Alþýðublaðið - 23.10.1951, Qupperneq 4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
Þiirt'juclaiíur 23. októbé'r 1951.
Útgefandl: AlþÝðuflokknrtrm.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Auglýsingastjóri: Emilía Möller
Ritstjórnarsími: 4901 og 4902.
AugJýsingasíml: 4906.
AfgreiSslusímt: 4900.
Fjórir flokkar -
fjórar fillögur
HÚ SNÆÐISSKORTURINN
er ægilegasta vandamál höfuð
staðarins og margra kaupstað-
anna úti á landi. Róttækar ráð
stafanir til úrbóta í því efni
þola enga bið. Astandið hér í
Reykjavík má nokkuð ráða af
því, að árið 1946 voru hér 1884
kjallaraíbúðir, og í þeim bjuggu
6089 manns, 2037 í kjallara-
íbúðum, sem taldar voru lé’.eg
ar, 411 í íbúðum, sem voru
mjög lélegar og 260 í alls óhæf
um íbúðum. Flestar þessar
kjallaraíbúðir eru enn í notk-
un. Og samkvæmt athugun,
sem gerð var á fyrri hluta yfir-
standandi árs, kom í ljós, að
íbúar bragganna í Reykjavík
voru 1709 talsins, þar af 774
börn innan sextán ára aldurs.
Þetta er í stórum dráttum
myndin af ófremdarástandinu
í höfuðborg íslenzka lýðveld-
isins. Og í mörgum öðrum kaup
stöðum og kauptúnum lands-
ins er ástandið sízt betra.
Nú skortir ekkert á það, að
stjórnmálaflokkarnir játi, að
húsnæðisskorturinn sé böl, sem
á verði að sigrast. En því fer
víðs fjarri, að þeir séu sam-
mála um, hvaða leiðir sku'.i
famar að því marki. Þeir hafa
allir flutt frumvörp um lausn
húsnæðismálanna á alþingi því,
er nú situr. Samanburður á
þeim leiðir í Ijós á athyglis-
verðan og lærdómsríkan hát,
hverýir hafa mestan hug á að
leysa vandann og hverjir láta
við það sitja að sýnast.
*
Sjálfstæðisflokkurinn vill, að
alþingi feli ríkisstjórninni að
láta „safna skýrslum11 um lán-
veitingar til íbúðabygginga.
Það er allt og sumt, sem þessi
stærsti flokkur landsins, er
kallar sig „flokk allra stétta“,
þó að hann sé í reyndinni eign
heildsalanna og stórútgerðar-
mannanna, hefur fram að færa
í þessu máli. Hann lætur sér í
léttu rúmi liggja, þó að öng-
þveiti húsnæðisvandræðanna
haldi áfram að aukast með
hverju ári; foringjar hans og
gæðingar þurfa ekkert að ótt-
ast, þá vantar ekki vistarver-
urnar. Framsóknarflokkurinn
leggur til, að ríkisstjórnin
greiði byggingarsjóði á næsta
ári sem óafturkræft framlag
10 milljónir króna af tekjuaf-
gangi ríkissjóðs á þessu ári eða
úr mótvirðissjóði. Auðvitað
væri þetta spor í rétta átt, en
þó er það aðeins hænufet, þegar
litið er á þörfina og hinn stór-
aukna byggingarkostnað, sem
samstjórn íhaldsins og Fram-
sóknarflokksins ber að veru-
legu leyti ábyrgð á. Nægir því
til sönnunar, hvað Framsókn-
arflokkurinn vill vera smátæk
ur í þessu efni, að vitna til
eftirfarandi ummæla í grein-
argerð frumvarpsins: „Er hér
lagt til, að reynt verði að
veita no.kkra úrlausn í
þessu máli til bráða-
b i r g ð a , en með því f jár-
magni, sem hér er rætt um,
'búð óskasf
3—5 herbergja vönduð íbúð innan Hringbrautar
óskast til kaups.
Tilboð merkt „Vönduð íbúð“ sendist afgreiðslu
Alþýðublaðsins.
