Alþýðublaðið - 09.04.1952, Síða 1

Alþýðublaðið - 09.04.1952, Síða 1
ÁLÞYBUBLAÐIB Flugslys á Mosfellsheiðl síSdegis í gær (Sjá 8. síðu.) XXXIII. árgangur. Miðvikudagur 9. apríl 1952. 83. tbl. / r m Verður á borðum í Austur-Berlín um páskana. REUTERSFREGN frá Ber líu hermir, að íbúamir á her námssvæði Rússa í Austur- Beriín og- á Austur-Þýzka- landi fái nýja tegund súkku- laðis á borðið um páskana. Nefnist liún þar „vítalaði", en í Vestur-Berlín hefur henni verið gefið nafnið „austursúkkulaði'* eða „súkkulaðið án .súkkulaðis“. Það er að vísu satt, að í þessu nýja góðgæti vottar hvorki fyrir súkkulaði né kakaó; én engu að síður er það sagt gott á bragðið, eins á litiiui og súkkulaði og mjúkt undir tönn eins og núgat. Efnasamsetningin er á þessa Ieið: 38% fituefni, 41% kolvetni og 12% eggja- hvítuefni. Það eru austurþýzkir vís- indamenn, sem hafa fundið þetta gervisúkknlaði upp. Var hneykslið framið með fyrirvara? ssijóri segir af sér frá og með 22. Janúar n.k! Ný tilkynning menntamáia ráðuneytis í gær 6erf úf um örlög Pinaysflórnar í dag FJÁRLAGAFRUMVARPI Pinaystjórnarinnar virðist ætla að reiða betur af en tveim öðr um fjárlagafrumvörpum, sem borin hafa verið undir atkvæði í franska þinginu fyrir árið 1952 og orðið tveim ríkisstjórn um að falli. í gærkvöldi höfðu 8 af 10 aðalliðum frumvai-psins verið samþykktir, en Pinay hef ur gert það að fráfararatriði, ef einhver einn þeirra verður ekki samþykktur. Atkvæða- greiðslan hélt áfram í nótt. Því var spáð í gærkvöldi, að Pinay myndi halda velli, þótt tæpt standi. Dauðadœmt Alpaf iallaþorp. Eftir nokkrar vikur verður þorpið Tignes í 1 J 11 Vestur.Alpafjöllum, skammt fyrir innan landamæri Frakklands, horfið af yfirborði jarðar og djúpt vatn búið að fylla dalinn þar sem það stóð. Leifar þorpsins verða þá á vatnsbotninum. Á myndinni sést kirkjugarður þorpsins og nokkur hús þess; en í baksýn sést stór stífla, sem hlaðin hefur verið í dalnum og á að sjá raforkustöð þar fyrir vatnsafli. Þegai- þeirri stíflu hefur verið lokað, eru dagar þorpsins taldir, því að þá breytist dalurinn í stórt og djúpt stöðuvatn. Þessi fyrirætlun hefur mætt megnri mótspyrnu þorpsbúa og hafa sumir þeirra jafnvel haft við orð að láta heldur drekkja sér í dalnum, en yfirgefa þorpið. imm norskra selveiðibáta í íshafinu saknað Einn náði landi mikið brolinn við Höfða- strönd í fyrradag, og annar á Bíldudal í gær og hafði hann misst mann útbyrðis ífaiir hefja smíði sfórra herskipa ÍTALSKA STJÓRNIN hefur gert samning við skipasmíða- félag í Livorno um byggingu þriggja tundurspilla. Eru þeir fyrstu stóru herskipin, sem I ítalir láta byggja eftir heims- styrjöldina. Falsaður 500 kr. seðili í vörzlu lögreglunnar RANNSOKNARLOG- REGLAN hefur undir liönd- um falsáðan 500 króna seðil. Hefur seðill þessi verið fals- aður á þann undarlega liátt, að hamn er teiknaður, en hvorki ljósmyndaður né prent aður, og má það vissulega teljast eljusemi hjá þeim, sem lagt hefur sig í að teikna seð ilinn. Lögreglan hefur nú mál þotta til rannsóknar, en ekki er vitað, hvort fleiri slíkir seðlar séu í umferð, og jafn- ; vei má það teljast fremur ó- trúlegt, en hins vegar getur verið betra að hafa fulla að- gæzlu, er menn veita viðitöku 500 króna seðlum. Síðast liðinn laugardag ók bifreiðarstjóri einn á Hreyfli, Gunnar Gunnarsson að nafni, manni einum hér um bæinn, og fékk aksturinn greiddan ineð 500 króna seðli. Kostaði ökuferðin 9 krónur, og tók Gunnar við seðlinum, lét hann í tösku sina og gaf far- þeganum til baka 491 