast, fyrst um sinn að minnsta kosti.
Norrænn dagur haldinn hátíð-
Eegur í dag um öll Norðurlönd
------o------
Hans er hvarvetna minnzt með sér-
stakri útvarpsdagskrá, helgaðri honum
NORRÆNN DAGUR er haldinn hátíðlegur á öllum Norð-
urlöndum í dag; og er hans fyrst og fremst minnzt með sér-
stakri útvarpsdagskrá. Flytja forsætisráðherrar Norðurlanda
allir ávörp í þeirri dagskrá, en að öðru leyti annast norrænu
félögin hana hvert í sínu landi.
Hér á landi byrjar útvarps-
dagskráin, sem helguð er hin-
um norræna degi, kl. 20,?0 og
flytja forsætisráðherrarnir
fyrst ávörp sín í þessari röð:
Steingrímur Steinþórsson (ís-
land), Erik Eriksen (Danmörk),
Uno Hekkonen (Finnland),
Einar Gerhardsen (Noregur)
og Tage Erlander (Svíþjóð).
Þá flytur Stefán Jóh. Stef-
ánsson alþingismaður, formað-
jir norræna félagsinsj ræðu,
Eva Berge óperusöngkona syng
ur, Lárus Pálsson leikari les
upp kvæði, Kristmann Guð-
mundsson rithöfundur flytur
frásöguþátt, Til selja í Harð-
angri, og að endingu flvtur
Guðlaugur Rósinkranz þjóð-
leikhússtjóri, ritari norræna fé
lagsins, nokkur kveðjuorð.
Á milli hinna einstöku dag-
skrárliða verður norræn tón-
list flutt af grammófónplöt-
um. '
Öll var útvarpsræða Björns
Ólafssonar viðskiptamálaráð-
herra einhliða málflutningur
og áróður fyrir ríkisstjórnina
og ráðstafanir hennar í verzl-
unarmálunum, og
gerði hann sig sekan um fá-
heyrt brot á hlutleysisskyldu
og velsæmisskyldu útvarps-
ins. Munu þess engin dæmi,
að nokkur ráðherra hafi áð-
ur misnotað svo herfilega
aðstöðu sína til þess að flytja
mál sitt í ríkisútvarpinu.
Viðskiptamálaráðherrann
skirrðist þess jafnvel ekki
að ráðast í útvarpsræðunni
á Jón Sigurðsson, fulltrúa
Aíþýðusambands íslands í
verðgæzlunefnd og formann
þeirrar nefndar, sem vitan-
lega liafði ekkert Tækifæri
til þess að bera þar hönd fyr
ir höfuð sér á sama vett-
vangi. Brá hann Jóni Sig-
urðssyni um „trúnaðarbrot11.
þar eð hann hefði látið flokks
blaði sínu, Altþýðublaðinu,
skýrslu verðgæzlustjóra í té
„til pólitískt áróðurs", eins og
hann orðaði það. En á hitt
minntist hann auðvitað ekki,
að neitt trúnaðarbrot hefði
verið framið, þó að eitt af
stjórnarblöðunum, Tíminn,
teldi sér heimilt að birta út-
drátt úr skýrslu verðgæzlu-
stjóra alveg jafnsnemma og
Alþýðublaðið.
Verður ekki séð, hvernig rík
Framhald á 7. síðu.
Hefndarráðstöfun
heildsalaráð-
herrans
Barmar að veita
verðgæzlunefnd
upplýsingar!
JÓN SIGURÐSSON, for-
maður verðgæzlunefndar,
hefur tjáð Alþýðublaðinu,
að verðgæzlustjóri hafi til-
kynnt honum bann Björns
. Ólafssonar viðskiptamála-
ráðherra við því, áð verð-
gæzlunefnd fái framvegis
nokkrar upplýsingar frá
skrifstofu verðgæzlustjóra
um verðlagsmál!
Er þetta bersýnilega
hefndarráðstöfun heildsala-
ráðherrans, sprottin af því,
að Jón Sigurðsson lét Al-
þýðublaðinu í té skýrslurn-
ar um verzlunarokrið til
birtingar almenningi, eftir
að ráðherrann hafði dögum
saman legið á þeim og gerl
allt, sem hann gat til þess
að hindra birtingu þeirra.
Fundur boðaður í öryggisráð-
inu um olíudeiluna í Iran
REUTERSFREGN frá New York í gærkveldi hermir, að
öllum fulltrúum í öryggisráði sameinuðu þjóðanna hafi verið
tilkynnt, að þeir' skyldu vera við því búnir að mæta fyrirvara-
lítið á fundi í ráðinu til þess að ræða olíudeiluna milli fran og
Bretlands. Talið var í gærkveldi, að viðræður færu nú fram
milli Bretlands og Bandaríkjanna um það, hvernig olíudeilan
skyldi lögð fyrir öryggisráðið.
Brezka stjórnin hélt í gær*-----------------———----------•
nýjan fund um þaö, hvernig
snúast skyldi við síðasta til-
tæki íranstjórnar, hernámi
olíuhreinsunarstöðvarinnar í
Abadan og brottrekstri síð-
ustu brezku olíusérfræðing-
anna þar úr landi. Var búizt
við yfirlýsingu brezku stjórn-
arinar seint í gævkveldi varð-
andi hin nýju viðhorf í þessu
alvarlega máli.
Framhald á 7. síðu.
Uppreisn gegn Peron
í Argeniínti í gær!
Leysist deila lyfsala og sjúkra
samlagsins fyrir mánaðamóf?
VERIÐ MUN ENN að
reyna að ná samkomulagi í
deilunni milli lyfsala og
sjúkrasamlagsins út af aug-
lýsingu lyfsalanna um fulla
greiðslu samlagsmeðlima á
lyfjum í lyfjabúðunum.
Eins og Alþýðublaðið
skýrði frá í gær átti sjúkra-
samlagsstjórnin langar við-
ræður við lyfsalana á
fimmtudaginn, en ekkert
samkomulag náðist þá í deil
unni.
Hins vegar mun nú á-
Framhald á 7. síðu.
UTVARPIÐ í Buenos Aires,
höfuðborg Argentínu, skýrði
frá því í gær, að þar hefði í
gærmorgun verið gerð úpp-
reisn gegn stjórn Perons, eú
hún verið bæld niður er fram
á daginn kom.
Engar fregnir bárust af þess
ari uppreisn aðrar en þær, sem
útvarp Perons einræðisherra
flutti, en samkvæmt þeim á
Peron að hafa skýrt svo frá í
ræðu af svölurn forsetahallar
innar í Buenos Aires í gær-
kveldi, að reynt hefði verið að
myrða hann, er hann ætlaði
inn í einhverjar herbúðir og
uppreisnin, sem stjórnað hefði
verið af tveimur uppgjafaher-
foringjum, átt upprók sín þar.
Peron lýsti yfir því í ræð-
unni, að uppreisnin hefði þeg-
Framhald á 7. síðu. •