Alþýðublaðið - 14.02.1952, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 14.02.1952, Blaðsíða 5
Eriridi Gylfu Þ. Gíslasonar: Síðari hluíi ÞESSAR HUGLEIÐINCAR spruttu af því, að ég var að tala um hið erfiða tíðaríar undan- farið. Ég gat 'þess, að stormarn ir, sem geisað hafa á Atlants- Iiafi undanfarnar vikur, hafa ikostað mörg mannslíf og vald- ið miklu tjóni. En þeir hafa einnig orðið til þess, að dáðir hafa verið drýgðar. Afrek hins danska skipstjóra Carlsens, varð heimsfrægt og 1 eitt helzta umræðuefni manna um allan lieim dögum saman, og hefur þessum vaska sji\lanni síðan verið sýndur maigvislegur sómi. I sambandi við heimsat- hygli þá, sem hetjuskapur Carl- sens vakti. hefur mér oft dottið í hug, að því muni áreiðanlega fara víðs fjarri, .að glík afrek séu jafn sjaldgæf dg menn kynnu að halda, ef miðað er við athyglina, sem framkoma Carl- sens vakti. Mér er nær að halda, að íslenzkir sjómenn sýni ósjald an ekki minni kjark og djörf- ung í baráttu sinni við hafrót og storma. Má í því sambandi t. d. minna á hetjuskap áhafn- arinnar á Sigrúnu, Akranes- bátnum, sem var á hrakningi í 30 klukkustundir i einu versta veðri, sem hér hefur gert í mörg ár. Þegar ofviðrið skall á, munu skipveriar hafa séð, að ekki var ráðlegt að halda til lands, heldur andæfðu þeir, þangað til veðrinu slotaði. Bak borðshlunning brotnac’i, tveir skipverjar slösuðust, stýrimann inn tók fyrir borð, en hann hélt sér uppi á sundi og þrátt fvrir veðurofsann sneru félagar hans bátnum við og tókst að ná hon- um. Þeir, sem voru í landi og gátu ekki sofið í hlýju rúnii sínu þessa nótt og þennan morg un, af því að þeim fannst hús sitt leika á reiðiskjálfi, geta vafalaust ekki gert sér í hug- arlund, hvílíka dáð beir drýgðu, stýrimaðurinn og félagar hans. En hún er stórfengleg. Samt er henni ekki haldið mjög á lofti. Ég geri raunar ekki ráð fyrir því, að það væri sjómönnunum, sem hér eisa hlut að máli, sér staklega að skaoi, að talað væri eða skrifað eitthvert skrum um afrek þeirra. En vissulega er það vert fyllstu viðurkenning ar. OrSur afrek. í ÞESSU SAMBANDI dett- ur mér í hug, hvers vegna slíkir menn eru sialdan eða aldrei sæmdir oninberum heiðurs- merkjum. Nú er ég að vísu ekki í hópi þeirra, °em mikið leggja upp úr slíku. Ég hef talið orður tildur og orðugræðgi til hins mesta hégómaskapar. En fyrst við höfum helður.-merki á ann að borð, er auðvitað siálfsagt, að þau séu fyrst og fremst veitt þeim, sem helzt ættu þau skilið. Mér hefur fundizt talsverður misbrestur á því. íslenzkum heiðursmerkjum er hrúgað í út- lendinga, sem lítið hafa fyrir Island gert, en virðast hafa á- nægiu af bví að safna orðum. Þetta getur stundum orðið til þess, að beir geri Islandi eit.t- hvert gagn, og er bá í sjálfu sér ekkert við bví sð spgia. En ef pthugaðar eru orðuveitingar til Islendinga, virðist svo sem miög oft. sé verið að veita mönn um be:ðursmerki vegna bess eins, að beir gegna eða hafa gegnt ákveðnum stöðum. Það er embættið, en ekki maðurinn, sem orðuna fær. Þetta er auð- vitað ekki í samræmi við upp haflegan. tilgang heiðursmerkj anna og hefur orðið til þess að draga úr gildi þeirr-a og setja á þau tildursblæ. Sannleikurinn er sá. að þáð bezta, sero, hægt væri að gera til þess að auka virðinguna fvrir íslenzkum hdðursmerkium. væri að taka að veita öll stig þeirra ís^enzk- um afieksmönrum rr albýðu stétt fvrir drýgðar dáðir á sjó og landi. ■ bótt heir hafi aldrei setið í hpnm emhættrm og ald- rei rtkið í hpndina á érlendum rend'h.erm eða nokkrum valda manni. Islenzkt haiður-merki færi betur á brióstmu á sjó- mönnunum. sem börðúst í meira en cólarhriíig ,Tið e:tt versta veður. sem