Tíminn - 01.02.1964, Page 13

Tíminn - 01.02.1964, Page 13
HEIMA OG HEIMAN Franjhalc aí bls. 3. kom og rétti okkur fuglasteikina, hélt svo áfram: ,,Það hlýtur að hafa verið árið 3916, sem ég var á Fiji. Það var árið áður en ég var sendur til Eússlands. Þú manst, 1917 var ég sendur þangað í leynierindum. —■ Hafði verið í leyniþjónustunni um hríð, og í þeim erindum fór ég líka til Fiji- En þá var ég kvaddur til Washington og þar fékk ég feikna fúlgu af peningum frá rík- isstjórnum Bandaríkjanna og Bret lands. Og síðan var ég sendur til Pétursborgar. Þér að segja: Þeir sendu mig þangað af því að þeir héldu, að ég gæti stöðvað bylt- ingu Bolsévikkanna“. Enn spennti Villi greipar og losaði þær aftur, hélt síðan áfrarn „Peningana, sem ég hafði feng- ið til helminga frá Bandaríkjun- um og Bretlandi, var mér ætlað til að hjálpa Mensévíkkunum til að kaupa vopn fyrir og kosta blaðaútgáfu svo að Rússland héldi styrjöldinni áfram og Bolsévikk- arnir gætu ekki náð völdum. Ég sagðist ekki vera rétti maðurinn til þessa verks, en þeir trúðu mér ekki, héldu, að úr því að ég væri rithöfundur, hlyti það að vera upp lagt yfirskin. Sjáðu til, til að sýn- ast átti ég að skrifa fréttabréf fyr- ir Daily Telegraph". Villi þagnaði og varð dapur, sagði síðan: „Ég verð að játa, að mér mistókst — algerlega". „Hvers vegna?“ spurði ég. „Eins og ég sagði þér, var mér astlað að stöðva byltinguna. Það var mikill ábyrgðarhluti. Ekki botna ég í því, hvers vegna þeir völdu mig í þetta verk. Þeir hefðu átt að þekkja mig, þá hefðu þeir aldrei sent mig, það er ég hand- viss um. Ég hafði ekki hugmynd um, á hverju ég ætti að byrja, ég var ekki rétti maðurinn . . . Þá gripu þeir til þess ráðs að senda mig til Rúmeníu, en ég fór hvergí- Þó hefði ég átt að fara“. Alan laut niður að honum yfir borðið og talaði hægt og skýrt, því að Villi á til að vera mjög heyrnasljór: „Þú fórst ekki, því ef þú hefðir farið, myndirðu hafa dáið úr tæringu“. „Það er nú svo“ anzaði Villi. , En ef ég hefði verið hæfari og ekki svona veikur, þá hefði ég ínáske getað stöðvað byltinguna“. Nú fékk Villi sér sígarettu úr silfuröskjunni á borðinu og kveikti í henni, sagði síðan: „En burtséð frá öllu öðru, þú getur ekki ímyndað þér hvað það háði mér sem leyniþjónustumanni. að ég stamaði. Einn haustmorgun sendi Kerensky eftir mér og bað mi.g fyrir skilaboð til Lloyd Ge- orge. Það voru svo þýðingarmikil leyniboð, að hann vildi ekki láta mig fá þau skrifleg. En þegar ég kom aftur til London, skrifaði ég skilaboðin á blað, af því að ég vissi, að þegar ég ætti að fara að segja forsætisráðherranum þau, myndi ég byrja að stama. Lloyd George var önnum kafinn, þegar ég hitti hann, svo ég rétti honum bara orðsendinguna. Hann leit að- eins snögglega á blaðið. Hefði ég lesið orðsendinguna fyrir hann, hefði það getað breytt öllu. Máske væri heimurinn allt annar í dag. En ég hespaði þetta af. Og því íinnst mér allt hafa mistekizt mér“- Villi lætur sér nú fátt um finn- est alla frægðina. lítur á hana sem þann hluta lífsins, sem hann er krminn úr. tengslum við. „Ég er mjög ómerkileg persóna. Það sem ég segi, skiptir engu máli“, sagði hann við mig Hann er orð- inn gamall og út af fyrir sig — en góðviljaður oe fullur hæversku. — Þeir fóru nýverið saman til Miin- chen, Alan og Villi. Alan skildi hann eftir á stétt fyrir framan bókabúð á meðan hann fór að vitja um farangur þeirra. Þegar bann kom til baka, var Villi horf- inn. Alan leitaði hans dyrum og ‘dyngjum, og loks fann hann frænda í hrókasamræðum við brezk hjón, sem þar voru á ferð. — Konan leiddi Alan afsíðis svo lítið bar á og sagði við hann: „Þettá' er elskulegasta gacnal- menni! Við máttum til að spyrja blessaðan kútinn að nafni. Aldrei mynduð þér gizka á, hvað hann sagði við okkur. Vitið þér bara — blessaður karlinn heldur sig v'era Somerset Maugham!