Alþýðublaðið - 02.04.1952, Side 6

Alþýðublaðið - 02.04.1952, Side 6
ÍÞRÖTTAÞÁTTUR Heilir íslsndingar. Nú fyrst er íþróttastarfsemi vor að fá á sig alþjóðlegt form, liið alþjóðlega krossgátuform, sem með öllum mermingarþjóð- um nefnist getraunastarfsemi og hefur lengi tíðkazt með þeim. Þetta er eins konar höf- uðíþróttagrein, það er að segja, hún reynir sér í lagi á höfuðið, en það er hins vegar ekki liægt að segja um aðrar íþróttir, inenia þá helzt hnefaleikana, sem oft og tíðum leiða til heilablæð inga, eða í vægasta lagi á íæknilegum heilahristing, sem er þó fæstum iðkendum þeirrar göfugu íþróttar sérlega hættu- legur, þar eð í þeirra höfði er annaðhvort ekkert að hrísta, eða það getur ekki hristst nema ,til bóta. Hvað hina göfugu get- raunaíþrótt snertir, þá gétur hún vist líka hæglega orsokað heilahristing og jafnvel smá- vægilegar blæðingar, svo að .auðséð er, að hún s'cendur jafn- vel göfugustu íþróttagreinum ekki að þaki hvað heilbrigða sál i hraustum líkama snertir, en hefur þá þann stór kost fram yfir hnefleikana, að menn geta iðkað hana í ró og næði heima hjá sér, án þess að stofna neinu öðru í hættu en andlegri heilsu sinni og heimilisfriðnum, sem hvorugt er í mörgum tilfeilum nein ósköp. Þá hefur þessi göfuga íþrótt þann kost annan, að enginn virðist vita til hlítar í^hverju hún er eiginlega fólgin, eða hvernig eigi að iðka hana. og verður því ekki antiað séð en hún sé ein af þessum svoköll- uðu frjálsu íþróttum. Þá getur hún og gefið of fjár 1 aðra hönd ef heppnin er með, en þar sem slík höpp eru ekki undanþegin skatti, eins og happdrættahöpp : jn, þá rennur það íé að mestu eða öllu leyti til skattheimt- unnar, og má því hver og einn hrósa happi, sem ekki verður fyrir slíku happi, enda lítil lík- indi til þess að nokkur verði það. Grundvallaratriðið til þess að iðka bessa íþrótt sér til gam ans og þroska, sr hins vegar jnjög auðvelt; menn þurfa yfir- leitt ekki annars við en kunna öll knattspyrnufélög í nálægum þjóðlöndum á fingrum sér, svo og sigra þeirra í hverjum flokki i og hverri keppni á tíu til tólf undanförnum árum, og ósig- rana sömuleiðis, bæði á erlend- um og innlendum vettvangi. Þegar menn fullnægja þessu grundvallaratriði, geta þeir svo farið að geta af vísindalegri ná kvæmni, en þar eð vér vitum af sögu íslenzkrar kuattspyrnu, einkum hvað snertir keppni við erlendínga, að oftast fer þvert úr átt við spár sérfræðinganna, er þessi vísindalega nákvæmni mönnum nauðsynleg, ef þeir vilja ekki lenda í stríðsgróða- skattinum. Kæri menn sig hins vegar kollótta um það, þótt þeir hljóti vinning fyrir skattheimt- (una, er þeim ráölegast að sleppa grundvallaratriðinu og geta blir.daindi. Þá eru hin siðrænu áhrif þess arar íþróttar enn ótaiin, en þau ■eru mikil og margvísleg. Næg- ir aðeins að benda á það, að hún mun eiga eftir að gerbreyta umræðuefni bridspartía og saumaklúbba, því að nú kemur Chelse í stað svaggeranna og G'lasgow Rangers í stað fram- hjáhaldanna, og þarf ekki að ræða þann ávinning nánar. Með íþróttakveðjurri. Vöðvan Ó. Sigurs. Framhaídssagan 61 - Agatha Christie: Morðgátan á Höfða ’ „Hún hringdi tíl mín‘‘. „Einmitt þaö. Og hvað sagði hún?“ ..Hún bað mig að senda sér oskjur með vissri tegund af súkkulaði“. „Hvernig var rödd hennar í símanum? Veik og hljómvana? „Nei, síður en svo. Röddin var einmitt óvenjulega sterk og hljómmikil. En dálítið ann- arleg samt. Ég ætlaði alls ekki að þekkja það fyrir hennar rödd fyrst í stað“. „Ef til vill hafið þér ekki áttað yður á því fyrr en hún sagði til nafns síns“. „Nei, satt að segja áttaði ég mig á þvi, að það væri hún, fyrr en hún sagði til nafns síns“. „En eruð þér þá vissar um. að það hafi í raun og veru verið hún, sem við yður tal- aði?