Alþýðublaðið - 14.10.1951, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 14.10.1951, Blaðsíða 8
Gerizt áskrifendur , að AIJ>ýðubIa<5inu. j Alþýðublaðið iim á hvert heimili. Hring- j ið í síma 4900 og 4906 Aíþýðublaðið Börn og unglingar Komið og seljið ' ALÞÝÐUBLAÐIÐ Allir vilja kaupa Alþýðublaðið Jens Otto Krag affisr á förum heim fil Danmerkur KAUPMANNAHAFNAK. ÍBLAÐIÐ „Informaíion“ skýr- ir frá því, að Jens Otto Krag, fyrrvcrandi verzlunarmálaráð- herra Dana, sem nv'i er efna- hagslegur ráðunautur danska sendiráðsins í Washington, láti. af því starfi um næstu áramót og hverfi aftur heim. Krag var endurkosinn þing- maður í Randers á Jótlandi í síðustu kosningum, enda þótt hann hefði þá flutzt vestur um haf, en varamaður hans hefur Leikfélag Reykjavíkur er nú gamanleikn- gegnt þingmannsstörfum hans j um >>Elsku Ruth“, er sýndur var í allan fyrra vetur við fádæma undanfarið. Mun Krag taka ! aðsókn. Fyrsta sýnipg er í dag kl. 3 í fðnó. — Á myndinni eru: sseti sitt á þing strax og hann , Þorsteinn Ö. Stephensen, Vilh. Norðfjörð og Anna Guðmundsd. hverfur heim Borgarablöðin í Danmörku1 tcldu á sínum tíma, að Krag myndi e’ga að verða utanríkis máiaráðherra í næstu stjórn j danska Alþýðuflokksins og' hefði flutzt til Washington með það fyrir augum að búa sig undir slíkt embætti. Hermaður dæmdur í 3 mán. varðhald, annar í 800 kr. sekl Heðlimasöfnun í jöklarannsókna- félagið Dæmdir fyrir ryskingar og að beita hnífi, — nokkrir íslendingar sektaðir. —..... DÓMUR er fallinn í sakadómi Reykjavíkur í málunum, sem risu út af ryskingunum, sem urðu í sumar milli íslenzkra manna og hermanna í Adlonbar og Tjarnarcafé. Var einn her- maður dæmdur í þriggja mánaða varðhald, annar í 800 króna sekt og einn íslendingur í 500 króna sekt. EINS og áður hefur verið getið, hefur Jöklarannsóknafé- lagið efnt til meðilmasöfnunar í þeim tilgangi að afla fjár til þess að kaupa snjóbíla, er því standa nú til bfða. Þeir, sem gerast meðlimir í félaginu, þurfa að greiða 100 krónur við inngöngu, en árgjaldið er 25 krónur eftir það. Nýir félagar geta skrifað sig á lista í afgreiðslu Alþýðu- blaðsins. Forsetinn fór utan með Gullfossi FORSETI ÍSLANDS, herra Sveinn Björnsson, tók sér fari með e/s Gullfossi til Englands í dag. Fer forsetinn utan sér til heilsubótar að ráði lækna sinna. Aðkomupreslar prédika í öll- um kirkjum bæjarins í dag ...•*---- HINN ALMENNI kirkju- fundur hefst í dag með guðs- þjónustu í dómkirkjunni kl. 11, dr. Kristian Shelderup, biskup frá Noregi, prédikar. Síðan verður fundurinn sett ur í dómkirkjunni kl. 2. Að fundarsetningu lokinni syngur dómkirkjukórin með undirleik Sigurðar ísólfssonar. Kl. 5 prédika aðkomuprest- ar í öllum lsirkjum bæjarins, svo og í þjóðkirkjunni í Hafn- arfirði. Kl. 8,30 verða tvö erindi flutt í Hallgrímskirkju: cand. theol. Helgi Tryggvason kenn ari talar um uppeldismál, en séra Sigurður Pálsson í Hraun gerði um tíðasöng. Á morgun verður fundinum fram haldið í húsi KFUM og hefst kl. 9,30 með morgunbæn um, en ld. 10 verður tekið fyr- ir aðalmál fundarins: Presta- kallaskipunin. Málshefjendur: Gunnar Thorodd|pn borgar- stjóri og séra Sveinbjörn Högnason. Kl. 2 verða fram- haldsumræður um málið, en síðar um daginn minnir séra Sigurbjörn Einarsson prófessor á endurreisn Skálholtsstaðar, og séra Sigurbjörn Á. Gíslason segir frá för sinni til Gyðinga- lands. — Um kvöldið kl. 8,30 flytur Schelderup biskup er- indi í dómkirkjunni: Einstak- lingar, söfnuður og kirkjan. Fundinum lýkur á þriðjudags kvöld. Allir eru velkomnir á fundinn, meðan húsrúm leyf- ir, en prestar, sóknarnefndir, safnaðarfulltrúar og starfs- menn safnaða, svo og fulltrúar frá kristilegum félögum hafa atkvæðisrétt. Annar þessara atburða gerð- ist að Adlonbar 30. júní. Reis þar nokkur misklíð og rysking ar milli eins hermanns og nokkurra íslendinga. Tók her- maðurinn upp hníf, en beitti honum ekki. Hann var enn fremur ölvaður. Hlaut hennað urinn 800 kr. sekt,' einn ís- lendingur 500 kr. sekt fyrir sinn þátt í óeirðunum og fjór- ir aðrir 75 kr. sekt fyrir að neyta áfengis á veitingastað. Síðari atburðurinn gerðist 2. ágúst að