Alþýðublaðið - 28.06.1952, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 28.06.1952, Qupperneq 4
AB-Afþ^uíííaðm 28. íúril 1952 r r Fyígi Asgeirs Ásgeirssonar BLAÐASKRIFIN og ræðu- Löldin um forsetakjörið eru nú brátt á enda. í sex vikur Jiafa blöð stjórnarflokkanna og ráðherrar þeirra farið ham förum, sem heita mega eins- dæmi hér á landi, til þess að berjast gegn framboði Ás- geirs Ásgeirssonar, • sem sagt hefur verið, að væri bara flokksframboð Alþýðuflokks- ins, „minnsta flokks þjóðar- innar“, eins og jafnan hefur verið bætt við, og í hæsta lagi stutt þar að auki af fáeinum „venzlamönnum“ hans. En þessi áróður hefur ekki verk að. Menn hafa ekki látið segja sér það, að ráðherrar hafi þurft að ríða um héruð til þess að reyna að handjárna flokksmenn sína við forseta- kjörið og blöð þeirra þurft á öllum bægslaganginum að halda, ef framboð Ásgeirs Ásgeirssonar væri aðeins flokksframboð „minnsta flokks þjóðarinnar“. Menn hafa spurt: Við hvað eru þeir þá svona hræddir? Það er og sannast að segja, að þeir Ólafur og Hermann, Morgunblaðið og Tíminn, hafa vitað miklu betur. Það hefur engum dulizt í þeim herbúðum, að það er allt ann að og meira fylgi, en nokk- urt flokksfylgi, sem Ásgeir Ásgeirsson hefur að baki sér við forsetakjöríð. Það var jafnvel löngu ljóst, þegar framboð hans var lagt fram, stutt af áhrifamönnum og ó- breyttum kjósendum ekki aðeins úr einum flokki, held ur úr öllum flokkum. Nafn Ásgeirs Ásgeirssonar var á allra vörum, undir eins og það var vitað, að þjóðin þyrfti að kjósa sér nýjan for seta. Og sú skoðun var ekki bundin við neinn stjórnmála flokk, að hann væri langhæf asti maðurinn til þess að taka hið auða sæti Sveins Björnssonar. Kom þar til við urkennd menntun og glæsi- mennská Ásgeirs Ásgeirsson ar og víðtæk þekking hans á öllu, sem stjórnmál varðar, eftir áratuga stjómmála- mannsstarf, — ekki „í eldlín- unni“, eins og það hefur ver ið orðað, heldur við samn- ingaborð, þar sem hann hef- ur jafnan verið maður friðar ins og sættir bæði flokka og manna. Það var í vitundinni um alla þessa miklu kosti Ás- geirs Ásgeirssonar, að menn úr öllum flokkum óskuðu að samkomulag mætti nást um hann sem forsetaefni, en beittu sér fyrir framboði hans, þegar hitt var hindrað af skammsýnni flokkshyggju og valdastreitu þeirra Her- manns og Ólafs. Það er því ekkert hlægilegra, en þegar ráðherrar og ríkisstjórnar- blöð hafa verið að reyna að koma flokksstimpli á fram- boð Ásgeirs; enda hefur þeim aldrei tekizt það. Óttinn við framboð hans hef ur afsannað áróðurinn. Yfir- reiðir ráðherranna, rán ríkis útvarpsins og rógur Morgun- blaðsins og Tímans •— allt hefur þetta sýnt mönnum og sannað, að það er voldug þjóðarhreyfing fyrir kosn- ingu Ásgeirs Ásgeirssonar, sem verið er að berjast gegn, — og það meira að segja með hinum lúalegustu aðferðum. En þessi þjóðarhreyfing, sem er laus við öll flokkssjón- armið, byggist á þeirri heil- brigðu skoðun hins óbreytta kjósanda, að við forsetakjör eigi að hafa það eitt í huga, hver hæfastur er til þess að gegna hinu hlutlausa og vandasama embætti þjóðhöfð- ingjans, bæði út á við og inn á við. Öll önnur sjónarmið eigi að víkja við val hans, og þá ekki hvað sízt öll flokks- sjónarmið. Þess vegna hefur flokkaáróðurinn og blaða- rógurinn gegn Ásgeiri Ásgeirs syni verið dæmdur ómerkur af yfirgnæfandi meirihluta þjóðarinnar og nánast haft öfug