Alþýðublaðið - 07.06.1952, Blaðsíða 5
I ti ■ ■ • B • ■ » ••■■•■■■■■■■■■■»■'■»» >■ IIIIIIlÍHdtlÍ IMimiil'
Wi ■ k
*,**** ««»« **mmKMimitnii%b*
: urinn
: lagsrit Náttúru-
■ fræðifélapns
t —------
NÁTTÚRUFRÆÐINGUR-
INN, tímarit Hins íslenka nátt-
úrufræðifélags, er nýkominn
út. Er þetta 1. hefti 22. ár-
gangs. Ritið er óvenju seint á
ferðinni í þetta sinn, en sá
dráttur stafaði af nokkrum
fcreytingum, sem gerðar voru;
á útgáfu þess. Á aðalfundi
náttúrufræðifélagsins í febrúar
S. 1. var ákveðið að Náttúru-
fræðingurinn skyldi gerður að
félagsriti. Allir meðlimir fé-
lagsins fá því nú ritið upp í
órstillag sitt, sem með tilliti
til þess hefur verið hækkað
wpp í 40,00 krónur. Er hér um
sams konar fyrirkomulag að
ræða og t. d. hjá bókmennta-
félaginu, en ársrit þess er
Skírnir, eins og kunnugt er.
Náttúrufræðingurinn á að
Itoma út fjórum sinnum á ári
eins og hingað til. Efni hans,
stærð og frágangur verður með
sama sniði og áður, nema hvað
reynt verður enn að auka fjöl-
foreytni hans. Nú hefst t. d. sú
nýbreytini, að birtar eru í
fcverj u hefti 2 myndasíður,
prentaðar á vandaðan pappír.
Er ætlunin að birta þannig
flokka mynda úr íslenzkri nátt-
Úrufræði. Er byrjað á íslenzk-
run fuglum, og sér dr. Finnur
Guðmundsson um þann flokk.
Verða birtar þarna fyrst og
fremst fuglamyndir Björns
Björnssonar fyrrv. kaupmanns
frá Norðfirði; en hann á mjög
gott safn ljósmynda, sem hann
fcefur gert af íslenzkum fu,gl-
nm. Síðan verða birtir fleiri
flokkar íslenzkra dýramynda
Og einnig jarðfræðimynda og
plöntumynda. Er þarna glæsi-
legt verkefni fyrir Náttúru-
fræðinginn, sem líklegt er til
þess að afla honum enn meiri
vinsælda en hann hefur þegar
öðlazt. Núverandi ristjóri Nátt-
úrr.fræðingsins er dí. Sigurður
Þórarinsson.
Hið íslenzka náttúrufræði-
félag eða Náttúrufræðifélagið,
eins og það er kallað í daglegu
tali, stendur opið öllum þeim,
sem áhuga hafa á náttúru-
fræði. Fyrir 40,00 kró"na árstil-
lag fá meðlimir félagsins:
1. ) Tímaritið Náttúrufræð-
ínginn, 12 arkir (ca. 200 síður)
á ári.
2. ) Aðgang að samkomum
félagsins, sem haldnar eru
mánaðarlega, mánuðina októ-
fcer til maí, en þar eru flutt
fræðandi erindi u,m náttúru-
fræðileg efni.
3. ) Aðgang að fraeðsluferð-
lim félagsins, sem farnar eru á
sumrin undir leiðsögn náttúru-
fræð'inga.
Dalvíkurbátum
r . ..
g' Frá fréttaritara AB.
HÉÐAN hafa verið gerðir út
til þorskveiða síðari hluta vetr-
ar og í vor fjórir stórir bátar og
nokkrir trillubátar. Tveir hinna
stærri báta veiddu í troll, en
Jlinir á línu og var afli mjög
lítill og er það enn. M.b. Þor-
Steinn er nýlega kominn heim
,af vertíð við Suðurland og afl-
,aði hann 1000 skippund. Hér
fcefur verið þrálát norðanátt
með hríð og kulda. Horfir nú til
vandræða með hey ef ekki kem
Jir bráðum bati.
* *P Y' f* * j v w*
15. sjómannadagur
Dagskrá:
Laugarcfagnr 7. fynís .
Ki. 15.00: Kappróður við Faxagarð. Veðbanki starfræktur.
Hefst róðurinn í kappróðri kvenna.
Síðan fer fram sundkeppni.
Sufinudagur 8* $úníf sJóniannadagurE
Kl. 3,00: Fánar dregnir að hún á'skipum.
Kl. 9,00: Hefst saia á m.erki og blaði dagsms, svo og happdrættismiðar dv'alarheimilis aldraða sjómanna.
