Tíminn - 28.08.1964, Qupperneq 16

Tíminn - 28.08.1964, Qupperneq 16
Föstudagur 28. ágúst 1964. 194. tbl. 48. árg. RÓSTUR Á SEYÐISFIRDl IH Seyðisfirði, 27. ágúst. Heldur hefur verið óróasamt á Seyðisfirði í brælunni að undan- förnu. Bæði norsk og íslen«k skip hafa legið inni á firðwium, og kauptún'ið hefur verið krökkt af sjómönnum, einkum Norðmönn- um. Svo mikil róstur var í bæn- um , að vopnað lögreglulið af Hér eru þær að pússa einn splunkunýjan Vauxhali. Frá vinstri, Munda, SÍgrún og Margrét. (Tlmam' KJ) Þær vinna á bílaverkstæði KJ-Reykjavík 27. ágúst. Þau eru ekki mörg bílaverk stæðin hér á landi, sem geta státað af, því að hafa stúlkur í þjónustu sinni, eins og Bfla verkstæðið á Kópavogshálsi get ur gert. Þar eru nú starfandi þrjár stúlkur á verkstæðinu, og líkar vistin vel. Og það sem meira er, forráðamenn verk- stæðisins eru hæstánægðir með stúlkurnar, en þær vinna við að bóna bfla og búa þá undir sprautun. Eyjólfur verkstjóri tjáði okkur að sér hefði komið til hugar að fá stúlkur á vérkstæð ið fyrir mörgum árum síðan. Svo í vor þegar manneklan var sem mest, setti hann auglýs- ingu í blað og ekki stóð á um sækjendum um störf á verk- stæðinu. Hann réði 6 stúlkur í upphafi, og þrjár af þeim til stutts tíma. Reynsluna af hin um þrem kvað Eyjólfur góða, og stúlkurnar hefðu marga kosti umfram karlmenn í þess um störfum. Stúlkurnar þrjár, Munda Jó hannsdóttir, Margrét Hafliða- dóttir og Sigríður Haraldsdótt ir voru í óða önn að bóna og hreinsa nýjan Vauxhall þegar okkur bar að garði og gáfum okkur á tal við þær. — Hvort finnst ykkur nú meira gaman að pússa bíla eða borð og stóla? — Pússa bíla maður, var svarað í einu hljóði. — Og þið eruð auðvitað komnar með „bíladellu"? — Tvær okkar hafa lært á bíl í sumar, en það er ekki þar með sagt að við séum með neina „bíladellu“. — En hverjir eru uppáhalds bílarnir ykkar? — Chevrolettinn, hann er lang „sætastur“ svara þær ein um rómi. — Hvernig líkar ykkur svo vinnan? — Alveg ágætlega, við vinn um frá átta á morgnana til Eramh a Ols norska eftirlitsskipinu var til staðar, bæði dag og nótt. Áfeng- issölunni á Seyðisfirði var lokað fyrir hálfum máumði og hefur ekki verið opnuð enn, en sprútt- salar hafa lifað góðu lífi á með- an og gengur brennivínsflaskan á 6—900 krónur. í dag héldu flest skipin úr höfn, og eru bæjar- búar hinir ánægðustu, þar sem þeim hefur ekki orðið mikið svefnsamt að undanföwiu, böll hafa verið mjög tíð og kvik- myndasýningar 4 sinnum á dag. ENN FRESTUN I MÁLI ÁGÚSTS KJ-Reykjavík 27. ágúst. I morgun kl. 10 var settur rétt- ur á skrifstofu yfirborgarfógetans í Reykjavík, og tekið fyrir mál Ágústs Sigurðssonar. Verjandi lög fræðingsins Jóhannesar Lárusson ar lagði fram greinargerð, en frekari aðgerðum var frestað þar til á fimmtudag í næstu viku. í réttinum voru mættir yfirborg arfógeti Kristján Kristjánsson með skrifara sínum Jóni B. Jóns syni, verjandi lögfræðingsins Jó- hannesar Lárussonar, Kristján Eiríksson hrl., Ágúst Sigurðsson verkamaður og Bergur Sigur- björnsson aðstoðarmaður hans. Kristján Eiríksson verjandi Jó- hannesar lagði fram greinargerð gegn rökstuddri greinargerð Ágústs er lögð var fram fyrir viku síðan á uppboðsstað. Við framlagnínguna spurði verjandinn 1600 TUNNUR UT AF JÖKLI EJ-Reykjavík, 27. ágúst. Höfrungur in hefur aftur veitt sfld í Jökuldjúpinu. f nótt fékk hann þar 900 tunnur, en hann hafði áður fetngið þar 700 tunnur. Höfrungur III landaði í dag tæp- um 600 turnium á Akranesi, en fór með 300 tunnur til Reykjavíkur, og tók Bæjarútgerðin á móti þeim afla. Ekkert símasamband við NA-land KH-Reykjavík, 