Tíminn - 16.05.1964, Side 15
þrjár undraverðar breytingar
hafa orðið á LUX
NYJAR aðlaðandi umbúðir
NÝTT glæsilegt lag
NÝR heilíandi ilmur
Hln fagra kvlkmyndadts Antonclla Lualdl
viH ekkert nema Lux-handsápu. Astæban
er sú, a6 hin mjúka og milda Lux-handsápa,
veitir hinu silkimjúka hðrundi kvenna J)á •
fullkomnu snyrtingu, sem það á skilið. g.
Lux-handsápan, sapan sem 9 af hverjum 10
kvikmyndastjörnum nota, fæst nú í nýjum
umbú&um, með nýrri lögun og meö nýjum ilm.
Veljib yðtir hina nýju ejtirsóttu Lux-handsdýu.
i'hvítum, gulum, bleikum, bláum eöa greenum lit.
Vemdið yndisþokka yðar með LUX-handsápu
Sextugur: Þórar-
inu Stefánsson,
kennari
Þórarinn Stefánsson, kennari á
Laugarvatni, verður sextugur á
hvítasunnudag, en hann hefur
verið kennari þar og frarm
kvæmdamaður þar í 33 ár. í
næsta blaði mun birtast afmælis-
grein um Þórarin.
GARÐYRKJUMENN
Pramnalö at 1 síðu.
Unnsteins Ólafssonar skólastjóra
standa þar nú fyrir dyrum bygg
ingaframkvæmdir, sem verða til
þess, að í haust verður ekki hægt
að taka á móti neinum nýjum nem
cndum.
— Vöntun á garðyrkjuimönnum
er gífurleg hér í Reykjavík, sagði
Wafliði garðyrkjustjóri í dag, og
fólk varð að fara að panta tíma hjá
þeim fáu, sem eru hér í Reykjavík
þegar um áramót til þess að vera
öruggt með að fá þá til sín. Eftir-
epurnin eykst með ári hverju, og
veitti ekki að 20—30 nýjum garð-
yrkjumönnum árlega til þess að
fullnægja þörfinni næstu árin.
VÍKINGUR í STAÐ ....
Framhald af 1. slðu.
uð sín, án þess að lögreglan hafi
hina minnstu hugmynd um, hverj-
ir hafa verið þar að verki.
Lögreglan veit ekkert meira um
hafmeyjumálið í dag, en hún gerði
25. apríl. En fjárupphæð sú, sem
heitin er þeim, sem getur gefið upp
lýsingar, sem leiða til þess að mál
ið leysist, hzebkar sífellt. Vikublað
ið „Se og Hör“ hefur nýlega bætt
2.500 krónum við, svo að upphæð
in er nú 10.000 danskar krónur.
Hafmeyjan sjálf mun sett á sinn
stað eftir rúma viku.
Eins og sagt var frá í blaðinu
fyrir sikömmu, sendi maður nokk
ur bréf til blaðsins „BT“ og kvaðst
vera sá, sem sagaði höfuðið af
litlu hafmeyjunni við Löngulínu
seint í apríl. Vildi hanr. fá 10 þús
krónur danskar fyrir höfuðið. —
Hann átti símtal við blaðamenn
„BT“, sendi fleiri bréf og lét vin
sinn eiga fund með blaðamönnun-
um. En þegar allt virtist ætla áð
ganga vel, hvarf maðurinn og tók,
að eigin sögn höfuð hafmeyjarinn-
ar með sér í handtösku. „Vinur-
inn“ reyndi að ná sambandi við
hann, en árangurslaust.
En í þessari viku fékk annað
danskt blað, „Ekstrabladet", bréf
undirritað ,CFAI“. Segir í því að
„BT-maðurinn“ sé svindlari, því að
undirritaðir, sem að sögn voru
fjórir, hafi sagað höfuð hafmeyj-
unnar af sjálfir. Segjast þeir hafa
framkvæmt verkið á tveim nóttum,
og var því lokið kl. ca. 2,10 aðfara
nótt 25. apríl. — „Við ókum í bil
niður að höfninni við Öresund og
fórum með höfuílð út í bát. Sí5-
degis á sunnudag (26. aprfl) sigld-
um við út á Sundið og fleygðun
því í sjóinn. Enginn skyldi geta
notað það“ — segja þeir í bréfinu.