áhrif við þau, sem til var ætlazt. Fylgi Ásgeirs hefur farið sívaxandi í öllurn flokk- um og er nú svo almennt, að því fær enginn áróður né bolabrögð hnekkt. Það hefur verjð talað um nauðsyn þjóðaxeiningar um forsetann, og þeir Hermann og Ólafur gefið forsetaefni sínu nafnið „forsetaefni þjóð- areining’arinnar“. En sú þjóð- areining, sem skapazt hefur í baráttunni, er ekki á bak við það. Hún er á bak við Ásgeir Ásgeirsson. Kjördeildasfarfsfólk r r Ásgeirs Ásgeirssonsr, er vinsamiegasf beðið að mæfa É 8 i k á morgun í Ingóifskaffi. ■’ : : ; A X 1 ■ S A Qrðsending- til siuðningsimmna m iand ailf Kosningaskrifsfofan Áusfursfræfi 17, verður opin aiian kosningar- daginn, vegna aiira kjördæma ufan Reykjavíkur. í Öll samtöl vegna kosninganna komi í þessi númer: ~ 3246 og 7320. S Á' \ ■Á s s S’ s s V s s s s s s s s s b s s s V s V s s Framsóknarmaður skrifar: r Kýs Asgeir í fullum frúnaði við Framsóknarflokkinn AB — AlþýðublaJSiO. Ctgefandi: AlþýCuflokkurirjn. Eitstjðri: Stefán Pjetursson. Augiýsingastjóri: Emma Mðller. — Eitstjómarsímar: 4901 og 4802. — Auglýsinga- riœi: 490C. — AfgreiSslusími: 4900. — AlþýBuprentsmlBlan, Hveröagatu 8—10. ÞAÐ ER EKKI af misgán- ingi, að ýmsir Framsóknar- og Sjálfstæðismenn rísa nú gegn flokksforustu sinni og neita að kjósa séra Bjarna Jónsson. Orð þau, sem ég nú fer að skrifa niður, má skoða sem sýnishorn af því hugarfari, sem allur sá fjöldi þessara flokksmanna er mótaður af, en þeir hafa fæstir tækifæri til að koma á framfæri. Eftir andlát Sveins Björns- sonar forseta, var lengi vel við því búizt, að kjör eftirmanns hans gæti orðið málefni ,sem alþjóð mætti fylgjast með. En þar sem ríkisstjórnin lét ekk- ert uppi, ekki einu sinni það, hvort samstarf um kjörið yrði reynt, fór fólkið að hugleiða, hvaða menn væru líklegir til forsetakjörs, og þar með vorii vaktar „intressur“, sem spruttu utan jurtagarðsins við Lækj- artorg. Forustu flokkanna var þetta vel kunnugt, og bar henni því meiri skylda til að Ieita sam- starfs á hinum breiða bekk al- menningsins, en að halda öllui sem leyndustu og svo á síðustu stundu að fyrirskipa kosningu á manni, sem enginn kjósandi hafði látið sér til hugar koma. Þótt hér væri um sómamann að ræða; var hann um landið lítt þekktur, nema af stólræð- um, sem frjálslynt og óþvælt fólk kunni ekki við. Ríkis- stjórninrá mætti því sá óvænti tálmi, að framboðið vakti alls staðar undrun, en hvergi hrifn ingUi, enda hefur hún orðið að Ieggja á sig mikil fundarhöld til þess að kaldhamra það í kjósendurna, að við þessa kosningu skuli þeir vinna með sama hugmóði eins og baráttu viljinn hefði tendrast sjálf- krafa í brjóstum þeirra. Við þetta gleðisnauða bags hefur stjórnin lent í tvenns konar vorkuldum. Annan þeirra er ekki á hennar færi að milda, en hinn hyggst hún að sykra nokkuð með aukatali um landhelgismál, þegar hjörtu tilheyrendanna vildu ekki opn ast fyrir óvelkomnum áróðri eða öðrum andlegheitum. Hef u.r þessi mótgangur allur Ieitt til þess, að stjórnin, og þó eink ura málgögn hennar, hafa ekki haft úthald til að ræða ferseta kjörið með prúðmennsku. Þeim megin hefur jafnvel verið grip ið til gamals níðs, sem eitt sinn þótti gott númer á ýmsa stjórn málamenn, jafnvel hinn ást- sæla forseta Svein Björnsson. En nú stóð þannig á vindátt- inni, að hentugt þótti að beina því að Ásgeiri Ásgeirssyni, ásamt ýmsum minniháttar árásum, og