Alþýðublaðið - 26.09.1952, Side 6

Alþýðublaðið - 26.09.1952, Side 6
Framhaldssagan 10 Filipus Bessason Jireppstjóri: AÐSENT BREF Ritstjóri sæl'l! Ég heyri mikið látið af þess- @ri iðnsýningu hjá ykkur þar syðra. Það gæti svo sem verið nógu gaman að skoða hana sér *til fróðleiks og skemmtunar, en því kem ég sennilega ekki í verk, og þýðir ekki að tala aneira um það. Ég hef sjálfur ekki haft neitt tækifæri til að kynna mér íslenzkan iðnað að ráði; — það var, jú, hérna um árið, að ég þurfti að láta smíða fyrir mig svolítinn hlut í sláttu- vél þar syðra; ekki varð hann mér jafn clýr og sláttuvélin, en litlu munaði. Hugsaði ég þá líkt og maðurinn sagði forðum: ,,Dýr mundi Hafliði allur.“ Hins veg- ar er ég of gætinn í dómum til þess, að ég meti allan íslenzkan jðnað eftir þessum einu og til- tölulega takmörkuðu kynnum, og því er það, að rnig langar hálft í hvnru til að skoða sýn- jnguna. Ég er ekkr í minnsta vafa um það, að við getum gert marga hluti jafn vel og þeir er- lendu, þegar við höfum fengið tækin og öðlazt kunnáttuna; og hvað verðið snertir, þá ætti sam- keppnin að lialda því niðri: það er ekki miðandi vio brjálæðis- tíma stríðsgróðans, þegar verðið var algert aukaatriði. En það er annað, sem örðugast verður viðfangs. Það er bannsett tízkan og kenjarnar i landsfólk- inu. Ætli það sé ekki enn við líði, fyrirhærið, að tyggja upp á dönsku? Mætti segja mér það. Ég hef litið svo til, ^ð fólk vildi ýmsar þrautir og kostnað á sig léggja, toara til þess að tolla í ftízkunni ög hagnýta sér það, sem utlent er, hversu öhentugt, vit- laust og ótækt sem það kann að vera, og óhæft við íslenzkar að- stæður. Það er þetta, sem ég gæti gert mér í hugarlund að yrði íslenzkum iðnaði mestur Þrándur í Götu, og sá, sem sein- ast yrði sigraður, svo fremi, sem ekki væri unnt að beita brögð- nm. Hvernig væri, til dæmis að íáka, fyrir Gefjunnarverksmiðj- urnar að fá einhvern frægan, .amerískan kvikmyndaleikara til að spóka sig í Gefjunargalla um allar trissur? Eða Elísabetu Bretlandsdröttningu tif að setj- ast í söðul sinn í reiðfötum úr Áláfóssi? Og- skyldi það ekki auka ostaát hér á landi, ef ein- hver kvikmyndadísin lýsti yfir Í>ví, að hún ætti sinn fagra lit- arhátt íslenzkum mjólkurosti að þakka? Þetta myndi vitan- lega kosta sinn peiiing; en það er ég viss um, að það borgaði sig. Vitalega væri tæplega ráð- 3egt að bjóða kvikmyndagyðj- unni sams konar ost og þann, sem við fáum endursendan úr mjólkursamsölunni........ . Eh sem ságt, — ég hefði gam- an af að skoða iðnsýninguna En það er ýmislegu í að snúast, •þótt heyskapurinn sé búinn og ekki þurfi að fara í göngur. Og' svo er það giktarskrattinn, sem alltaf er að hrella mann og draga u,r manni kjarkinn .... Filipus Bessason hreppstjóri. héf og flóta, sem orðíð gæti alls ráðandi yfir siglingáleiðum þar um slóðir. Þetta vildi Napoleón ekki sámþykkja og honuha tókst að fá Rússland : lið með sér til þéss að koma .xáðagerðum Englendinga várð- ’andi Möltu fyrir káttarnef. Ó- friðarblikuha bar hrátt upp á loftið, í maímánuði var brezki sendiherrann kállaður heim.frá Párís og skömmu síðar lýstu Englendingar því yfir, að þeir ættu á ný í styrjöld við Frakk- land. Það gekk á ýmsu í tvö ár, en kom þó ekki til neinna úr slitaátaka. Addington var ekki lengur forstætisráðherra Eng- lendinga. Pitt var ,kominn í hans stað. Bretar höfðu fyrst í stað talið að til innrásar gæti ,komið á England, en nú voru þeir búnir að búast svo til varn ar gegn slíkri hugsanlegri árás, að þeir höfðu ekki lengur beyg af henni og gátu leyft sér að vera djarfari í hernaðaráform- um sínum, enda tóku þeir nú frumkvæðið í styrjöldinni. Hinn frægi flotaforingi þeirra, Nelson lávarður, gerðist mjög 'athafnasamur á sjónum. Hraust ir sjómenn hans gerðu Frökk- um marða skráveifuna og | franskar herdeildir voru hrakt ar frá austri til vestur, norðri til suðurs og illa leiknar. í Par ís var farið að verða vart vax ; andi kvíða og óvissu í stjórn- málalífinu, þar sem fyrirætlan- ir keisarans um að koma Eng- 1 lendingum skjótlega á