Um tilgang sinn með þessu verlki
segja fjórmenningarnir: — „Það
er sorglegt að sjá, hvernig hinir
góðu borgarar ergja sig vegna
þessa smámáls. Þeir ættu einhvern
tíma að opna augun og sjá Kaup-
mannahöfn, sjá útsvínaðar götur
og garða, sjá „hálshöggnar“ bygg-
ingar, allar í niðurníðslu. Við von
um að aðrir íbúar Kaupmanna-
hafnar hugsi meira um útlit Kaup-
mannahafnar en höfuð hafmeyj
unnar“.
EfMJlErOfJf
Askriftarsfmi 1-61-51
Pósthólf 1127
Reykfavík.
Stórslasaði hest
og ók á brott
3.v. bls. 15
TK-Reykjavík, 15. maí.
f gærmorgun var ekið á hest á
Svínvetningabraut sfeammt fyrir
framan Sauðanes. Var hesturinn
illa slasaður, en ökumaður bif-
reiðarinnar ók brott af slysstaðn-
um og skildi hestinn eftir þannig
á sig kominn. Þetta mun hafa ver-
ið á tímanum milli kl. 7 og 10 um
morguninn og bíllinn að öllum
líkindum á norðurleið. Hesturinn
var þegar aflífaður, þegar að var
komið.
Hér er um svívirðilegt kæru-
leysi að ræða, og eru allir öku-
menn, sem voru á ferð á þessum
slóSum á þeim tíma, sem þessi
atburðrr hefur átt sér stað, beðn-
ir að hafa samband við sýslu-
manninn á Blönduósi.
TÓMATAR
Framhalú at 16. siðu.
sunnunni. Verð á tómötum hefur
ekki verið ákveðið enn þá. Mest
er tómataræktin í Biskupstung-
unum.
GUNNARGUNNARSSON
(Framhald af 2. síðu).
sop akAld, sem hlaut bókmennta-
verðlaun Gunnars Gunnarssonar
fyrir þremur árum, ákvað að
verja þeim verðlaunum til út-
gáfu slíks ritgerðasafns. Verða í
því 7—8 ritgerðir eftir ýmsa höf-
unda, sem allar fjalla um efni úr
Fjallkirkjunní. Þessi bók er vænt
anleg á markað í haust eins og
fyrr segir.
EIGIÐ HÚSNÆÐI
Framhald eé Ví- aí*y.
— Aðdragandi húsakaupanna
er sá, að á síðasta ári skipaði
Fulltrúaráð Framsóknarfélag-
anna nefnd, er vinna átti að
því, að tryggja flokknum hús-
næði hér í bænum. f þessaii
nefnd voru Hörður Helgason,
Gústav Sigvaldason. Guðrún
Heiðberg, Stefán Jónsson og
Steingrímur Hermannsson. Að
vel athuguðu máli voru fest
kaup á Hringbraut 30, sem er á
homi Hringbrautar og Tjamar-
götu.
Húsið er þriggja hæða stein-
hús, og hver hæð 98 ferm. Það
er vandað og sterkbyggt, tiltölu
lega auðvelt er að breyta því,
og hentar það því starfsemi |
flokksins allvel. Húsið verður j
til afnota fyrir flokkinn í ág-
úst næstkomandi.
Ucn húsakaupin var stofnað
hlutafélag með einnar milljón
króna hlutafé, og félagið nefnt
Goðheimar h.f. Meirihluta fjár
ins eiga Framsóknarfélag
Reykjavíkur, Félag ungra Fram
sóknarmanna, Félag Framsókn-
arkvenna, Samband ungra
Framsóknarmanna og Fram-
sóknarflokkurinn, en auk þess-
ara aðila eiga einstaklingar inn
an Framsóknarflokksins hluti í
félaginu.
