Tíminn - 04.07.1964, Page 2
FÖSTUDAGUR, 3. júlí.
NTB-Bonn. — De Gaulle, for-
seti, kom í dag til Bonn, þar
sem hann átti viðræður við Er-
hard, kanslara, strax eftir kom
una. Ræddu þeir fyrst og
fremst um Efnahagsbandalagið
og pólitíska sameiningu Evr-
ópu. Munu þeir ræðast aftur
við á morgun, en de Gaulle
heldur heimleiðis annað kvöid.
NTB London. — Risafyrir-
tækið Unilever, sem nær til
alls heiinsins, hefur ákveðið að
hefja stórframleiðslu á laxi og
urriða og hefur í því sambandi
gert samninga við fyrirtækið
Brödrene Vik, um að fá að
nota hinar nýju aðferðir þess
við fiskeldi.
NTB-New York. — Blökku-
menn um gjörvöll Bandaríkin
hófu í dag samstilltar aðgerð-
Ir til þess að sjá, hvernig hin
nýju borgararóttindalög reynd-
ust. Gengu þeir inn á veitinga-
stofur, í búðir, á rakarastofur
o. s. frv., þar sem þeim var áð-
ur bannaður allur aðgangur. —
Ekki er vitað, að til ncinna
átaka hafi komið í þessu sam-
handi, en einstaka veitingahús-
eigendur lokuðu þó veitingahús
um sínum f Savannah, Georgia
og Jacksonville, var t. d. allt
rólegt f dag, en þar hafa kyn-
þáttaóeirðir verið hvað mestar
undanfarið.
NTB-Algeirsborg. — Mikið
hefur verið um handtökur af
hálfu stjórnarinnar í Alsír síð
ustu daga í sambandi við óróa-
ástandið, sem skapaðist við
brottrekstur yfirmanns fjórða
hersvæðisins, Chaabani. Ekki
hafa borizt fréttir af því, að
uppreisnarmenn hafi haft sig í
frammi í dag, en þeir halda nú
til í fjallalendi um 500 km.
suð-austur af Algeirsborg.
NTB-Róm. — Helztu foringj-
ar sósialista héldu í dag fundi í
Rómaborg, sem talinn er vera
mjög þýðingarmikill í sambandi
við þær víðtæku viðræður, sem
nú eiga sér stað milli póli-
tískra leiðtoga um myndun
nýrrar stjómar f landinu.
NTB-New York. — Stjórn
Haiti hefur sent öryggisráði
SÞ kvörtun yfir því, að útlægir
Haiti-búar og fjöldi manna frá
Dominikanska lýðveldinu hafi
ráðizt á hermenn stjórnarinn-
ar fyrr í vikunni og drepið
nokkra þeirra. Segir í bréfinu,
að árásarmennirnir hafi komið
yfir iandamærin frá Domini-
kanska lýðveldinu og haldið til
fjalllendisins í suð-vestur hluta
landsins. Segir í bréfinu, að
Haiti-stjórn, óttizt frekari árás-
ir.
NTB-Oso. — Nikita Krústj-
off, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna og fylgdarlið hans,
heldur brott frá Noregi í fyrra
málið og er þá lokið hinni op-
inberu heimsókn hans, sem tal-
in er hafa tekizt í alla staði
mjög vel.
NTB-Leopoldville, 3. júlí. I dag, að hún myndi styðja Moise
HIN VINSTRI sinnaða þjóðfrels | Tshombe, fyrrverandi Katanga-
ishreyfing, CNL lýsti því yfir í forseta, í baráttunni um forsæt-
STJÓRN SJÚKRAHÚSS AKRA-
NESS ÞAKKAR STÓRGJAFIR
Sunnudaginn 28. júní afhenti
Júlíus Bjarnason, hreppstjóri á
Leirá, hina rausnarlegu gjöf Borg-
firðinga og Mýramanna til bygg-
ingarsjóðs Sjúkrahúss Akraness.
— Hafði hann farið að eigin frum-
SAFNHÍSEL-
FOSS OPNAÐ
Safnhús verður opnað á Sel-
fossi sunnudaginn 5. júlí. Húsið
hefur verið í smíðum tvö undanfar
in ár, en er nú að verða full-
gert. Á neðri hæð hússins verður
héraðsbókasafn og skjalasafn, en
á efri hæðinni byggðasafn og mál-
verkasafn. Húsið er við Tryggva-
götu sunnan sundlaugarinnar.