kné virt- ust ætla að renna út í sandinn i rétt einu sinni enn. I Snemma ársins 1805 var svo i komið fyrir Napoleon, að hann sá sig tilneyddan að senda orð- j sendingu til London, þar sem því var hreyft, að vísu undir j rós, að semja þyrfti frið milli landanna og það heldur fyrr en 1 seinna, enda væri styrjöld milii þessara landa þeim báðura báðum jafnslcaðleg. En það var ekki svo auðvelt að stöðva styr i jöldina. Bonaparte hafði urn j langan aldur vc^ið Englending- um svo þungur í skauti, að á fagurgala hans um hagsmuni jEnglendinga var ekki lagður [ mikill trúnaður í stjórnarskrií stofunum brezku. Orðsending Napólenons, sem áður getur, var heldur ekki send til ut- anríkisráðuneytisins, svo sem vera bar, heldur til konungsins sjálfs, og stílað til „Hans Há- tignar bróður konungsins1'. Þetta var meira en konunginn, Georg hinn þriðji, gat þolað af Napóleon, og jafnframt meira en þegnar hans, sem voru þó heldur lítið hrifnir af konungi sínum, myndu ætlast til að hann léti bjóða sér. Víst þurfti landið frið, en það þurfti jafn- fram að losa sig við einvaldann Frakklandsmegin Ermarsunds- ins. Ef friður yrði saminn nú, myndi það aðeins verða til þess að saga friðarsamninganna frá Amiens myndi endurtaka sig. Aðeins fullkominn ósigur Frakklandskeisara gæti fært Englendingum varanlegan frið. Ög stríðið hélt áfram — og þannig átti það eftir að halda áfram um mörg, löng ár enn. Þétta sumar var ekki ann- að meira rætt og ritað í Lond on en um styrjöldina milli Breta og Fralcka. Þó var þar einn maður, sem ekki hafði neinn áhuga fyrir gangi hennar, úr því sem' komið var. Hann sat í bókasafni í stóru húsi við Cavendish torg hinn eftirminni lega dag 31. júlí — og grét. Það var Geoffrey gamli de ; Buits, öðru nafni Tivendale lá- varður, faðir Charles de Buits, ' þess sem áður hefur komið við sögu. Hann sat í djúpum leðurstól og horfði döprum siónum á síðustu geisla kvöldsólarinnar leika um glitofnar gólfábreið- urnar. Á götunum úti fyrir var ys og þys, því allir vissu um orustuna við Landsenda á vest urströnd Spánar, hið mikla upy gjör milli Englendinga og Frakka á sjónum, en nákvæmar fregnir höfðu enn ekki borizt almenningi í London um úrslit (in. Menn vissu það eitt, að Caid ér, flotaforingi Englendinga, hafði lagt til orustu með fimmt án skipum við tuttugu og tvó skip hins franska flotaforingja Villeneuve, sem þekktur var að kænsku og harðfylgi. Gamli imaðurinn hafði heldur ekki fengið neina fréttir af úrslitun um í þessari sjóorustu. Hann hafði skyndillega misst allan á- hfiga fyrir þeim. Héðan í frá myndi hann ekki hirða um að fá neinar fréttir hvorki af þessu né öðru. En hann hafði fengið • aðrar fréttir. Á kvöldi hins | fyrsta dags orustunnar, hafði jbrezkt skip, „Windsor Castle“, j misst sigluna. Hún hafði falhð ■ yfir nokkra menn áhafnarinn • ar, sært marga og nokkrir höfðu látið lífið. Meðal þeirrá, sem létust, var sonur Tivenda' : lávarðar, Charles de Buits, Gamli maðurinn hélt ennþá á samanvöðluðu bréfi í hendinni, þar sem skýrt var frá atburði þessum. Og þar stóð líka, und irstrikað: „Hinn stutti en glæsi legi ferill Charles de Buits á sjónum var allur einkennd r sjaldgæfri tign og óvenjulégu íiugrekki". Það var öllu lokið. Fyrir hann var ekkert framundan nema sorg og tóm. Það eina, sem hann gat gert nú, var að syrga og gráta. Lengi hafði hann óttazt, að einmitt það myndi ske, — sem nú var fram komið: Seinasti hlekkur forn- frægrar og göfugrar ættar var brostinn. Ættin var gömul. •Tivendale lávarður rakti ættir sínar allar götur til víking- anna, sem lögðu England að fót um Vilhjálms af Normandy ár- Susan Morle v: HALLIR ið 1066. Bara að hinn fallni son ur hefði verið giftur og átt erf ingja. Bara að hann hefði átt hinn sama metnað gagnvarl. hinni fornfrægu ætt og Tivend ale lávarður. En því var ekki að heilsa. Carles de Buits yngri hafði alltaf verið mjög dulur og fáskiptinn, en þó hafði fyrst keyrt um þverbak um þá hluti eftir að móðir hans dó, þegar ‘hann var nítján ára. Og aldrei virtis hann hafa haft minnstu löngun til