Tíminn - 01.02.1964, Síða 6

Tíminn - 01.02.1964, Síða 6
GERA ÞARF STÓRT ÁTAK OG LEYSA HÚSNÆÐISVANDANN Einar Agústsson hafði í gær framsögu fyrir þingsályktunar tillögu er hann flytur ásamt nokkrum þingmönnum Fram- sóknarflokksins öðrum um auknar lánveitingar vegna í- búðabygginga. Fjallar tillagari um kosningu nefndar til að' gera tillögur um nýja löggjöf um lánveitingar til íbúðabygg inga. Skal markmið þeirrar löggjafar vera, í 1. lagi, að auka lánveitingar til bygginga íbúða, þannig, að unnt verði að lána til hverrar íbúðar af hóflegri stærð tvo þriðju hluta byggingarkostnaðar, 2. að jafna aðstöðu manna til láns- f jár þannig, að heildarlán geti orðiS svipuð til hvers manns miðað við sömu stærð íbúðar, 3. að auðvelda mönn- um aðgang að lánsfé til að endurbæta eldri íbúðir og til i fbúðakaupa og 4. að lækka 1 bygglngarkostnað í landinu. Hér fer á eftir útdráttur úr ræðu Einars Ágústssonar: Bfalaust er, að húsnæði er ein af allra brýnustu nauðsynjum manna og erum við sem á þess- ari breiddargráðu búum, ekki hvað síst mjög háðir þessum lífs nauðsynjum, svo að jafnvel má jafna til fæðis og klæða. Ríkis- valdið hefur því um langt skeið álitið það siðferðilega skyldu sína í öllum menningarþjóðfé- lögum, að leggja fram aðstoð sina í því skyni að gera ein- staklingunum mögulegt að eign- ast þak yfir höfuðið. fslenzkir valdamenn hafa einnig fyrir all- löngu gert sér þessa staðreynd ljósa og stuðningur ríkisvaldsins til þessara mála hefur verið fyrir hendi í misríkum mæli nokkra undanfarna áratugi. Mjög skort ir þó á að hér sé nægilega að gert. Húsnæðisskortur er hér til- finnanlegur og hefur farið vax- andi að undanförnu. Enn þarf að gera ráðstafanir til útrým- ingar heilsuspillandi húsnæðis. Enn hefur ekki tekizt t. d., að útrýma herskálum hér í Reykja- vík, þrátt fyrir margendurtekin loforð. Þessar staðreyndir eru ó- glæsileg staðfesting þess, að við eigum enn mjög langt í land í því að koma húsnæðismálum okkar í viðunandi horf, þrátt fyrir velmegun og framfarir. Hér er því því ástæða til að láta fara fram athugun, eins og þá, sem þessi tillaga gerir ráð fyrir, og því fyrr, sem sú staðreynd er viðurkennd og handa hafizt, því betra. Það skal fúslega viðurkennt, að hér er um mikið átak að tefla, byggingarnar krefjast gif- urlegs fjármagns, og sú lagfær- ing, sem hér er lögð til í þess- um efnum mun kosta stórátak, en því átaki verður ekki undan komizt ef ekki á illa að fara. Húsnæðisleysið er alvarlegt þjóð félagsmein, sem verður að upp- ræta. Það torveldar stofnun heim ilanna, stendur í mörgum tilfell um í vegi fyrir því að menn fái notið heppilegra atvinnuskilyrða og sívaxandi húsnæðiskostnaður veldur því, að óhjákvæmilega eru gerðar hærri launakröfur en annars mundi. — Lágmarkslaun hljóta ávallt að miðast við það, að sá verst setti geti af þeim lifað. Þannig verða launasamn- ingar í reynd að verulegu leyti háðir því, hver húsnæðiskostnað urinn er. Dýrt húsnæði er því ein af alvarlegustu orsökum þeirrar skelfilegu verðbólgu sem hér rík- ir. Möguleikar manna til bygg- ingar íbúða eru aðallega komnir undir þrennu: Byggingarkostn- aði, lánsmöguleikum og eigin fjármagni. Um byggingarkostn- aðinn liggja fyrir opinberar skýrslur. Byggingarkostnaður var í október sl. 1834 krónur á rúmmeter. Meðalstærð íbúða, sem byggðar voru á árinu 1962, var um 375 rúmmetrar. Samkv. framangreindur tölum um bygg ingarkostnaðinn, mundi slík íbúð kosta 688 þúsund krónur. Verð- hækkunin nemur frá 1. október 1959 um 227 þúsund krónum, eða um 49% á þessum 4 árum. Hámarkslán skv. gildandi lögum út á hverja íbúð er nú 150 þús- und krónur, og hefur því verð- hækkunin á sl. 4 árum meira en gleypt alla lánsfjárhæðina. Sá sem byggir meðalíbúð í dag þarf að geta lagt fram af eigin ramm leik hvorki meira né minna en 538 þúsund krónur. Þarf ekki lengi getum að því að leiða, hversu afarmiklum vandkvæðum slíkt hlýtur að vera bundið, ekki sízt fyrir þá, sem ungir eru og efnalitlir. Þvi er