Tíminn - 15.01.1964, Page 9

Tíminn - 15.01.1964, Page 9
ÞAÐ ER EKKERT málefni eða félagsskapur svo lítilfjör- legur hér í Bandaríkjunum, að ekki sé vert að gefa út blað um hann. Hvergi í heLminutn er gefið út eins mikið úrval af alls kyns blöðum og tímaritum og |hér. Maður getur keypt sér bókmenntarit eða félagsblað út- fararstjóra; dagblað eða blað með nöktum konum; vísindarit eða blað um rósarækt; félags- blað öskukalla eða blað um H hundahald; og svona mætti lengi telja. Utan Bandaríkjanna þekkja menn aðeins fá þessara rita, svo sem New York Times, Newsweek, Life, Playboy, Pop- ular Mechanics, Saturday Even ing Post og önnur slík blöð. í þessii ótrúlega mikla úrvali má finna afbragðs blöð, en önn- ur eru aftur á móti varla hæf til að nota í botninn á ruslaföt- um. Eitt af þeim ritum, sem þykja með þeim betri, er bók- menntaritið Saturday Review, sem margur kannast við á ís- landi; þetta er mjög gott rit, vel skrifað og frjálslynt í skoðun- um. Upplagið er ekki mikið, ef miðað er við blöð eins og Time, enda er það svo til eingöngu lesið af miðstéttafólki. Einn af aðalritstjórum ritsins er Rich- ard Tobin, sem um tíma var einn af ræðuriturum Eisenhow- ers forseta. í forsetakosningun- um 1956 ferðaðist Tobin meir en 20.000 mílur með forsetan- pm í kosningaerindum og var mjög náinn starfsmaður Eisen- howers. Richard Tobin var blaðatnaður við New York Her- ald Tribune í meir en tuttugu ár og var m. a. stríðsfréttarit- ari fyrir blaðið. Nokkuð marg- ar bækur hafa verið gefnar út eftir hann. Undirritaður hitti Tobin fyr- ir nokkru og ræddi við hann um blaða- og bókaútgáfu, sjón- varpið og önnur skyld mál; og árangurinn varð eftirfarandi viðtal. — Þið Bandaríkjamenn eruð oft ásakaðir um að lesa lítið af bókum . . . ? —• . . . Já, það er satt að mörgu leyti; en nú erum við búnir að hafa sjónvarpið í tíu eða fimmtán ár og ég held, að nýjabrumið sé að minnka mik- ið og tnargur er farinn að lesa RICIIARD TOBIN meir af bókum a ný. Sem dæmi um það má nefna, að litlum tímaritum, eins og t.d. Saturday Review, The New Yorker, At- lantic Monthly og önnur slík bókmenntarit hefur gengið mjög vel s. 1. þrjú ár. Sjónvarp- ið tók að vísu smásögurnar frá tímaritunum, svo að við snérum okkur að greinum og öðrum menningarmálum. — Hefur bókasala aukizt? — Bókasala gengur mjög vel núna; vasabókaútgáfan gengur samt mun betur heldur en sala á innbundnum bókum, til dæm is selja aðeins um 20 bókabúð- ir í öllu landinu 80% af öllum bundnum bókum. Á sama tíma er vasaútgáfan að ná meirihluta allra lesenda og jókst um 60% s 1. ár í öllu landinu. Vasaút- gáfan er mun ódýrari og m. a. er hún að ryðja sér mikið til rúms í skólabókum. Sem dæmi um mismuninn, þá kom síðasta bók mín innbundin í 12,500 eintökum, en vasabókaútgáfan var um 100.000 eintök. Inn- bundin bók fæst eingöngu hjá bókaverzlunum, en vasaútgáf- una má finna alls staðar, eins og t. d. á járnbrautarstöðvum, flugvöllum, og í alls konar verzl unum og m. fl. stöðum. Maður fær að vísu hlutfallslega meiri peninga fyrir innbundna bók heldur en vasaútgáfubók, þar sem sú síðarnefnda er miklu ó- dýrari. En flestir rithöfundar hugsa ekki svo mikið um pen- ingana, þeir vilja heldur fleiri lesendur; maður skrifar bók meira til að vera lesinn heldur en til að græða peninga. Dag- lega selst meira en ein mill- jón eintaka af vasaútgáfubók- um hér í Bandaríkjunum. . :Er lítill bókalestur ein- göh'éu sjifnVdrþinu að kenna? — Að vissu leyti má kenna