Alþýðublaðið - 14.10.1951, Qupperneq 1
Veðurútlít?
Hvass suðvestan og skúrir.
XXXII. árgangur.
Sunnudagur 14. okíóber 1951.
234. tbl.
Forustugrein: 1
Menningarlegt Iandkynn- '
i.igarstrrf. ]
iS ísSar
Sijá friálslyndum
WINSTON CHUIÍCHILL
befur stigið skref, sem er
einsdæmi í brezkri stjórn-
málasögu. Hann befur boð-
izt t:I a"ð styoia í kosninga-
baráttunni ei-nri af kunn-
ustu frambjóðenStíum friáls-
Ivnda flokksins, lafði Volet
Bo'diam Ca-rter.
Flokksfélag friálslvndra i
kjördæmi lafði V olets hef-
nr samhvkkt í tii’M hlióði
að taka boði ChurchiHs um
að tála á oninberum kjós-
endaHmdi 15. uktóber, í-
lialdsflokkurmn býður ekki
frari í kjör.'æmimi 02 hvet
kjÓMendur sína til að
greiða lafði Vjolet atkvæði.
Hún jiykir hafa miklar sig-
urvonir, en á þó við hættu-
legan kepninaut að etja, þar
sem er núverandi iað-
ur kjördæmisins, jafnaðar-
Tiáðurinri Glenvil Fall.
Tillaga Breia ótæk
að dómi Persa
FRÉTT frá New York í gær
liermdi, að varaforsætisráð-
herra Persa hefði í blaðaviðtali
lýst yfir því, að hin nýja álykt
unartillaga Breta í olíudeil-
unni væri algerlega ótæli að
dómi persnesku stjórnarinnar.
Sagði varaforsætisráðherr-
ann, að í tillögu þessari væri
lögð áherzla á að viðurkenna
úrskurðarheimild alþjóða dóm
stólsins í Haag í olíudeilunni,
en á það gætu Persar ekki fall
izt. Hins vegar væru þeir fúsir
að semja um lausn olíudeilunn
ar á þeim grundvelli, að þjóð-
nýtingarlögin væru viður-
kennd af hálfu Breta.
Orðrómur í New York og
Washington heldur því fram,
að Bandaríkjamenn muni
styðja hina nýju ályktunarti.1-
Lögu Breta á fundi öryggisráðs
ins.á morgun.
Mikll sókn á miðvíg-
slöðvunum í Kóreu
HERSVEITIR sameimiðu
þjóðanna hófu í gær mikla
sókn á miðvígstöðvunum í
Kóreu og varð vel ágefgt.
Sóttu þær fra'm á einum stað
tvo kílómetra og náðu á vald
sitt hæðadrögumr se.m barizt
hefur verið um síðustu þrjár
vikur.
Mótspyrna af hálfu korrfn-
únista var lítil, nema hvað kín
verskar hersveitir reyndu að
gera gagnárás á einum stað, en
íieyddust til að hörfa til baka.
a upp samninpm
Samþykkt með
Sigurður Nordal prófessor, hinn nýi sendiherra. — Myndin
var tekin á heimili hans í Reykjavík.
Nordal prófessor
TILKYNNT VAR opinberlega í gær, að forseti fslands
hei'ði 12. þ. m., þ .e. á föstudaginn, skipað dr. Sigurð Nordal
prófessor sendiherra íslands í Kaupmannahöfn.
Samtímis var tilkynnt, að Bjar-ni Ásgeirsson, sendiherra
íslands í Os'o, hefði nú einnig verið skipaður sendiherra ís-
lands í Póllandi, í stað Péturs Benediktssonar, sem leystur
hefur verið frá því embætti.
Vesfurveldin bjóða Egyptum
að stofna varnarbandalag
■ ■ ..— ----- '
Það á að vera með Iíku sniði oi varnar-
samtök Atlantshafsríkjanna.
•-----—♦-------
EGYPZKU STJÓRNINNI hefur af Bretum, Bandaríkja-
mönnum, Frökkum og Tyrkjum verið boðíð bandalag um varn-
ir ríkjanna fyrir botni Miðjarðarliafsins, og á það að koma i
staðinn fyrir samning Egypta vi'ð Breta frá 1936 um varnir
Súezskurðarins. Er lagt til, að bandalag þetta verði með líku
sniði og varnarsamtök Bandaríkjanna og lýðræðisrikjanna í
Vestur-Evrópu — Atlantshafsbandalagið.
Sagði fyrirlesari brezka út-1 ypzka þinginu á morgun,
varpsins í gær, að Egyptar
myndu fá sérstaka aðstöðu, ef
af stofnun þessa bandalags
yrði, þar á meðal yfirstjórn
varna Súezskurðarins. Hins
vegar myndi vö.'"i hans að ein-
hverju leyti koma til með að
heyra undir væntanlega vfir-
herstjórn bandalagsins.
Brezka stjórnin lýsti vfir
því í gær, að henni væri ljóst,
að Egyptar hefðu mikilla hags
muna að gæta í sambandi við
Súdan, en hins vegar gæti hún
ekki fallizt á einhliða ivnLok-
un landsins eins og vekti fvrir
egypzku stjórninni. Stefna
Breta sé ófrávíkanV ga sú, að
Súdanbúar ákveði sjálfir
stjórnarfar sitt í framtíðínni.