hér hefur gert, á manninum. sem hélt sér lengi uDpi á sundi í mögn- uðu ölduróti. og félögunum sem stórjuku á ’ífshættu sína til þess að bjarga honum, og tókst síðan að koma sér og skipi sínu heilu í höín. það færi bet ur á brjóstinu á slíkum mönnum en ýmsum þeim. sem bera orð- ur sínar aðeins í embættisnafni. Ættarnöfrsin. i N7J VÍK ÉG AÐ ÖÐRU. Á síðasta alþingi voru samþykkt lög um að veita allmörgum mönnum íslenzkan ríkisborg- ararétt. og er betta venjulega gert á hverju þingi. En nú var merkilegt nýmæli í lögunum. Útlendingar skulu taka upp ís lenzk nöfn um leið og þeir fá ríkisborgararéttinn. Mjög mörg i nöfn þeirra útlendinga, sem fengið hafa ríkisborgararétt, | fara illa í íslenzku máli, og það er mjög óheppilegt, ef þau fest þetta var sett fyrir forgöngu Biörns Olafssonar menntamála I ráðherra og á hann miklar þakk j ir skildar fyrir frumkvæði sitt j í þessu máli. I En í sambandi við þetta vakn 1 ar gamla spurningin um nöfn- ! in, þ. e. spurningin um, hvort, við eigum að halda hinum forna íslenzka hætti að kenna börn i við föður sinn eða taka upp. ættarnöfn. Svo rem kunnugt er, ' gildir nú sú regla, að hvr,- mað ur skal heita einu íslenzku | r.afni eða tveim og ken-^a sig til föður. móður eða kjörföður. I Ættarnafn hefur ensinn mátt, taka síðan 1925, en þeir menn,' sem bárú áéttárnó'fh samkvæmt eldri lagaheimild, _ hafa mátt halda þeim, sýo: og niðjar þeirra. Löggjafjhn er því þeirr ar skoðunar, að íslendingar skuli ekki bera ætfftrnöf.n, þótt bánn 1 \*5 ekki viljað skylda þá til nafnbrevtingar, sem begar báru slík nöín. og finnst mér hvort tveggja pkynsamlegt. fs lendingar eiga að halda hinum fo-rna cn sérkenriilega sið sínu.m varðandi nafrigiftir. Það er hins vegar erfiðleikum bundið og ó- c8.nngiarnt að fýrirskina mönn um nafnbrevtingu. þótt stund nm sé það beinlínis nauðsvn- ''egt. e:ns og þepar útlendingum er veittur r'kisbjiga’-aréttur, op nú hefur vérið gart. En éf við teljurri í raun og veru æskilegt, ast sem ættarnöfn. Láýáákvæði að allir íslendingar taki smám saman að fylgja hinni fornu ís lenzku. venju. rnætti koma því til leiðar með því að kveða svo á, að börn þeirra mariná. sem nú bera ættarnöfn, skyldu kenna sig við föður sinn, þótt foreldrarnir héldu ættarnöfn- um sínum, meðan þeir lifa. Eftir einn mannsaiöur bæru þá allir íslendingar nafn að hin- um forna hætti. Ýmsir, sem ættarnöfn bera. hafa tekið þenn an kost. Væri tvímælalaust æski legra. að slíkt gerðist án laga setningar eða fyrirmæ’a. En hér er .um að ræða vandamál, og fyrir því vek ég máls á því hér. Spjaldskrá yfir alla fslendmga. FYRST ÉG ER FARINN að tala um mannanöfn, dettur mér annað í hug. Ættfræði og mann fræði — í merkingunni per- sónusaga — hafa löngum verið íslendingum hugðarefni. Sök- um smæðar þjóðarinnar hafa hér verið betrj skilyrði en víð- ast hvar annars staðar til þess að ná miklum og fullkomnum árangri í þessum fróðleiksgrein um. Hafa mörg og góð rit verið gefin út um þessi efni og mikið til í handritum. Ýmislegt væri þó hægt að gera af opinll rri hálfu til þess að auðvelda slíkt starf og skapa skilyrði til stór merkra rannsókna í nútíð og framtíð. Hafa menn t. d. hug leitt, að það væri alls ekki mjög Framhald á 7. 'síðu. Krabbameinsfélag x\ðalfundur félagsins verður haldinn miöv: kudaginn -27, febrúar kl. 3.30 e. h. í 1. kennslustofu Háskólans. FUNDAREFNI: 1. Tillaga til lágabreyytinga. 2. Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar sæki fundinn og fylgist með starfsemi fundarins. Stjórnin. MEÐAN LAUNASAMTÖKIN háðu baráttu sína fyrir dýrtíð j aruppbót á laun sín, var Olaf- ur Björnsson prófessor feng- inn. til þess að skrifa hverja greinina á fætur annarri í Morg unblaðið um, að dýrtíðarupp- bctin væri launamönnum ekki aðeins gagnslaus, heldur bein- línis skaðleg. Nú hefur hann verið fenginn til þess að skrifa grein í Morgunblaðið um það, að kaupmenn hafi alls ekki hagnazt nokkurn skapaðan hlut undanfarið, það séu tóm- ar blekkingar, að milliliðirnir hafi grætt nokkuð á álagning- arhækkuninni, sem orðið hef- ur, síðan vérðlagsákvæðin voru numin úr gildi! Reynslan mun hafa kennt þeim launamönnum, sem Iesa Morgunblaðið, rétt eins og öðr- um, að þær voru ekki hald- góðar, sannanir Ólafs, fyrir því, að dýrtíðaruppbótin yrði einskis virði. Hver er sá launa maður, sem trúir því, að kjör hans væru b e t r i núna, ef j hann hefði enga dýrtíðarupp- bót fengið síðast liðið hálft ár? Ólafur reyndi að sanna, að dýrtíðaruppbótin yrði gagns- léius, en hún kom að gagni. Kann sagði, að það m u n d i ekki g e r a s t, sem gerð- ist. Nú hefur Ólafur hins vegar fekið sér fyrir hendur að sanna, að það hafi alls ekki gerzt, sem hefur þegar gerzt, og ekki er að undra, þótt skrif hans nú séu jafnvel enn fáránlegri en þegar hann skrif aöi um dýrtíðaruppbótina. Eftirleiðis seljum vér BTH-þvottavélarnar með sérstaklega hagkvænuim greiðsluskilmálum. Þeir. sem vilja notfæra sér þetta einstæða tæki- færi, ættu að tala við oss sem allra fyrst, þar eð birgðir eru takmakaðar. Einkaumboðsmenn fyrir THE BRITISH THOMSON-HOUSTON EXPORT CO. LTD. Vesturgötu 17. — Sími 4526. Ó’afur seg:r, að skýrslur verðgæzlustjóra um álagning- arhækkunina séu villandi, vegna þess að flestar vörúrn ar. sem þar sé um að ræða, hafi alls ekki fengizt, meðan verð’agsákvæðin hafi verið í g-'ldi. Skyldi maðurinn aldrei hafa séð þessar skýrslur? Held ur hann,.að engar vefnaðarvör ur hafi fengizt hér, meðan verðlagsákvæðin voru í gildi? Hei’clsalar hafa hækkað með alálagningu sína á vefnaðar vöru um 108% skv. síðustu skýrslu verðgæziustjóra. Ileldur hann. að enginn er- lendur fatnaður hafi fengizi hér, meðan verðlagsákvæðin voru í gildi? Ekki mun hann hafa gengi'ð fa/alaus fremr.s* en aðrir. En meðalálagning á erlendan fatnað’ á bátalisí anum hefur hækkað um 72%, álagningarhækkun heild- salanna nemur 150%. Auðvitað voru sumar af þeim vörum, sem nú eru flutt- ar inn, ófáanlegar. áður en tek ið var að flytja þær inn, að mestu leyti fyrir gjafafé. eins og nú er gert. En verð’ags- ákvæðin. sem um þær giltu, táknuðu, hvað verðlagsyfir- völd töldu hægt að dreifa þeim fyrir, ef þær væru fluttar inn. Af öðrum vörum var flutt mjög lítið inn. Verðlagsákvæðin um þær táknuðu. hvað fjárhags- ráð taldi hægt að dreifa þeim fyrir, jafnvel þótt lítið væri flutt inn af þeim. Hvérnig.má það vera. að ómögulegt haíi verið að hlýða þessum ákvæö- um, þegar innflutningurinn var stóraukinn og kaupmenn. fengu mikla meira vörumagn til þess að leggja á? Það má vel vera, að verðlagsákvæðin hafi verið orðin eitthvað oi: lág, miðað við mjög lítinn inn; flutning. en þau hlutu að vera nægileg, ef innflutningurinni var aukinn verulega, eins oá átti sér stað. Þá er það annað aðalatriðij l hjá Ólafi, að verðlagsákvæðin j hafi verið pappírsákvæði. j Raunveruleg álagning hafi verj i ið miklu hærri. Spyr hann AB,i hvar hægt hafi verið að fá gólfj teppi með 18% álagningu. Þvíj miður mun talsvert hafa kveðj ið að því, að gólfteppi hafi ver ið seld á svört.um markaði áð- ur. En AB vill í staðinn spyrja Ólaf Björnsson-- Ileldur hann, að öll gólf- teppi, sem til Iandsins vom flutý, meðan verðlagsákvæði giltu um gólfteppi, hafi ver- ið seld með hærri álagningu en leyft var? Ef hann hefus? Fi’amhald á 7. síðu. AB 5

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.