Forseti íslands skoðar safnhús
ið við opnunina kl. 2 e.h., en al-
menningi verður það opnað kl. 4
Þarna verður til sýnis í fyrsta
sinn austan fjalls málverkagjöf
frú Bjarnveigar Bjarnadóttur, sem
áður hefur verið sagt frá í blöðum
kvæði á nálega hvern bæ í Borgar-
fjarðar- og Mýrasýslum og safnað
framlögum til byggingarsjóðs
sjúkráhússins. Söfnuðust alls kr.
945.000.00. Viðstaddir afhending-
una voru hreppstjórar hreppanna
og konur þeirra auk fleiri gesta,
en hreppstjórarnir önnuðust inn-
heimtu fjárins.
Á aðalfundi Kaupfélags Borg-
firðinga í vor var samþykkt að
gefa kr. 500.000.00 til byggingar-
sjóðsins, og hefur það fé nú verið
afhent.
Stjórn Sjúkrahúss Akraness vill
koma á framfæri sínu innilegasta
þakklæti til þessara aðila fyTÍr
þessar rausnarlegu gjafir sem
verða til flýtis framkvæmd bygg-
ingarinar og til að efla samhug
íbúa sýslnanna og Akraness um
þetta mikla átak í heilbrigðismál-
um héraðsins. Samtök fólksins al-
mennt og innan kaupfélagsins eru
einstæð og munu hvarvetna vekja
aðdáun.
Júlíusi Bjarnasyni hreppstjóra
vill sjúkrahússtjórn færa sérstak-
ar þakkir fyrir þetta einstaka
framtak hans, sem hinn mikli
Framhalö a 16 sfðu
isráðherraembættið í Kongó og
bendir nú allt til þess, að þessi
fyrrverandi leiðtogi skilnaðarhreyf
ingarinnar í Katanga verði I íor-
sæti nýrrar stjórnar landsins
Eins og kunnugt er hefur Tsh-
ornbe, samkvæmt beiðni Adoula
forsætisráðherra núverandi sbarfs
stjórnar, sem baðst lausnar fyrir
nokkrum dögum, átt viðræður við
alla helztu pólitíska leiðtoga
landsins og kannað möguleikana á
myndKn nýrrar starfhæfrar stjórn
ar í Kongó. Er búizt við, að Tsh-
ombe muni seint í kvöld leggja
skýrslu fyrir Kasavubu forseta, um
viðræðurnar síðustu daga.
Pólitískir fréttamenn telja, að
með hinum yfirlýsta stuðningi CN
L-hreyfingarinnar, hafi möguleik-
ar Tshombe til forsætisráðherra-
embættis stórlega vaxið, en benda
þó á fyrirvara í yfirlýsingu um
þennan stuðning, þar sern segir,
að skilyrði fyrir stuðningnum sé,
að væntanleg stjórn Tshombe
verði aðeins bráðabirgðastjórn,
sem sitji að völdum, þar til nýjar
kosningar hafi farið fram. — f
hinni sameiginlegu yfirlýsingu
Tshombe og leiðtoga CNL-hreyf-
FramhalO 6 15 slðu
Starísemi UMF!
JÓNSMESSUMÓT ÁRNESINGA
Árnesingafélagið í Rcykjavík
hélt hið árlega Jónsmessumót s'itt
í Gaulverjabæjarhreppi sl. laugar
dagskvöld. Samkoman hófst með
borðhaJdi kl. 19. Stefán Jgsonar-
son í Voi-sabæ ávarpaði samkvæm
isgcsti af hálfu heimamanna og
lýsti ánægju sinni yfir því, að
þetta mót skyldi haldið í Félags
við undirleik Jóns Jónssonar. Að
síðustu var dansað af feikna fjöri
til kl. 3 eftir miðnætti.
Mikið fjölmenni sótti þessa sam
komu og var það einróma álit
allra, er hana sóttu, að Árnesinga
félagið og forystumenn þess hefðu
haft mikinn sóma af þessari sam
i-; komu. •'
lundi.
