Tíminn - 28.08.1964, Page 8

Tíminn - 28.08.1964, Page 8
rx GUNNAR BERGMANN Danska á flagg- skipi íslenzka flotans Bg hafði ekki siglt með Gull- fossí fyrr en nú, og Reykjavík var tæpast úr augsýn, þegar klukkan kallaði og öllum var boðið í miðdegiskaffið. En sem ég gekk gegnum borðsalinn á fyrsta farrými og heyrði á tal þjónanna, varð ég heldur en ekki hissa og gat varla trúað eigin eyrum, að þeir mæltu all ir á dönsku. Ég hafði orð á þessu víð sessunaut minn við borðið og gat ekki að því gert að spyrja, hvort við hefðum villzt um borð í Drottninguna, því að ég vissi ekki um annað farþegaskip í förum milli ís- lands og útlanda en Dronning Alexandrine, þar sem danska væri ríkjandi tunga um borð, og því áttí ég sízt von á, að nefnd þjóðtunga væri búin að ná yfirhöndinni á öllu þjóna- liðinu á flaggskipi íslenzka flot ans. En þetta var ekki misheyrn og við höfðum ekki farið skipa villt. Á fyrsta plássi á Gullfossi ér yfirþjónninn danskur og hið sáma eru allir hinir þjónarn- ir, að einum undanskildum. Nú þykist ég ekki hafa neitt teljandi ofnæmi fyrir útlend- ingum á íslandi og hef síður en svo á móti því, að annarra þjóða menn hafi þar vinnu- frelsi að vissu marki. Þó kom mér þetta svo spánskt fyrir eyru, að ég notaði fyrsta tæki færi til að grennslast eftir því hjá eínhverjum íslenzkum yf- irmönnum hverju sætti, að tunga okkar gömlu herraþjóð ar væri hafin svo til vegs hjá óskabarni íslands. Og blaða mannsforvitninni var fljótlega svalað með þeim afdráttarlausu og kláru upplýsingum, að það gengi sífellt verr hin seinni ár- in að „halda árunni hreinni", hvað þetta snerti, á íslenzkum skipum, einnig Gullfossi. fs- lenzkir veitíngaþjónar bæru svo miklu meira úr býtum í landi en á skipunum, allt að þrefalt meira. Því væri ekki um annað að gera en leita út fyrir landsteinana eftir vinnu- kraftí til að ganga um beina um borð. Nú væri svo komið, að nálega helmingur þessarar stéttar á Gullfossi væri dansk- ur, langflestir þó á fyrsta plássi. Þegar ég spurði, hvers vegna þeir væru fremur dansk ir en enskir eða enn annarra þjóða menn, var mér svarað því til, að það væri hendinní næst að leita fyrir sér í Kaupmannahöfn, annarri enda- höfn skipsins í sumarsigling- um, en raunar væri ástandið í þessum efnum lítið betra í Danmörku eða Englandl eða enn öðrum löndum, þar sem þjónar hefðu mun betur upp úr sér í landi og sæktust ekki eftir að ráða sig um borð í skipin, nema stuttan tíma, upp á sport fremur en af hagnaðar- von. Aukaþóknunin væri svo miklu drýgri á veitingastöðum í, landi, þjórféð og „prósent-, urnar“ r'uíh b’órð éKkí " ‘fténi& hluti ' áf- því, fæstirf farþégá‘ sinntu því að rétta aukaskild- ing af því það væri ekki skylda og búið að borga fæði og hús- næði fyrir fram. Góður er maturinn á Gull- fossi, ekki eru það neinar ýkj- ur, og það er eftirsjá að margri krásinni, sem búið er að hest- húsa og ekki fyrr staðið upp frá borðum en taka þarf blátt strik til að skila góðgætinu í hafið, að ég ekki tali um þá, sem verður svo brátt, að þeir draga ekkí einu sinni út að borðstokknum, heidur losa sig á miðju gólfi. Skelfing mega það vera svipleg enda- lok dýrindis máltíðar, kannski fjórir gómsætir réttir, fram reiddír tígulega og afhentir með bugti og sveiflum á blóm skreytt borð með uppstrýluðum pentudúkum og kertaijósum. Og svo er allt farið til ónýtis annaðhvort á miðju golfi eða yfir borðstokkinn. En sem bet- ur fer, eru þeir ekki margir, sem mæta að matborðínu og verða svo fljótt viðskila við lostætið, flestir geta hamið þetta og notið sem vera ber. En eitt þjóðerni er þarna öðru matlystugra. Um helmingur far þega á fyrsta plássi eru Þjóð verjar, sem flestir eru að koma úr íslandsferð á vegum ein- hverrar þýzkrar ferðaskrif- stofu. Ekki veit ég hvort rétt sé að segja, að þeir hafi kunn að manna bezt að meta þenn an ágæta mat, en þeir létu ekki sitt eftir liggja og gerðu hon um rösklegri skil en aðrir í þessu ágæta mötuneyti. Ég þyk ist geta tekið allfreklega til matar míns, þegar bezt lætur, en það var nú hreinasta óvera á móts við þetta, svo ég verð að viðurkenna það þegar, ég treysti mér ekki í kappát við Þjóðverja. Landi minn einn, sem sat í kallfæri, býsnaðist mikið yfir þessu, og var ekki nema von, honum lá við að missa kvíslina og hnífinn og öll vopn úr höndum sér, svo furðu sleginn varð hann iðu- lega af að horfa upp á matar tiltektir