Alþýðublaðið - 31.05.1952, Side 4
31. maí 1952.
AB-AjþýðubJaðið
Hvífu kolin frá Soginu.
HORNSTEINN hinnar nýju
Sogsvirkjunar var lagður í
fyrradag. Það er stórviðburð-
ur, sem sennilegt er, að síðar
verði talinn hafa markað
tímamót. Fullgerð mun við-
bótarvirkjunin veita rafmagni
um allt Suðvesturland með
samtals um 82 þúsundir íbúa.
Hvítu kolin frá Soginu munu
þannig veita röskum helm-
ingi þjóðarinnar ljós og yl og
um leið verða aflgjafi iðnað-
arins í þessum landshluta,
þar sem vöxtur hans hefur
orðið örastur og framtíð hans
verður mest, ef kjósendur
bera gæfu til að forða honum
í tíma undan dauðri hönd nú-
verandi stjórnarflokka.
Saga rafmagnsins hér á
landi er annars líkust ævin-
týri. Það hefur gerbreytt
högum landsmanna á stutt-
um tíma, veitt þeim þægindi,
sem áður voru fjarlægar og
óraunverukenndar draum-
sýnir, lagt grundvöll að nýj-
um atvinnuvegum og nýjum
afkomumöguleiku,m og átt
drýgstan þátt í að móta öld
nútímans á íslandi. ísland
væri enn frumstætt í verald-
legum efnum, ef rafmagnsins
hefði ekki notið við, þjóðin
væri fátæk og vanmáttug og
ætti sér litla drauma. Gildi
rafmagnsins er því beint og
óbeint miklu meira en flestir
hafa gert sér grein fyrir. Það
yrði kynslóð samtíðarinnar
þá fyrst Ijóst, ef hún yrði að
vera án þess, en þá myndi ís-
land hrökkva nær hálfa öld
aftu.r í tímann. Viðbótarvirkj-
anir rafmagnsins eru aftur á
móti átak til þess að bæta hag
þjóðafinnar, láta hana standa
beturlað vígi í lífsbaráttunni
og nytja auðæfi, sem hingað
til hafa legið í láginni. Það er
því vissulega ástæða til að
gefa hinni nýju Sogsvirkju.n
gaum. Hún kemu.r að vísu
seint, en kannski er því meiri
ástæða til að fagna henni.
Því hefur oft verið haldið
fram að auðu.r íslendinga
væri einkum og sér í lagi fólg-
inn í fiskimiðunum umhverf-
is landið. Þeim eigum við líka
fyrst og fremst að þakka það,
sem við höfum orðið og erum.
En ef til vill er samt mestan
framtíðarauð okkar að finna
í fallvötnunum, sem ru,nnið
hafa óbeizluð til sjávar um ár
og aldir. Með virkjun þeirra
gefst okkur kostur þess að
hagnýta sjávaraflann marg-
faldlega, rækta landið og
bvggja upp nýja atvinnuvegi
auk þeirra auknu lífsþæg-
inda, sem þær veita. Stærri
þjóðir öfunda okkur íslend-
inga af orku fallvatnanna,
sem þær skortir margar
hverjar. Sjálfir höfum við
enn ekki gert okkur verð-
skuldaða grein fyrir því, hví-
líkur fjársjóður hún er. Hvítu
kolin taka hinum svörtu
fram, og auk þess ganga þau
aldrei til þurrðar. Auðæfi
þeirra endast til eilífðar.
Islendingar þurfa sannar-
lega ekki að kvíða framtíð-
inni, ef þeir kunna að hag-
nýta sér auðlindir landsins
og sóa ekki afrakstri þeirra
úr höndum sér. Möguleikar
landsins eru margir og óþrjót-
andi. Tækniþróunin hefur ef
til vill hvergi átt meira erindi
en einmitt hingað. Hún hefur
gerbreytt íslenzku þjóðlífi á
fáum árum. Þó er bylting
hennar enn aðeins í byrjun.
Framvindan er svo öflug og
hröð, að það, sem mönnum
vex í augum í dag, er orðið
smátt gagnvart nýjum verk-
efnum á morgun. Nú þykir
íslendingu.m hin nýja Sogs-
virkjun miklum tíðindum
sæta, og víst er það að von-
um. Þó verður þess áreiðan-
lega ekki langt að bíða, að
hún hverfi í skuggann af öðr-
um og stærri virkjunum.
Vátnsorkan mun þá fyrst
valda þeim tímamótum, sem
til stendur, þegar stærstu
fallvötn landsins hafa verið
beizluð af mannvitinu og vís-
indu.num í þágu fólksins og
atvinnuveganna.