Formaður Árnesingafélagsins, j
Ingólfur Þorsteinsson, og Ólafurj
Sveinsson á Syðra-Velli mæltu fyr f
ir minni heiðursgestanna, sem ^ð,
þessu sinni voru frú Bjarnveig
Bjarnadóttir og frú Kristín Andrés
dóttir frá Vestri-Hellum í Gaul-|
verjabæjarhreppi. Heiðurgestirnir
12. júní sl. hélt framkvæmda-
stjóri UMFÍ fund á Akureyri með
' stjórn og íþróttanefnd Ungmenna
jsambands Eyjafjarðar og 13. júní
j sat hann héraðsþing Héraðssam-
jbands Suður-Þingeyinga að Laug-
um. Aðallega var rætt um íþrótta-
og féjagsstarf í sumar og undir-
búning að landsmótinu að Laugar
vatni 1965.
Ungmennasamband Austur- Hún
vetninga sá um hátíðahöld 17. júní
j að Blönduósi. Páll S. Pálsson,
hæstaréttarlögm. flutti hátíðaræðu
' karlakór söng og keppt var í íþrótt
um. Framkvæmdastjóri UMFÍ
. flutti þar ávarp og las kvæði. Ný-
i kjörinn formaður sambandsins er
Kristófer Kristjánsson. Fjölmenni
var á hátíðinni og fór hún hið
bezta fram.
Framkvæmdastjóri UMFÍ mun
heimsækja héraðssamböndin í sum
ar, eftir því, sem tími vinnst til.
Á 23. þingi UMFÍ síðastliðið
haust var samþykkt að vinna að
því, að starfrækt yrði æfingamið-
stöð fyrir íþróttir hjá héraðssam-
böndunum í júnímánuði 1964. Fyr
ir atbeina UMFÍ var slík æfinga-
miðstöð starfrækt í Reykjaskóla
frá 19. — 24. júní sl. Að henni
stóðu Ungmennasamband Stranda
manng og Héraðssamband Vestur-
Húnavatnssýslu. Þátttakendur
voru 21. Kenndar voru frjálsar
íþróttir, körfubolti, knattspyrna og
leikfimi. Þátttakendur iðkuðu einn
ig sund. Kennarar voru Magnús
Ólafsson, kennari við Reykjaskóla
og Gunnlaugur Sigurðsson úr
Reykjavík. Ólafur Kristjánsson,
skólastjóri og Skúli Þorsteinsson
framkvæmdastjóri UMFÍ ræddu
við þátttakendur um félagsstarf
og gildi íþrótta. Sýndar voru kvik
myndir m.a. frá síðasta landsmóti
UMFÍ að Laugum. Mikill áhugi
ríkti hjá þátttakendum og kenn-
urum. Unnið verður að því, að
æfingamiðstöð verði fastur liður
í starfsemi viðkomandi héraðs-
sambanda og starfrækt árlega.
Starfsíþróttanámskeið á vegum
UMFÍ standa nú yfir hjá Ung-
mennasambandi Borgarfjarðar.
Héraðssamband Suður-Þingeyinga
og Ungmennasambandi Eyjafjarð
ar. Síðar verður haldið námskeið
hjá Héraðssambandinu Skarphéðni
Kennarar á þessum námskeiðum
eru Vilborg Björnsdóttir og Stefán
Kristjánsson fyrir norðan og Stei'n
unn Ingimundardóttir og Bjarni
Arason hjá Borgfirðingum.
FRAMKVÆMDASTJORI AMERICAN
SCANDINAVIAN FOUNDATION HÉR
ávörpuðu samkomugesti og þökk-
uðu þann sóma, er þeim hafði j
verið sýndur.
Klukkan 21,30 hófst almenn samj
koma. Formaður Árnesingafélags j
ins flutti ávarp, en Hörður Stefáns,
son, gjaldkeri félagsins, kynnti
dagskráratriði. Fyrst sýndi fólk úr
Gaulverjabæjarsókn stuttan gam-
anþátt, þar næst söng tvöfaldur
kvartett úr Karlakór Reykjavíkur
Hér á landi er nú staddur fram- j
kvæmdastjóri menntastofnunarinn!
ar American Scandinavian Found- j
ation, Peter Strong ,en hann á ip.a. j
að flytja ræðu á þjóðhátíðarfagn-
aði Bandaríkjanna 4. júlí á Hótel j
Sögu.
American Scandinavian Found-
ation var stofnuð fyrir 54 árum og
hafði með höndum skipti á náms-
og menntamönnum milli Banda-
ríkjanna og Norðurlandanna og
hafa 9000 Norðurlandabúar hlotið
styrki til farar til Bandaríkjanna
bæði til fyrirlestrahalds, háskóla-
náms, rannsókna ýmisskonar og
auk iðnaðar og verzlunarstarfa.
