Alþýðublaðið - 01.07.1952, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 01.07.1952, Qupperneq 4
ÁB-Aíþýðiibíaðið f. júl* Í952 Fyrsfa þjóðkjör forsefans Flutningar í Kóreil. Kórea er ótrúlega frumstætt ~ land; og enn er manneskjan þar aðaláburðardýrið. Hér á myndinni sjást hjón vera að flytja sig búferlum frá Kojeey, fangaeynni, þar sem þeim var ekki lengur við vært fyrir óeirðunum, sem kommúnistar stofnuðu til á meðal fanganna. Þau bera alla búslóð sína sjálf, maðurinn á bakinu, en konan á höfðinu. Breytingar á filhögun og skipu- lagi húsmæðrafræðslunnarl FORSETAXJÖRIÐ er nú um garð gengið; og þó að úr- slit þess verði ekki kunn fyrr en í kvöld, þá er eitt Þegar víst: Þátttaka þjóðarinnar í þvi hefur verið mikil, — svo mikil, að litlu munar á henni og þáttökunni í alþingiskosn ingum, — jafnvel harðsóit ustu alþingiskosningum hing að til. Þetta bendir ekki til þess, að þjóðin sé neitt feimin við það, að kjósa forsetann raun- verulegri kosningu, þó að sumir hafi látið svo imdanfar ið sem væri það einhver þjóð- arógæfa, að raunveruleg kosning færi fram um forset- ann. Það er nú einu sinni á- kveðið í stjórnarskrá lýðveld- isins, að forsetinn skuli þjóð- kjörinn; og það er því fráleitt að gera ráð fyrir því, að hjá raunverulegri kosningu um hann verði komizt, nema í al- veg sérstökum tilfellum. Það væri þá helzt, að líkur mætti telja til svo almenns sam- komulags um endurkjör vin- sæls forseta, að ekki yrði ann- ar í kjöri en hann, svo sem bæði skiptin, er Sveinn Björnson var endurkosinn; í flestum öðrum tilfellum verð- ur að ganga út frá því sem sjálfsögðu, enda alveg í anda stjórnarskrárinnar, að þjóðin velji á milli forsetaefna við kjörborðið. Það gera einnig allar aðrar lýðveldisþjóðir, sem hafa þjóðkjörinn forseta. Þess eru fá eða engin dæmi, að forseti hafi verið kjörinn öðru visi hjá þeim. Hitt er svo annað mál, að það er í mesta máta óviðeig- andi, að ríkisstjórn standi að framboði til forseta- kjörs, eins og raun varð á við þetta nýafstaðna, fyrsta, raunverulega þjóðkjör forset- ans hér hjá okkur; og það er vonandi, að þjóðin hafi brugð- izt þannig við því framboði, að það verði ekki reynt í ann- að sinn. Það er í alla staði ó- viðurkvæmilegt, að ríkisstjórp hafi forsetaefni í framboði, svo að ekki sé nú talað um hitt, að hér lét ríkisstjórnin eins og það væri nánast glæp ur, að nokkur skyldi dirfast að vera í kjöri á móti forseta- efni hennar! Þvílíkt framboð til forsetakjörs mun vera al- veg óþelíkt hjá öðrum lýð- veldisþjóðum í Evrópu, að minnsta kosti vestan járn- tjalds; enda lítið í anda þess ákvæðis stjórnarskrárinnar, að forsetinn skuli vera þjóð- kjörinn, og ískyggilega skylt þeim einræðis- og valdstjórn- araðferðum, sem við annars teljum okkur, því betur, al- gerlega ósamboðnar. En það 'er einnig annað í sambandi við þetta nýaf- staðna, fyrsta raunverulega þjóðkjör forsetans hjá okkur, sem mjög verður að átelja, og vonandi er að aldrei komi framar fyrir við forsetakjör; en það er sá mannskemmandi áróður, eða réttara sagt róg- ur, sem haldið var uppi af stuðningsmönnum stjórnar- framboðsins um annað hitt forsetaefnið. Svo sjálfsagt sem það er, að þjóðin eigi milli fleira en eins forseta- efnis að velja, svo nauðsyn- legt er það nefnilega hins vegar, að öllum ádeilum á forsetaefnin sé stillt það í hóf, að enginn þurfi að fara mann- skemmdur í hið virðulega og hlutlausa embætti þjóðhöfð- ingjans. En því miður fór því víðs fjarri, að slíkrar hátt- vísi væri gætt við undirbún- ing þess forsetakjörs, sem nú er nýafstaðið; og