Sumir munu óttast, að hér
sé verið að smíða Grótta-
kvarnir nútímans, sem muni
auka mu.n ríkra og fátækra í
landinu. Sannarlega er hætta
á því. En það er á valdi fólks-
ins að koma í veg fyrir, að svo
verði. Beri það gæfu til að
standa á verði um hag sinn
og heill og þekki sinn vitjun-
artíma, munu; hinar nýju
Gróttakvarnir mala því verð-
mæti, sem eru gulli betri. En
til þess að svo verði, þarf al-
þýða landsins að takast á
hendur þá forustu, sem hún
á heimtingu á og hennar bíð-
ur, ef hún lætur ekki sundr-
ungu og blekkingar stöðva
sókn sína og villa sér sýn.
blómið á Sauðár-
króki 50 ára
T. f. v
Þrjú hugsanleg forsetaefni demokrata í haust.
: Robert Kerr, Adlai Stevenson og Averell Harriman.
TiSkynning
um lóðahreinsun.
Samkvæmt 10. og 11. gr. heilbrigðissamþykktar fyr
ir Reykjavík er lóðaejgendum skylt að halda lóðum sín-
um hreinum og þrifalegum.
Lóðaeigendur eru hér með áminntir um að flytja
burtu af lóðum sínum allt, er veldur óþrifnaði og ó-
prýði og hafa lokið því fyrir 3. júní n. k. Hreinsunin
verður að öðrum kosti framkvæmd á kostnað húseig-
enda.
Reykjavík, 15. maí 1952.
Heilbrigðisnefnd.
demókrata
í
£i il
AB — AlþýCublaCiB. TJtgefandi: Alþýðuflokkuriim. Ritst]6ri: Stefán Pjetursson.
Auglýsingastjóri: Emma Moller. — Rltstjórnarsímar: 4901 og 4902. — Auglýsinga-
aími: 4906. — AfgreiSslusími: 4900. — AlþýðuprentsmiSjan, Hvernsgötu 8—10.
HVER verður frambjóðandi
demókrata í forsetakosningun-
um í Bandaríkjunum í haust?
Þsirri spurningu er vandsvar-
að, en mörgum mun detta í
hug, að það verði annaðhvort
Estes Kefauver eða Averell
Harriman eftir að Adlai Stev-
enson ríkisstjóri í Iilinois dró
sig í hlé í fulltrúakjörinu innan
flokksins. Nýjustu fréttir
benda hins vegar til þess, að
svo kunni að fara, að Steven-
son gefi kost á sér á síðustu
stundu á flokksþingi demó-
krata í Chicago — og verði
næsti forseti Bandarikjanna.
Tímaritið ,,Newsweek“ skýrir
frá því, að meðal demókrata í
norðurríkjunum verði nú æ
meira vart þeirrar skoðunar,
að Stevenson gefi kost á sér að
lokum. Og flokksbræður hans
virðast sannfærðir um, að hann
sigri hvaða frambjóðanda, sem
repúblíkanar tefli fram á rnóti
honum, — líka Eisenhower.
EISENHOWER SIGRAR ALLA
— NEMA STEVENSON
Meginástæðan til þess, að bú-
izt er við framboði Stevensons,
er eirimitt sú almenna skoðun
innan demókrataflokksins, að
hann muni sigra Eisenhow-er.
Nýlega fór fram Gallupskoðana
könnun um framboðið meðal
2970 forustumanna demókrata.
Mikill meirililuti þeirra taldi,
að Eisenhower myndi sigra Es-
tes Kefauver, Richard B. Rus-
sell og Alben W. Barkley vara-
forseta. Hins vegar þóttust þeir
hinir sömu fullvissir þess, að
Adlai Stevensen ynni Eisen-
hower.
Sá, sem hefur forustu þeirra,
er vilja fá Stevenson í fram-
boð, er Jacob M. Arvey frá Illi-
nois. Hann staðhæfir, að Stev-
enson muni gefa kost á sér að
lokum, þó svo að Eisenhower
verði keppinautur hans.
ÞAÐ, SEM KEMUR TIL MEÐ
A® RÁilA ÚRSLITUM
Arvey játar hins vegar, að
auðveldara muni að fá Steven-
son til framboðs, ef Taft verði
forsetaefni repúblíkana. En
hann bendir á, að Eisenhower
hljóti að lyfta miklum fjölda í-
haldssamra repúblíkana til
valda, ef hann verði forseti, og
stjórn hans reynast þröngsýn í
innanlandsmálum. Hann heldur,
að þetta muni ráða úrslitum um
það, að Stevenson gefi kost á
sér. >
Stevenson hefur lýst yfir því,
að hann taki ekki þátt í full-
trúakjörinu til flokksþings de-
mókrata. Hann ætlaði að boða,
að hann gæfi ek'ki kost á sér til
neins annars trúnaðarstarfs en
að leita endurkjörs sem ríkis-
stjóri í Illinois, en Arvey taldi
honum hughvarf. Stevenson
sagði Arvey, að hann gæti ekki
hugsað sér að flytjast burt frá
Illinois og að Eisenhower
mvndi reynast góður forseti, þó
svo að hann yrði kosinn á veg-
um repúblíkana. Arvey fékk
hann til að lýsa engu yfir opin-
berlega í þessu sambandi og
beitti þeirri röksemd, að í
stjórnmálum sé á öllu von og
að Taft hafi enn rnikla mögu-
leika á því að hreppa framboð-
ið. Og síðustu vikurnar hefur
þess orðið vart, að Stevenson
muni ekki eins fráhverfur fram
boði og hann áður var. Hann
komst meira að segja svo að
orði nýlega í samtali við flokks-
bróður sinn frá Michigan, að
hann ætlj að leita endurkjörs
sem ríkisstjóri í Illinois, nema
„eitthvað sérstakt“ komi fyrir
og hafi þau áhrif, að hann end-
urskoði afstöð'u sína.