“ Frederica varð næsta undr- andi. „Já, það er einmitt spurn- ingin, frú mín góð“, svaraðí Poirot. „Þér álítið þó ekki . ... “ „Gætuð þér, frú, ef við tök- um ekkert tillit til orðanna, sem hún sagði, gætuð þér þá svarið, að það hefði verið vin- stúlka yðar, sem þér áttuð þetta símtal við?‘‘ Frú Rice hugsaði sig um 'eitt andartak. „Nei“, mælti hún seinlega. „Það gæti ég ekki. Rödd henn ar var næsta ólík því, sem hún á að sér. Ég hugsaði sem svo, að það gæti verið símasamband inu að Icenna. Eða ef til vill væri það vegna lasleikans, sem hún hefur átt við að stríða". „Yður myndi sem sagt ekki hafa komið til hugar, að það gæti verið hún, ef hún hefði ekM sagt til nafns síns?“ „Areiðanlega ekki. Hver hef ur þetta getað verið, herra Poirot? Hver hefur það verið?“ „Það er 'einmitt það, sem ég þarf að komast að raun um, frú Rice“, Hún virti Poirot fyrir sér, og alvörusvipurinn á andliti hans hefu.r víst,- vakið með henni ótta og grun. „Hefur eitthvað alvarlegt komið fyrir Nick?“ spurði hún óg rödd hennar titraðí. Poirot kinnkaði kolli. „Hún er veik, frú mín góð; hættulega veik. Þetta súkku- laði reyndist eitrað“. „Súkkulaðið .... Súkkulað- ið, sem ég sendi henni? Það er með öllu útilokað“. „Ekki útilokaðra en svo, að úngfrúin liggur fyrir dauðan- um, eftir að hafa neytt þess‘‘, svraraði Poirot. „Guð minn almáttu,gur“, hrópaði hún upp yfir sig. Nokkra hríð fól hún andlitið í höndum sér, síðan leit hún á okkur, náföl og titrandi. „Ég skil þetta ekki. Ég fæ ekki með nokkru móti skilið það. Þetta súkkulaði getur ekki hafa ver- . ið eitrað, því að enginn snerti það, nema við Lazarus. Þér hljótið að hafa gert einhver hræðileg mistök, hvað þetta I snertir, herra Poirot“. „Ó—nei. Það er ekki ég, sem hef gert þau mistök, sem um er að ræða, enda þótt svo ein- kennilega skuli hittast á. að nafnspjald frá mér finndist í súkkulaðiösk j u,num‘1. Hún starði á hann stórum augum og virtist ekki vita sitt rjúkandi ráð“. ,,Og fari svo. að ungfrú Nick bíði bana af þéssu tiltæki . . . .“ bætti Poirot við og endaði setningu.na með ógnandi bend ingu. Frúin rak upp lágt vein. Poirot tók undir arm mér og leiddi mig á brott. Við héld 1 um rakleitt upp í herbergi okk ar. Poirot kastaði hatti sínum á borðið. „Ég veð í villu og svíma'1, hrópaði hann upp yfir sig. ,,Ég eygi ekki neina færa leið. Eins og smákrakki þreifa ég mig á- fram í myrkrinu. Hvaða per- sóna er það sem mest mu.ndi auðgast við dauða ungfrú Nick? Frú Rice. Hvaða persóna send ir ungfrúnni eitrað sælgæti, meðgengur það umsvifalaust, og segir síðan hina ósennileg- u.stu sögu um símtal, sér til afsökunar? Frú Rice. Neí, þetta | er allt of einfalt, of heimsku- ' lega einfalt til þess að það i geti verið satt. Og frú Rice er I þó ekki heimsk manneskja. Nei, það er hún ekki ,,Og hvað er þá næst fyrir?“ ,.Hún neytir cocains, Hast- ings! Ég er viss um það, að hún neytis cocains. Á því get- ur ekki leikið minnsti vafi. Og eitrið, sem blandað hafði verið í þetta sælgæti, var ein- j: mitt cocain.. Og hvers vegna varð henni það að orði, að súkkulaðið í þessum öskjum hefði ekki getað verið eitrað? Við verðum að athuga það allt saman nánar. Og á hvaða hátt er Lazarus hinn glæsilegi tengd 1 ur þessu máli? Og hverju leyn- ir frá Rice í því sambandi, Eitt . hvað er það, sem hún veit, en | viS ekki láta okkur komast á ‘ snoðir um. Ég kann að minnsta kosti engin ráð til að hún segi mér það. Hún er ekkí þannig skapi farin, að auðvelt sé að hræða hana til frásagnar. En | hún veit eitthvað, Hastings, sem við verðum að fá að vita. Og þessi saga hennar um sím- t.alið, — er hún sönn, eða fann hún upp á þessari lygi í því skvni að villa okkur sýn? Og ; ef sú saga skyldi vera sönn, hver var það þá, sem átti tal við hana í síma? Hann þagði nokkurt andar- tak. Þetta er allt óskiljanlegt og fiókið, Hastings. Ekkert nema mvrkur, ekkert nema myrkur (í „Nóttin er svörtust fyrir dag renninguj, varð mér að orði. Hann gerði ekki annað en hrista höfuði.