Alþýðublaðið - 06.03.1953, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 06.03.1953, Qupperneq 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ Föstuclagiun C. marz 1953. ■Xi LáJ : 4: i ! i : * j < u FRANK YERBY MHIjónahöllin ör: Álfur Orðheugil*: 1ÍR GLAUHBÆJARANNÁL ----að hvorugur aðilinn taldi sig eiga við hinn sökótt, né heldur vera í styrjöld við hann, en þó börðust þeir grimmiLega og af inestu heift. Vildi Rósir.kranz riddari verja kastala sinn, þann enn mikla, og var enginn annar tilgangur hans í styrjöld þessari, að sjálfs hans sö-gn, og sór hann af sér allar ásakanir um íyrirhugaða iandvinninga. Réði hann til forustu liði sínu þaulreyndan og fjölkunnugan foringja úr Ástríu, svá og liðsmenn dug- andi og kvaðst mundu verja sína borg á meðan nokkur mætti boga valda eða bumbu berj.a og velsigndi hinn bless- aði biskup, Vilhjálmur frið- sæli, lið hans, svo og allar hans tiltektir. Fyrir hin,u liðinu réði Ragnar víkingur roðbók, kynjað wr af Bakkanum, primsigndur djákni að Helgafelii; hafði hann dreginn fjcgurra laufa smára á skjöld sinn og hafði af því við- iirnetfni; hann söng symfóníur upp úr svefni, og er liann hraut, var það klassisk tónlist, en vak- sndi lék hann á glymskratta. er hann stóð ékiki í styrjöldum og stórræðum. Hann var. sem aðr- ir Bafckamenn, meingölróttur og ódrepandi. Skjaldsveinn hans er Bjöm nefndur; vesfur- bæingur, hægur maður hvers- dagslega, en fylgdi þó foringja BÍnum fast eftir í orustum. Jón hét einn, sem mjiig var fyrir þessu iiði; hann átti huliðs- hjálm og reit fjandmönnum sín «m óheiHarúnár með framliðn- um blýöntum. Páll var sá Þriðji fyrir því liði, hann hafði sig lítt í-frammi í orustum, en var þó harður fyrir, ef á hann v.ar leitað og brá þá bröndurum. 'Allir kváðust þessir friðsamir og ekki eiga í neinum útistöð- um við Rósinkranz riddara. Á því hófst orustan, að hvor- irtveggju gerðu óp mikið að hin um, en héldu þó lagi að mestu. Taldi þó Skagfeldur trölli, sem hvorugum veitti lið, og helzt aldrei nema sjálfum sér, að tæpir væru þeir báðir á taktin- um, — en Skagfeldur söng þrí- raddað, og skorti því aðeins eína rödd til að geta stofnað Scvartett með sjálfum sér. Kona er nefnd Gudda---- (Framh.) r i 1 Alþýðublaðinu í andlitið. En mér var lítil fró- un í því, því hann veitti enga mótspyrnu. Hann reyndi ekk.i einu sinni að bera hönd fyrir höfuð sér. Hann skammaðist sín svo mikið, heid ég. Eg held næstum því, að hann hafi ver- ið eins og hryggur og sár og reiður sjálfum sér eins og ég var honum. Það er margt gott í þeim manni, sagði LUcy. Eg hef allt af sagt það frá því þú fyrst kynntist honum. Hins vegar nýtur það góða í fari hans sín miklu síður en hið illa. Kann- ske verður þetta til þess að kenna honum. Sumir menn verða að fá þess háttar lífs- reynslu. Nei, sagði Tim. Hann verðu:. ekki lengi hryggur og sár út i sjálfan sig. Hann tekur bráðum leitthvað, annað fyrir og það mun sækja í sama horfið. Hann mun gera eitthvað meira illt af sér áður en langt um líður....Jæja, svona var það nú. Ætli mér veiti af að reyna að fá mér eitthvað að gera? Heyrðu, kona mín. Þetta er blaðið í gær. Það þýðir víst ekki mikið að fara eftir aug- lýsingum, sem í því kunna að vera um vinnu. Það eru víst alltaf nógir um boðið. Kom ekki blaðið í dag? Bíddu, pabbit sagði Lance og gekk fram. Að vörmu spori kom hann inn á ný með annað eintak og fletti því í leit að auglýsingum um atvinnu. Sjáðu, pabbi, kallaði hann Hér er eitthvað