Tíminn - 15.01.1964, Page 7

Tíminn - 15.01.1964, Page 7
Útgeftndl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Ámason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriðí G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta. stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Daviðsson. Ritstjómarskrifstofur f Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr 7. Afgr.sími 12323. Augi., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan- lands. f Iausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Þrengt að samvinnufélögum Það er alkunna, að á Norðurlöndum og mörgum öðr- um Evrópulöndum lítur stjórnar- og löggjafarvaldið á samvinnufélögin sem sterka lyftistöng til almannaheilla, framfara og bættrar lífsafkomu cg styðja hreyfinguna í samræmi við þá skoðun. Þar eru samvinnufélögin talin veigamikið jákvætt þjóðfélagsafl, sem hver sú ríkisstjórn, sem ber almenna velmegun fyrst og fremst fyrir brjósti, telur sér hag og skyldu að styoia eins og aðra æski- lega framfaraþróun. Hér á landi gilti hið sama allt fram á síðustu ár, en með tilkomu núverandi ríkisstjornar gerbreyttist við- horf stjórnarvalda til samvinnufélaganna, og í stað stuðn- ings er nú kappkostað að leggja stein í götu þeirra með ýmsum hætti, torvelda rekstur þeirra, ætla þeim verri hlut en öðrum og draga úr stuðningi, sem áður var lóngu viðurkenndur. Þetta er eitt margra cg glöggra dæma um hina stór- kapitalísku sérhagsmupastefnu, sem er kjarninn í stefnu núverandi ríkisstjórnar. Slíkri ríkisstjórn eru samvinnu- félögin sérstakur þyrnir í augum, eins og hvað eftir ann- að hefur komið í ljós af stjórnarathöfnum Samvinnufélögin hafa nær aliar afurðir bænda til sölumeðferðar, og löngu er viðurkennd skylda til afurða- lána. Núverandi ríkisstjórn hefur látið afurðalánin standa í stað í fjögur ár, þó að verð landbúnaðarvara hafi stórhækkað, framleiðsla vaxið og þörf fyrir rekstrarfé til handa bændum stóraukizt. Þitta h«-fur orðið kaup- félögunum haft, því að þau hafa ^eð sig tilneydd að taka á sig nokkurn hluta þeirrar skyldu sem hvílir á stjórnar- völdum, að greiða bændum meira fyrir íram út á afurð- irnir, og orðið að taka af naumu rekstrarfé sínu til þess frá öðrum brýnum verkefnum. Þessu hafti hefur stjórnin reynt að halda sem lengst því að hún veit, að það er samvinnuiélögunum illur fjöt- ur um fót. Og loks 1 haust, þegar það komst í kring, að afurðalánin skyldu vera 55% af afurðaverði í stað þess að standa í stað að krónutölu var fundm sérstök aðferð hjá Seðlabankanum við úthlutun lára, svn að hækkunin yrði sem allra minnst, en fjárkreppan þiakaði bændur og samvinnufélög þeirra áfram. Þegar leiðtogum samvinnufél.iga hefur tekizt að fá loforð um bráðabirgðalán erlendis til þess að vega á móti innlendum afurðalánaskorti hefur ríkisstjórnin neitað um heimild hvað eftir annað. þó að Landsbank- inn hafi veitt hana að sínu leyti. Annað dæmið er það, að ríkisstjórnin fyrirskipaði að taka 15% úr innlánsdeildum kaupfélaga og frysta í Seðla- bankanum. Og nú er boðað, að taka skulr' 25%. Þetta eru aðeins dæmi um þau ráð, sém ríkisstjórnin beitir til þess að kreppa að samvinnufélögunum. En fleiri spjót eru úti. Hér á landi shur ríkisstjórn harð- leikinnar sérhagsmunastefnu og telur sér skylt að heyia stríð gegn samvinnufélögunum. Myndarleg viðbrögð Það eru góð tíðindi, að íslenzk flugfelög hyggja ekki á uppgjöf fyrir áhlaupi risa-flugfélaganna { IATA, heldur halda samkeppninni áfram af fuUii djörfung eins og kemur fram í ákvörðun Loftlejða um nýja fargjaldalækk- un, svo að bilið haldist enn milli þe;rra og fargjalda IATA. Hér er myndarlega við brugðizt og óskandi, að íslenzku félögunum takist að halda velli í þessum harða og tvísýna leik. Veröur Johnson nýr Roosevelt? Það er í anda Roosevelts að boða stríð gegn fátækt ÞAÐ ER VENJA, að forseti Bandaríkjanna flytji í byrj- un hvers árs ræðu í þinginu, þar sem hann gerir grein fyrir ástandi og horfum í málum rík- isins og fyrirætlunum sínum á sviði löggjafarmála á næstu misserum. Johnson forseti flutti slíka ræðu á þingi Bandaríkjanna 8. þ. m. Það er í annað sinn, sem hann ávarpar þingið sem for- seti. Hann ávarpaði þingið rétt eftir að hann tók við forseta- embættinu. Þá vakti það sér- staka athygli hve eindregið hann áréttaði, að hann myndi fylgja fram stefnu fyrirrenn- ara síns, Kennedys forseta. Johnson lýsti því, að