Tíminn - 16.05.1964, Blaðsíða 3

Tíminn - 16.05.1964, Blaðsíða 3
I Þáttur kirkjunnar „Vér skulum þínir vottar vera" Flestir, sem hafa komið til Rómar „borgarinar eilífu“ við Tíberfljót, hafa séð Colosseum, hið mikla, forna hringleikahús með sæti fyrir áttatíu þúsund áhorfendur. Þetta er eitt af snilldarverkum byggingarlistar frá upphafi mannkynssögunnar og fram á þennan dag. Keisarinn, sem lét byggja leikhúsið var að sjálfsögðu mjög stoltur af því og undir- bjó vígsluna með pomp og pragt. Vígsludagurinn rann upp og hvert sæti var skipað helzta fólki borgarinnar. Æpt var í lúðra, að allt skyldi hljótt. Keisarinn gekk þá fram og flutti vígsulræðu sína og hrós- aði sérstaklega hinum gríska húsmeistara, sem hafði stjórnað húsbygginguni, kallaði hann fram og setti hann við hlið sér í heiðurssæti, gulli og gimstein- um skreytt. „Og til heiðurs meistaran- nm“, sagði keisarinn í lok ræð- unnar, „viljum vér hefja starf hússins með ógleymanlegri lelksýningu. Komið með „hina kristnu“, að vér megum sjá viHt Ijón rífa þá í sig og tæta þá sundur.“ Og meðan lófaklapp og gleði óp dundu í fyrsta sinn yfir þetta stórkostlega leikhús, opn- uðust hlið fangelsanna, og inn á sviðið gengu játendur Krists syngjandi sálma, klæddir fann- hvítum klæðum, vígðir dauð- anum, karlar, konur og böm. En á móti þeim lædust gráðug og hungruð ljón og tígrisdýr, blóðþyrst og grimm, urrandi af heift og hatri. Þá heyrist skyndilega rödd, sem yfir gnæfir ysinn og hark- ið. Gríski byggingameistarinn hafði staðið upp úr sæti sínu við hlið keisarans. Og margir heyra orð hans er hann hrópar: „Ég er einnig kristinn!“ Eitt andartak fer þögn og kyrrð yfir allt húsið. Allt verð- ur dauðahljótt, eins og fjöldinn haldi niðri í sér andanum. Þá gefur keisarinn bendingu með veldissprota sínum. Hermenn grípa hinn hugrakka játanda Krists og hrekja hann niður á leiksviðið, og þar verður hann bráðlega að staðfesta játningu sína með blóði og dauða. Hve mörgum skyldi detta slíkt í hug, þegar hvítklæddir játendur Krists ganga nú og hafa gengið í vor í fylkingum fram fyrir altari Guðs í kirkj- um þessarar fögru og auðugu þorgar? Við ættum kanske að segja: „Guði sér lof, engum hvarflar í hug svo hryllilegur atburð- ur, mitt í fegurð og vonadýrð vorsins í helgidóminum.“ Og vissulega er það gleðiefni, hve slíkur hryllingur grimmd- ar og mannlegrar vonzku, virð- ist langt á braut inni í myrkri liðinna alda. „Nú eru kristnir menn hvergi ofsóttir á þennan hátt“, segjum við. En þar með er málið ekki af- greitt, svo einfalt sem það kann að virðast. Hve djúpt nær sú játning, endurómar um hvelfingar helgidómanna og lætur ljúft í sem nú er flutt við ölturun og eyrum ástvinanna, sem rísa úr sætum í virðingarskyni? Einu sinni kostaði þessi játn- ing eignir og sæmd, heilsu og líf. Einu sinni var hún tekin fram yfir allt annað. Hún gat kostað fjötra og fangelsi, verið greidd með frelsi og fengið í staðinn þjáningar og kvalir, hryllilegri en orð fá lýst. Nú þykir ekki svo mikið að vera vottur Krists, játa trú sína á hann. Hverju þykjast menn yfirleitt þurfa að fórna þess vegna? Það sem þá gat virzt dýrmæt ara en líf og heili, hugsjón hugsjónanna, drottinn drottn- anna, þykir nú naumast þess virði, að eyða einni klukku- stund helgidags eða fórna einni Irvdkmyndasýningu fyrir, ekki einu sinni einu sinni á ár, hvað þá meira. Og þetta tómlæti, þessi undanfærsla játendanna. vottanna frá fermingarhátíðinni fögru, þykir svo sem elkkert til að skammast sín fyrir. Margir geta sagt löngu seinna á æv- inin með axlaypptingu og næst um glotti á vörum: „Eg hef aldrei komið í kirkju síðan ég var fenmdur.