þess að staðfesta ráð sitt og kvænast. Kvenhatari hafði hann verið alla tíð síðan, jað því er virtist, klæddist svörtum fötum og sökkti sér niður í daprar hugsanir. Það kom nær aldrei fyrir, að þeir feðgarnir töluðust við um einka mál sonarins, en nokkrir af kunningjum Charies de Buits, •— en þeirra á meðal voru helzt- ir landeyður eins og Hugo Falk land eða uppskafningar eins og Sir Jarvis Richardsson — höfðu orð á því við gamla mann inn, að engu væri líkara en að syni hans lægi eitthvað sérstak lega þungt á hjarta. Hann tæki að vísu þátt í ýmis konar veð málum með þeim og spilaði með þeim upp á peninga, en virtist ekki hafa hugann við það frem’i^- en annað. Charles de Buits yngri gekk í sjóherinn, þegar styrjöldin hófst við Frakka á ný árið 1803. Hann byrjaði sem óbreytt ur miðskipsmaður en vann sig fljótlega upp í stöðu ligsfqr- ingja. Hvert það starf, sem hon um var falið að inna af hendi, framkvæmdi hann af framúr- skarandi samvizkusemi og alúð. Hann tók þátt í sjóorustunni með Nelson við Alexandríu og með Jervis flotaforingja við St. Vincenthöfða. Félögum hans bar saman um, að hann hefði barizt af óvenjulegri hug- þi-ýði, að hann hefði tekið hætt unum af takmarkalausri rósemi 'og nánast sótzt eftir að halda sig þar sem bardaginn Var harð astur hverju sinni. En alltaf og ævinlega klæddist hann dÖkkum fötum og stökk ekki bros, jafnvel ekki í tómstund- ujn í hópi félaga sinna. |Og nú var hann horfinn. Fé- l%ar hans höfðu jafnan sagt um hann, að hann sæktist jafn ákaft eftir hættunum eins og dáuðanum tekizt að taka hann í faðm sinn. Hann var dáinn og öllu var lokið fyrir aldur- Jhnignum föður hans. Gamli jríáðurinn sáriðraðist þess, að hánn skyldi ekki hafa beitt sér fastar til þess að fá hann til þess að kvænast. Hann hafði rcynt Ekki vantaði það. Hann þúrfti svö sem ekki að hafa samvi/.kubit af að hafa ekki liratt hann til þess. Margsinnis hafði hann minnt son sinn á skýldur hans við ættarstofninn óg sýnt hönum fram á afleiðing ar þess, áð vanrækja þær. Og Fjangöngumennirnir hryggjast. Alpafjallgöngumenn. líta nú með hryggð til Mátteihorntinds- ins í Sviss, sem að liðnu sumri verður ekki lengur takmark fjallgöngumannanna, heldur auðvirðisleg endastöð fyrir lata túrista, sem geta keypt sér far- miða með lyftu þangað upp og farið sömu leið til baka án þess að blása úr nös eða fara í yfir- höfn. Ítalíumegin fjallsins er v'erið að byggja stóra dráttarbraut, sem flytur farþega í lyftum á tindinn. Sviss hefur mótmælt byggingu brautarinnar, en þeir fá ekki við þetta ráðið, þar sem ítalir eiga örlítinn blett á tindi fjallsins og Svisslendingar hafa neitað að láta ítali fé. svo mik-ið sem einn fersentímetra af sínu plássi á tindinum, þar sem ítalir ætla að toyggja nokkurs koriar ,,arnarhreiður“, hóic-1, þar sem hægt er að njóta úisýnisins óg fá sér hressingu meðan staðið er við. í sjrætisvagninúm. Vagnimkyar fullskipaður fár- þegum, þegar úng kona með böggla í fanginu steig upp í hann og svipaðist lihl eftir sæti. Miðaldra maður, sem virtist vera þreyttur, stóð upp og bauð konunni sæti sitt. Hún sagði ekki orð og settist með þeim svip', er gaf til kynna, að hún hefði með öllum rétti átt sætið. Eftir augnabliks þögn ságði maðurinn: Afsakið; frú, hvað sögðuð þér? Ekki neitt, sagði konan. — Þá hefur mér skjátlázt; mér heyrðist þér segja: „þökk fyrir.“ Hugulsemi. Forstjórinn: HverS vég.na viljið þér hætta starfi yðar, Jón? — Vegna þess, að mér fmnst ég taka vinnuna frá öðrum. — Og frá hverjum þá, má ég spyrja? — Frá hesti. David Niven Það er vehja, að bókabúðir notfæra sér að auglýsa bækur, sem notaðar hafa vérið sem .uppistaða í kvikmyndum. Því ,var það, að þegar kvikmyndin Davíð og Batseba var sýnd í Bandaríkjunum, stilltu bóksalar Út biblíum og auglýstu: „Nú, þegar þér hafið séð myndina, þá kaupið og lesið b'6kina.“ Rómantík — Mér finnst hafið sem lítið barn. Stundum hjalar það blítt og brosir, en stundum öskrar þacý . . — Já, alveg rétt hjá þér, og svo er það alltaf blautt.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.