Íþrófíafélag kvenna
Leikfimi hefst hjá félaginu mánudaginn 22. í
leikfimisal Miðbæjarskólans klukkan 7 og þriðju-
dag 23. okt. í Austurbæjarskólanum kl. 7. Allar
nánari upplýsingar í síma 4087 á mánudag og
næstu daga.
ætti að mega bygg j a
nokkuð af íbúðum
með atbeina byggingarsjóðs
kaupstaða og kauptúna á næsta
ári“. Kommúnistar leggja til,
að ríkisstjórninni sé heimilað
að verja 15 milljónum.króna úr
mótvirðissjóði . til lánveitinga
út á smáíbúðir . . . sem bygg-
ing var hafin á árið 1947
eða síðar“. Þeirra úrræði
er með öðrum orðum Marshall
hjálpin; og er það óneitanlega
nokkur nýlunda, að þeir skuli
vísa á. hana til bjargráða.
En kommúnistarnir eru löng-
um sjálfum sér líkir. Úrræði
þeirra endist ekki greinargerð
ina út. Þar segir: „Flutnings-
mönnum þessa frumvarps er
þó ekki fast í hendi, að fé til
þessara bráðnauðsynlegu lána
starfsemi sé endilega tekið úr
mótvirðissjóði, fremur en t. d.
að ríkissjóður og bankar leggi
það fram“. Þessi hringlanda-
háttur sýnir út af fyrir sig,
hvaða alvara er á bak við
frumvarp kommúnista. Málið
er flutt til að sýnast.
Alþýðuflokkurinn flytur hins'
vegar frumvarp, þar sem svo
er fyrir lagt, að ríkisstjórnin
sku’.i á næstu fjórum árum
tryggja byggingarsjóði verka-
manna til útlána á nefndum ár
um 25 milljónir króna árlega.
Miðar frumvarpið í þá átt að
ríkisstjórnin tryggi byggingu
verkamannabústaða eins konar
forgangsrétt að því fé, sem op-
inberar stofnanir, sjóðir og
tryggingafélög, sem samkvæmt
eðli starfsemi sinnar kaupa ár-
lega nokkuð af verðbréfum,
ráðstafa til útlána á næstu. fjór
um árum. Eru hér hafðar í
huga stofnanir eins og Trygg-
ingastofriun ríkisins, lífeyris-
sjóður starfsmanna rík'Isins,
lífeyrissjóður barnakennara,
íslenzk endurtry7gging, Bruna-
bótafélag íslands, Sjóvátrygg-
ingafélag íslands, Almennar
tryggingar og Samvinnutrygg-
ingar. Enn fremur er gert ráð
fyrir því, að ríkisstjórnin leiti
samkomulags við banka, spari
sjóði og slíkar peningastofnan
ir um að tryggja þessum fram*
kvæmdum ákveðinn hluta a£
því fé, sem þær verja til út-
lána,
Alþý^ðublaðið vill hvetja alla
lesendur sína, hvar í flokki
sem þeir annars standa, til þess
að kynna sér rækilega áminnzt
frumvörp og gera samanburð
á þeim. Það er ekki í neinum
vafa um, hvert þeirra er raun-
hæfast og líklegast til árang-
urs. Alþýðuflokkurinn vill
lausn húsnæðismálanna vegna
fólksins, sem nú verður að una
því böli að búa í saggakjöllur-
um eða bröggum, svo að ekki
sé minnzt á hörmungar hinna,
sem eru gersamlega húsvilltir.
En hann vantar aðstöðu til að
knýja fram ráðstafanir þær,
sem fyrir honum vaka. Alþingi
á þess nú kost að fara leið
Alþýðuflokksins í þessu máli.
En verði hún ekki valin er
naumast skjótra úrbóta að
vænta, því að frumvörp hinna
flokkanna vekja ekki miklar
Okkar á milli sa
MIKIL ÓÁNÆGJA ríkir nú innan kommúnistaflokksins
vegna þess, að forustumenn flokksins og Þjóðviljinn hafa lítinn
| sem engan þátt tekið í baráttunni í verðlagsmálunum *** Það
j skyldi þó ekki vera, að kommabroddarnir hafi lítinn áhuga á
| málinu vegna þess, að þeir eru sjálfir nýbúnir að stofna þrjár
I nýjar heildsölur og eru viðriðnir margvíslegt brask (sbr. starf-
| semi Áka)?