“ 520 MILLJÓNIR Framhaid af 9 síðu. (að kjallara meðtöldum) í stað 35.6000 rúmmetra, sem ráðhúsið á að vera samkvæmt uppdráttum ráðhúsnefndar. Með núverandi verðlagi ætti að mega byggja skrif stofuhús það sem hér um ræðir fyrir um það bil 2500 krónur rúm- tnetrann, mjög vandlega og vel úr garði gert í alla staði, en án alls tildurs og prjáls. Heildarkostnað- urinn við þessa byggingu yi-ði því kr. 75.000.000 eða aðeins helming ur þess, sem ráðhúsbyggingin á að kosta. Þessi bygging myndi full- nægja öllum eða svo að segja öll- um þörfum borgarinar og mikli kosturinn við slíka stjórnsýslu- byggingu myndi vera sá, að þar væri hægt að koma við fullkom- inni rafeindatækni hvað snertir bókhald og allt skipulag. Væntan- lega má fækka skrifstofustarfs- liði borgarinnar um 20%, úr 300 í 240, eða um 60 manns, og spara þannig 9 milljónir króna rekstrar- kostnað árlega, sem að frádregn- um 2 milljónum fyrir ársleigu á vélum myndi gefa hreinan sparnað í rekstrarkostnaði á ári um 7 milljónir króna. Vegna þess að húsið væri byggt fyrir 300 manna starfslið, en bæjarstarfslið væri aðeins til að byrja með 240 manns vegna sparnaðarins, væri húsið vel við vöxt og mætti því til að byrja með leigja %. hluta þess öðrum opinbernm áðilum, þangað til borgin þyrfti að nota plássið sjálf. Þannig myndi fé það, sem sparaðist vegna fækkunar starfsliðs og leigutekjur af bygg- ingupni gera meira en að standa undir kostnaði við bygginguna. Byggingin myndi standa á lóð, sem væri opinber eign og þyrfti því engar lóðir að kaupa eða hús að rífa. Reykjavíkurborg myndi því fá stjórnsýslu byggingu sína og þar með alla nauðsynlega fundar- sali fyrir ekki neitt. Hagræðingin myndi, ef rétt væri á haldið, borga brúsann og Reykjavikurborg spara sér 250 milljónir króna. Þæg indin fvrir borgarbúa myndu líka vera mjög mikil að geta gengið að svo til öllum skrifstofum og fund- arsölum borgarinnar á einum stað í stað þess að verða að þeytast fram og aftur um alla borgina til þess að fá jafnvel lítilvægum er- indum aflokið. Á VÍÐAVANGI INGAR VIÐ AÐItA AÐILA OG STUNDARERFIÐLEIKAR ÞJÓÐARBÚSINS GETI SKAP- AD TÍMABUNDIN VAND- KVÆÐI _ ER MARKMIÐIÐ AUGLJÓST“, Þetta er ofur augljós sektar- játning og fyrirgefningarbón. ÞEGAR SÁL VAR iFramnaio -.1 ö sfðu.) viðtökum að fagna, og það eigi að- eins frá vinum tnínum og sam- herjum, heldur einnig frá mörg- um öðrum, sem ég síður hefði get- að vænzt þess af. Öll blöð lands- ins, sem ég hef ástæðu til að bera nokkra virðingu fyrir, hafa tekið mér hlýlega, eða að minnsta kosti sæmilega. Ég minnist þess þakklát- lega, og það því fremur, sem ég hef hvorki aldur, lærdóm eða póli tíska yfirburði til þess, að það gæti verið sérlega líklegt, að menn mundu svo alcnennt fella sig við valið- Ég tek þetta sem góðs vita, sem góðan fyrirboða um friðsemi, og einlægan vilja til dyggilegrar samvinnu á grundvelli hins nýja stjórnarfars, með heill fósturjarð- arinnar eingöngu að markmiði“. MANNVAL f ST JÓRN ARRÁÐINU. Hinn nýi ráðherra valdi sér sam starfsmenn í stjórnarráðinu. Mikil vægast þeirra embætta var land- ritarastarfið. Nokkur togstreita mun hafa orðið um það, en fyrir valinu varð Klemenz Jónsson sýslumaður og bæjarfógeti á Ak- ureyri. Var stjórnarráði síðan skipt í þrjár deildir eða ráðuneyti og sérstakur skrifstofustjóri yfir hverju. Jón Magnússon, setn verið hafði landshöfðingjaritari, varð skrifstofustjóri í kennslu- og dóms málaráðuneyti. Jón Hermannsson, lögfræðingur varð skrifstofustjóri í atvinnu- og samgöngumálaráðu- neyti. Eggert Briem, sýslumaður Skagfirðinga, varð skrifstofustjóri í fjármála- og endurskoðunarráðu- neyti. Þá var og ákveðið, að stjórn arskrifstofurnar skyldu vera opn- ar frá kl. 10 árd. til kl. 4 siðdeg- i? og viðtalstími ráðherrans hvern virkan dag kl. 12—2- Þar með hófst hinn virki dagur íslenzkrar landsstjómar. — A.K. 0PNUM I DAG CAV varahlufaverzlun á Laugavegi 176 (húsi Bílasmiðjunnar) með LUCAS, C.A.Y. og GRILING vörur Við munum framvegis hafa úrval þessara vara á boðstólum. BL 0SSI s.f. Laugavegi 176 — Sími 23285 BfrcT; tifíií U Reykjarpfpur vandann ■CONDENSINCH CHAMBEH 50 ára reynsla „MASTA"-pípan er af sérstakri gerð, sem engin önnur píputegund hefur. Gerð „MASTA"-pípunnar er einföld en hún tryggir nauðsynlegt hreinlæti og útilokar nikótín-hlaðið remmubragð í munni, sem orsakast af sósu, sem safnast í munnstykkin á venjulegum pípum. Raki er í öllu tóbaki en í „MASTA" dregst þessi raki gegnum rör inn í safnhólfið. Með þessu móti verður reykurinn þurr og kaldur. MASTA er píputegund Seld á hóflegu verði Umboð: ÞÓRÐUR SVEINSSON & Co. h.f. Fást í verzlunum víða um land- [eíSourne STRETCH NYLON STAKAR KARLMANNABUXUR tízkuefni, tízkusnið fyrir unga, granna karlmenn Fást í helzfu karlmannafataverzlunum víSa um land. TÍMINN, laug»rdaginn 1. tebrúar 1964 — 13

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.