Tíminn - 01.02.1964, Qupperneq 15
TVÖ SKIP í HÆTTU
Framhald af 1. síSu.
á skerinu, og mun hún þurfa í
slypp til viðgerðar á skrúfunni,
sem mun hafa laskast. Það er af
Kötlunni að segja, að vélar henn-
ar voru settar í gang, er út fyrir
höfnina kom, og hélt hún sína leið
til næsta áfangastaðar á leið sinni,
Akraness. Enginn leki mun hafa
komið að skipinu, þótt það lægi
utan í fjörugrjótinu.
Hjálpin sem Eldey veitti Kötlu
mun að öllum líkindum verða talin
björgun, en aðstoð sem Vilborg
veitti Eldey.
LEXIA BJARNA
Framhald af 1. síSu.
ár er fyrirsjáanlegt, að greiðslu
afgangur verður gífurlegur, en
samt eru nú lagðar á nær 300
milljónir í nýjum álögum og
nýjum stéttaátökum og ófriði
boðið heim.
Framsóknarmenn beittu sér
eindregið gegn þessum hækk-
unum. Bentu réttilega á, að
þær væru algerlega óþarfar og
myndi illt eitt af þeim hljót-
ast. Af óheillabraut „viðreisn-
arinnar” verður að snúa. Þjóð
in krefst stefnubreytingar.
TAPAZT
HEFUR
Ómörkuð hryssa á 3.
vetur. Litur og eink.:
Skoljörp, með mikið,
svart fax og tagl, skeið-
lagin, stór eftir aldri og
spök.
Ef einhver hefur orðið
var við hryssu þessa,
vinsamlegast láltið vita
að Hvítárholti
Hrunamannahreppi
Árnessýslu
Elín Kristjánsdóttir
JfauaiS
JZauoa Kvoíí
frimerkin
FRETTIR AF LANDSBYGGÐINNI
SS-Reyni í Mýrdal, 28. jan.
HÉR gerði mikinn byl og
snjó síðasta sunnudag, svo að
ailir vegir urðu slæmir. Þessu
fvlgdi tveggja stiga frost, en á
Steinum undir Eyjafjöllum var
á sama tíma níu stiga hiti. Nú
er aftur rigningarsuddi í Vík-
inni, eins og annars staðar.
NH-Hofsósi, 28. jan.
EfNS og sagt var frá utn dag
inn, ætluðu bátar að reyna við
smásfld hér inni á firðinum, en
það hefur engan árangur bor-
ið, bæði vegna veðurs og einn-
ig þess, að síldin stóð svo
grunnt, að ekki var hægt að
kasta á hana. Ekki er ákveðið,
hvort bátarnir reyna frekar við
síldina, þeir fóru að róa aftur.
JH-Skógaskóla.
ÞAÐ þykir tíðindum sæta í
Mýrdalnum, að ær ein á bæn-
um Framnesi bar núna fyrir
i'úmri viku. Gekk burðurinn vel
og ærin varð tvílemb. — Má
því heita, að sauðburður sé haf
inr, í Mýrdalnum.
FERÐUM FÆKKAR
Framhald af 16. siðu.
um tilkostnaði að einhverju leyti
með hagkvæmari rekstri, leggja t.
d. niður óþarfar ferðir, svo að ekki
þyrfti að taka allt með hærri far-
gjöldum. Verkfalli bílstjóra er nú
nýlokið og á kjaradómur að úr-
skurða laun þeirra, og fyrr en sá
úrskurður er fengin, er ekki hægt
að gera neinar fargjaldahækkan-
ir á leiðinni, þótt þær verði óum-
flýjanlegar þá. Þangað til a. m. k.
verða ferðir ekki nema þrjár á
klukkustund, en hvort þeim verð-
ur fjölgað aftur, verður reynslan
að skera úr um. Þess má geta, að
ferð verður eftir sem áður kl.
13,15 úr Hafnarfirði, og auk þess
verða tveir vagnar sendir áfram
á mestu annatímum.
LÍTILL ÁHUGI
Framhald af 16. síðu.
líkindi til, að íslendingar sjálfir
stundi þær veiðar, sem um er að
ræða.
