Alþýðublaðið - 21.12.1952, Blaðsíða 4
AB—Alþýðublaðið
21. des. 1952. Y?TnY?TTTTnY?Y?)f?TTTTTf?Y?Y?Y?Y?Y?Y?TTTTTf?r}TnY?TTT
Brjóstgæði Morgunblaðsins
ÞAÐ ÞAHF EKKI að
spyrja að góðu hjartalagi
Morgxmblaðsins. í gær grét
það mörgum tárum yfir
verkamönnum, sem „að loknu
löngu verkfalli . . . standa nú
uppi félitlir eða févana rétt
fyrir hátíðar“. En að sjálf-
sögðu gleymdi það því ekki,
að minnast um leið á „ábyrgð
verkfallsstjórnarinnar", sem
sök ætti á því, ,,að þúsundir
heimila háfa liðið skort und-
anfarnar vikur og munu á
næstunni hafa litið fyrir sig
að leggja“.
Já, það vantar svo sem
ekki umhyggju Morgunblaðs
;ns fyrir fátækum og févana
verkalýð nú, að loknu löngu
verkfalli! En hvar var um-
hyggja þess fyrir honum með
an verkfallið stóð og ríkis-
stjórnin, sem Morgunblaðið
styður, hélt að sér höndum
og 'lét verkalýðinn berjast
vikum saman, hungraðan og
allslausan, fyrir þeim nauð-
synlegu kjarabótum, sem hon
um var neitað um, en nú hef
ur allt í einu verið hægt að
veita? Væri Morgunblaðinu
ekki naer, að minnast eitt-
hvað á ábyrgð og skömm rík
isstjórnarinnar, sem alla sök
átti á því, ~ að til verkfalls
kom og eins á hinu, hve lengi
það stóð, heldur en að vera
enn að rægja verkfallsmenn,
sem urðu að heyja sína erfiðu
baráttu í þrjár vikur áður en
unnt var að koma viti fyrir
ríkisstjórnina?
Það mun vissulega vera
flestra manna mál, að Morg
unblaðið og önnur stuðnings
blöð ríkisstjórnarinnar ættu
að hafa hægt um sig að loknu
þessu verkfalli. Það hefði
aldrei þurft til þess að
koma, ef ríkisst.iórnin hefði
ekki þverskallast við óhjá-
kvæmilegum kjarabótum
verkalýðnum til handa í
þeirri þokkalegu von, að sult
urinn mvndi fliótlega binda
enda á verkfallið og beygja
verkalýðinn til þess að sætta
sig möglunarlaust við áfram-
haldandi okur og dýrtíð. í
þessari von lét ríkisstjórnin
hverja vikuna líða af annarri
án þess að gera minnstu til-
raun til þess að afstýra verk-
fallinu eða binda enda á það
eftir að það var byrjað. Og
þá varð ekki merkt á skrif-
um Morgunblaðsins, að það
hefði neinar áhyggjur af því,
þótt verkamenn myndu
standa uppi félitlir eða fé-j
vana rétt fyrir hátíðar!
Auðvitað hefði ríkisstjórn-'
in orðið að brjóía odd af of- ;
læti sínu til þess að afstýra
verkfallinu og öllum þeim
þrengingum, sem verkaiýður
ínn og raunar þjóðin öll hef-
ur orðið að þola þess vegna.1
En það hefur hún nú líka
orðið að gera; og hefði henni
verið skammar nær að gera
það áður en til verkfaUs kom,'
en að láta kúga sig til þess
eftir þriggja vikna verkfall,
og tugmilljóna tjón þjóðar-
irinar af því.