í bráðabirgðastjórn em auk
Steingríms Hermannssonar,
þeir Kristinn Finnbogason sem
er gjaldkeri og Hörður Helga-
son ritari. Framsóknarmönnum
skal bent á að þeir geta enn
gerzt aðilar að hlutafélaginu, er
stofnað var um húsakaupin, og
era þeir, sem hefðu áhuga á því
beðnir að snúa sér til skrifstofu
Framsóknarflokksins, í Tjarnav
götu 26, eða einhvers af stjóm-
armönnum Goðheima h.f.
Aðalfundur Goðheima h.f.
verður væntanlega haldinn laug
ardaginn 30. maí n. k.
Auglýsið í
TÍMANUM
Á VÍÐAVANGI
(Framhald af 2. síðu).
ar, formanns Húsnæðismála-
stjóraar, um húsnæðismálin í
útvarpsumræðunum. Einkum
þó að hann gagnrýndi eins og
blaðið segir, „harðlega flutn-
ing skramtillagna um þau mál,
eins og þeirra, sem Framsókn-
armenn hafa flutt í vetur og
blaðið hefur eftir Eggert G.
Þorsteinssyni, að tillögur Fram
sóknarmanna um að bæta úr
þvi hörmulega ástandi, sem
orðið er í húsnæðismálunum
undir stjóra Alþýðufiokksins
verði „að leggja að jöfnu við
tilraunir þeirra einstaklinga,
sem reyna að nota húsnæðis-
erfiðleika fóiks í auðgunar-
skyni fyrir sjálfa sig“. Þá hafa
menn það frá sjálfum for-
manni Húsnæðismálastjóraar!
TiUögur Framsóknarmanna eru
mjög í sömu átt og tiUögur
norska bankastjórans, sem
kynnti sér húsnæðismáUn hér
á vegum Sameinuðu þjóðanna.
En spurnlngin er, hvort eru
það þeir, sem gera tiUögur til
úrbóta, eða þeir, sem hafa
völdin en ekkert gera tU að
bæta úr, sem hjálpa þelm, er
græða á húsnæðisvandræðum
fólksins? Er nokkur f vafa á
hvorum þessara aðUa húsa-
braskaramir hafa meira dálætl
á? Það er áreiðanlegt, að húsa
braskararnir í Reykjavík eru
mjög ánægðir með formann
Húsnæðismálastjóraar og yfir-
leitt alla stjóra Alþýðuflokks-
Ins á húsnæðismálunum.
- FERMINGAR -
Eyrarbakka. 2. hvftasunnudag kl. 2
e. h.
S t ú I k u r :
Dagbjört Gísl'adóttir, Litlu-Háeyri.
Jóhanna Hafdís Magnúsdóttlr,
Staðarbákka.
Kristfn Bjarnadóttir, Lundi.
Sigurhanna Vilbergs Sigurjónsdóttir.
MerkisteinL
P I I t a r :
Bjarni Þór Jónatansson,
Helðmörk.
Erlemdur ómar Óskarsson, Norður-
kott.
Helgi Ingvarsson, Skúmsstöðum.
Jón HaUdórsson, SunnutúnL
Karel Kristjánsson, BúðargerðL
Magnús Þór Þórisson, Brennu.
Ólafur Jónsson, Búðarstíg.
Rúbar Eiribsson, Ingólfi.
Stefán Anton Halldórsson, Sunnu-
túnL
Nauðungaruppboð
Á húseigninni nr. 5 við Valholt á Akranesi, þing-
lesin eign Torfa Loftssonar, fer fram á eigninni
sjálfri, miðvikudaginn 20. maí 1964, kl. 17.
Bæjarfógetinn á Akranesi,
15. maí 1964,
Þórhallur Sæmundsson.
Til söiu
í Skaftahlíð 31. íbúðin er 5 herb. og eldhús.
Laus nú þegar.
Árni Guðjónsson, hæstaréttarl.,
Garðastræti 17. Símar:
15221 og
12831
T í M I N N, föstudagur 15. mal 1964.
15