meira urn þennan Stillworth. Tim greip blaðið úr höndum hans. Lucy færði sig nær og gægðist yfir öxl manni sínum. Einkaerfingi strýkur, hljóð- aði fyrirsögnin. Dóttir auð- manns giftist starfsmanni föð- ur síns, undirfyrirsögn. Og svo með lítið eitt minna letri: Thomas Stilíworth hefur feng- ið taugaáfall. Til vinstri var teiknað riss af Esther Still- worth, sem gaf heldur ófull- komna mynd af fegurð hennar. Tim las áfram: „Seint í gær- kve|ldi bárust ^réttir af því. að Esther Stillworth, dóttir hins þekkta f jármálamanns, Thomas Stillworth, hefði hlaup izt í brott með og gengið að eiga einn af starfsmönnum föður síns, herra Pride Daw- son, sá hinn sami, sem bezt gekk fram í að stöðva árás skemmdarverkamanna á verk- smiðjur Stillworths í Millville, svo sem sagt er frá í blaðinu í 49. DAGUR gær. Enda þótt herra Still- j worth færi þar mjög lofsam- i legum orðum um þennan starfs mann sinn, hefur blaðið þó e/tir áreiðanlegum heimildum, að umræddur ráðahagur hafi verið föðurnum mjög á móti skapi og á ýmsan hátt reynt að koma í veg fyrir að af hon- um yrði. Vígsluathöfnina fram kvæmdi herra Huntley Drake í Martintown Pennsylvaníti. Ungu hjónin eru sem stendur á brúðkaupsferðalagi í ná- grenni Pittsburgh, en dvalar- ' stað þeirra er annars haldtð leyndum. Thomas Stillworth ‘ fékk snert af taugaáfalli, þeg- ar honum barst fréttin til eyrna, og er sem stendur í um sjá læknis síns, doktor Charles Wurtburger. Blaðinu tókst ekki að ná tali af herra Still- worth til þess að fá frá fyrstu hendi staðfestingu á frásögn þessari.“ '■ Tim leit uþp og mætti aug- liti konu sinnar. Báðum varð hið sama að orði og samtímis: Sharon. ‘ Tim h?/ði komið Lucy í kunningsskap við Sharon, þeg ‘ ar þún kom með honum tii New York fyrir nokkrum vik- um. Þeim hafði þegar í stað fallið hvor önnur sérlega vel (í geð og bundizt innilegri vin- áttuböndum en algengt er kvenna í milli. Lucy var þegar í stað þotin af stað eftir frakka og hatci i Tims. j Þú ferð til hennar, Tim. — Reyndu að fá hana til þess að i koma til okkar. Eg talaði við hana fyrir nokkrum dögum og hún var hugsjúk. Vonandi hef- ur hún ekki frétt þetta ennþá. j Hvað sagði ég þér ekki, kona góð, sagði Tim beizklega. Hvað sagði ég þér ekki? Hann ræðst bráðum í eitthvað nýtt og gerir eitthvað illt af sér áð- ur en langt um líður, var ég að segja. Pridle jer fekítsama . um þessa Esther Stillworth. Hann var ástfanginn af Sharon ' og engri annarri. Eg þori að veðja mínum seinasta græna ' eyrþ að hann er ennþá ást- fanginn af Sharon O’Neill og ! engri annarri. Eg hef verið ! vitni að meira og minna nán- um kunningsskap Prides við kvenfólk um dagana og aldrei , hef ég merkt að hann væri raunverulega ástfanginn, fyrr ' en hann kynntist Sharon. I Hann gat kysst jörðina, sem j hún gekk á. En svo lætur hann peninga blinda sig. Allt gerir M Félag íslenzkra lelkara endurtekin í Þjóðleikhúsinu, Laugard. 7. marz kl. 23. (mi ðnætursýning). Aðgöngumiðasala frá kl. 4—7 í dag, föstudag. Pride fyrir peninga. Honum er sama hverjar afleiðingar fé- græðgi hans hefur. Hvort held ur hann myrðir menn eða leggur ástvini sína í gröfina. Eg veit, ég veit, sagði Lucy óþolinmóð. Svona, komdu þér nú strax af stað og fáðu þér vagn. Vertu fljótur. Vagninn staðnæmdist fyrir framan vinnustofu Sharon O’- Neil og Tim steig út úr honum. Hann komst strax að raun um að illur grunur hans var rétc- ur: Sharon var ekki þar. Hún sagðist ætla að fara að hitta faðir Shannon, sagði