Tíminn - 07.05.1964, Síða 5
Mótið verður haldið
í júlímánuði 1965
Þessl mynd er frá Laugum í N.-Þlngeyjarsýslu, en þa r var síðasta Landsmót UMFÍ haldið. Fremst á
myndlnnl er hllðlð að fþróttasvæðlnu, og lengra nlður frá má sjá tjöld í hundraða tall, en mikiS fjöl-
mennl er |afnan, þegar landsmót eru haldln.
maí því að forkeppni verð-
ttr að fara fram sumarið 1964.
THkynni ekki nema tvö hér-
aðssambönd þátttöku í annarri
hvorri þessara greina fellur
keppni niður. Undirbúnings-
nefnd og stjórn UMFÍ felur
trúnaðarmönnum niðurröðun
leikja. í keppninni skal telja
tvö stig fyrir unninn leik, eitt
fyrir jafntefli og 0 fyrir tap-
aðan leik. Verði lið jöfn að
stigum ákveðst röð til lands-
móts stiga samkvæmt fjölda
fenginna og skoraðra marka í
undankeppni (fyrri og síðari).
Þau 6 lið, sem eru eftir að lok
inni fyrstu umferð skulu hljóta
5 landsmótsstig. Það lið sem er
nr. 1 í úrslitakeppni, fær 9
stig auk 5 stiga úr undan-
keppni, nr. 2 fær 6 stig auk
5 úr undankeppni og nr. 3 fær
2 stig auk 5 úr undankeppni.
Það lið, sem sigrar, hlýtur sér
verðlaun. Leikmenn í úrslitum
hljóta viðurkenningarskjöl.
E. Handknattleikur
Sömu reglur gilda sem um
knattspymu.
Körfuknattleikur karla verð-
ur tekinn á mótsskrá landsmóts
ins sem sýningargrein.
F. Starfsíþróttir
Þingið leggur til, að á næsta
landsmóti UMFÍ fari fram
keppni í eftirtöldum starfs-
íþróttum:
1. Lagt á borð og blómaskreyt-
ing 2. fl.
2. Ostafat og eggjakaka 2. fl.
3. Jurtagreining 2. fl.
4. Dráttarvélaakstur 1. fl. ungl-
ingar.
5. Gróðursetning trjáplantna 1.
fi.
6. Búfjárdómar 1. fl.
Stjórn og mótsnefnd heimil-
ast þó að láta búfjárdóma fara
fram á öðrum stað og tíma, ef
hagkvæmara þykir. Ef keppni
fer fram í tveimur aldursflokk
um, skal yngri flokkur miðast
við 20 ára og yngri, en sá eldri
yfir 20 ára. Sé keppt í tveim-
ur aldursflokkum, eru tveir
þátttakendur háinark frá
hverju héraðssambandi, en þrír
ef um einn flokk er að ræða.
Þess má að lokum geta, að
Ungmennafélag fslands og Hér
aðssambandið Skarphéðinn
hafa nána samvinnu um allan
undirbúning að þessu 12.
landsmóti. Formaður UMFÍ
er, eins og kunnugt er, sr. Ei-
rfkur J. Eiríks.
Héraösskóllnn a3 Laugarvatni.
Bridgemótið í Juan Les Pins:
MEÐALSKOR I
1. UMFERÐINNI
Hsím, Reykjavík, 6. maL
Stórmótið í bridge i Juan Les Pins í Suður-Frakklandi er ná f
fulltnn gangi, en þátttakendnr okkar á mótínu eru fslandsmeistararn-
Ir í tvímenningskeppni, Símon Símonarson og Þorgeir Sigurðsson.
Þegar blaðið náði tali af þeim í dag hafði fyrsta umferð keppninnar
verið spiluð og höfðu þeir holtið rúmlega meðalskor í hcnni, þrátt
fyrir nokkra byrjunarörðugleika vegna málsins, en allar sagnir voru
á frönsku, sem þeir höfðu ekki búizt við-
Tvímenningskeppni mótsins
hófst á þriðjudag klukkan fjögur
eftir íslenzkum tíma og taka 250
pör þátt í henni — og þrátt fyrir,
að Ólympíumótið standi yfir í
New York á sama tíma, eru marg
ir heimsfrægir spilarar, þar á
meðal og má t. d. nefna fyrrver-
andi heimsmeistara Frakkana
Jais og Trezel, sem taldir hafa
verið beztu menn franska lands-
liðsins s. 1. áratug. Flestir þátt-
takendur eru franskir, en einnig
fjölmargir frá öðrum löndum,
einkum nágrannalöndum Frakk-
lands, og einnig enskir atvinnu-
menn, svo að eitthvað sé nefnt.
Eftir fyrstu umferðina á þriðju-
dag voru Símon og Þorgeir rétt
fyrir framan miðju með 3148
stig, en meðalskor er 3120. Alls
verða spilaðar fimm umferðir og
var önnur umferð í gærkveldi.
Þeim Símoni og Þorgeiri gekk
mjög illa framan af — allar sagn-
ir voru á frönsku, sem þeir höfðu
ekki búizt við — heldur ensku
eins og er á nær öllum alþjóða-
mótum — og einnig var þeim
framandi frönsku orðin yfir ás,
kóng, drottningu og svo framveg-
is. Þetta háði þeim skiljanlega og
eftir fjórar fyrstu seturnar höfðu
þeir aðeins hlotið um 25% skor
— eða voru um 400 stigum lakari
árangur en meðaltalið. En þá voru
málaerfiðleikarnir að mestu úr
sögunni og þeir sóttu sig jafnt og
þétt og þegar ég ræddi við þá í
gær, voru þeir mjög ánægðir
með að hafa komizt yfir meðal-
tal, þrátt fyrir hina slæmu byrj-
un, og virtust báðir bjartsýnir á
áframhald keppninnar. Að sögn
þeirra var veður hið fegursta á
Bláströndinni, og allur aðbúnaður
hinn bezti.
Eftir fyrstu umferðina voru
tveir óþekkt.ir franskir spilarar
í efsta sæti með um 4000 stig
— eða um 67%, sem er nær ótrú-
legur árangur á jafn sterku móti.
Frægir spilarar höfðu ekki beint
blandað sér í baráttuna um efstu
sætin eftir umferðina — enda á
sennilega ýmislegt eftir að ske
í jafn langri keppni, en eins og
áður segir verða spilaðar fimm
umferðir og lýkur tvímennings-
keppninni á sunnudag.
Afmælismót KR í körfuknattleik fór fram aS Hálogalandi í fyrrakvöld.
ÍR-IISlð bar sigur úr býtum eins og vænta mátti, mætti KR í úrslitum
og vann meS 35:28. Myndin aS ofan er frá leik ÍR og KR. Nýliðl í ÍR-
liðinu, Jón Jónsson, skorar fyrir félag sitt, en þeir reyna að stöðva hann,
Kolbeirrn og Kristján í KR-liðinu.
TÍMINN, flmmtudaginn 7. maí 1964
5