Frumvarpið um uppsögn
samningsins við Breta f/á 1936
og innlimun Súdan yerður bor
jð upp til staðfestingar í eg-
mánudag.
meirihluta
Tólf slunda hvíld
á öllum velðum
ein aðalkrafan!
TOGARASJÓMENN
hafa samþykkt með yfir-
gnæfandi meirihluta at-
kvæða >að segja upp gild-
andi s'amningum við tog-
araeigendur, en þeir voru
gerðir eftir togaraverk-
fallið í fyrrahaust, og eru
uppsegjanlegir með mán-
aðarfyrirvara 15. hvers
mánaðar frá og með 15.
aktóber.
Úrslit atkvæðagrei'ðslunnar
um uppsögn samninganna, sem
fór fram bæði á skipunum og
í skrifstofum sjómannafélag-
anna, urðu þau í Reykjavík,
að 204 greiddu atkvæði með
uppsögn, 17 á móti, en 6 skil-
úðu auðum seðlum. í Hafnar-
firðl greiddu 45 atkvæði með
uppsögn, "en aðeins 3 á móti.
Vitað var í gærkvöldi, að upp-
sögn samninganna á Siglufir'ði
hefði verið samþykkt með yf-
irgnæfandi meirihluta at-
kvæða, en atkvæðatölur höfðu
þá enn ekki borizt þa’ðan.
Á Akureyri er atkvæða-
greiðslunni ekkv lokið fyrr en
í kvöld. Frá öðrum stöðum
hafa fréttir enn ekki borizt.
Það fer ekki léynt, að kraf-
an um tólf stunda hvíld á tog-
urunum á öllum veiðum muni
verða ein aðalkrafa togarasjó-
manna, er til nýrra samninga
kemur. En vafalaust munu þeir
Framhaid á 7. síðu.
Horfur á geigvænlegu af-
vinnuleysi víSa úti um land
ATVINNUHORFUR al-
mennings eru yfirleitt slæm-
ar víða úti um land, einkum
norðan lands og vestan, sam
kvæmt upplýsingum frá Jóni
Sigurðssyni, framkvæmda-
stjóra Alþýðusárnbandsins.
Sums staðar er þegar komið
geigvænlegt atvinnuleysi,
þótt liaustvinnu sé ekki lok-
ið enn, og stappar nærri al-
gerri neyð á stöku stað.
Atvinnuskorturinn á Yest
Rássar ætia aö
lengfa mannsæv-
ina uppí 150 ár
LUNDÚNAFRÉTTIR
skýra frá því samkvæmt
ummælum Mo-kvuútvarps-
ins, að rússnesk'r vísitida-
menn hafi nú með höndum
það viðfangsefni að lengja
mannsævina upw í 150 ár.
Hefur Moskvuútvarpið
látið svo urn mælt, að rúss-
neskum vísindamönnum
muni takast að leysa þenn-
an vanda á skömmum tíma,
en það sé Stalin að þaklta og
stjórn hans á rússnesku
þjóðinni, því að liún tryggi
fólkinu vinnu, hvíld, mennt-
un og ellilaun, cnda batni
liagur almennmgs í Rúss-
landi ár frá ári!
Landvarnamála-
ráðherra Egypla
staddur í Svíþjóð
LANDVARNAMALARAÐ-
HERRA Egypta er isú staddur
í Svíþjóð, og hefur hann h«Vm-’
sótt vopnaverksmiðjur þar í
landi og kynnt sér framleiðslu-
vörur þeirra.
Átti egypzki landvarnamála
ráðherrann í gær viðræðu við
Torsten Nilsson, hinn nýja
landvarnamálaráðherra Svía.
fjörðum stafar mest af því,
að lítið sem ekkert hefur
aflast þar á bátum, sem þar
eru gerðir út, enda bátamið-
in skafin af togurunum inn
undir firði. Horfir þar til
mikilia vandræða af þeim
sökum.
Væntanlegar eru skýrslur
um atvinnuástandið, sem
verkalýðsfélögin láta gera
og sendar verða Alþýðusam
bandinu.
Nýlízku vopn
bráðlega reynd
hjá La Vegas
STOKKHÓLMSFRÉTT í
gær skýrir frá því, að íbú-
unum í borginni La Vegas
í Nevada í Bandaríkjunuin
hafi nú fyrir skömmu bor-
izt tilkynning frá yfirvöld-
unum, þar sem þeim er sagt
að vera við því búnir, að
bráðlega verði þar í ná-
grenninu reynd nýtízku
vopn, sem séu mjög rnikil-
væg.
Kabarellsýningar
sjómannadags-
ráðs halda áfram
SAMKOMULAG hefur
náðzt um það, að ‘ýningar á
kabaretti sjómannadagsráðs
haldi áfram fram eftir þessari
viku.
Aðsókn hefur verið geysi-
mikil, og er ekkert iát á henni
enn.