þar með var því drekasæði varpað í umræðurn ar, að það þarf ærna hugarró til að svara ekki í sömu mynt. Má undarlegt heita, að séra Bjarni Jónsson, sem um ára- hugi hefur sýslað við siðgæðis mál, skuji ómótmælt geta rúm að þessi ólæti áhangendanna í trúarfaðmi sínum. Það myndi furðu gegna, ef afskipti Ásgeirs Ásgeirssonar af stjórnmálum væru ekki um deild, eins og annarra stjórn- málamanna. Að því leyti stend ur hann vel fyrir höggi. Aftur á móti hefur starf séra Bjarna Jónssonar, sem annarra presta, verið prúðmannleg útfærsla á ritúölum og hefðbundinni nægjusemi, enda hefur kenni mennska hans verið svo mátu leg, að ekki brá til veðrabrigða, hvorki fyrir hita sakir né kujda. Slík mýkt gefur vini, og ekki spillir fyrir að vera brandaramaður, þar sem það á við. ; í Tímanum er deilt á Ás- geir Ásgeirsson vegna kjör- dæmabreytingarinnar. Ég var á móti henni og er enn. Samt tel ég, að þessi pólitíski ósigur okkar hafi engan rétt á sér við þessar umræður. Ef það hefur verið synd af Ásgeiri Ásgeirs- syni að vinna að framgangi hennar, sem í okkar augujn var ill, var það þá ekki van- rækslusynd, hafi séra Bjarni Jónsson ekki lagt okkur lið í hinni góðu baráttu? Vera má, að áróðursmönn- um séra Bjarna Jónssonar úr flokki mínum liggi laust fyrir að telja fram þá liðveizlu, sem og aðrir íhaldsmenn, t. d. Ól- afur Thors, hafa veitt okkur gegn valdi Ásgeirs í þessu máli; en ef ég man atburðina rétt, hygg ég að það kunni að dragast. Mig minnir sem sé, að við höfum þá átt í höggi við þrjá flokka, og var Sjálf- stæðisflokkurinn þar sýnu sterkastur. Má vera, að það sé góð rökfræði, að spinna sig upp í trylling gegn Ásgeiri Ásgeirssyni vegna afskipta hans af þessuj eina málí, en gleyma margháttuðum stuðningi hans í önnur skipti, samtímis því, að okkur er ætl l Framh, á 7. síðu. Enginn vandi aS velja ÞAÐ STYTTIST óðum til þess tíma, að þjóðin þyrpist að kjörborðinui til að kjósa sér for seta hins íslenzka lýðvéldis. Þrír þjóðkunnir menn eru í kjöri, þar af tveir, þeir Gísli Sveinsson fyrrv. sendiherra og séra Bjarni Jónsson fyrv. dóm kirkjuprestur. sem þegar hafa lagt niður störf í þágu hins opinbera fyrir aldurs sakir, samkvæmt þar u,m gildandi lögum landsins. Hefði það eitt átt að nægja til þess að þeir væru ekki í kjöri. Þar við bætist svo það, að hvorugur þessara frambjóð- enda nýtur það mikils trausts, að þeirra eigin flokkur, Sjálf- stæðisflokkuírinn, sjái sér fært að standa með þeim óskiptur, ekki einu sinni að Gísla Sveins syni, sem hefur þó langan stjórnmálaferil að baki. Aftur á móti er það vitað, að í þröng um hring, innan sjálfrar presta stéttarinnar, hlaut séra Bjarni ekki það mikið fylgi að hann næði biskupskosningui. Talar það ekki sínu máli? Hvernig er því hægt að ætlast til, að öll þjóðin geti sameinast um hann? Það er því enginn vandi að velja, þegar gengið verður til forsetakjörsins næstkomandi sunnudag. Auðvitað velja allir ábyrgir íslendingar þann fram bjóðandann, sem fyrir aldufs og hæfileikasakir er þeim kost um búinn, að þjóðin getur ver ið stolt af að eignast hann fyr ir forseta, manninn, sem hefur sýnt að hann á þann persónu- leika, að spyrna við fótum þeg ar flokkseinræðið.hefur flanað út í öfgar, manninn, sem nýt- ur trausts í öllum flokkum og stéttum. . j Þjóðin kýs Ásgeir Ásgeirs- son. , ð 1 ■ M. Jónsson AB 4

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.