Skip vor ferma vörur til íslands
sem hér segir:
Hamborg
M.s. Laxá 1. febrúar
M.s. Selá 15. febrúar
M.s. Laxá 29. febrúar
Rotterdam
M.s. Laxá 4. febrúar
M.s. Selá 18. febrúar
M.s. Laxá 3. marz
Hull
M.s. Laxá 6. febrúar
M.s. Selá 20. febrúar
M.s. Laxá 5. marz
Gdynia
M.s. Rangá 14. febrúar
Gautaborg
M.s. Rangá 17. febrúar
mm
HAfNARHUSÍNU REYKJAVIK
SIMNEFNI: HAFSKIP SIMI 21160
ORSÖK ÁSIGLINGA
Framnala at 16. síðu.
ur ekki greiðan aðgang að renna
að skrúfunni, getur þessi undir-
þrýstingur orðið svo lágur, að
hann komist niður í þrýsting mett-
aðs eims, og myndast þá holrúm
við skrúfuna, fyllt eim eða vatns
gufu. Ef skrúfan er þar að auki of-
arlegaXvatnirui, iL.e^a.ej.ski
ið er lítið eða ekkert hlaðið, er
hætta á, að hún nái að soga lóft,
og getur þá farið svo, að hún snú-
ist í loft- og eimhjúp, og er hún
þá óvirk. Er þetta fyrirbæri nefnt
„kavitation". Mesta hætta er á að
þetta gerist er, þar sem vatn er
grunnt og þrengsli umhverfis
skrúfuna, ef skrúfan snýst mjög
hratt og ef skipið er lítið eða ekk
ert hlaðið. Öll þessi skilyrði voru
rækilega fyrir hendi, þegar Hekla
sigldi á bryggjuna á Siglufirði 1
j des. s. 1., og þó að það atvik hafi
sérstaklega verið srannsakað, má
búast við, að margar aðrar ásigl-
ingar hafi einmitt orðið af sömu
völdum.
Gunnar Bjarnason sagði að niður
staða rannsóknarinnar mætti telj-
ast 100% örugg. Hins vegar væri
ekki hægt að gefa neitt óbrigðult
ráð til þess að koma í veg fyrir
ásiglingar af þessu tæi annað cn
að fara varlega, þegar framan-
greind skilyrði eru fyrir hendi. —
Hættan er ekki eins mikil, ef skrúf
an snýst hægt.
HITTA TUNGLIÐ
Framhald af 1. síðu.
Áður en geislamerkin settu stýr-
isvélarnar í gang, var Ranger VI.
á braut, sem lá um 1000 km. frá
tunglinu.
Geimskipið er fullt af sjónvarps-
vélum, og eiga þær að senda um
3000—6000 myndir af yfirborði
tunglsins til jarðar. Verða þær
myndir teknar þegar 10 mínútur
eru eftir að hinni 380.000 km.
löngu ferð Rangers VI.
Bandarískur tunglsérfræðingur,
C. Q. Henderson, sagði í dag, að
hann teldi líklegt, að fyrsta mann
aða geimfarið myndi lenda á tungl
inu árið 1970, og að fyrsti rann-
sóknarleiðangurinn yrði sendur
þangað 1972 ,— Sú rannsókn mun
standa í 90 daga, og einkum vera
jarðfræðileg — sagði hann.
Samvinnan komin út
JANÚARHEFTI tímaritsins Sam
vipnan er nýkomið út og hefst
með því fimmtugasti og áttundi
árgangur ritsins. Jafnframt verða
nú ritstjóraskipti. Séra Guðmund-
'fr Sveinsson, sem verið hefur rit-
stjóri undanfarin ár, lét af því
starfi nú utn áramótin, en við rit-
stjórninni tók Páll H. Jónsson. —
Verður hann jafnframt forstöðu-
maður Fræðsludeildar Sambands-
Fór þrjár veltur
KJ-Reykjavík, 31. janúar
í gær valt Volkswagenbíll út af
Keflavíkurveginum á móts við
Voga. Fór bíllinn þrjár veltur, en
maður sem í honum var mun ekki
hafa talið sig slasaðan að ráði.
Tók hann sér far með næsta bíl
til Keflavíkur, en mun svo síðar
hafa verið fluttur á sjúkrahús til
Reykjavíkur.
DE GAULLE
Framhaid at I. síðu.
Sovétríkjanna sagði de Gaulle, að
stjórn Sovétríkjanna hefði ætlað
að hafa Kína í hendi sér og ráða
þannig yfir Asíu, en að Peking-
stjórnin hefði tekið sína eigin
án þess að vera bundin
um. Hann-benti-líka á,
að líklega myndi aukið samband
við Peking draga úr þeirri spennu,
sem ríkir á milli austurs og vest-
urs.