ð „Og svo eru það öskjurnar, sem komu í póstinum. Getum við slegið því föstu, að eitraði sælgætismolinn hafi ekki legið í þeim? Nei, við getu.m það ekki, því að ungfrú Nick þorir ekki að fullyrða neitt um það. Jú. það er heldur skemmtilegt ríðureignar það“. Hann urraði og tautaði. Ég var í þann veginn að taka til máls, en hann gaf mér bend ingu, um að þegja. „Elcki eitt orð, kunningi, ekkí eitt orð. Ég -þoli þetta ekki. Ef þú hins vegar kysir að reynast mér traustur og sam- úðarríkur vinur, þá . .. . “ ,.Þá hvað ....“ spurði ég, allur af vilja gerðu.r. ..Þá færir þú tafarlaust út, Myndasaga barnanna: Bangsi og álfabjallan, Minningarspjöld Barnaspítalasjóðs Hringsins eru afgreidd f Hannyrða- verzl. Refill, Aðalstræti 12. (áður verzl. Aug. Svend sen), í Bókabúð Austurbæj ar, Laugav. 34, Holts-Apó- teki, Langhoitsvegi 84, Verzl. Álfabrekku við Suð- urlandsbraut og Þorsteins- búð, Snorrabrai.t Bl. ^ Smurt brauð s og snsttur. J Nestispakkar. ^ Ódýrast og bezt. Vin- S samlegast pantið með S fyrirvara. S MATBARINN S Lækjargötu 6. S Sími 80340. í Rafbúnaður í bíla t Nýkomið, ódýrt. Sam- S lokur 6 og 12 volta. S Rafvélaverkstæði og verzí- S un Halldórs Ólafssonar 'j Rauðarárst. 20. Sími 4775. S----------------------- s s s s s s s s s s s s s s s. s s s s s s s s s s s s s s s s s s af ýmsum stærðum í bæn s uni, úthverfum bæjarins og fyrir utan bæinn til sölu. Höfum einnig til sölu jarðir, vélbáta, bifreiðir og verðbréf. Nýja Fasteignasalan Bankastræti 7. Sími 1518 og kl. 7,30 — 8,30 e. h. 81546. Minningarspjöíd dvalarheimilis aldraðra sjóS manna fást á eftirtóldum stöðum í Reykjavík: Skrif- stofu SjómannadagsráðsS Grófin 1 (ga igið inn frá S Tryggvagötu) sími 80788,s skrifstofu Sjómannafélags S Reykjavíkur, Hverfisgötu 8—10, Veiðafæraverzlunins Verðandi, Mjóikurfélagshúss ir.u, Verzluninni Laugaíeigs ur, Laugateig 24, bókaverzi ‘ uninni Fróði Leifsgötu 4, tóbaksverzluninni Boston, Laugaveg 8 og Nesbúðinni,. Nesveg 39. — í ílafnarfirði S hjá V. Long. Bangsi hafði nú ekkert sér- stakt u,m að hugsa, og forvitn- in fór að ná tökum á honum. ,,Ég hef aldrei séð vorálf fyrr“, sagði hann við höfðingjann, „og mig langar til að vita, hvað þið gerið og til hvers þetta allt saman er“. En rétt í þessu kom einhver hlaupandi. Bangsi leit við. Það var Gutti á harða spretti eftir ganginum. ,.Ég er feginn að hafa fundið þig aft- u,r?“ sagði hann móður og más andi. „Þá er bezt, að ég yfirgefi ykkur‘‘ sagði höfðinginn. „Ég þarf að fara og sinna skyldu- störfum mínum. En, þessi litli álfur sýnir ykkur alltj sem þið viljið vita“. Hann benti á álf- inn, sem hafði halað þá upp í stólnum. „Verið þið sælir og ég þakka ykkur fyrir. Þíð eruð dúglegir strákar“. Svo fór höfð inginn frá þeim, en þeir voru einir með álfinum. „Mér leiðist, hvað ég var reiður, þegar þú komst upp í stclnum“, sagði álfurinn við Bangsa, ,.en hvar eigum við að bvrja? Hvað viljið þið sjá?“ ..Við viljum skoða allt“, sagði Bangsi ákafur. „Jæja, komið þið þá“. sagði hinn, „en fáðu mér álfabjölluna þína. Það veit énginri, hvað gæti gerzt, ef þú hringdir henni óviljandi hér. Svo er bezt að ég útvegi ykk- ur eitthvað að borða“. • Raftœkja- ) trygging Rafha S Hafnarstræti 18, Reykja- S vík. Sími 80322. S Verksmiðjan, sími 9022. i BOROA RN ;BILSTÖÐIN SHafnarstræti 21. Sími 81991 SAusturbær: Sími 6727. SVesíurbær: Sími 5449 Köld borö og heitur veizíu- matur. ; Sfltf & Fiskur. á Annast alíar teg- <■ undir raflagna. ^ Viðhald railngna. ^ Viðgerðir á heimilis- ^ tækjum og óðrum ^ rafvélum. ^ Raftækj avinnustofa S Siguroddur Magnússon S Urðarstíg 10. S S Sími 80729 AB 6

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.