“ Og þótt kirkjugöngur séu enginn algildur mælikvarði á aðstöðu játandans og vottsins, þá fer fleira í kjölfarið. Og einmitt þess vegna er hinn svo kallaði Kristni heimur svo langt frá því að fylgja meistara sín- um og hirði, að hvað eftir ann að hafa játendur frá einhverj um heilögum fermingardegi meira að segja úr innstu röð- um kristinna þjóða setið í sæti rómverska keisarans og notað veldissprota sinn á sama hátt og hann. Og einmitt þannig hafa þús- undir þúsunda, milljón eftir milljón, verið dætmdar iil dauða, ekki bara á liðnum öld um heldur nú á tímum okkar sem erum aðeins miðaldra Þess vegna hrópar bróðurblóð í himininn hvarvetna um hinn kristna heim. Og hvenær sem er getur hið samá dunið yfir aftur meðan játning vottanna getur verið köld trúarjátning varanna án þess að hræra hjörtun til að slá í takt við kærleikseðli Krists. Hvers er von af þeim trúarkenningum. setn telja Guð hinn almáttuga föður geta leyft tortímingu barna sinna í eilífum kvöl- um? Þá eru gasklefar og fanga búðir ekki annað en smáeftir- líking, og ekki mikið, þótt „bömin“ líkist föðurnum í hugsunarhætti gagnvart hin- um útslkúfuðu! Hugsið ykkur svo Krist guð spjallanna dæma einhvem til dauða, pyndingar eða kvalar. Sú hugsun er framandi fjar- stæða. En hans vottar eigum við að vera, hans eftirfylgj- endur, þótt bað svo kosti frelsi og fjör, eignir og heið ur. Það eitt er kristinn dómur Árelíus Níelsson. Sinfoníu tónleikar Næst síðustu íónleikar Sin- fóníuhljómsveitarinnar á þessu vori, fóru fram í Samkomuhúsi Háskólans, þ. 7. maí s.l., undir stjórn Igor Buketoff. Einleikari var pólska listakonan Wanda Wilkomirska, sem lék fiðlu- konsertinn í D-dúr eftir Brahms. Leikur og túlkun hennar á þessu verki var afbragðsgóður. Fór þar saman tær og mikill tón, jafn hreinn hvar á tónsvið- inu, sem var. Skaphiti listakonunnar gaf verkinu lífrænan og þróttmik- inn blæ og var frammistaða hennar öll með yfirburðum. Aftur á móti var leikur hljóm- sveitarinnar nokkuð misjafn t d. í síðari hluta fyrsta þáttar var hann svo sterkur, að við lá, að einleikarinn næði þar ekki rétti sínum, þá var og hinn fagri blásara-inngangur annars þáttar, óvenju laus í reipunum Forleikur Berlioz að óperunni „Beatrice et Benedict“ er létt og elegant" hljómsveitarverk. sem var prýðilega flutt. Ósvarað spurningu eftir bandaríska tónskáldið Charles Ives (1874—1954) er allsér- stætt verk í óháðu formi, þar sem spyrjandinn óbóið varpar fram síendurtekinni spurningu, og fjögur blásturshljóðfæri, svara en strokhljóðfæri flytja marg ítrekað stef. Þessum þrem heildum er raðað saman, af talsverðu hugviti, og var flutn- ingur hljómsveitarinnar skýr og skemmtilega mótaður. Sinfónía eftir Robert Ward (f. 1917) gæti frekar verið alda mótaverk, en aftur á móti spurning Ives nútímaverk. þótt það se hins vegar samið 1908. Sinfónían er allgóð tónsmíð, sem var mjög áheyrileg í túlk un hljómsveitarinnar. Stjórnandinn, Igor Buketoff fékk mikið út úr hinum ólíku verkeínum þessara tónleika, og var fróðlegt, að kynnast og gera samanburð á tveim síð ustu verkum efnisskrárinnar. Vortónleikar, Hljómsveitai Tónlistarskólans fóru fram i Háskólabíói þ. 9. maí s.l. undir stjórn Björns Ólafssonar, kon sertmeistara og kennara. Nokkrir eldri nemenda skól- ans komu fram að þessu sinni og sýndi það sig núna, að allt er þetta unga fólk í stöðugri framför og bætir jafnt og þétt við sig í tækni og þroska. Einleik á flautu lék Jón Heimir Sigurbjörnsson, og flutti hann tvo þætti úr svítu eftir Telemann, mjög liðlega, og var tónöryggi hans mikið eftir tiltölulega stutt nám. Þá flutti Jakob Hallgrímsson fiðlukonsertinn í E-dúr eftir Bach af góðum skilningi, og var heildarsvipur verksins á- gætur. Guðný Guðmundsdóttir lék fyrsta þáttinn úr fiðlukonsert í E-dur eftir Mendelsohn. Hefir hún aukið við sig sjálfstæði og þroska, frá síðustu tónleikum, og var tónn hennar hlýr og