Hann benti einnig á, að þótt
Frakkland viðurkenni Pekingstj.
þá fæli það ekki í sér neina við-
urkenningu á einræðisstjórn Mao
Tse-Tungs.
Um hlutleysi S.-Austur Asíu
sagði de Gaulle, að allir slíkir
samningar yrðu auðvitað að fá
samþykki viðkomandi þjóða. —
Hlutleysissáttmálinn þarf að vera
alþjóðlegur — sagði hann — og
það á að koma í veg fyrir, að bar-
dagar brjótist út á milli þessara
þjóða, eða að óviðkomandi lönd
blandi sér inn í deilurnar.
De Gaulle talaði annars um ým-
is innanríkismál, og um vandacnál-
in innan Evrópu, án þess þó, að
hann segði nokkuð nýtt í því sam-
bandi. Hann lagði þó mikla á-
herzlu á, að Frakkland væri það
land í heiminum, sem veitti mesta
hjálp til vanþróaðra landa miðað
við fólksfjölda. Hann lýsti ánægju
sinni yfir samkomulaginu um
landbúnaðarstefnu Efnahagsbanda
lags Evrópu, og fordæendi stuðu-
ingi Breta við tillögu Bandaríkj-
anna um kjarnorkuvopnaflota fyr
ii NATO með áhöfn frá öllum með
limaríkjunum.
Um 1000 blaðamenn og sendifull
trúar erlendra ríkja voru viðstadd-
ir blaðamannafundinn, sem er sá
fyrsti sem de Gaulle heldur síðan
28. júlí í fyrra.
*rá Alþinei
Framhald aí 6 síðu.
ur í raun batnað mikið frá þvi
sem áður var. Þá sagði Þorvald-
ur að æskilegt væri að auka lán-
veitingar og lækka byggingar-
kostnað, og húsnæðismálastjórn
hefði þessi mál nú öll til endur-
skoðunar.
ins, eins og verið hefur. Blaðam.
við Samvinnuna er Dagur Þor-
leifsson.
Samvinnuskólinn, Bréfaskóli
SÍS og fræðslunámskeið heyra und
ir Bifröst — Fræðsludeild og
lúta stjórn séra Guðmundar Sveins
sonar skólastjóra, eins og verið
hefur. Tímaritin, Samvinnan og
Hlynur, heyra nú undir Fræðslu-
deild SÍS.
Stúlkur
Ungur bóndi í Skagafirði,
býr á velhýstri og góðri
jörð óskar eftir að kynnast
stúlku á aldrinum 18—30
ára, er áhuga hefur á bú-
skap. Algerri þagmælsku
heitið.
Tilboð, ásamt mynd, send-
ist afgr. Tímans, Banka-
stræti 7 merkt:
„Sveitabúskapur í Skaga-
firði“.
SKIPAUl(iCltl> KIKISINS
Ms. Hekla
fer austur um land í hringferð
6. þ.m. Vörumóttaka árdegis í
dag og á mánudag til Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar, Norðfjarðar. Seyðis-
fjarðar, Raufarhafnar og Húsa.
víkur. Farseðlar seldir á mið-
vikudag.
Skjaldbreið
fer til Ólafsvíkur, Grundarfjarð
ar og Stykkishólms á miðviku-
dag. Vörumóttaka árdegis í dag
og á mánudag. Farseðlar seldir
á þriðjudag.
RYÐVÖRN
Grensásveg 18, sími 19945
- Ryðverjum bílana með
Tectyl
Skoðum og stillum bílana
fljótt og vel
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 32. Sími 13-100
B!LA-
AKLÆDI
Hlífið áklæðinu í
nýja bílnum
Endurnýið áklæðið í
gamia bílnum
Framleiðum áklæði í
allar árgerðir og
tegundir bíla
0TURH.F.
Hringbraut 121
Sími 10659
ALLT Á SAMA STAÐ
FERODO
BREMSUBORÐAR
í ALLA BÍLA
Sendum gegn
póstkröfu
FERODO
Egill Vilhjálmsson h.f.
Laugavegi 118, sími 2-22-40
Hjartkær eiginmaður minn,
Arnór Guðmundsson
fyrrv. skrifsfofustjórl,
lézt 31. janúar s. I. — Fyrir hönd aðstandenda.
Margrét Jónasdóttir.
T f'M-l N N, laugardaglnn 1. febrúar 1964 —
15