Peter Strong segir, að 1500
manns hafi farið héðan til dvalar
í Bandaríkjunum á vegum stofn-
unarinnar frá því eftir stríð, og
ber þar mest á þeim, sem hlotið
hafa þjálfunarstyrki svokallaða.
Oft hefur þó verið erfitt að útvega
styrkþegum atvinnu við þau störf,
sem þeir ætla að hljóta þjálfun í,
vegna atvinnuleysis í Bandaríkjun-
um. Nú munu fjórir 'íslendingar
dveljast vestra á þjálfunarstyrkj-
um.
VEÐREIÐAR í MEIASVEST
i
GB—Akranesi, 3. júlí. t
Sunnudagur 5. þ.m. verður tek
inn í notkun nýr skeiðvöllur við
Ölver undir Hafnarfjalli.
Það er hestamannafélagið Dreyiri
sem nær yfir Akranes og hreppana
utan Skarðsheiðar, er staðið hef-j
ur að byggingu vallarins, en Guð
mundur Péturson, ráðunautur,
fyrrum bústjóri á Hesti, hefur ann
azt allar mælingar og stjórnað
verkinu.
Skeiðvöllur þessi, sem er 400
m. að lengd og 6 m. breiður mun
vera einn glæsilegasti og bezt
gerði kappreiðarvöllur laudsins,
enda ekkerl til sparað, að svo
mætti verða.
Er han.n staðsettur i fögru um-
hverfi, með aflíðandi kjarrivaxna
hlíð á aðra hönd, tilvalið árhof-
endasvæði, en hins vegar er hesta
girðing, vallgróið land með smá
læk og melhorni, þar sem gæðing-
arnii geta notið lífsins, m.a. velt
sér í flagi, en það er sveittum
hesti jafn nauðsynlegt, og baðið
íþróttamanninum. — Úr áður-
nefndri skógarbrekku er hið á-
gætasta útsýni yfir allann skeið-
völlinn, svo og hestagirðinguna
og allt til Borgarfjarðar.
Girðingar fram með vellinum,
svo og dómpallurinn er einkar
vandað og smekklegt, enda kall-
ar hið fagra umhverfi á það, að
1 engu sé spillt með ljótum mann-
virkjum eða vondri umgengni.—
í nánd við völlinn eru góð bíla
stæði, þar verða og veitingar á
boðstólnum og allar upplýsingar
1 gefnar um veðreiðarnar.
Hestamannafélagið Dreyri hefur
jafnan efnt til kappreiða og góð-
hestakeppni árlega, en aðstaða
hefur ekki verið góð fyrr en nú,
er segja má, að tæplega verði á
Framhald á tö síðu
Föstudaginn 3. júlí: Hagstætt
veður var á síldarmiðunum s.I.
sólarhring. Skipin voru einkum að
veiðum í Héraðsflóadýpi. Alls til-
kynntu 46 skip um afla, samtals
39.800 mál og tn.
Valafell SH 500, Seley SU 1100,
Arnarnes GK 400, Björn Jónsson
RE 900, Einar Hálfdáns IS 850,
Guðbjörg GIC 1300, Eldey KE 850,
Hoffell SU 1100, Blíðfari SH 650,
Ásbjörn RE 500, Sæúlfur BA 1250,
Otur SH 850, Hrafn Sveinbj. II GK
1000, Anna SI 1150, Ásþór RE
900, Skagaröst KE 850, Sigrún AK
850, Fagriklettur GK 1200, Akur-
ey SF 950, Margrét SI 1350, Rifs-
nes RE 1100, Hafþór RE 300, Vatt
arnes SU 1000, Bjarmi II EA 1500,
Hamravík KE 1100, Hilmir KE
900, Gunnar SU 1300, Hrönn IS
500, Svanur IS 800.
Jörundur III RE 1100, Hannes
Hafstein EA 1150, Súlan EA 750,
Steinunn SH 450, Sigurður SI 900,
Sig. Bjarnason EA 1400, Ólafur
Bekkur OF 500, Gyifi II EA 450,
Jón Finnsson GK 1400, Náttfari
ÞH 1000, Baldur EA 300, Friðbert
Guðmundsson IS 400, Jón Jónsson
SH 350, Heimaskagi AK 150, Guð-
rún GK 1500. Sif IS 400, Sæfell
SH 600.
%
T í M I N N, laugardaglnn 4. fúli 1964