MORGUNBLAÐSHÖLLIN mun innan skamms rísa við
endann á Austurstræti, þar sem ýmsir vildu 'hafa þjóð-
leikhúsið, þar sem Sigurður Guðmundsson vildi hafa glæsi-
legt torg unclir brekkunni og ameríski húsameistarinn
Kealíy vildi hafa garð í stöllum upp að glæsilegri hótel-
byggingu *** Seinus^.u fregnir af höT Valtýs eru þær, að
hún eigi að vera 11 hæðir, og því hefur ekki verið mót-
mælt, að bærinn hafi Jofað að Ieigja meginhluta hússins.
FLUGMENN eru ekki þeir einu, sem nú flýja land til þess
að reyna að finna atvinnu erlendis *** Nýlega fóru tveir ungir
hljóðfæra’eikarar utan í vinnuleit, þeir Eyþór Þorláksson og
Guomundur Steirgrímsson.
HREYFILL hefur beðið bæinn um götulýsingu á bifreiða-
stæði sitt við Arnarhólstún *** Ingvar Sigurðsson sækir urn
leyíi fyrir sjálfstæðri bHastöð.
NIELS DUNGAL telur, að íaka þurfi blóð úr 300
manns í mánu’ði hverjum í Reykjavík, til þess að hlóð-
banki geti fuílnægt þörfinni fyrir blóð.
HAFNARFJARÐARBÆR er fyrir alllöngu byrjaður á
smáíbúðahverfi og hefur þar úthlutað fjölda lóða og veitt ó-
keypis teikningar að slíkum húsum.
_J. J. segir í Landvörn: „Forsjármenn landsins eru í álög-
um. Þeim notast ekki meðfæddir hæfileikar sökum ótta við
fylgistjón í kosningum. ef þeir segðu öllum almenningi satt
og :tétt uin ástandið í landinu eins og það er nú.“
REIKNINGAR HÆRINGS hafa nýlega verið lagðir
frain, og sýna þeir, að árið 1950 varð 758 214 króna tap á
rekstri skipsins, en útflutningsverðmæti framleiðslunnar
a'ðeins 510 000 krónur *** Karfavinnslan í vor var skárri,
útflutningsverðmæti 2 006 324 kr., en tapið 268 000 kr.
Við réttarhöldin í landhelgismálinu í Haag sagði dóms-
málaráðherra Breta, Sir Frank Soskice, að það, hvort brezkir
togarar hefðu eyðilagt fiskimið og hvort fólkið í næstu héruðum
lifði á fiskveiðum eða ekki KÆMI LANDHELGISDEILUNNI
LAGALEGA FIREINT EKKERT VIÐ *** Það væri meiri þörf
á því, að Bjarni Ben flytti fyrirlestur um þetta mál í útvarpið
en á hálftómum flokksfundi hjá íhaldinu.
NEMENDUR iðnskólans á Akureyri eru nú töluvert færri
en undanfarin ár *** Hafa færri iðnnemar verið teknir sökum
samdráttar í iðnaðinum.
Á FARÞEGALISTA GULLFOSS í síðustu ferð var Sigfús
-Sigurhjartarson skráður BLAÐAMAÐUR *** Hann hefur ekki
fengizt við blaðamennsku í áratug, en kommúnistar hafa aíla
tíð reynt mjög að gefa ýmsum gæðingum sínum blaðamanns-
titil, til þess að fá fyrir þá blaðamannahlunnindi, meðal ann-
ars á ferðalögum.
vonir. Og þá reynir á, hvort
fólkið í landinu kemur til liðs
við Alþýðufokkinn eða unir
öngþveitinu áfram.