alltof margir þegnar Bandaríkjanna byggju við lélegustu lífskjör, þrátt fyrir ríkidæmi þjóðarinn- ar. Úr þessu yrði að bæta með aukinni menntun, auknum tryggingum, auknum tækifær- um fyrir alla til þess að geta notið sín. Það var þessi kafli ræðunnar, sem þótti minna sérstaklega á Roosevelt. Kennedy hafði oft minnzt á þessi mál, en aldrei gert það á eins áherandi hátt og Johnson — aldrei gert þetta að höfuðatriði stefnu sinnar. ÝMSAR ástæður valda því, að Johnson er það augljósara en Kennedy, að útrýming fá- tæktarinnar er höfuðmál Banda ríkjanna. Johnson er alinn upp NELSON ROCKEFELLER ríkisstjóri I New York EN ÞAÐ eru fleiri en John- son, sem hafa gert það að stefnumáli sínu að vinna gegn fátæktinni f Bandaríkjunum Sama daginn og Johnson flutti ræðu sína á Bandaríkjaþingi, flutti Rockefeller hliðstæða ræðu á þingi New York- ríkis. Hann lýsti því þar, að fimmtungur Bandaríkjaþjóð arinnar hyggi við skort á fæði, fötum og húsnæði. Úr þessu yrði að bæta, en það yrði ekki gert nema með stórauknum hagvexti. Að þessu leyti voru ræður þeirra Johnsons og Rockefellers mjög keimlíkar. Þ.Þ. Ræðan, sem Johnson flutti á dögunum, hefur vakið sérstaka athygli vegna þess, að þar fór Johnson miklu meira í fótspor annars fyrirrennara síns en Kennedys, þótt hvergi kæmi fram að hann hefði vikið neitt frá stefnu hans. Efni ræðunnar og uppbygging minnti hins vegar miklu meira á Franklin D. Roosevelt en John F. Kenn- edy. Johnson áréttaði með henni, að hann lítur á Roose- velt sem hinn mikla lærimeist- ara sinn. Eftir ræðuna, kom það líka mjög fram í amerískum blöðum að bersýnilegt væri að Johnson dreymdi um að verða nýr Roosevelt UTAN Bandaríkjanna hefur sá þáttur ræðu Johnsons, sem fjallaði um utanríkismál, vakið hina mestu athygli. Hann dró markmið sín í utanríkismálun- um saman í tíu punkta. í þeim kom raunar ekkert annað fram annað en það, að hann myndi fylgja fram stefnu þeirri, sem Kennedy hafði markað á því sviði. Mesta athygli vakti það, að hann lagði ríka áherzlu á, að haldið yrði áfram ýtrustu viðleitni til að draga úr kalda stríðinu. Meginkaflinn í ræðu John- son fjallaði um innanlandsmál- in og sá kaflinn sýndi það skýr- ast, hvað Johnson vill stefna að. f þessum kafla ræðunnar sagði hann fátæktinni í Banda- ríkjunum stríð á hendur og síð- an ræddi hann um úrræði og leiðir til að ná því marki að út- rýma henni. Johnson forseti flytur ræSu sína I þlnglnu um ástand og horfur í málum rikisins. við þröng kjör og byrjar stjóm- •málaferil' sinn í heimskrepp- unni miklu. Hann gerist þá læri sveinn Roosevelts og hefur haldið áfram að vera það síðan. Sem Suðurríkjamanni er hon- um það Ijóst, að lausn kyn- þáttamálsins byggist öðru frem- ur á því, að fátækt og atvinnu- leysi verði útrýmt, — jafnrétti í orði er ekki nóg. Átökin milli kynþáttanna eru ekki sízt hörð, þar sem atvinnuskilyrði eru tak mörkuð og keppt er um vinn- una. Síðast, en ekki sízt, fer svo álit Bandaríkjanna sem heims- veldis, ekki sízt eftir því, hvern- ig þeim tekst að leysa mál sín heima fyrir. Mikil stéttaskipt- ing, þar sem hóflaus auðsöfnun er á aðra hlið en himinhróp- andi fátækt á hina, er léleg aug- lýsing fyrir lýðræðisstjórn. FJÁRLÖG þau, sem Johnson boðaði, virðast mjög táknræn fyrir vinnubrögð hans. Þau eru lægri en næstu fjárlög á und- an. Þó em framlög til félags- •mála nokkm hærri. Hann hefur látið lækka ýmis framlög til víg búnaðarins. Það, sem vakir fyr- ir Johnson með þessu, er að fá þingið til að fallast á skatta- lækkunarfmmvarp, sem Kenn- edy hafði borið fram, en ekki tekizt að fá samþykkt. Tilgang- ur skattalækkunarinnar er, að örva fjárfestingu og vömkaup og auka atvinnu og viðskipti á þann hátt. Þannig er ætlunin til að sigrast á atvinnuleysinu, sem enn er víða tilfinnanlegt í Bandaríkjunum og horfur eru á, að mun heldur vaxa, að ó- breyttum hugvexti, þar sem sjálfvirknin eykst nú hraðar en áður í iðnaði Bandaríkjanna. Ætlun Johnsons er sú, að vinna sér tiltrú íhaldssams þings og iðjuhöldanna, til þess að geta svo notfært sér betur krafta þessara aðila til að koma fram umbótahugsjón sinni — útrýmingu fátæktarinnar. Þetta er alveg i anda Roosevelts. Fyrsta verk hans sem nýkjör- ins forseta var, að endurvekja tiltrú og fá þannig hjól efna- hagskerfisins til að snúast á ný. TÍMINN, mlðvikudaglnn 15. ianúar 1964 — / z

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.