augljóst mái, að til þess að bæta úr þessu ó- fremdarástandi þarf að stór- hækka lánin úr byggingarsjóði til hverrar einstakrar íbúðar. Það takmark, sem hér er miðaö við, að unnt verði að lána tvo þriðju hluta af kostnaðarverði meðalstórrar íbúar, er að vísu sett allmiklu lægra en tíðkast meðal þjóða í nágrannalöndun- um, þar sem slíkar lánveitingar komast allt upp í 90% kostnað- ar, en flutningsmönnum þessar- ar tillögu er Ijóst, að við mikla erfiðleika er að etja í þessu efni um útvegum lánsfjár, og telja þvi ekki ráðlegt að fara lengra en þetta í einum áfanga, enda um verulega úrbót að ræða frá því, sem nú er, en lánin hér nema nú aðeins tæpum 20% af kostnaðinum. Vitanlega kemur vel til greina fyrir þann sem ætlar að byggja, ekki sízt ef það er ungur maður eða ung hjón með litla fjölskyldu og takmörkuð auraráð, að byggja smærra en hér er um rætt. En jafnvel þótt um verulega minni íbúð væri að ræða, jafnvel 300 teningsmetra, til að taka dæmi af lítilli íbúð, er staðreyndin engu að síður sú, að hún mundi kosta 540 þúsund krónur og mundi þannig vanta um 400 þús und krónur til þess að koma henni upp, þótt hámarkslán fengis't. Þá er ennfrémúr mikil nauðsyn á því, að byggingar- sjóður hefði fjármagn til þess að greiða lánin til fólksins miklu fyrr en tíðkast hefur. Einn þátt- urinn og hann ekki smár í þvi hversu byggingarkostnaðurinn er hár, er einmitt það, hvað menn eru hér lengi með húsin í smíðum, en því veldur aftur i flestum tilfellum fjármagns- skortur. Þetta þarf einnig að laga. Aðallega er um tvær stofnan- ir að ræða, sem lána til íbúða- bygginga, þ .e. Byggingarsjóð ríkisins, sem lýtur forsjá Hús- næðismálastofnunarinnar, og lánar til íbúða í kaupstöðum og kauptúnum, og Stofnlánadeildar Búnaðarbankans, sem veitir lán til byggingar íbúðarhúsa í sveit- um. Hámarkslán munu hjá báð- um vera 150 þúsund krónur út á íbúð. Þessu til viðbótar eru svo nokkrar aðrar stofnanir, sem nokkuð hafa gert af því að veita lán til íbúðabygginga. Þar má til dæmis nefna lífeyrissjóðina. þeir velta talsverð lán til félags- manna sinna, enda svo ráð fyrir gert í reglum þeirra, að ávaxta megi það fé, sem í sjóðina safn- ast, á þann hátt, að kaupa fast- eignatryggð skuldabréf eða verðbréf eftir vissum reglum. Líf eyrissjóðirnir munu nú flestir veita hærri lán en fást úr hinu almenna veðlánakerfi. Þeir, sem þau lán fá, eru lika að því leyti betur settir en aðrir, að þeir hafa einnig getað fengið nokkurt lán hjá húsnæðismálastjórn. Lífeyr- issjóðirnir hafa því gert mikið gagn í þessum efnum, en að sjálfsögðu geta þeir ekki lánað til annarra en félagsmanna sinna, enda eru sjóðirnir í viss- um skilningi þeirra eign, þar sem þeir myndast af framlögum sjóðfélaganna og vinnuveitenda þeirra. Því má, heldur ekki gleyma, að hlutverk lífeyrissjóð- anna er fyrst og fremst annað en að vera lánastofnanir, þeir eru tryggingaraðili, og það hlut- verk þeirra þyngist eftir því sem árin líða og sjóðfélagar fara í ríkari mæli að taka eftirlaun og aðrar bætur. Að sama skapi dreg ur þá að sjálfsögðu úr möguleik um þeirra til útlána. Sparisjóðir hafa einnig lánað allmikið til íbúðabygglnga, en hvort tveggja er, að þeir geta ekki lánað nema til fremur skamms tima og að vandamáiin úm veðsetningar hindra í flest- um tilfellum að hægt sé jafn- framt að fá til þeirra íbúða lán úr byggingarsjóði. Byggingarsjóður verkamanna lánar til verkamannabústaða og er þar talsvert ríflegar skammt- að en úr opinberum sjóðum, þótt langur vegur sé frá, að þar sé um nokkra ofrausn að ræða. Þessi sjóður hefur einnig yfir of litlu fjármagni að ræða og getur því ekki aðstoðað nema fáa. Þá ber að geta þess, að einstök bæjarfélög, aðallega þó Reykja- vík, hafa lánað samkvæmt lög- um um útrýmingu heilsuspill- andi húsnæðis og er þá bygg- ingarsjóður ríkisins skyldugur til að leggja jafnháa fjárhæð á móti, auk þess sem svoköliuð A og B- lán húsnæðismálastjórnar koma þarna einnig til. Lánveitingar til íbúðabygglnga ganga