Tíminn - 09.01.1964, Page 1
STJÓRN F.Í.B. SEGIR, AÐ NÝJU VEGALÖGIN NÁI EKKI TILGANGI SÍNUM
Aðeins 43% af tekjum
af umferðinni fara í vegi
TK-Reykjavík 8. jan.
Stjórn Félags islenzkra bifreiða
eigenda boðaði ; dag blaðamenn
á sinn fund. Var l>að í tilefni hinna
ínýju vegalaga og verðhækkunar-
innar á benzíni. Afhenti stjórnin
'biaðamðnnum gieinargerð frá fé-
Jaginu þar sem hún segir
.að fram komi sjónarmið þeirra,
sein allan kostnað af vegagerðinni
greiða og vegina nota, þ. e. bif-
rei'ðaeigenda. öcntu þeir meðal
annars á, að þcátt fyrir aukning-
1 una á vegafé & þessu ári vegna
hinna nýju laga, þá hefur hlut-
fall-log aukning á framlögum af
tekjum af umfcðinni engin orðið
og niðað við t. d. árið 1961 verður
um hlutfallsleg i Iækkun að ræða
á árinu 1964. Áætla má, að
tekjur af umferðinni verði á þessu
ári um 570 milljónir en fjárfram-
Iög 244 milljónir eða um 43% en
á árinu 1961 námu framlögin
44,9% af tekjuiium. Á síðasta árí
komust þau hins vegar niður í
29,5%.
Þá telur F.í.ö. að einhæfur sam
anburður á benzínverði hér og í
öðr.'m löndum ;é villandi. Bendir
fél., á, að í öðrum löndum sé víð-
tæk flutningastarfsemi á 'andj,
sem nýtur styrks frá ríkinu. Þá er
rekstur bifreiða á ekinn km. hærri
hér en í öðrum löndum, vegna
þes° hve slitið á bifreiðum er hér
miklu meira en annars staðar og
stofnkostnaður hár vegna mikilla
toila og aðflutningsgjalda.
Þá telur F.Í.B þungaskattinn á
dieselbifreiðum allt of háan. Sér-
lega ósanngjarnt sé, að allar bif-
reiðar undir 2 þús. kg. beri sama
skatt. Léttar dieselbifreiðar bex-a
því tiltölulega hærri skatt en stór
ar bótt þær slíti vegunum minna.
Er þannig ver'ð að refsa þeim,
sem vilja spara fyrir sig, þjóðfélag
ið og gjaldeyrissjóði landsins. Til
þess að eigendur lítilla dieselbíla
njóti jafnréttis við eigendur benz-
ínbíla í þessu sambandi þurfa þeir
að meðaltali aó aka yfir 20 þús.
km á ári, en þetta mark er langt
of hátt að áliti sijórnar F.Í.B.
Framhald i 15. slðu.
Meistarar felldu - Tré-
smiðir auglýstu taxta
KJ-Reykjavík, 8. janúar.
TRÉSMIÐAFÉLAG Reykjavík-
nr hefur auglýst 15% hækkun á öll
nm kauptöxtum sínum frá og með
SOLHEIMA
JÖKULL
HLAUPINN
100 M.
SÁÞ-VÍK, S janúar.
EFTIRLITSMENN urðu þess
varlr ( byrjun desember, að Sól-
heimajökull var hlaupinn um
hundrað metra niður i pilinu, þar
sem Jökulsá á Sólheimasandi
rennur undan honum. Jafnframt
hafðl hann hækkað töluvert að
framan við þessa hreyfingu. —
Ekki er vitað hvenær jökullinn
hefur hlaupið, enda hafði enginn
orðið var við þetta fyrr en i þess-
arl eftlrleit.
Einn eftirlltsmanna, Erlingur
ísleifsson, Sólheimum, hefur tjáð
blaðinu að meira hafi verið í
Jökulsá i kuldunum í nóvember
heldur en venjulega. Gæti það að
vísu bent til þess að jökullinn
hefði hlaupið á þeim tíma, þótt
ekkert verði um það sagt. Erl-
ingur mun hafa í hyggju að huga
frekar að jöklinum þegar færi
gefst.
9. janúar. Gildir hækkun þessi til
21. júní 1964, hafi nýir samningar
ekki tekizt fyrir þann tíma.
