Tíminn - 16.05.1964, Qupperneq 7

Tíminn - 16.05.1964, Qupperneq 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Augl'ýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur i Eddu-húsinu, símar 18300—18305. Skrif- stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 90,00 á mán. innan- lands. — í lausasöiu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f. 340 milljónir Þegar núv. ríkisstjórn kom til valda í árslok 1959, lýsti hún því sem einu helzta takmarki sínu að draga úr skuld- um við útlönd. I árslok 1958, þegar vinstri stjórnin lét af völdum, námu skuldirnar við útlönd 2.227 millj. kr., en frá þeirri upphæð dróst innstæða bankanna erlendis, sem var 228 millj. kr. Skuldir umfram inneignir námu því 1.999 millj. kr. Þetta töldu sérfræðingar stjórnar- innar alltof miklar skuldir og þess- vegna lýsti ríkis- stjórnin því sem einu aðalverkefni sínu að draga úr þeim. Það liggur nú fyrir, hvernig ríkisstjórninni hefur tek- izt að ‘framfylgja þessu loforði sínu. í árslok 1962 námu skuldirnar við útlönd orðið 3.181 millj. kr., en frá þeirri upphæð bar að draga innstæður bankanna erlendis, sem voru 1.150 millj. kr. síðan 1958. Skuldir umfram eignir voru því miður orðnar 2031 millj. kr. í árslok 1962, og því hækkað um rúmar 30 millj. kr. Samkvæmt skýrslu þeirri, sem Jóhannes Nordal flutti á fundi Seðlabankans í fyrradag, hækkuðu svo fastaskuldir við útlönd á síðastl. ári um 392 millj. kr., en lausaskuldir um 78 millj., svo að samtals nam skuldaaukningin við útlönd 470 millj. kr. á síðastl. ári. Frá þessu ber að draga auknar innstæður bankanna erlendis, en þær ukust á árinu um 160 millj. kr. Skuldirnar umfram inneignir ukust því um 310 millj. kr. á síðastl. ári, Samkvæmt því voru skuldir umfram inneignir 340 millj. hærri nú í árslok en í árslok 1958. Efndirnar á því loforði ríkisstjórnarinnar að draga úr skuldasöfnuninni við útlönd, eru því þær, að skuldir, að frádregnum innstæðum bankanna, hafa aukizt um 340 millj. kr. á þessu tímabili. Ekki verður óhagstæðri gjaldeyrisþróun um kennt. Vegna góðra aflabragða og hagstæðs verðlags á útflutn- ingsvörum, urðu útflutningstekjurnar 1200 millj. kr. verðmeiri 1963 en 1958. Ekki verður heldur skuldasöfn- unin réttlætt með því að ráðizt hafi verið í stórfram- kvæmdir, en skuldasöfnun fyrir 1958 stafaði aðallega af byggingu áburðarverksmiðjunnar, sementsverksmiðjunn- ar og Sogsvirkjanna. Engar slíkar stórframkvæmdir hafa átt sér stað eftir 1958. Skuldasöfnun, sem orðið hefur síðan 1958, hefur átt sér stað, þrátt fyrir hagstæðustu gjaldeyrisþróun, og engar meiri háttar stórframkvæmdir. Þær eru afleiðing rangrar stjórnarstefnu, er elur hvers konar fjárplógs- mennsku og eykur þannig gjaldeyriseyðluna úr hófi fram. Það sýnir vissulega hámark blekkingar, þegar ríkis- stjórnin er að hæla sér af auknum innstæðum bankanna. Öll þessi innstæðuaukning byggist á skuldasöfnun, sem hefur meira að segja orðið 340 millj. kr. meiri en inn- stæðuaukningunni nemur. Öllu verr er ekki hægt að fara að ráði sínu í einstæðu góðæri. Fagnaðardagur Noregs Á morgun er hálf önnur öld liðin síðan stjórnarskrá Noregs var samþykkt á þingi á Eiðsvelli. Það gerðist 17. maí 1814, og er sá dagur síðan þjóðhátíðardagur Norð- manna. Þessa stjórnlagaafmælis minnast Norðmenn nú með miklum hátíðahöldum. Islendingar munu flestum fremur fagna með Norðmönnum á þessum degi. íslenzkir landnámsmenn fluttu með sér lög og rétt frá Noregi og bættu og varðveittu í landi sínu. Sú varðveizla kom Norð- mönnum að haldi við setningu nýrrar stjórnarskrár, og íslendingar sóttu aftur margt í stjórnarskrá Noregs við sjálfstæðistöku sína á þessari öld. Þannig hefur samvinna þessara frændþjóða verið að lýðræðismálum, og hún mun vonandi enn haldast báðum þjóðunum til góðs. Norska blaðið „Aftenposten" birti nýlega myndir, sem sýnlshorn þeirra breytinga, sem eru að verða á kirkjubyggingum í Noregi. Rétt hefur þótt að birta þessar myndir hér til aS sýna þá þróun, sem er að verða í þessum efnum hjá frændþjóðinni. Efsta myndin er af nýbyggðri kirkju í Kristiansund. Miðmyndin er af teikningu af kirkju, sem á að byggja í Bergen. Þessi teikning sigraði i samkeppni, sem margir húsameistarar tóku þátt f. Neðsta myndin er af líkani af kirkju, sem á að byggja í Troms- dalen, ekki langt frá Tromsö. Hún hefur hlotið auknefnið íshafskirkjan og hefur feikning af hennl blrrt f amerfskum og frönskum blöðum. T í M I N N, laugardagur 16. maí 1964. 7

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.