Alþýðublaðið - 27.06.1952, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 27.06.1952, Blaðsíða 4
AB-AIþýðublaðið i Hóíanir 27. júní 1952 TÍMINN varpaði i gær iram þeirri spurningu, hvort friður ætti að haldast um for- setastólinn eða ekki; en það taldi hann undir því komið, hvort „þjóðinni tækist að velja sér forseta á þann veg, að eining skapizt um forseta embættið að nýju“ eða hvort „forsetaembættið verði gert að pólitísku embætti, er fram vegis verði þrætuepli póli- tísku flokkanna". I>etta eru óneitanlega ein- kennilegar bollaleggingar. Það er þjóðarinnar að velja íorsetann, og skylda allra, einstaklinga jafnt sem flokka, að beygja sig fyrir vali henn ar. Sé þeirri skyldu fullnægt, er engin ástæða til þess að óttast neinn ófrið u,m forseta embættið framvegis, frekar en hingað til. Spumingin um frið eða ófrið um forsetastól- inn að forsetakjörinu loknu er því fyrst og fremst, og xauiiar eingöngu sú, hvort ahir eru reiðubúnir til þess að beygja sig fyrir þeim þjóð arvilja, sem fram kemur við forsetakjörið, eða ekki. En á því virðist nú leika nokkur vafi. Þetta er, því miður, ekki sagt út í bláinn. í blöðum þeirra Hermanns Jónassonar og Ólafs Thors, Tímanum og Morgunblaðinu, er haft i hót unum um það, að halda áfram illdeilum um forsetann og forsetaembættið, ef forseta- efni þeirra, séra Bjarni Jóns son, nær ekki kosningu á kjördegi; og er sú grein Tím- ans, sem hér er gerð að um- talsefni, í raun og veru ekk- ert annáð en hótun um það. Að sjálfsögðu er hér fyrst og fremst um tilraun að ræða, og það mjög ósvífna tilraun, til þess að hræða menn til fylgis við frambjóðanda þeirra Hermanns og Ólafs á kjördegi. En það er hætt við því, að sú tilraun komi hon- um að litlu haldi. íslendingar láta ekki gjarnan skipa sér r j fyrir um það, hvern þeir eígi að kjósa; og sízt af öllu munu þeir láta hótanir eða ógnanir hafa áhrif á atkvæði sitt. Þeir hafa líka verið heyrn- ar- og sjónarvottar að því, að blöð þeirra Hermanns og Ólafs hafa reynt á hinn ó- sæmilegasta hátt, að rægja eitt forsetaefnið. Slík blaða- skrif eru að sjálfsögðu sízt I til þess fallin, að skapa frið j og einingui um forsetaemb- j ættið. En út yfir tekur þó, þegar þessi blöð bæta nú gráu ofan á svart með því að hóta áframhaldandi illdeilum um það, ef það yrði Ásgeir Ás- geirson, en ekki séra Bjarni Jónsson, sem þjóðin kallaði í forsetastólinn á kjördegi. Slíka kosningabaráttu lætur hún ekki bjóða sér af nein- um. Henni mun hún svara svo eftirminnilega á kjördegi að enginn freistist framar til þess að ætla að þröngva vilja sínum upp á hana við for- setakjör með slíkum vinnu- brögðum. Það er, samkvæmt stjórnar skránni, skýlaus réttur þjóð arinnar að velja forsetann. Og það er jafn skýlaus skylda allra að beygja sig fyrir vali hennar. Þess vegna er það ekkert annað en ósvífni, þeg ar Tíminn segir, að það fari eftir vali þjóðarinnar, hvort friður og eining skapist um forsetaembættið að forseta- kjörinu Ioknu; því að það á að vera sjálfsagður hlu,tur, að allir sætti sig við val hennar, hvort sem þeim líkar það bet ur eða verr. Hitt er ósæmi- legt að ætla sér að reyna að hafa áhrif á val hennar með hótunum um áframhaldandi ófrið um forsetaembættið, og það má engum valdaklíkum í landinu lánast. Þess vegna er þess sterklega að vænta, að þjóðin svari þeim Her- manni og Ólafi þannig á kjördegi, að slíkra hótana sé ekki framar von við forseta kjör hér á landi. Orðsending tíl stuðningsmamm > r r \ Asgeirs Asgeirssonar um fand ailf Mafsvein Vantar á m.s. Dag. Upplýsingar í síma 7718 bátnum við Grandagarð. 