var þó mik- ill munur á áróðri manna og vinnubrögðum í sambandi við það. Það voru stuðningsmenn og stuðningsblöð stjómar- framboðsins eins, sem þar brutu: allar velsæmisreglur; en því betur virtust viðbrögð þjóðarinnar við þeim áróðri vera með þeim hætti, að vona megi, að hann þyki ekki lík- legur til eftirbreytni við for- setakjör í framtíðinni. Örugga vísbendingu um það geta þó úrslit forsetakjörsins ein gefið; og þau fáum við, sem sagt, ekki fyrr en í kvöld. Þá fyrst vitum við með fullri vissu, hvernig þjóðin hefur snúizt við þeim furðulegu vinnubrögðum, sem hér voru í frammi höfð af hálfu ríkis- stjómarinnar við þetta fyrsta þjóðkjör forsetans. AÐALFUNDUR Húsmæðra- kexmarafélags íslands var hald inn dag-ana 23.—26. júní í húsa kynnum Húsmæðraskóla Reykja víkur. Formaður félagsins, Halldóra Eggertsdóttir, flutti skýrslu um störf stjómarinnar á síðastliðnu ári. Félaginu var boðið að taka þáít í móti nor- rænna húsmæðraskólakennara, sem haldið er í Osló, nú um mánaðamóíin <30. júní — 3. júlí). Ákveðið var að íaka Jioð- inu, og- munu tveir fuíltrúar frá félaginu halda fyrirlestra um íslenzk skóla- og heimilismál á þessu móti. Halídóra Eggerts- dóttir mun segja frá húsmæðra skólum á íslandi og Steinimn Ingimundardóttir mun ræða um störf og aðstöðu íslenzku húsmóðurinnar í dag, en alls munu 9 fulltrúar frá félaginn sitja þetta kennaramóí. Á aðalfundinum urðu miklar umræður um framtíð húsmæðra skólanna og hugsanlegar breyt- íngar á fyrixkomulagi þeirra. Samþykkt var að beina þejm tilmælum til fræðslumálastjórn arinnar, að einhverjum skól- anna verði leyft að taka upp styttri hámskeið í stað 9 mán- aða starfstímabils eins og nú er. Verði þá eitt þriggja mánaða námskeið frá 'miðjum septem- ber til miðs desembers, og ann- að fimm mánaða námskeið frá því í janúar fram í júní. Vefnað ,ur verði ekki kenndur á þess- um námskeiðum, en tveimur þriðju hlutum námstímans var- ið til kennslu á matreiðslu, þvotti og ræstingu og einum þriðja hluta til fatasaums og hannyrða. Stjórn H K.í. var fal ið að undirbúa fyrir haustið ýt- arlega námskrá fyrir þessi nám skeið. Á fundinum var rætt um nauðsyn þess, að íélagið beití sér eftir megni fyrir aukinni vöruvöndun í innlentíri fram- leiðslu og reyni að hafa áhrif á þann innflutning, sem heimilin varðar. Var kosin nefnd til að vinna að þessu sérstaklega og eiga sæti í henni Halldóra Egg- ertsd., Elsa E. Guðjónsson og 1 Sigríður Haraldsdóttir. Þennan fund sátu einnig félagskonur úr kennarafélaginu Hússtjórn, en það hefur lengí verið áhugamál innan beggja félaganna, að þessi tvö kennarafélög samein- ist í eitt. Var samþyhyt á þess- um fundi að leysa upp bæði nú- verandi kennarafélögin og stofna eitt sameiginiegt félag húsmæðrakennara. Skal þetta nýja félag nefnast Arnbjdrg, fé- Iag húsmæSrakennara. Voru lög hins nýja félags lítillega rædd á þessum funöi, en stjórn um fyrri félaganna falið að ganga frá þeim end.anlega til samþykktar og sjá um stofn- fund hins nýja félags í haust. í sambandi við aðalfundinn voru haldnir't þrír fyrirlestrar í bíó- sal Austurbæjarbarnaskólans. Dr. Símon Jóh. Ágústsson prófessor flutti fyrirlestur, sem nefndist ,,Uppeldð og heimilið“, Björn Th. Björnsson listfræð- ingur fvrirlestur um hannyrðir og heimilí og Sveinn Kjarval arkitekt um menningarhlutverk húsgagna. Voru erlndi þessi öll fróðieg og skemmtileg og var gerður að þeím mjög góður rómur. Á FXLIPPSEYJUM dóu 28 þúsund manns úr berklum árið 1949. Með öðrum orðum yarð einn maður sjúkdómnum að bráð hverja 18. mínútu allt árið