FRAMBOÐ STEVENSONS
KEMUR AF SJÁLFU SÉR
Arvey heldur því fram, að
framboð Stevensons komi af
sjálfu sér, þegar leiðtogar de-
mókrata í norðurríkjunum sann
færist um, að hann gefi kost á
sér. Russell kemur á flokks-
þingið í Chicago með 275 at-
kvæði á bak við sig, en Ke-
fauver með því sem næst 250.
Framh. á 7. síðu.
Frá réttaritara AB
SAUÐÁRKRÓKI
BARNASTUKAN „Eilífðar
blómið nr. 28 Sauðárkróki varð
50 ára á öndverðu þessu ári. —
Hún er stofnuð af irumherjum
reglunnar hér í stkunni Gleymi
mér eig 1902. Séra Arni Björns
son, hafði þar forgóngu. Síðan
hefur hún starfað óslitið að
heita má, og oft með miklu fjöri.
— Gæzlumenn voru 6 fyrstu ár
in: Hallgrímur Þorsteinssoa org
anisti, Halldór Þorleifsson smið
ur og Þorkell Janusson. Síðustu
44 árin hefur gæziumaður verið
Jón Þ. Björnsson skólastjór; og
cr það enn.
Stúkan minntizt þessa 50 ára
afmælis síns 2. mai-z s. 1. á mjög
virðulegan hátt: 1 guðþjónusta
í Þauðárkrókskirkju, þar sem fé
lagar voru mættir undir fána
reglunnar, 2. opinber (ókeypis)
samkoma, þar sem gæzlumaður
og regluboði fluttu erindi, barna
kór söng og kvikmynd við barna
hæfi var sýnd, 3 skemmtun fyrir
stúkubörn og nokkra vini þeirra.
Stofnendur voru 30. Nú eru
félagar um 120.
JENS.
Hóteiherbergi í Stokk
hólmi upppöntuð tii
hausfs.
SENDIRÁÐIÐ í Stokkhólmi
biður þess getið ,að nú þegar sé
búið að panta upp öll hótelher-
bergi i Stokkhólmi fram á
haust. Ráðleggja Svíar því
þeim, sem hugsá að fara til
Finnlands að leggja ferðir sínar
svo, að þeir þurfi ekki að vera í
Stokkhólmi nætursakir. Jafn-
vel þótt einstaklmgar muni
^gera sitt ýtrasta með að leigja
út einstök herbergi, eru samt
fyrirsjáanleg mikll vandræði
með að fá gistingu í bænum í
sumar.
Fundinn munu sitja um 50 fulltrúar
frá hinum Norðuriöndunum.
AÐALFUNDUR Sambands bændasamtakaá Norðurlöndum
(N. B. C.) verSur haldinn í Reykjavík dagana 4. og 5. agúst
næstkomandi og eru væntanlegir hingað um 50 fulltmar frá
hinum Norðurlöndunum. Munu fulltrúarnir koma hingað með
Gullfaxa 3. ágúst, en að fundinum loknum verður farið í
tveggja daga ferðalag um Borgarfjörð og Suðurlandsundirlend
ið, en laugardaginn 9. ágúst fara fulltrúarnir heimleiðis.
Rannsékn á alferli
Rhees forseta
Suður-Kóreu
í FRÉTTUM frá sameinuðu
þjóðunum í gær var skýrt frá
því, að rannsókn myndi látin
fara fram á atferli Syngmans
Rhee, forseta uðu.r-Kóreu; en
hann hefur látið handtaka 11
þingmenn og ásakað þá fyrir
óleyfilega undirróðursstarf-
semi.
♦ Dagana 19. og 20 maí var hald
inn í Stokkhólmi stjórnarfund
ur bændasambandsins og voru
þar mættir tveir til þrír fulltrú
ar frá hvoru hinna fimm Norður
landa. Bjarni Ásgeirsson, sendi
herra í Osló, er fcýseti sam
bandsins og stjórnaði fundinum.
Á stjórnarfundinum voru
rædd þau mál' ér leggja á fyrir
iðalfundinn hér í sumar, og
enn fremur var fætt um annan
undirbúning fyrir aðalfundinn.
Stéttarsamband bænda hér sér
um undirbúning að aðalfundin
um, enda er það meðlimur í
I þessu norræna búnaðarsam
bandi.
AB 4