Kl. 13.00: Safnast saman til hópgöngu sjómanna við Miðbæjarbarnaskólann.
Kl. 13.20: Leggur hópgangan af stað með Lúðrasveit Reykjavíkur í fararbroddi. Gengið verður um Vonar-
stræti, Suðurgötu, Túngötu. Ægisgötu, Tryggvagötu, Geirsgötu, Pósthússtræti og staðnæmzt á Aust
urvelli.
Kl. 14,00: Hefst útisamkoma við Austurvöll, ræður og ávörp verða flutt af svölum alþingishússins.
Útisamkoman hefst með því að Ævar R. Kv aran syngur ..Bára blá“ með aðstoð lúðrasveitarinnar. —
Biskupinn yfir íslandi. herra Sigurgeir Sigur ðsson minnist látinna sjómanna. — Lagður verður blóm-
sveigur á leiði óþekkta sjómannsins .í Fossvogskirkjugarði. — Þögn í eiha mínútu. — Ævar R. Kvar-
an syngur ,,Alfaðir ræður“ með aðstoð lúðra sveitarinnai.
Ávarp siglingarmálaráðherra, Ólafs Thors.
Leikið: Lýsti sól stjörnu stól.
Ávarp fulltrúa útgerðarmanna, Björn Thors framkvæmdarstjóri.
Leikið: Gnoo úr hafi skrautleg skreið.
Ávarp borgarstjórans í Reykjavík, Gunnar Thoroddsen.
Leikið: Reykjavík.
Ávarp fulltrúa sjómanna, Ásgeir Sigurðsson skipstjóri.
Leikið: íslands Hrafnistumenn.
Afhending verðlauna.
Að lokum verður leikinn þjóðsöngurinn.
Á íþróttaveiisrr!uiír& við meiana:
Kl. 17,00: Knattspvrnukappleikur milli áhafnanna á m. s. Reykjafoss og m.s. Tröllafoss.
Reiptog milli Fulltrúaráðs sjómannadagsins og Kvennadeildar Slysavarnafélags íslands o. fl.
Skemmtanir:
Kvöldvaka slóirsanna aö Hótel Borgs
Kl. 20.30 Hefst dans.
Ávarp Auðunn Hermannsson form. Skipstjc ra- og stýrimánnafélagsins Gróttu.
Ýms' skemmtiatriði.
I SJálfstæðishúslnu:
Kl. 20,30: Sýning á Revýunni „Sumarrevýan 1952“.
Dans.
Dansleikirs
Laugardaginn 7. júní. í Tjarnarcafé og Brei ðfirðingabúð.
Gömlu dansarnir í Ingólfs café, Þórscafé og Breiðfirðingabúð. Dansleikir í Vetrargarðiimm. Iðnó og
Tjarnarcafé.
Aðgöngumiðar seldir á sama stað frá kl. 8, og á skrifstofu okkar Grófin 1, í dag (laugardag) milli kl. 11—2 og
6—7.
Kl. 3—5 eftir hádegi báða dagana framleiða sjómannakonur eftirmiðdagskaffi í Iðnó til ágóða fyrir dvalarheim
ili aldraðra sjómanna, og verða það afbragðs veitingar.
Drekkið eftirmiðdagskaffið í fðnó!
I HafnarfirÖi:
Kl. 3,00: Hefst sala á merki og blaði dagsins.
Kl. 9,30: Hefst hópganga frá Verkamannaskýlinu að Þ jóðkirkjunni.
Kl. 21,00: Dansleikur, nýju og gömlu dansarnir í Alþýðuhúsinu.
Aðgöngumiðar verða seldir frá kl. 20,00.
Kvöfdvaka í Austurhæjarhíói, mánudaginn 9. júní kl« 21,00:
Ávarp: Þorvarður Björnsson yfirhafnsöguma ður.
Upplestur: Jón Aðils leikari.
Einsöngur: Guðmundur Jónsson.
Ávarp: Rannveig Vigfúsdóttir.
Frásöfn af sjóhrakningum, Gils Guðmundsson ritstjóri. ....
Upplestur: Gerður Hjörleifsdóttir.
Einsöngur: Ævar R. Kvaran.
Upplestur „Stjáni blái“ Jón Aðils.
Kórsöngur: Karlakórinn Þrestir í Hafnarfirði.
Aðgöngumiðar seldir á skrifstofu okkar og v ið inngangínn á mánudag. Verð kr. 15,00.
SJÓMANNADAGSRÁÐ.
•!
h
(KÍimiKiiiiiiiiniitiiiiiBB
1
'ÁB §■•