Á sunnudag hótst. samningafundur
kl. 4 og stóð hann til kl. 2 á mánu
dag. Annar fundur var svo boðað-
ur á þriðjudag kl. 2 og stóð sá
fundur til kl. fimm í morgun. Á
þessnm fundi var gert samkomu-
lag um 15% hækkun á tímakaupi
og hað svo lagi íyrir Trésmiðafé-
lag fteykjavíkui og Meistarafélag
húsasmiða í dag. Samkomulagið
var samþykkt hjá Trésmiðafélag-
ir.u með 160 atkv. gegn 51 en fellt
hjá Meistaraféiaginu með 29:24.
Meistarafélag1 ð hafði áður gert
trósir.iðum cilboð um 15% hækkun
á ákvæðisvinnu og það skilyrði að
stoÁiaður yrði gerðardómur til úr-
skurðar á ágreiningsatriðum sem
upp kunna að rísa varðandi upp-
mæimgartaxta. Vildu trésmiðir
ekk’ una, að gerðardómur yrði lát
inn fjalla um mál þeirra og var
því ekki gert samkomulag um á-
kvæðisvinnu, heidur einungis um
15% hækkun á tímakaupi, en það
felidi Meistaraíélagið svo á fundi
sfnum í dag.
Tiésmiðir hafa aflýst verkfall-
inu og hefst vinna hjá þeim því
á morgun.
Jarðhræringar og gufugos
FB-Reykjavík, 8. janúar. | í gærkvöldi fundu Vestmanna-1 kl. 15,36, sá næsti kl. 21,10, og síð-
GOSIÐ í Surtsey byrjaði aftur! cyingar jarðhræringar, sem þeir | an kl. 21,31, 0,33, 7,01, 8.11 og sá
um kl. 11 í morgun, en hefur þó j gizkuðu á að ættu rætur að rekja ] sfðasti kl. 8.39.
verið heldur lítið í dag. Mest hef-
ur verið um gufugos, en annnð
slagið hafa gosið upp svartir mekk
ir. Ekkert hefur sézt til goss i
Surtlu í dag.
til Surtseyjar. En frá því í gæt j
kl 15,36 til kl. 8,39 í morgun mæld
ust 7 jarðskjálftar á mæla veður-
stofunnar. Fyrsti kippurinn kom
Upptök kippanna virðast vera í
114 km. fjarlægð frá Reykjavík,
og geta þau því vel verið í nánd
við Surtsey.
MÚRNUM
ER LOKAÐ
AUSTUR-þýzkur landamæravörður
fyllir upp í litla hliðið, sem brotið
var á Berlínarmúrinn við Ober-
baum-brúna, þegar jólaheimsóknir
Vestur-Berlínarbúa til Austur-Beri
ín hófust 17. des. Er heimsóknar-
timinn rann út á miðnætti s- I.
sunnudag, höfðu 'um 1,2 milljónir
Berlínarbúa heimsótt ættingja tg
vini hinum megin við múrinn.
10 PUNKTAR J
NTB-Washington, 8. jan.
Lyndon B. Johnson, forseti Bandaríkjanna,
lagði fram í skýrslu sinni til Þjóðþingsins áætfl-
un í tíu Iiðum um hvemig skapa skyldi heim án
styrjalda:
• Bandaríkin verða að halda fast við öryggi
sitt og hernaðarlega yfirburði.
• Þau verða að stiga ný skref í friðarátt, m.a.
með tillögum í Genf um strangt eftirlit með
herafla, eða ef til vill algjöra afvopnun.
• Ekki má nota valdbeitingu í baráttu fyrir
friði.
• Bandaríkin verða áfram að vera leiðandi
þjóð í rannsókn himingeimsins, og þau verða
að stefna að ferð til tunglsins innan næstu
10 ára. Ber þeim að hafa samvinnu við aðrar
þjóðir um slíka ferð, ef mögulegt er.
Heimsverzlunin verður að aukast og Banda-
ríkin að kaupa og selja meira.
Halda verður áfram að vinna að því, að koma
á greiðslujöfnuði við önnur ríki.
Bandaríkin verða að veita hinum frjálsu
ríkjum í Ameríku oetri stuðning.
Bandaríkin verða að styrkja getu frjálsra
þjóða, hvar sem er í heiminum, til þess að
vera sjálfstæðar, og til þess að bæta lífs-
kjörin.
Samvinnan innan NATO og SEATO verður
að sameinast, og Sameinuðu þjóðirnar verða
að gerast áhrifameiri.
Bandaríkin verða, ásamt bandamönnum sín-
um, að finna nýjar leiðir til þess að brúa
bilið milli austurs og vesturs.
V.Vv ■V.-..C<‘A'VvVVy-. •.