Alþýðublaðið - 16.05.1953, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Laugardgainn 1G. maí 1953
Dr: Álfur
Orðhengils:
REYKJAVÍKURBRÉF
Innan skamms hefst það
stóra„keppnislandsmót“ eins og
það myndi nefnt á tungu í-
þróttamanna, sem pólitikusárn
ir kalla kosningar til alþíngis,
en óvarlega hugsandi menn
keppni sjónhverfingamanna
eða eitthvað þess háttar. Hefur
undirbúningurinn að móti
þessu þegar staðið'yfir alllang-
an tíma, og má búast við því,
að keppendurnir séu þegar
komnir í allgóða þjálfun ef-tir
atvikum, svo að gera má ráð
fyrir harðri keppni. Hrns veg-
ar þorum við engu að spá um
það, hversu drengi'leg hún
verður.
Yfirleitt hættir mönnnm víð
að líta ólíkum augum á and-
Iega og líkamlega kepprri.
Margir eru til dæmis ákveðnir
^andstæðingar hnefaleikakeppni
vegna þess, hve hrottaleg hún
er og ódrengileg frá iíkamlegu
sjónarmiði. Þeir, sem iðka
hana. eru hins vsgar á öðru
máli, kalla atið göfuga varnar-
íþrótt o. s. frv: Viljum við hins
vegar leggja sama mat á þá
landlegu hnefaleikakeppni,
kosningaharáttuna svcnefndu,
.munum við óhjákvæmilega
komast að raun um, að sízt er
sú baráttan drengilegri eða feg
urri. Hinar „andlegu“ meiðing
ar, ef svo mætti að orði kom-
ast, eru sízt „fagurfræði1 egri“
heldur en nefbrotin og g’óðar-
augun: skammirnar og - ’ívirð
ingarnar sízt'verðugra t'’nmg-
arform hins siðfágaða ho' "'o sa-
p:--nc he’dur en kjaftshöepm og
löðrungarrir. Það situr því illa
á okkur að vera með einhverja
vandlætingu í garð þeirra, sem
iðka hina Iíkamlegu kjafts-
höggaiist, á' meðan við teljum
það jafnvel vegsauka, að vera
þátttakandi í hinum andiegu
hnefaleikum, — ko.sninga.bar-
áttunni.
Annars má það furðulegt
heita, ,,óg þó ekki furðulegt1',
eins og sumir myndu orða það,
— hvað þessum tveim keppnis
íþróttum svipar saman um
margt. Leitin að snöggu blett-
unum, að koma höggi á and-
stæðinginn., þar sem hann er
óvarinn, neyta þess til hins ýtr
asta, að láta höggin dynja á
honum, ef hann stendur höllum
fs&ti, blekkja hann með stöðu?-
um sýndarárásum og sæia síð-
an lagi, — lama þrótt hans og
sv'o frv. Jú, sannarlega er
margt sameiginlegt með þess-
um íþróttagreinum, hversu ó-
líkar sem þær kunna að vera á
yfirborðinu.
En sem sagt, — keppnin er í
undirbúningi og væntanlegir
keppendur komnir í góða þjálf
un.--------
Ðr. Álfur Orðhenffils.
ÚMXMMMXIXXlí?'
FRANK YERRY
MilljónahölBin
UXíXíMMMXíMMXíXíMXiXíXlMMMXíMXíMMMXiXiXíXíXí^lX^iXiMMJ
um. Það getur vel verið. að
þér standi alveg á sama um
mig, -þótt ég fari frá þér. I ú
mundir kannske verða kominn
til Sharon, áður en vagninn,
sem flytti mig burt frá þér,
væri úr augsýn kominn. ... En
það skaltu vita, Pride, að ég tek
Cappie litlu með mér. Og pú
munnt aldrei framar fá að sjá
hana, allt þitt líf.
Hún sá rauða flekki færast
fram í kinnar hans. Og hún
sá annað: Óttasvip í andlitinu.
Á samri stundu vissi hún
að hún hafði unnið frægan
sigur.
Pride stikaði yfir gólfið og
tók sér stöðu andspænis henni.
Cappie var' vöknuð. Hann
rétti henni fingurinn og litla
stúlkan greip fast um hann.
Hún brosti tií föður síns.
Þú myndir aldrei geta feng-
ið- þig til slíks, Esther.
Vita skaltu, að ég myndi
gera það með köldui blóði.
Annað hvort skal Cappie
litla eiga föður, sem hún get-
ur verið hreykin af, eða eng-
an ella. Eða, bætti hún við,
með dularfullu brosi á vör,
kannske annan föður?
Nei, nei, öskraði Pride.
Einkennilegt hvílí.k tök
hvítvoðungurinn hefur á þess-
um stóra og sterka mann.i. Guði
sé lof fyrir það. Nú hef ég þó
í höndum vopn, sem bítur vel
á hann. Næst skal ég beita því
til þess að ganga úr skugga
um, hvernig það gengur á
milli Sharon og hans.......