um kring. Þetta eru alvarlegar tölur frá landi, þar sem 1,65 milljón manna af 17 milljónum landsmanna þjáist af berkla- veiki í ýmsum myndum. Ástæðan fyrir því að sjúk- dómurinn hefur náð slíkri út- breiðslu er einfaldlega sú, að möguleikar til að berjast 'Tegn Vaíur sigraði Fram í úrsiifalelk vormófsins ÚRSLITALEIKURINN í vor- mótinu í fyrsta flokki milli KR og Vals, lauk með sigri Vals, 1:0. Leikurinn var oft á köflum skmmtilegur og jafn, þó voru Valsmenn vel að sigrinuni komn ir. Valur hafði sínu sterkásta liði á að skipa eins og búizt var við, en KR vantaði tvo a‘f sín- um sterkústú mönnúm. Á síð- ustu mín. í Ieiknum skorúðu KR-ingar mark, en dómarinn dæmdi vafasama rangstöðu. Landsmót 1. fl. hófst á laugar dag. 7 félög eru með í mótinu, og ér því skipt í tvo riðla, er dregið um, hvaða félög eiga'. að leika í hvorum riðli. í A-riðli er.u þessi félög: Fram, VaLur, Víkingur og Knattspyrnufélag Hafnarfjarðar. í B-riðli eru KR, Þróttur og Knattspyrnufélag ' Suðurnesja. Á laugardag fór fram fyrsti leikurinn í mótiúu, var hann í A-riðli, og kepptu Fram og Valur. Fram sigraði vormeistarann með 1:0. í vormóti 3. fl. B standa leik ar þannig, að Valur og Fram eru búin að leika þrjá leiki og hefur alltaf verið jafntefli, 1:1. Þessi félög verða að leika þang að til annað hvort sigrar. • íslandsmótið í A-móti 3. fl. hófst á laugardag. Því er eins og í 1. fl. skipt í tvo riðla. í A- riðli eru þessi félög: Fram, Vík ingur og Þróttur, en í B-riðli eru: KR, Valur og Haukar úr Hafnarfirði. TVeir leikir fóru fram á laugardag. annars vagar milli Fram og Víkings', og sigr aði Fram með 2:1, en hins veg- ar milli Vals og Hauka, sem Vajur sigraði með 1:0. — 3. fl. mótin halda áfram í dag. Dalli. Knuf Liesiöl látinn HINN merki norski norræmi- fræðingur og Íslaníisvimir, Knut Liestöl, er nýlátínn. Hann fæddist árið 1881, í Aas- eral, og var því rumlega sjötug ur er hann andaðist. ’vTftir þennan í/.arka vísinda- mann liggja mörg ritverk, sem of langt yrði upp að telja, en þekktastur er 'hann meðal ís- lendinga fyrir bók sína , Upp- havet til den islandske ætte- saga“, sem út kom-1929. Hefur hún verið þýdd á íslenzku af Birni heitnum Guðfinnssym. og gefin út af Menningarsjóði. Liestöl var einn af förvígis- mönnum sagnfestukenningarirm ar, er heldur því fram, að sög- urnar hafi mótazt í frásögninni, áður en þær voru zkrifaðar. honum hafa verið mjög litlir, Aðeins 200 sjúkrarúm hafa ver ið til fyrir þær þúsundir sjúk-, linga, sem leggja þurfti inn á sjúkrahús vegna þess að berkla veikin var komin á það hátt stig. Filippseyingar hafa, ein- ungis 7000 læknum á áð skipa, 6000 hjúkrunarkonúm og Ijós- mæður eru aðeins 2000 að tölu. Alþjóða barnahjálparsjóður S.Þ. (UNICEF) og alþjóða heil- brigðismálastofnunin (WHO) Framhald á 7. síðu. r Islesiikt Water kostar kr. 16,90 pr. kg., en erlent Water kr. 38.00 pr. kg. Kringlótt íslenzkt kremkex kostar kr. 17,25 pr. kg. Erlent kremkex kostar kr. 36,50 pr. kg. r Islenzkf Cream Crackers köstar kr. 16,90 pr. kg. Erlent Cream Crackers kostar kr. 38,00 pr. kg. Mjólkurkex kostar kr. 9,95 pr. kg. FÆST í NÆSTU BÚÐ. AB — AlþýðublaSlð. Otgefandi: AlþýBuflokkuiiiœ. Bltstjérl: Stefán PJetursson. toglýsíngastjóri: Emma MÖIIer. — Ritstjómarsimar: 4901 og 4902. —- Áuglýsinga- eiml: <80*. — AfgrelSslusíml: 4300. — AlþýSuprefitaniBJaa, HverEagötu 8—10. 'AB 4 Filippseyjar fá í baráttu wi berklsveikina ------.+------ Árið 1949 varð berkiaveikin þar einum manni að bana hverja átjándu mínútu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.