En sem sagt: Nú er hægt
að gera allar þær ráðstafanir
til verðíækkunar og nauðsyn'
legra kjarabóta fyrir verka-j
lýðinn, sem neitað var um
vikum sarnan af því að ríkis-
stjórnin vildi fá að halda á-
fram á braut okursins, dýr-
tíðarinnar og milljónagróð-
ans fyrir gæðinga sína og
braskara! Nú er bað hægt, —
af því að verkalýðurinn reis
upp og sagði: Hingað og ekki
lengra! 1
Það er auðvitað gott og
blessað, að Morgunblaðið
skuli nú kenna í brjósti um
verkamenn, sem standa uppi
félitlir eða févana eftir verk
fallið rétt fyrir hátíðar. En
áreiðanlega munu verka-
menn lítið gangast upp við
þau brjóstgæði. Þeir urðu
þeírra ekki svo mikið varir
í dálkum Morgunblaðsins
meðan þeim reið meira á
þeim — í hinu langa verk-
falli til bess að koroa viti fvr-
ir ríkisstjórnina og rétta
hlut sinn gagnvart okrinu,
dýrtíðinni og öðrum afleið-
íngum af stefnu hennar.
TILKYNNING
frá landssímanum um jéía-
og nýársskeylL
Eins og undanfarin ár má afhenta á allar lands-
símastöðvar jóla- og nýársskeyti innanlands með ákveðn
um textum, sem símastöðvarnar gefa upplýsingar um.
Skeyti þessi kosta á skrauteyðublöðum 10 krónur, en
innanbæjar þó aðeins 8 krónur. Að sjálfsögðu mega send
endur jóla- og nýársskeyta orða textann samkvæmt eig-
in ósk, gegn venjulegu sírnskeytagjaldi, ef þeir kjósa það
heldur og skal þá greiða aukalega kr. 5,00 fyrir heilla-
skeytaeyðublaðið.
Til þess að tryggja það að jólaskeytin verði foorin
út.fyrir jól, verða þau að afhendast í síðasta lagi fyrir
hádegi á Þorláksmessu 23. desember.
AB — Alþý'ðublaSiS. Otgefandi: AlþýSuflokkurinn. Eitstjóri: Stofán Pjetursson.
Préttastjóri: Sigvaldi Hjálœarsson. Auglýsir.gastjári: Emnu Mfilter. — Kitstjóm-
orrfmar: 4901 og 4982. — Auglýsingasimi: 460S. — AfgreiSslusimi: 4900. — AlþýSu-
twentsmiSjan, Hoerösgötu 8—10. ÁskriftarveriS 15 kr. 6 njánuSi: 1 kr. í la-izsasölu.
Félðgsgjaid M.F.A. óbreytf enn þefta ár
Á morgun koraa út þliar félagsbækur M.F..A. fyrir árið
1952 ásamt tímaritinu.
Rií Gests Pálssonar, heildarútgáfa,
ívö bindij.
Fólkið í landinu, II. bindi
Menn og menntir fyrir árið 1951 og 1952
Bækumar og tímaritið eru samtaís 52 arkir,
en árgjaldið 60 kr. er enn óbreyft.
Félagsmenn sækí bækumar og tímaritið í afgreiðslu MFA,
Garðastræti 17, (sími 2864), í dag, sunnudag, eða næstu
daga til jóla.
&
eungar og fræisíi®
í
Samúðarkori
S
Sly savarnafélags fstands i
\
kaupa flestir. Fást hja
álysavamadeildum um
:
) land allt. í Rvík I hann
^ yrðaverzluninni, Banka
$ stræti 6, VerzL Gunnþór-)
N unnar Halldórsd. og skrií- ý
) stofu félagsins, Grófin 1. S
í Afgreidd í síma 48^97. —)
S Heitið á slysavarnafélagið.;
^ Það bregst ekM. * (
snyrftYörar
hafa á fáum árum
unnið sér lýðhyDJ
um lánd allt.
ro?nY?riY?Y?r?Tf?YFY?YTr?T^
A merískar vörur ■
nýkomnar:
Sportskyrtur
Prj ónahál sbindi
Baniasamfestingar, fóðraðir
Eyrnahlífar
allt mjög smekklegar og vandaðar vörar.
GEYSIR m.F.
Fatadeiídin.
AB inn á hvert heimili
AB 4.