Uggvœrdegar atvimiuhoríur
ÞAÐ HEFUR LÖNGUM VER-
IÐ ALMÆLI, að Iengi megi
komast af við léleg kjör, ef
atvinna er næg; og hitt er jafn
víst, að atvinnulausir komast
menn ekki af, jafnvel þótt
kjörin séu sæmileg. En þá
keyrir alveg um þverbak,
þegar kjörin eru rýrnandi og
atvinnuleysið bætist ofan á
eins og nú er hér á landi.
ÞAÐ TJÓAR EKKI að láta sem
svo, að meira sé gert úr at-
vinnuíeysinu en ástæða er til.
Sannleikurinn er sá, að horf-
urnar í þeim málum eru ugg;
vænlegri en flesta grunar. í
nánast hverju þorpi og hverj-
um kaupstað á allri strand-
lengju Norðurlands, að Akur-
eyri einni undantekinni, telst
nú alger ördeyða, og dæmí
eru þar til um það, að verka-
menn hafi yfirleitt ekki haft
nema þriggja til fjögurra
mánaða vinnu það, sem af er 'i að byrja, og aldrei hafi það
þessu ári, þótt nú séu bráð- verið venja áður, að leita suð-
lega af því liðnir tíu, og ekk-
ert bendir til að úr rætist.
AF VESTFJÖRÐUM er mjög
svipaða sögu að segja og vafa-
laust einnig úr öðrum lands-
hlutum, enda dregst nú at-
vinnulífið saman meira en
eðlilegt er, meira að segja í
sjálfum höfuðstaðnum, þar
sem vitað er um, að farið er
að segja upp starfsfólki við
iðnfyrirtæki. Atvinnuleysið
má t. d. nokkuð marka á því,
hversu gegndarlaus eftirspurn
er eftir hinni tiltölulega litlu
vinnu á Keflavíkurflugvelli
af atvinnulausum mönnum úr
sjávarþorpum og kaupstöð-
um á öllu landinu. Má og
nefna það til tíðinda, að
fjöldi manna hefur komið að
norðan í atvinnuleit hingað
suður, þótt vetur sé nú aðeins
ur fyrr en eftir hátíðir á ver-
tíð á Suðurnesjum.
ÞETTA ER EKKI FÖGUR
LYSING, en hún er sönn. Það
uggvænlegasta við horfurnar
í þessum efnum er það, að at-
vinnuleysi er þegar komið,
þótt haustvinnu sé ekki lokið.
Og hvemig verður þá ástand-
ið, þegar líður á veturinn. í
fyrravetur var geigvænlegt
atvinnuleysi og skortur víða
um land. Það er nú orðið við-
urkennt, þótt il’a gengi að
berja það inn um höfuðskelj-
ar valdhafanna þá. En í fyrra-
haust var þó hvergi nærri
eins slæmt útlit og nú. Það
l er staðreynd, sem ekki verð-
j ur á móti borið.
FYRIR ÞVÍ MÁ BÚAST VIÐ
j meira atvinnuleysi og meiri
1 sJtorti í vetur en í fyrravetur,
og fram úr því verður að ráða
í tíma. Enn hefur ekkert
heyrzt, hvað ríkisstjórnin
hefur í hyggju að gera eða
hvort hún ætlar sér að aðhaf-
ast nokkuð. En það er að
minnsta kosti krafa alls al-
mennings, að hún geri við-
hlítandi ráðstafanir og láti
þær ekki dragast úr hömlu.
f '
Fleiri og fleiri
selja alla senda
LÁRUS FRÍMANNSSON á
Dalvík varð sá sjöundi, er
seldi alla happdrættismiða AI-
þýðuflokksins, sein honum
voru sendir, og hefur hann foeð
ið um jafnmarga til viðbótai*.
Auk þess hefur -Tóhann Jóns
son á Þórshöfn, *á er fyrstur
varð til þ.ess. að selja alla mið-
ana, sem hann fékk, fyrir
nokkru Iokið við að selja síð-
ari scndinguna.
Húnvetningafélagið heldur
skemmtifund kl. 8.30 á föstu-
dagskvöldið ' í Tjarnarcafé. Tíl
skemmtunar verður: kvikmynd.
ir, dans o. fl.