27. ágúst. | í gærkvöldi, að sæsímastrengur- Símasambandslaust hefur verið inn yfir þveran Eyjafjörð slitnaði. að kalla við Norðausturland síðan Er unnið að því að setja niður 90 tonn af járni í brimbrjétinn KRJÚLBolungarvík, 27. ágúst. Hafnargerðinni er nú að Ijúka hér að þessu sinni, og búið er að steypa þann hluta brimbrjótsins, sem áformáð var að gera í ár. Gert var ráð fyrír að unnið yrði fyrir 3,5 til 4 milljónir í sumar. Sem dæmi um styrkleika brim- brjótsins má geta þess, að 90 tonn af járnþili fóru til þess að klæða það, sem eftir var frá fyrra verki fyrir enda brimbrjótsins, og nokkuð upp með honum að utan- verðu. Að þessu loknu var fyllt upp með gljóti og möl, þar á milli, og járnbentar grindur voru lagð- ar ofan á þetta og síðan steypt yfir. 1 og Um uppsetningu og gerð járn- netsins annaðist Vélsmiðja Bol- ungarvíkur, og var unnið að því á þeirra vegum á meðan birta leyfði og er því verki nú lokið. Einnig er lokið við að steypa yfir dekk brimbrjótsins, sem fyrir var tek- inn í sumar. bráðbirgðastreng, og er búizt v’ið, áð hann verði tilbúinn til notk- unar í fyrsta lagi annað kvöld. Óhappið varð um kl. hálf átta í gærkvöldi, rétt eftir að Laugar- foss lagði frá bryggju á Akur- eyri, og er talið, að skipið hafi slitið strenginn, sem liggur frá Oddeyrartanga þvert yfir fjörð- inn. Ólafur Tómasson, verkfræð- ingur hjá símanum, sagði blað- inu. að strax hefði verið lagt af stað úr Reykjavík með bráða- birgðastreng, sem nú væri verið að leggja, og ef verkið gengi vel, yrðu flest samböndin komin seint annað kvöld. Slitni strengurinn verður svo tekinn upp í næsta mánuði og gert við hann. Sæsímastrengurirm er 12 línu istrengur með fjölsímasamböndum ivið Húsavík, Raufarhöfn og ÍEgilsstaði, en þarna kemur einnig inn í radíósamband frá stöðinni á Vaðlaheiði til Siglufjarðar. Má heita, að það sé algjörlega síma- sambandslaust við Norðaustur- land, þar sem aðeins eru tvö sam- bönd við allt þetta svæði. um númer það er greinargerðin ætti að vera Eitthvað var það ekki á hreinu, nema hvað yfirborgar Framh. á 15. síðu Sumarsanilcomur Fram- sóknarmanna á Akureyri og í Eyiafirói. FREYVANGUR Sumarsamkoma Framsóknar- manna í Freyvangi verður haldire laugardaginn 5. september kl. 20.30. Ræðumenn verða Eysteinn Jónsson og Hjörtur Eldjárn. Smárakvarlettinn og Jón Gunn- laugsson skemmta. Póló og Erla leika og syrogja fyrir dansi. Sæta- ferðir verða frá Ferðaskrifstof- unni, Túngötu 1, Akureyri. Eysteinn ÁRSKÓGUR Hjörtur Sumarsamkoma Framsóknar- manna í Árskógi verður haldin sunnud. 6. sept- ember kl. 20.30. Ræðumenn verða Eysteinn Jónsson og Ingvar Gísla,- Ingvar son. Smárakvart- ettinn og Jón Gunnlaugsson skemmta. Póló og Erla leika og syngja fyrir dansinum. Kjörhúðarbíll / Kópavogi I gær tók KRON í notkun Kjörbúðarbíl í Kópavogi, og er það sá fyrsti sem ber merki félagsins. Þessi bíll er sérstak- lega yfirbyggður og innréttað- ur með tilliti til kjörbúðar- vagns, og í honum eru allar al- gengar vörur sem fást í kjör- búðum. Vagninn mun verða staðscttur i Kópavogi, og fara þar á milli staða á daginn. Sér stök stæði hefur KRON látið útbúa handa vagninum, og eru þau á þeim stöðum þar sem langt er í verzlanir. Ekki er að efa að húsmæður í Kópa- vogi munu kunna vel að not- færa sér þá þjónustu sem KRON býður hér upp á. Þrír aðilar eiga nú kjörbúðarvagna hér á landi, en Kaupfélag Hafnfirðinga innleiddi hingað þessa nýjung í verzlunarhátt um. Hér á myndinni er af greiðslufólk í nýja vagninum, Guðmundur Jónsson og Hadda Ilalldórsdóttir. (Tímamynd-K.I)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.