sjónvarpinu um það að vissu leyti ekki. Sjónvarpið er mjög gott á mörgum sviðum; og hef- ur m. a. létt undir fréttaflutn- ingi með dagblöðunum. Það er álitið t. d., að hver karlmaður sjái minnst einn fréttaþátt í sjónvarpinu á dag. Aftur á móti gæti sjónvarpið flutt mun meira af góðum leikritum, óper um, ballettum og þess háttar. Sjónvarpið er frekar lélegt í listamálum og t.d. fyrir tveim árum neituðu flestar sjónvarps- stöðvar landsins að flytja leik- ritið Macbeth, og báru því við að fólkið vildi heldur sjá kú- reka og glæpamyndir. Ekki löngu seinna var Macbeth kos- ið bezta leikrit ársins í sjón- varpinu. Við höfum mörg önn- ur álíka dæmi. Við gætum lært margt af sjónvarpinu í Evrópu og jafnframt verð ég að viðurkenna, að sjónvarpið hefur batnað mikið síðan það byrjaði. Ég held, að fólkið hætti smám saman að horfa svona mikið á skerminn og fari að lesa meira. Samt lesum við allt of lítið, þrátt fyrir mikla aukningu í bóka- og blaðasölu. — Amerískir foreldrar kvarta yfir því, hve mikið börnin horfa á sjónvarpið. — Það er álitið, að hver tán- ingur eyði þremur og hálfum tíma á dag fyrir framan sjón- varpið að meðaltali. Böm nú- tímans lifa í heirni hávaðans, þau hlusta á músik í útvarpinu, meðan þau læra; horfa á há- vært sjónvarp; og fara varla ferða sinna án þess að hafa transistor-útvarp með sér. — Er þetta aðalorsökin fyrir bví. hve börn og unglingar lesa lítið? — Meðal annars; samt vil ég kenna um lélegri kennslu í lestri og skrift, sem leiðir af sér minni löngun til að lesa sér til skemmtunar. Svo eru millj- ón aðrir hlutir, sem draga at- hygli þeirra frá bókum og lestri. — Hvernig er afkoma rithöf- unda hér í Bandaríkjunum? — Ekki setn bezt. Hér eru innan við 5000 rithöfundar, sem geta lifað af skrifum sínum eingöngu; allir aðrir rithöfund- ar verða að hafa aðra vinnu með skrifum sínum- í Evrópu er rithöfundurinn virtur og á- litinn meðal betri borgara; hér- eru það Hollywood-stjörnur og íþróttakappar, sem skipa það sæti, en rithöfundurinn er hálf gleymdur og alls ekki virtur af almenningi. — Hvaða fólk les rit eins og Saturday Review eða Atlantic Monthly? — Saturday Review er ritað fyrir vissan hóp innan þjóðfé- lagsins, þá sem við köllum ,.efri-miðstéttina“ (upper midd- le class) og um 70 prósent af okkar lesenduim er háskóla- menntað fólk. Upplag og stærð blaðsins er rífleg miðað við fjölda þess hóps, sem við skrif- um fyrir; hvert prentað eintak er samkvæmt skoðunarkönnun lesið af 3V2 manni, sem er frek- ar há tala. — Þið hafið orð á ykkur fyrir að vinna að mannréttindamál- um. — Af sextíu manna starfsliði eru tólf svertingjar, og þrír af þeim hafa ritstjóraembætti. Við höfucn s. 1. tíu eða fimmtán ár- in staðið framarlega í barátt- unni fyrir bættum lífskjörum svertingja og annarra, sem beittir eru misrétti. — Að lokum; meðan þú starf- aðir sem ræðuritari Eisenhow- ers forseta, hafðir þú áhrif á ræður hans? — Enginn maður segir eitt eða neitt, nema hann vilji það sjálfur. Við vorum sex, sem unnum saman að ræðunum, og Eisenhower sagði aldrei neitt af því, setn við skrifuðum, — nema það væri samkvæmt hans skoðun. Hann breytti oft ræðun um á stöku stað, sem er ekki nema von. Annars læra ræðu- ritarar fljótt að skrifa eftir skoðunum og stefnum þess manns, sem skrifað er fyrir. — Fyrr eða seinna fer maður að hugsa eins og forsetinn, eða þá bara hættir. — }hm. 9 Byggðarlag fer í eyði Á s.l. vori fór næst síðasta bú- jörðin í Loðnu.ndarfirði í eyði. Baldvin