2573 og um borð í Síldarnóf Hringnót og hringnótabátur óskast leigt í sumar á gott síldveiðiskip. Upplýsingar gefur ÓSKAR HALLDÓRSSON. Kosningaskrifsfofan Áusturstræti 17r verður opin atlan kosningar- daginn, vegna alíra kjördæma utan Reykjavíkur. Öll samtöl vegna kosnínganna komi í þessi númef: 3246 og 7320. Norrænt kirkiutónlistarmót 3.-10. júlí. S0O manna kór syngur við úfi- juðsþjónusfu á Þingvelli 6. júlí ......■»..... 6 tónleikar verða haldnir í dómkirkjunni TÓNLISTARMÓT verður í fyrsta sinn haldið hér dagana 3.—10. júlí. Það er mót norrænna kirkjutónlistarmanna, hið fimmta í röðinni. Meðal atriða á mótinu er útiguðsþjónusta 6. júlí á Þingvelli, er biskup landsins flytur, og þar mun um 500 manna kór syngja sálmana, kirkjukórar úr Reykjavík, Hafnar- firði og nálægum sýslum. iB — AlþýBublaBiO. Otgefandi: AlþýBuliokturinn. Kitstjóri: Stefán PJetursson- Auglýstngastjóri: Eœma MöHer. — Eitstjómarsímar: 4901 og 4902. — Augiýsinga- «4mi: 490«. — AfgreiSsIusfmi: 4300. — AlþýBu.prentsmiöJ&n. Hverflggötu í—10. Um mót þetta hefur blaðinu borizt fréttatilkynning frá Fé- lagi íslenzkra organleikara, sem annast framkvæmd mótsins. Þar segir m. a.: TILHÖGUN MÓTSINS Erlendu þátttakendurnir koma með Gullfossi fimmtudaginn 3. júlí að morgni. Sama dag kl. 13.30 verður haldin guðsbjón- usta í Dómkirkjunni. Klukkan 3 verður mótið sett í hátyfasal Háskólans, kveðjur verða flutt- ar af fulltrúum Norðurland- anna, og verða þjóðsöngvar Norðurlandanna sungnir. Flutt verður aðeins kirkjuleg tónlist, sú tónlist, sem tengdust er sjálfri guffsþjónustunni. Þarna koma fram r.okkrir af þekktustu organlsikuriun og söngstjórum Norðurlanda. For- ínenn organistafélaganna á Norðurlöndum koma til móts- ins, iþeir Emilius Bangert dóm- organisti í Hróarskeldu, Armas Maasalo prófessor og John Sundberg. prófessor frá Helsing fors, dómkantor Arild Sand- vold frá Osló og prófessör Da- vid Ahléir frá Stokkhólmi. Þess utan Ieiká á orgel Finn Viderö og Söreri Sörensen frá Dan- mörku, Harald Andersen frá Finnlandij Rolf Karlsen, Lud- vig Nielséh og Arild Sandvold frá N</.iegi, enn fremur frá Sví- þjóð Gustav Carlman. En alls munu 33 . erlenclír fulltrúar koma til mótsins. Enn fremur korna fram ís- lenzkir og erlendir einsöngvar- ar. Meðal hinna íslenzku eru ungfrú Elsa Sigfúss og Þuríður Pálsdóttir, Einar Kristjánsson óperusöngvari og Guðmundur Jónsson óperusöngvari._ Einleik á fiðlu leikur Björn Ólafsson. íslenzkir organleikarar verða Páll Kr. Pálsson, dr. Urbancic og Páll ísólfssQn. íslenzkir kór- ar annast flutning á kórlögum frá hverju landi. Dómkirkju- kórinn flytur dönsk, sænsk og íslenzk lög undir stjórn pró- fessors Ahlén og Páls ísólfsson- ar. Kór Hallgrímskirkjunnar í Reykjavík flytur finnsk og ís- lenzk lög úndir stjórn prófess- ors Maasalo og Páls Halldórs- sonar. Kirkjukór Nessóknar flytur færeysk og íslenzk lög undir stjórn Jóns Isleifssonar, en kór Þjóðkirkjunnar syngur norsk og íslenzk lög undii’ stjórn Arild Sandvold og Páls Kr. Pálssonar. Allir kirkjukórar Reykjavík- ur munu sameinast um að syngja,. þjóðsöngva Norður- landa við setningu mótsins í há tíðasal Háskólans. Tónleikar mótsins verða alls sex, allir í Dómkirkjunni, og byrja allir kl. 18.15. Fyrst eru íslenzkir tónleikar fimmtudaginn 3. júlí, föstudag- inn 