Hún komst ekki lengra. Eins
og úr fjarska heyrði hún hann
segja:
Þú hefur þitt' fram, Esther.
Eg skal þegar í fyrramálið
láta gera teikningar af ýmsum
nýjungum og breytingum, sem
hægt er að framkvæma í Mill
ville.
Eg skal fylgjast með því,
hvort þú lætur sitja við orðin
tóm eða ekki, Pride.
Pride hafði ekki augun af
Cappie, þar sem hún hvíldi í
örmum móðúr sinnar. Indfel-
asta og fallegasta barn, sem
nokkru sinni hefur verið sk-ap-
að, fannst honum.......Það er
meira að segja svo komið, að
ég er algerlega búinn að sætta
mig vði að það var ekki strák-
ur. Gullið, ljómandi hárið og
augun blárri en heiður himin-
inn. Aldrei hefði ég getað trú-
að því, enda þótt mér hefði
verið sagt það, að lítið barn
gæti tekið stóran og sterkan
mann slíkum tökum. Aldrei á
ævi minni hef ég elskað lif-
andi veru eins og litlu Capp-
94. DAGUR
ie. Og þó er sennilegt. að hún
þekki mig ekki frá Malcolm
gamla.
Hann laut enn á ný ofan að
barninu.
Þú skalt fá það bezta af
011«, Caprice Dawson. Það
allra bezta. Fínustu fötin, fal-
íegasta vagninn, bezta uppeld-
ið og beztu menntun. sem
hægt er að öðlast í þessu landi
eða öðru. Það verður enginn
barnaleikur fyrir þann unga
mann, sem kann að vilja eiga
þig á sínum tíma, að öðlast
samþykki föður þíns fyrir
ráðahagnum.
Þér þykir vænt u,m hana,
Pride, er það ekki. Ó, Pride,
strax aftur? Nú þarf ég aftur
að skipta á henni.
Heyrðu, kona mín. Flýttu
þér.nú. Það er nokkuð, sem ég
þarf að sýna þér.
Eg ætla að segja Terence að
hafa vagninn tilbúinn.
Esther leit út um gluggann.
Það var heldur kuldalegt um
að litast.
Það er svo kalt úti, Pride,
maldaði hún í móinn.
Þú getur búið hana vel. Það
er þess vert, að sjá þao, sem
ég ætla að sýna þér. Eg myndi
j ekki vilja fara með þig út í
þennan kulda, ef ekki væri sér
stakt tilefni til.
Gott og vel, Pride. '
Það var hlýtt í vagninum.
Hann var alluir klæddur innan
með skinnum af buffölum.
Það voru fjórir hestar fyrir
vagninum og Pride stjórnaði
þeim af mikilli leikni. Þau
voru komin upp í fimmtugasta
stræti, fram hjá „frönsku“ í-
búðinni, þar sem þau eitt sinn
áttu heima.
| Borgin fjarlægðist að baki
j þeirra. Byggðin var farin að
j strjálast. Það myndi vera ná-
! lægt áttugasta og sjöunda
! stræti, þar sem þau voru nú,
landið var hér allmikið á
brattann. Pride fékk Terence
taumana. Hann skipaði henni
að sveigja stefnuna vestur á
bóginn.
Pride kippti allt í einu í
taumana og vagninn nam stað-
ar.. Esther varð litið út um
gluggann. Hún sá í skímunni
marga menn að vinna. Það
'loguðu víða eldar. Mennirnir
kepptust við eins og þeir
ættu lífið að leysa, enda veitti
þeim ekki af til þess að halda
á sér hita. Þetta var á hárri
hæð. Niðurundan var Hudsons
flóinn. Þarna var maður mikill
vexti í loðfeldi. Hann hélt á
bunka af pappírsörkum í
hendinni og var að tala við
Alþýðublaðið
Fæst .á flestum veitingastöðum bæjarins.
— Kaupið blaðið um Ieið og þér fáið yður
kaffi.
Alþýðublaðið
annan mann sennilega yfirverk
[ Ktjórann.
| Er þetta allt og sumt, sem
þú ætlaðir að láta mig sjá?
spurði hún önug.
Sjáðu, manninn þarna í loð-
feldinum. Hann heitir Rosini,
bezti verkfræðingurinn í
Bandaríkjunum og arkitekt að
auki. Það er sagt, að Stewart
höllin, sem hann er nýbúinn
að byggja, hafi k<| tað skltnar
tvær milljónir dollara. Þessi
kostar að minnsta kosti finim.
Hús? Höll! Ertu að byggja
hús hérna?
Fyrir hana. Hún á að fá allt,
sem framast er bezt hægt að
veita henni.
En sjáðu nú til, Pride. Pabbi
eftirlét okkur prýðilegasta hús.
Dásamlegt hús. Hvers vegna
læturðu þér ekki nægja það?
Eg er ekki að hugsa um okk-
ur, Esther mín. Það á að vera
handa Caprice. Og það er ekki
neitt venjujegt hús. Það er höll.
Hvað segirðu? Höll!