Traust. Stefánsson, bóndi á Sævarer.dum tók sig upp og flutti til Seyðisfjarðar. Hann var nýlfga á ferð í Reykja vik, og átti fréttamaður þá tal við hann um Loðmundarfjörðinn. — Loðmuudarfjörðurinn er grösug sveit, fjciskrúðug að gróð- urfaii, sagði Baldvin. Við lifðum þar af sauðkindinni, héldum kýr tii heimilisþaria. Áður fyrr var róið frá hverjum bæ, þegar næg- ur mannafli var á heimilunum. (lam’ir menn hafa sagt mér, að þeir hafi þurft örskammt út í fjörð inn t.il- að komast í mokfisk. Svo komu togararnii og léku sér að því að skafa fjörðinn daga og nælur Fiskurinn þvarr og menn hættu að reyna að ná til hans. — Ekki hafa togararnir flæmt ykkur úr sveitinni. — Nei, það er ástæðulaust að gera því skóna. Sveitin fór að eyð- ast f-.ftir stríðið Þá voru níu bú- jarðir í Loðmuiidarfirði. Sú tíunda lagð'st af iyrir aldamót. Lengst af var íbúatalan 70—80 manns, nú eru 30 eftir í Stakkahlíð. Þar eru tveii bændur. - Hvert hata hreppsbúar flutt? — Sitt á hvað. Á firðina, suð- ur á land, hingað til Reykjavíkur. — Er mógulegt fyrir tvo bænd ur að haldast við í þessari sveit? — Eg vil engu spá um það. Land auðnin hefur örf ugleika í för með sér. Oæði fyrii þá sem eftir eru og þá sem búa í nærsveitunum. Þejr verða að smala þetta land, en þangað sækir sauðkindin. Það er eins og hún finini á sér, að mað- udnn er farinn. — Hvað stundar þú á Seyðis- r'irði, Baidvin? — Eg kom eins og fleiri í síld- ina oar í sumai. Annars lítur út fyrir næg verkefni þar fram eftir vetrinum. — Telur þú mikla eftirsjá í því hvernig komið er í Loðmund- arfirðinum? — Það er alitaf eftirsjá í jörð- um, sem fara í eyði. Það getur ýtt undir að fleiri fari í eyði, og gerii það. Bændijr hafa stutt hver annsn með búsetunni, sérstaklega þeir. sem búa við sauðfé. Nú getur farið svo, að þessi búskapur verði óviðráðanlegur í heilum byggðar lögum. við höfum nærtæk dæmi um það — Eru fleiri sveitir á sömu leið þar eystra? — Sem betur fer held ég, að það sé nú ekki — En kaups'pðirnir vaxa. — Já, rvo er síldinni fyrir að þakka. — Hvað gero Seyðfirðingar út mav?a þéta? — Þab eru fjorir stórir bátar frá Seyðisfirði, sem verða gerðir út fvrir sunnan land í vetur. Trill ur voru orðnar nokkuð margar, en þeim hefur fækkað. Atvinnan i'O'nist nú fyrst og fremst að þjón ustu við aðvííandi skip. Þar er nýtt uppgangstímabil. Bretinn sk-ldi svo við staðinn, að sjó- mennska lagðist af í nokkur ár. Bát ar kumust ekki um fjörðinn nema með sérstökum eftirgangsmunum, begsr Bretinn var þar, og það sem þeir skildu eftir á sjávarbotninum geríi sitt til. — Verzlunin dreifð ist ti! annarra -taða, og nafngift- in „höfuðstaðqr Austurlands“ hætti að eiga við. Staðurinn sér nú betii tíma. Síldin fæst fyrir aust- an. — BÓ. Mörg lesa SAMTIÐINA heimilisblaðið, sem flytur yður ★ Fyndnar skopsögur ic Kvenraþætti + Stjörnuspár Spennandisögur -Á Skák- og BridgeþæHi ■jjk Greinar um menn og málefni o. m. fl. 10 b!öð á ári fyrir aðeins 95 kr. NÝIR KAUPENDUR FÁ 3 ÁRGANGA FYRIR 150 kr. Póstsendið í dag eftirfarandi pöntun. Eg undirrit. .... óska að gerast áskrifandi að SAMTÍÐINNI og sendi hér með 150 kr. fyrir ár- gangana 1962, 1963 og 1964. (Vinsamlegast sendið þetta í ábyrgðarbréfi eða póstávísun). Nafn: ............................................ Heimili: ............................................ Utanáskrift okkar er SAMTÍÐÍN — Pósthólf 472. Evis. TÍMINN, miðvikudaginn 15. janúar 1964 9

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.