þýzkaranna. Má merki légt véra, éf það er ekki þjóð areinkenni að Vera svona lang- soltinn sí og æ, ár og daga og alla tíð. Uppi í reyksalnum er setið eftir hverja máltíð og fær þar hver sinn kaffibolla, ósvikið kaffi eins og hverjum íslend ingi hæfir, mér er næst að halda að það sé fyrsta flokks, en ekki annars, þriðja eða fjórða flokks, eins og selt er í búðunum heima, hvað þá að því sé spillt með óæti því, sem kallast kaffibætir, en af jafnóskiljanlegum ástæðum hef ur hjá okkur fengið hið skrítí lega útlenda heiti export, sem enginn útlendingur skilur í þeirri merkingu, ekki frekar en þýðir að biðja um svoköll uð smoking-föt í fataverzlun um á Bretlandseyjum. Það orð þýðir allt annað hjá engilsöx- um. Jæja, sem sagt, kaffið á Gullfossi er afbragð, og svo bregður við, þegar að því kem- ur, að hinir dönskur þénarar ráðast ekki til uppgöngu í reyksalinn, hvort sem það staf ar af því að það sé eitthvað óæðra að skenkja bara í kaffi bolla en bera mat á borð, en það eru ungþjónar íslenzkir, sem ganga um beína í reyksaln um. í útskoti öðrum megin frá salnum er barinn, sem er all- vinsæll staður þegar hann er opinn, en annað útskot er fram lenging af salnum, og þar hanga ný íslenzk abstrakt mál- verk, tvö, eftir þá Jóhannes Jó hannesson og Karl Kvaran. Ann að er ekki listaverkyns inni í salnum, en i framhlið hans, millí dyranna, er geysistórt mál verk af Gullfossi (fossinum en ekki skiþinu) eftir Jón Stefáns son. Ef eitthvað ætti að setja út á viðurgerning við farþega á Gullfossi, þá er það helzt híð sama og gerist á öðrum ís- lenzkum farþegaskipum, að ekki er boðið upp á nein skemmtiatriði. Kannski er betra að sleppa þeim alveg en mata fólk á þeim liðlangan dag ínn, en skaðlaust væri að hafa einhverja dægrastyttingu af því tagi. Þetta fór ég meðal annars að spyrja Kristján skipstjóra Aðalsteinsson um, þegar ég labbaði mig upp í brúna til hans og hann bauð mér inn í skrifstofu sína. Ég spurði hann um málverkin, hvort þeir ætluðu að fara að koma sér upp llstasafni um borð. Ekki kvaðst Kristján halda að það stæði til. Eftir bruna í skipinu í fyrra hefði reyksalurinn ver ið stækkaður og þá keyptar •myndir eftir þessa tvo og hengd ar á veggina. Hins vegar væri myndin eftir Jón Stefánsson miklu eldri í skipinu. Hann sagði mér, að Jón hefði oft ferðazt með Gullfossi, venju- lega tekið sér far heim frá Kaupmannahöfn í júní til að dveljast á fslandi til hausts. Síð ustu æviárin var Jón orðinn mjög fótaveikur og átti erfitt um gang, og Kristján minntist þess, að Jón hefði verið með á skipinu þegar verkfall stóð yfir heima og bönnuð vinna við skípið, þegar það kom til Reykjavíkur, aðeins leyft að leggjast upp að til að farþegar gætu gengið á land. Þá hefði Jón málari verið ófær til gangs og vinir hans hefðu kom ið um borð til að bera hann í land. Ég spurði Kristján hvort Halldór Laxness væri ekki tíð- ur farþegi á Gullfossi. Jú, hann hélt nú það. Halldór ferðaðist ekki öðruvísi landa milli en sjóleiðis og nærri alltaf með Gullfossi. Líklega hefði enginn farþegi ferðazt oftar með Gull fossí en Halldór, hann þekkti skipið eins og hver annar heimamaður þar, og Kristján kvaðst oft spyrja Halldór um það, hvernig bezt hentaði eitt og annað farþegum í hag. Hall dór bæri Gullfossi vel söguna, þætti aðbúnaður eins og bezt væri á kosið í mörgum fyrsta flokks hótelum, fyrir utan það. að þar væri svo miklu ódýrara að búa en á hótelunum í Lond on og Höfn og París. Annar sá farþegi, sem einna tíðastur gestur væri á Gullfossi í milli landasiglingum, væri Ásbjörn Ólafsson heildsali, sagði Krist- ján, sem hefur verið á Gull- fossi síðan 1952, en skípstjóri hefur hann verið þar síðan 1958, mjög vel látinn, eftir því sem ég komst næst. Áður en stefnan er tekin suður frá íslandi áleiðis út, er siglt nærri Surtsey, og að þessu sinni sendi Surtur farþegum síðustu kveðjuna frá Islandi með því að þeysa nokkrum eld spýjum upp í næturhimininn. Hversu hrifnii sem innfæddir eða útlendir hafa orðið af einu eða öðru inni á meginlandi ís- lands, þá nær hrifning þeirra af furðum Íslands hámarkí við þá ógleymanlegu sýn að sjá Surt að verki, einkum eftir að rökkrið er sigið yfir. Farþegarnir i þessari ferð eru af nokkrum þjóðernum nærri helmingur íslendingar Framhald á síðu iJ J 8 T I M I N N, föstudaginn 28. ágúst 1964

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.