Já, ég sagði höll. Hvenær
hefurðu heyrt talað um prin-
sessu, sem ekki átti neina höll?
Eg' get fullvissað þig um, að
helmingurinn af þessum svo-
kölluðu krýndu þjóðhöfðingjum
í Evrópu, eiga ekki helminginn
af því, sem ég á. Hvers vegna
skyldi ég ekki byggja höll
iTurna og víggirðingar, kann-
ske líka vindubrýr......
Höll, hvíslaði Esther. Prides
höll! Hún hló'lágt með sjálfri
sér við þessa tilhugsun.
Að hverju eru að hlæja? —
Hvað finnst þér hlægilegt við
þetta?
Það ert þú sjálfu,r„sem ég er
að brosa að, ekki höllin. Þú ert
einmitt sú tegund manna, sem
fyrst af öllu vill eiga hallir.
Víggirðingar, þar sem þeir geta
varizt fólkinu, sem þeir hafa
svikið og prettað. Og þeir
byggja þær alltaf á hernaðar-
lega mikilvægum stöðum, þar
sem margt er um manninn, til
þess að þeir geti haldið áfram
i að stela og ræna. Og að lokum
rísa þeir upp, hinir undirokuðu
— gera uppreisn og hrista af
sér okið. Og svo deyja þeir í
höllunum sínum, með ör í gegn
um hjartað eða þá, að þeir eru
teknir höndum og gerðir
höfðinu styttri. Hvort vilt þú
heldur, Pride?
Heldurðu kannske að eitt-
hvað þvílíkt hendi mig? Gott
og vel. Þú mátt þalda það.
En þér verður ekki að því. Eg
er sterkur. Ekkert getur orðið
mér .að grandi, nema kannske
minn eiginn hroki.
Það lcynni að nægja, líka.
sagði Esther. .
Það var að kvöldi næsta
dag's, að Tim McCarthy 'steig
inn í einkaskriístoíu Pride.
Þú sendir hann Terence eft-
ir mér, sagði ;Tim gremju-
lega. Hvað viltu, mér?
Það er nú sitt af hvoru,
Tim. Fyrst af öllu setla ég að
sýna þér þetta. Hann opnaði
stóra skúffu í skrifborðinu og
dró fram þykkan seðlabunka.
Það voru eintómar teikningar.
Hann rétti Tim þær, án þess
að segja orð.
Tim leit á teikningarnar.
Dra-viðsáerðlr. |
Fljót og góð afgreiðslt,;
GUÐL. GÍSLASON,
Laugavegi 83, §
t£mi 81218.
Smart hrautS
oö snittur.
Nestisnakkar.
Ódýrast og bezt. Vln- 5
samlegast pantiö *
íyrirvara.
5
MATBARINN
'Lækjargötu 8.
Sími 80349.
Slýsavamafélaga fslands S
kaups flestir. Fást hjá |
slysavarnadeildum um»
land allt. í Rvík í hann-1
yrðaverzluninni, Banka-;
strætí 6, Verzl. Gunnþór-I
unnar Halldórsd. og skrif-
stofu félagsins, Grófin 1. j
Afgreidd i síma 4897. ■— |
HeitiÖ á síysavarnaíélagie.;
I
Það bregst ekkí.
Nýia sendl-
bílastöðin h.F.
hefur afgreíðslu í Bæjax-
bílastöðinni í Aðalsfræti
16. Opið 7.50—22. Á
sunnudögum 10—18. —
Sími 1395.
MihiihngarsnlöM
Barnaspítalasjóðs Hringsins
eru afgreidd í Hannyrða-5
verzl. Refill, Aðalstræti 181
(áður verzl. Aug. Svend-'
sen), í Verzluninni Victor,
Laugavegi 33, Holts-Apó-
tekí, Langholtsvegi 84,
Verzl. Álfabrekku við Suð-
urlandsbraut, og ÞoritetBf-
búð, Snorrabraut 81.
Hús og íhúðir
ní ýmsum stærðum I
bænum, útverfum bæj-
arins og fyrir utaD bæ-
inn til sölu. — Höfum
einnig til sölu jarfflr,
vélbáta, bifreiðir og
verðbréf.
Nýja fasteignasalaK.
Bankastræti 7.
Sími 1518 og kl. 7,30—
8,30 e. h. 81540.
Undrunarsvipur breiddi sig um
andlit hans. IJann horfði
góða stund á þter, það fylgdu
þeim ýmsar skýririgar og Tim
leií ekki upp i'yrr en hánn
hafði lesi’ð' þær allar.
Fullkomin loftræ'stiiigar-
tæki, sjúkrahús, skóli og mu,n
aðarieysingjahæli. Minna mátti
ekki gagn gera. Ætlarðuað
láta byggja þetta allt saman,
Pride.
Pride, svaraði honum ekki
beinlínis. Þess í stað sagði
hann:
Ætlarðu nú að taka upp
þína fyrri vinnu, Tim Cc-
Carthy?
Ekki aldeilis. Það geturðu
hengt þig upp á.