ein af stúlkunum. Hún komst í svo æst skap við að lesa eitthvað, sem stóð í daghlaði. Eg sá ekki út af hverju það var. Tim létti, þegar hann heyrði hana nefna nafn föður Shann- ons. Hann kannaðist við þann mann mest, af afspurn, en þekkti hann þó lítilsháttar persónulega. Hafði heyrt að hann væri göfugúr sálusorgari og eftirsóttur af þeim, sem höfðu andlegar byrðar að bera. Ef Sharon hefði farið til hans, þá væri hún í góðum höndum. En var það þá svo? Hann yrði að ganga úr skugga um það. Lucy hans myndi aldrei fyrirgefa honum, ef hann iéti ógert að fullvissa sig um, hvar Si^aron væri niður komin. Hann hraðaði sér út og leit- aði sér upplýsinga um heimil- isfang föður Shannos. Áður en langt um leið var hann kom- inn heim til prestsins. Faðir Shannon tók hið bezta á móti honum. Það brá fyrir bliki í augum gamla prestsins, þegar hann sá, hver kominn var. Sko til. Þarna kemur dreng'- urinn minn, hann Timothy. Ekki átti ég von á að sjá þig í dag. Eg hef í langan tíma vænzt þess að sjá þig í biðstof unni minni. Maður gæti ráðið af svipnum á þér, að þú hefð- ir lamið hana gömlu móður þína, svo alvarlegur ertu í dag. Fyrirgefðu mér, faðir. En í dag hef ég ekki tímajil þess að skrifta fyrir þér. Sharon O- Neil.....Var hún hérna hjá þér í dag? Nei. Hana hef ég ekki séð. Hún hefur ekki komið til mín síðan á sunnudaginn var, eftir messu. Heyrðu, Tim. Er eitt- hvað að? Já, víst er sumt ekki eins og það á að vera. Hefurðu lesið þetta? Og Tim otaði blaðinu að prestinum. Gamli presturinn fálmaði niður í jakkavasa sinn og dró upp gleraugun sín. Hann setti þau í góðar skorður og byrjaði að lesa. Bærði varirnar um leið og hann fór yfir setning- arnar, eins og vandi er margra gamalla manna. Svo rétti hann úr sér og hnyklaði brýrnar. Hún yar ástfangin af þessum manni, var það ekki? Jú, víst er það hann, Pride Dawson. Eg hef heyrt hans getið. Heið- in sál er sagður gallagripur. Já, víst erum við allir breizk- ir, og ekki ferst mér að dæma. En samt neita ég því ekki, að ég varaði hana o|t við þessum manni .Hún talaði oft um hann við mig, í skriftamólum sín-1 ■■■■■■■■■■ Smurt brauð. Snittur. Til í búðinni allan daginn. Komið og veljið eða símiB. Síld & Fiskur. Dra-viðáerðlr. Fljót og góð afgreiðsla. GUÐL. GÍSLASON, Laagavegi 63, ■ími 81218. Smurt brauð oú snittur. ,NestisDakkar. ódýrast og bezt. 'Vin- samlegast pantið með fyrirvara. MATBARINN Lækjargötn 6. Srííni 80340. Kbld borð og heitur veiziu- matur. Sfld & Fiskur. SamúSarkorf Slysavarnafélags fslands kaupa flestir. Fást hjá slysavamadeildum trn land allt. í Rvík í hann- yrðaverzluninni, Banka- stræti 6, Verzl. Gunnþór- unnar HaHdórsd. og skrif- stofu félagsins, Grófin 1. Afgreidd í síma 4897. — Heitið é slysavarnafélagiO. Það bregst ekld. Nýia sendl- bílastöðin h'.f. hefur afgreiðslu í Bæjar- bílastöðinni í Aðalstræti 16. — Sími 1395. MinnlndarsDiöId Barnaspítalasjóðs Hringsina eru afgreidd í Hannyrða- verzl. RefiU, Aðalstræti 12 (áður verzl. Aug. Svend- sen), í Verzluninni Victor Laugavegi 33, Holts-Apó- teki,i Langholtsvegi 84 Verzl. Álfabrekku við Su8« urlandsbraut, og Þorsteiní- búð, Snorrabraut 61. Hús og íbúðir. sf ýmsum stærðum bænum, útverfum bæjh arins og fyrir utan fcæ- inn til sölu. — Höfum einnig til sölu jarðir véibáta, bifreiðir S| verðbréf. Nýja fasteignaíalan. í Bankastræti 7. Sími 1518 og kl. 7,30— 8,30 e. h. 81546. Aiþýðublaðinu inmuiiBiiniiimi iiíi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.