Tjarnarcafé. Sannað- ist, að hermaður hefði beitt hnífi í ryskingunum og skemmt föt eins íslendings og rispaði hann. Var þessi hermaður dæmdur í þriggja mánaða varð hald og greiðslu sakarkostnað ar. Þór aihentur á fösiudaginn Einkaskeyti til Alþýðublaðsins. KAUPMANNAHÖFN í gær. HIÐ NÝJA VARÐSKIP ÍS- LENDNGA, þór, var afhent ís- lendingum í gær. Það er 206 feta langt, gengur 18 mílur á klukkustund og er búið þremur fallbyssum. — Reysluförina fór þar á Lima- firði, og fóru með því Eiríkur Kristófersson skipherra og full- trúar íslenzka ríkisins. Áhöfn skipsins kemur flugleiðis frá Islandi í dag til Álaborgar HJULEfí r Hörður Ágústsson opnar málverka- sýningu í' Listamannaskálanum ----------------*------- Yfir hundrað málverk eru á sýningunni, oll maluo i Paris sioast Iiöin tvo ar. -----------------*.----- HÖRÐUR ÁGÚSTSSON listmálari opnar málverkasýningu í Listamannaskálanum í dag kl. 2. Á sýningunni vevða 64 o íu- málverk og álíka margar teikningar, — allt nýjar myndir, sem IIöi'Aur hefur málað í París undanfarin tvö ár. Sýningin verður opin aðeins í 11 daga, en að sýningunni lokinni hyggst lista- maðurinn að fara aftur til Parísar, þar sem hann mun dveljast í vetur. Blaðamenn áttu í gær viðtal við Hörð Ágústsson og sagði hann að þetta væri önnur sjálf stæða sýningin, sem hann héldi hér á landi, en fyrri sýningin var árið 1949. Hann hefur dvaldizt í París um fjögurra ára skeið og haldið þar margar sýningar, bæði með þátttöku í samsýningum og sjálfstæðar sýningar. Síðast hélt. Hörður sjálfstæða sýningu í júlí í sum- ar og sýndi þá m. a. flestar þær myndir, sem nú verða á sýn- ingunni hér. Hlaut hann mjög lofsamlega blaðadóma, m. a. segir í blað- inu ,,Arts“, sem er vikublað í París og eingöngu helgað list- um: „ . . Það er hjá okkur, sem hann hefur þroskað minning- arnar frá föðurlandinu, fundið bezta stíl sinn til þess að tjá þær, þróað hæfileika sína og eflt.“ Enn fremur segir að myndir Harðar sýni fjarlægan, aðlaðandi og dularfullan heim og beri vitni listamanni, sem hafi mikið gildi. „Hann er því kærari okkur,“ segir gagnrýn- andinn enn fremur, „sem hann kom til okkar til þess að leggja hávaðalaust, næstum í auð- mýkt, grunninn að verki, sem mun tengja ísland í ljóma sín- um hinni frönsku málaralist." Að lokum segir að litameðferð Harðar sé mjög glæsileg. Ýms fleiri blöð birta um-1 sagnir um sýningu Harðar. Þar á meðal dagblaðið „Com- bat“, sem segir m. a.: „í mynd- Samningar um kjör viS framkvæmdir á Kef lavíkurflug vell I SAMNINGAR voru undirrit- aðir í gær milli Alþýðusam- bands íslands fyrir hönd verka lýðsfélaganna á Suðurnesjum annars vegar og Sameinaðra verktaka hins vegar um kaup og kjör manna við vi'nnu við framkvæmdir, sem Sameinaðir verktakar hafa tekið að sér fyrir varnarliðið á Keflavíkur- flugvelli. Kaup og kjör verkamanna og bifreiðastjóra við þá vinnu verða að verulegu leyti hin sem við á, samkvæmt samning sem við á samkvæmt samning- unuxn. Hörður Ágústsson listmálari. rænni breytingu forma náttúr- unnar, sem íklæðist mjög á- þreifanlegu efni, fáum við hug boð um samsvörun: Maður og náttúran, umhverfi hans erui jafnan sýnileg og likjast ein- kennilega hvort öðru.“ f Þáttfaka Finna í j sundkeppninni var [ minni en áfitið var ! AF skeytum, sem bárust frá Finnlandi 1. okt. s.l. um úrslit keppninnar, varð ekki betun skilið en þar í landi hefðu synfj 200 metrana 251 874, sem gæfia' 359 820 st;g, en nú hafa boriztj glöggar tölur, sem sýna aði 176 312 Finnar syntu og fyrií þann þátttakendafjölda fæ? Finnland 251 874 stig, svo að útkoman úr keppninni er þvf þessi: r þátttak. stig : ísland 36037 540555 Finnland 176312 251874 Danmörk 50492 189345 Noregur 32004 137160 Svíþjóð 128035 128035■ TVO síðustu daga hafa þrír íslenzkir togarar selt afla sinn„ 2 í Þýzkalandi og 1 í Bretlandi. Hallveig seldi í Þýzkalandi i gær 204 tonn fyrir 83107 mörk eða 7061 pund, og í fyrradag seldi Askur í Þýzkalandi 247 tonn fyrir 92400 mörk eðai 7877 pund. Goðanes seldi % Bretlandi 3861 kits fyrir 10416 pund. í dag á Elliði að selja í Þýzkalandi. ______ „ > t±{

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.