4. júlí eru danskir tónle:.k- ar, mánudaginn 7. júlí finnsk.ir tónleikar, þriðjudaginn 8. júlí norskir tónleikar, miðvikudag- inn 9. júlí sænskir tónleikar, og að Iokum fimmudaginn 10. júlí færeysk-íslenzkir tónleikar. Hinir erlendu gestir munu halda heimleiðis með Dronnin" Alexandrine föstudaginn 11. júlí. Auk tónleikanna verða er- indi flutt og umræðufundir haldnir í Báskólanum eins og venja er við hin norrænu kirkjufónlistarmót. Þar munu tala af íslands hálfu prófessor Magnús Már Lárusson, er ilyt'vr erindi um þróun íslenkrar kirkjutónlistar, og söngmála- stjóri þjóðkirkjunnar Sigurður Birkis, er hefur un.iið mikið að undirbuningi mótsins. Einnig munu erlendir fulltrúar flytja þarna erndi. MÓTIN HALDIN 3. HVERT ÁR Hið fyrsta mót porrænna kirkjutónlistarmanna var hald- ið í Stokkhólmi 1933, að tilhlut- un „Sveriges almanna Organist- och Kantorsförening“. Var þá þegar ráðgert að slík mót sem þetta færu fram 3ja hvert ár, sitt árið í hverju hinna norrænu landa. Tilgangurinn miið þessum mótum er að efla samvinnu og auka, kynni norrænna kirkju- tónlistarmanna, i rganleikara og söngstjóra, ræða tónlistar- málefni kirkjunnar á No| ður- löndum og flytja nýjungar á sviði kirkjutónlistarinnar á hverjum tíma. Þau eiga að vera sterkur þáttur í -.amstarfi um tónlist hinnar evangelisku kirkju Norðurlanda. Annað mótið var haldið í Helsingfors 1936, og hið þriðja í Kaup- mannahöfn 1939. Vegna stýrj- aldarinnar varð að fresta fjórða mótinu, sem vera skyldi í Osló, til ársins 1949. íslandi var boð- in þátttaka í tveim síðustu mót- unum og það sendi fulltrúa á þau. Var þar flutt íslenzk.kirkju tónlist, orgelverk, kórverk o» einsöngslög. í lok mótsins í Os- ló kom fram ósk um að fimmta mót norrænna kirkjutónlistar- manna yrði á íslandi. Taldi full trúi íslands á mótinu allar lík- ur til þess að svo gæti orðið, þar sem mikill og vaknandi á- hugi væri á tónlist á íslandi. Mót norrænna kirkjutónlistar- manna höfðu farið fram í höf- uðborgum Svíþjóðar, Finnlands, Danmerkur og Noregs, væri nú röðin komin að ísland; og skyldi fimmta mótið haldið í Reykjavík 1952. í hverju landi Framh. á Z síðu. Prófkosningin um borð í m.s. Gullfoss AÐ GEFNU TILEFNI vil ég lýsa yfir því, varðandi hina svo nefndu „prófkosningu'1 um borð í m.s. „Gullfossi11, sem nú hef ur verið gerð að blaðamáli: Aff fregnir þær, sem birt hafa áf þessum prófkosningum, fyrst í Morgunblaðinu og síðan í AB, eru ekki eftir mér hafðar, enda ekki til mín leitað um heimild- ir. Að þrófkosning þessi var að pins hugsuð sem dægradvöl milli hafna, að minnsta kosti af minni hálfu, en ekki sem gild skoðanakönnun meðal íarþega, enda var aðains leitað um þátt töku til þeirra, er ferlivist höfðu. Hygg ég og að þannig hafi flestir litið á málið, og myndum við ef til vill hafa hikað við að hrinda þessari próf kosningu í framkvæmt, ef okk ur hefði þá verið ijóst, hvílíkt ofurkapp og hiti var hlaupið í kosningaundirbúninginn heima fyrir. Mun og fleirum þeirra en ,mér hafa brugðið, er þeir sáu þessa atburðar getið í morgun- blaðinu. AS fyrrverandi sendiherra, Gísli Sveinsson, hlaut 8 atkvæði við þessa prófkosningu. Aff mér var kunnugt um, að áður hafði farið fram sýnu form legri og áreiðanlegri skoðana könnun meðal skipshafnar á m. s. Gullfoss, en ekki var ég með skipinu í þeirri ferð og hafði því engin afskipti af henni. Loftur Guffmundsson. AB 4

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.