þannig nokkuð misjafnt yfir. Það verður því einnig verk- efni þeirrar nefndar, er hér um ræðir, að gæta samræmis í þess- um málum, ekki til þess að draga úr aðstoð til þeirra, sem hennar njóta nú mestrar, heldur til þess, að setja reglur er miði að fyllsta réttlæti í skipan lánamála og gera aðstöðu manna sem jafn- asta. 1 þriðja iið þessarar tillögu er athygli vakin á því, að hag- kvæmt geti verið að veita nokkru lánsfé til að endurbæta eldra húsnæði og til að auðvelda mönn um kaup á húsum og til eigin nota. Engin lánastofnun mun telja það í sínum verkahring að lána fjármagn í þessu skyni. Loks gerir tillagan ráð fyrir að hin nýja löggjöf hafi sérstax- lega að markmiði að lækka bygg ingarkostnaðinn í landinu. Afleiðing hins háa byggingar- kostnaðar og lánsfjárskortsins er sú, að minna er byggt, og þetta alvarlega ástand fer versn- andi með vaxandi dýrtíð. Þetta sýna opinberar skýrslur um byggingar undanfarinna ára svo að ekki verður um villzt. Tölur um íbúðir, sem byrjað hefur verið að byggja annars vegar árin 1955—1958 og hins 'vegar árin 1959—1962 sýna þetta Við samanburð milli þessara fjögurra ára tímabils sést, að samdrátturinn nemur 40% í sveitum; 19% í kauptúnum. 30% í kaupstöðum öðrum en Reykja- vík, og 40% í Reykjavík. Afleið- ingin er vitanlega það öngþveitl. sem i húsnæðismálum ríkir, hús- næðisskortur og uppsprengd EINAR ÁGÚSTSSON húsaleiga, notkun heilsuspillandl húsnæðis. Lækkun byggingarkostnaðar er þjóðfélagsleg nauðsyn. í 2. gr. laga um húsnæðismálastofnun, eru ákvæði um ráðstafanir til lækkunar á byggingarkostnaði. Þeim ráðum, sem þar greinir, hefur þó mjög óverulega verið beitt, og má segja, áð'lögin hafi aldrei verið framkvsemt að þessu leyti. Stórauka þarf framlög til ým- iss konar rannsókna í þágu | byggingariðnaðarins og er eng- | inn vafi á því að hér sé ótæm- andi verkefni að vinna. Furðu vekur, að þrátt fyrir allar þær stórfelldu framfarir, sem orðið hafa í byggingarmálum með til- komu nýrra tækja og nýrra efna sem ættu að auðvelda þessar framkvæmdir, þá skuli þróun mála á íslandi verða sú að bygg- ingar verða dýrari og dýrari og taka sífellt lengri og lengri tima. Hér hlýtur að verða að brjóta i blað og fyrtt einstaklingarnir hafa ekki getað notfært sér nýj- ungarnar á heppilegri hátt en raun ber vitni, hlýtur hið opin- bera að láta málið til sín taka. f skýrslu sinni um íbúðarbygg- ingar og fjárframlög til þeirra á íslandi bendir Jóhann Höff- man, bankastjóri frá Noregi með al annars á það, að lækka þurfi útlánsvextir til íbúðabygginga verulega frá þvi, sem þeir eru nú. Vextir af íbúðalánum verða að vera óháðir skammvinnum sveiflum á hinum almenna lána markaði segir hann. Ennfremur bendir hann á að lánin verði að vera til langs tíma, með lágum afborgunum fyrst í stað og margt fleira bendir hann á, sem full þörf er að gefa gaum. Þorvaldur Garðar Krist.iánsson taldi, að ástandið í húsnæðisma.l unum væri ekki eins slæmt eins og Einar Ágústsson vildi vera láta. Reyndar væri það stað- reynd, að fjárfesting í íbúðarhús næði hefði i tíð núverandi st.jórn ar verið 15% minna en í tíð vinstri stjórnarinnar. en það væri ekki einhlýtur mælikvarði á ástandið í þessum málum. því að þörfin fyrir íbúðarhúsnæði er nú minni en áður. vegna þess, að svo mikið var byggt á síðasta áratug og húsnæðisástandið hef Framhald é 15 siSu. ■A: BJÖRN PÁLSSON itafSI I gær framsögu fyrlr tillögu um auklnn ISn- rekstur f kauptúnum og þorpum, er Hann flytur ásamt þelm Gunn- arl Glslasyni og Benedikt Gröndal. Auk hans tóku þátt i umræðunum þelr Gisli Guðmundsson, Ágúst Þorvaldsson og Gunnar Gíslason. Ár ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON hafSÍ framsögu fyrir tillögu sinni um end- urkaup SeSlabankains á hráefnavíxlum ISnaSarins. Kom til a11 harðra orSaskipta milli hans og viðskiptamálaráSherra. ■4r NÁNAR verður greint frá þessum umræðum síðar. 6 TÍMINN, laugardaginn 1. fehrúar 1964 —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.