flutningur áferðarfallegur. Bjöm Ólafsson hefir nú þjálf að þessa hljómsveit í 20 ár og er hún að öllu leyti hans verk. Sveitin lék svo að lokum með aðstoð nokkurra meðlima úr Sinfóníuhljómsveit íslands, St. Páls svítuna eftir Halst, og var ánægjulegt að heyra, hvað þetta hefir vaxið í höndum Björns frá upphafi, og hversu vel og eðlilega öllu hefir skilað í rétta átt undir hans handleiðslu. Undirrituð óskar Birni til hamingju með þennan 20 ára áfanga hans. og þau góðu áhrif sem vinna hans á eftir að á orka í músíklífi okkar lands. Unnur Arnórsdóttir. Við seljum Volkswagen 60. Skoda Octavia 62. Concul Classic 63. Ford 58, góður. Chevrolet 57, 2ja dyra. Chevrolet 56. Pontiac 52. Austin Gipsy 62. Land Rover, diesel 62. Land Rover, benzín 58. Höfum kaupendur á biðlista að nýjum og nýlegum bílum. LÁTIÐ ÖILINN STANDA HJÁ OKKUR OG HANN SELST SKÚPAGATA 55 - SfMl I58K POSNiGAR- SANDUR Heimkeyrður pússningar- sandur og vikursandur sigtaðureð a ósigtaður við liúsdyrrtai eða kominn upp á hvaða hæð sem er eftir óskum kaupenda. Sandsalan við EHiðavog s.f. Sími 41920. A VÍÐAVANG! Vextirnir Undanfarin fjögur ár hefur Framsóknarflokkurinn lagt á það ríka áherzlu í málgögnum sínum og á Alþingi, að hár fjármagnskostnaður í landönu væri háskalegur verðbólguvald- ur. í samræmi við þetta hefur flokkurinn lagt það til öll þessi ár að vextir yrðu lækkaðir til þess að draga úr þeim þrýst- ingi, sem háar vaxtagreiðslur skapa á verðlagið. En tryggja í þess stað hag sparifjáreig- enda með verðtryggingum. f Svíþjóð og Danmörlcu þar sem dýrííðin hefur þó verið miklu viðráðanlegri en hér, hafa að undanförnu átt sér stað um- ræður um sams konar vanda- mál og þar, hallast æ fleiri að þvi að lágir vextir og verð- trygging sé réttari leið til að skapa grundvöll fyrir traustu efnahagslífi en háir vextir og verðbólga. Loksins Mbl. hefur ekki tekiö þátt í umræðum um þetta, heldur hamrað á því Iinnulaust, að Framsóknarflokkurinn hefði enga stefnu. í gær — loksins — fæst Mbl. til viðræðna um þesssi mál. I forustugrein er sagt frá því, að Helgi Bergs hafi í út- varpsumræðunum sett fram þær skoðanir, að taka bæri upp stefnu lágra vaxta og verð tryggingu peningasamninga, hvort sem það væru launa- samningar, sparifjárávöxtun e. þ. 1., eins og þetta væri sagt í fyrsta sinn og er gott til þess að vita, að Mbl. hefur hú loks áttað sig á því, að Framsókn- arflokkurinn hefur upp á aðra stefnu að bjóða en dýrtíðar- stefnu stjórnarflokkanna. Höfði barið við stein En því miður verða undir- tektir Mbl. vonbrigði. Niður- staða blaðsins er sú, að verð- trygging hafi nákvæmlega sömu áhrif og háir vextir. Al- veg sé sama hvort sparifjár- eigandi eða lánveitandi fær til baka háa vexti og rýrðan höf- uðstól eða lægri vexti og óskert an höfuðstól. Þetta komi út á eitt, segir Mbl. Látum það Iiggja milli hluta að ræða það fjármálasiðgæði, sem birtist í þessari niðurstöðu. En Morgun blaðið virðist leggja það alveg að líku, hvort ákveðnir eru há- ir vextir og stjórnlaus dýrtíð- in látin ráða hvemig fer með höfuðstólinn eða hvort höfuð- stóllinn er tryggður og vextir ákveðnir hóflegir. Sýnir þptta vel, að hugsunarháttur Mbl.- manna er svo samgróinn dýr- tíðarstefnunni, að þeir gera ráð fyrir að verðbólgan haldi áfram þrátt fyrir verðtrygg- ingu. En með verðtryggingu er einmitt kippt fótum undan þeirri verðbólguspekúlasjón, sem er aðaldriffjöður dýrtíðar- innar. Tornæmi Það er framför hjá Mbl. að hafa nú Ioksins uppgötvað að það er til önnur stefna i efna- hagsmálum en dýrtíðarstefna viðreisnarinnar, en mikið vant ar enn á, að það skilji nokkuð í henni. í uppáhaldi hjá bröskurum Alþýðublaðið hrífst mjög af ræðu Eggerts G. Þorsteinsson- Framhald b 15. slðu. 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.