Tíminn - 12.07.1964, Blaðsíða 3
Þessi mynd er tekin á bað-
strönd í Arizona af einum sól-
dýrkanda og laganna ver'ði
Hann: „Heyrið þér mig ungfrú,
það er bannað að . . “ Hún:
„Voruð þér að segja eitthvað/'
Hann; „Afsakið, en ég hélt að
þér . . væruð í einum þessara
topplausu sundbola!“ Já, það
er ýmislegt, sem leggst á bless
aða lögregluna og nú hefur hún
t d. fengið skipun um að ganga
um baðstrendur og fjarlægja
allar konur, sem vilja fylgja
hinni umdeildu baðfatatízku
Flest getur grínagtugum stud
entum dottið í hug. Hér á mynd
inni sést hvernig ærslafullir
stúdentar hafa leikið styttuna
af Friðrik VII, sem stendur í
Sorö.
Nokkrir félagar voru á rölti
og langaði til að gera eitthvert
grín. Þeir náðu í plastmálningu
og máluðu fangaföt á kónginn.
Daginn eftir gáfu stúdentarnir
sig fram við yfirvöld og játuðu
á sig verknaðinnn og refsingin
var alger hreinsun á styttunni.
Sjást tveir hinna ærslafullu
vinna við að skrapa fangarend
urnar af styttunni.
Bandaríkjaforseta slökkva með
kraftmiklum blæstri á 18 kert
um á afmæliskökunni sinni,
Heilmikil veizla var haldin í
Hvíta húsinu í tilefni dagsins,
Luci lék á als oddi og var ekki
hægt að sjá á henni, að hún
hefði verið í veizlu kvöldið áð
ur, sem faðir hennar hélt til
heiðurs forseta Costa Rica,
Franicisco J. Orlich, og konu
hans. Luci hefur mjög gaman
af dansi og hún lét ekki fina
fólkið koma í veg fyrir, að hún
stigi dans í samkvæminu.
Allt í einu heyrðist villt twist
lag og Luci sentist um gólfið.
Þá stóðst faðir hennar ekki mát
ið og gekk til dóttur sinnar og
steig dansinn með henni.
hvaðan þessi einkennilegu hljóð
kæmu.
Russel taldi það sjálfsagt og
dró sængina stoltur ofan af
syni sínum, Nat Leroy Russel,
sem hikstaði eins og tímastillt
sprengja!
★
Hinn heimsfrægi söngvari
Nat Russel varð áþreifanlega
var við komu Krustjoffs til
Danmerkur, ekki síður en aðrir
þar í landi. Þegar hann einn
góðviðrisdag var á gangi með
nýfæddan son sinn í barna
vagni, fram hjá Royal Hotel
stanzaði hann allt í einu og
virti fyrir sér hina mörgu vopn
uðu verði, sem stóðu fyrir fram
an bygginguna og á húsþökum í
nágrenninu.
En athygli hans dróst brátt
frá þessum laganna vörðum
vegna einkennilegra hljóða.
sem heyrðust frá barnavagnin-
um. Hann beygði sig yfir barna
vagninn og stakk hendinni nið-
ur í hann. Á sama augnabliki
komu tveir borgaralega klædd-
ir lögreglumenn til hans og
tóku sér stöðu sitt hvorum meg
in við vagninn.
Þeir báðu leyfis að fá að
líta inn í barnavagninn, og sjá
Það má með sanni segja, að
Margrét, prinsessa hafi „slegið
í gegn“, er hún kom í fyrsta
sinn á dansleik í Lundúnum,
eftir að hún átti seinna barn
sitt í maí s.l.
Prinsessan var í mjög flegn
um kjól og skrautlegum og voru
fréttamenn sammála um, að
hún hafi verið eins og drottn-
ing í skrúða. Myndin er tekin,
er Margrét gengur inn í dans-
salinn.
í SPEGLITIMANS
Er hún, eða er hún ekki í . .
Jú reyndar, hún er í einum
hinna topplausu sundbola. Og
þið þekkið ef til vill svipinn á
þessari fagursköpuðu konu.
Þetta er engin önnur en
franska kvikmyndadísin og
þokkagyðjan Brigitte Bardot.
En með því er þó ekki allur
sannleikur sagður, því að þetta
er aðeins vaxmynd af henni,
sem er til sýnis á vaxmynda-
safni í San Francisco!
Á sunnudaginn var stolið á
Shannon-flugvellinum í írlandi
gimsteinum að verðmæti sem
svarar 12 milljónum íslenzkra
króna, en þessi bíræfni þjófn
aður komst ekki upp fyrr en
á mánudagskvöld.
Gimsteinar þessir voru óslíp
aðir og komu einmitt frá Amst-
erdam á föstudagskvöld til
Shannon, en slípunarverkstæði
í írlandi hafði tekið að sér
að slípa þá. Móttakandinn vitj-
aði sendingarinnar ekki strax
og voru gimsteinakassarnir
geymdir í vörugeymslu á flug-
vellinum.
Á sunudagskvöld1 kom vel-
klæddur og virðulegur maður
inn í vörugeymsluna og fékk
verðina til þess að afhenda sér
gimsteinapakkana samkvæmt
„umboði“ frá slípunarverkstæð-
inu. Á mánudagskvöld kom svo
hinn rétti fulltrúi verkstæðis-
ins og fékk þau köldu svör, að
pakkinn hefði verið afhentur
daginn áður. Nú hefur lögreglu
stöðvum um gjörvallt írland
verið gert viðvart og gífurlega
umfangsmikil rannsókn hafin.
Kvikmyndaleikarinn Peter
Malberg leikur um þessar mund
ir Franz Jósef, keisara, í mynd-
inni Sumar. í Týrol, sem kvik
myndaframleiðandinn Henrik
Sandberg stjórnar nú töku á í
Austurríki. Þegar hinn þekkti
kvikmyndaleikari var í fyrsta
sinn tilbúinn til leiks, eftir að
hafa staðið í þriggja klukku-
stunda förðun, voru allir sam-
mála um, að hann líktist mjög
hinum aldna keisara. Þessi
staðreynd varð tilefni eftirfar
andi athugasemdar Henriks
Sandgerg: Er þetta nú ekki
hálf ergilegt. Maður er búinn
að hafa fyrir því að ráða svo
dýran kvikmyndaleikara, en
svo er ómögulegt að sjá nú,
hver hann er.
Hvikmyndaleikonan Hiannah
Bjarnhof var viðstödd sýningu
Kiev-ballettsins, er hann hélt
sýningar í Kaupmannahöfn, áð
ur en hann kom hingað til
lands. Var hún þar í fylgd með
hinum þekkta tízkusérfræðingi
Jean Voigt, sem hafði teiknað
og látið sauma nýjan kjðl
handa leikkonunni, sérstaklega
fyrir þetta tækifæri. Kjóllinn
vakti mikla athygli og í einu
hléanna vatt sér bandarísk frú
að tízkusérfræðingnum og
sagði: En hvað þetta er falleg
ur kjóll, sem konan yðar er í
Hannah Bjarnhof varð fyrri til
svars og sagði: „Þetta er ekki
maðurinn minn, ég er móðb'
hans!“
Aumingja bandaríska frúin
vissi ekki hvað hún átti að
segja, en hélt undrandi á brott
og hefur sjálfsagt verið að
velta því fyrir sér, hve furðu-
lega vel hinar dönsku konur
héldu sér.
Á myndinni sést Luci Baines
Johnson, dóttir Johnsons,
T í M I N N, sunnudagur 12, júlí 1964.
3