krónu. Litlu síðar ætlaði Gunnar að kaupa sér sígarettur og grei'ða með 500 króna seðlinum, en stúikan, sem afgreiddi hann, veitti því athygli, að seðillinn var eitthvað sérkennilegur. í MARGIR norskir selveiðibátar lentu í hrakningum norður í ísliafi um helgina, og er jafnvel óttast um afdrif nokkurra. í gærkveldi hafði ekkert spurzt til fimm bótanna, en einn kom inn á Selvík á Höfðaströnd á mánudaginn mikið brotinn, og hafði meðal annars misst fyrir borð öll matvæli skipsharfnar- innar. Annar kom til Bíldudals í gær. _______________:______________^ Samkvæmt upplýsingum, sem AB hefur fengið hjá Slysavarna félaginu gerði „Ungsel“ fyrst vart við sig á laugardaginn, en þá var báturinn í nauðum staddur einhvers staðar norður af Vestfjörðum í kóisvarta hríð og stórviðri. Hafði óveðrið brostið á síðast liðinn föstudag, en þá var fjöldi norskra sel- veiðibáta norður undir ísrönd- inni, eða á stóru svæði um 120 sjómilur norður af Vestfjörð- um. Fékk „Ungsel“ þá á sig brot- sjó og íshröngl, og telur slcip- stjórinn, að báturinn hafi verið £ mikilli hættu af ísjökunum. Báturinn brotnaði mikið ofan þilja ,m. a. tók matvælagej’msl una fyrir borð og sömuleiðis kistu, þár sem geymd var öll smurolía skipsins. Síðdegis á mánudaginn var enn fárviðri, en þá var „Ung- Framh. á 8. síðu. fljótu bragði virtist þó, sem hér gæti verið um raunveru- legan 500 kr. seðil að ræða; hann var brúnn að lit, en dá- lítið veiktur, líkt því, sem hann hefði blotnað. Við nán- ari athugun kom í ljós, að mörg einkenni vantaði ó seð- ilinn, sem annars eru á 500 króna se'ðlinum, og afhen.ti Gunnar rannsóknarlögregl- unni málið. Samkvæmt upp- lýsingum, sem AB hefur feng ið hjá Sveini Sæmundssyni í rannsóknariögreglunni, hef- ur seðill þessi verið teikn- aður og málaður með vatnslit um. ( í GÆR voru tjöldia dregin frá nýjum þætti í Jineykslismáli ríkisstjórn- íirinnar og útvarpsstjór- ans. Þá gaf menntamála- ráðuneytið út svofellda yf- irlýsingu; „Útvarpsstjóri Jónas Þorbergsson hefur með bréfi, dags. 5. þ. m., óskað að verða leystur frá embætti frá 22. janúar n.k. að telja. Ráðuneytið hefur tekið lausnarbeiðnina til greina.“ Ef í þessari tilkynningu menntamálaráðuneytisins er í öllum atriðum rétt frá skýrt, virðist hún benda til þess, að hneyksli ríkisstjórnarinnar, — að setja útvarpsstjóra dæmdan aftur inn í embætti sitt — hafi verið framið með þeim fyrir- vara, að hann segði um leið af sér. En hvað sem því líður, þá er það að minnsta kosti víst, að í tilkynningu Björns Ólafssonar menntamálaráð- herra um innsetningu Jónasar Þorbergssonar í útvarpsstjóra embættið á laugardaginn, var ekki um neinn slíkan fyrirvara getið; og það var ekki fyrr en í gærmorgun, að Morgunblað- ið lét í það skína, að útvarps- stjóri myndi þegar hafa sagt af sér; en með þeirri frétt var Morgunblaðið bersýnilega að reyna að klóra yfir hina hneykslanlegu ákvörðun menntamálaráðherrans að setja útvarpsstjórann aftur inn i embætti sitt-, þrátt fyrir dóm bæði undirréttar og hæstarétt- ar í máli hans. En jafnvel þótt ríkisstjórn in hefði leikið þann skrípa- leik, að setja útvarpssýjór- ann aftur inn í embætti sitt með þeim fyrirvara, að hann segði því um leið lausu frá og með tilteknum tíma, þá er hneyksli hennar eftir sem áður hfð sama; því að það er fyrst og fremst falið í því, að setja dæmdan embættis- mann, bæði í undirrétti c.g bæstarétti, aftur inn í það embætti, sem hann hefur gerzt brotlegur í. Framhald á 5: síön.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.