Tíminn - 02.09.1964, Page 6
I
/
: ;
.
iÍBB
FRÉTTAMYNDIR
MYNDIRNAR hér á síSunni gefa góSa hugmynd um, hvernig ástand-
i8 var viSa í S.-Vietnam, þegar 6eir8irnar voru hva8 mestar. — Á
þrídálka myndinni efst sést, hvar Molotov-kokteill hefur sprunglS
í miSri Saigon, en nær berjast lögreglumenn vi8 stúdenta, Á þrí-
dálka myndinnl neSst sjást óelrSaseggir á flótta, eftir mlkla
bardaga milli kaþólikka og Búddatrúarmanna í borginni Na Nang.
Eindálka myndin er af blóSugum stúdent, sem heldur á mynd af
Diem, fyrrverandi forseta. Á efstu tvídálka myndinnl sjást her-
menn gera aS sárum ungs stúdents, sem særzt hefur | átökunum,
og næst fyrir neSán er særS kona borin brott af blóSvellinum í
Saigon. NeSst ér svlpmynd, sem víSa mátti sjá: Lögreglumenn aS
belta kylfum og vatnsslöngum gegn óeirSaseggjum.
FÖSTUDAGINN, 21. ágúst
bárust fréttir af því, aS stúd-
entar í Saigon liefðu farið í
hópgöngu að bústað hins ný-
kjörna forseta landsins, Khanh,
hershöfðingja, og mótmælt því,
sem þeir kölluðu hernaðarein-
ræði. Var þá raunverulega ris-
in mótmælaaldan, sem orsak-
aði margra daga blóðugar óeirð
ir í öllum stærstu borgum lands
ins og lögðust þar á eitt stúd-
entar og Búddatrúarmenn í
mótmælum gegn stjórninni. —
Þriðjudaginn, 25. ágúst neydd-
ist Khanh tii að segja af sér,
en degi síðar bárust svo fregnir
af nýju blóðbaði, nú milli ka-
þólskra manna og Búddatrúar-
manna. Kostuðu óeirðir þessar
fjölda mannslífa og margir
særðust, en fjöldi bygginga í
mörgum borgum eyðilagðar. —
Sama dag, þann 26. ágúst var
þrem herforingjum falið að
taka við stjórn landsins til
bráðabirgða, þar á meðal
Khanh, en trúarstríðið hélt á-
fram og var lýst yfir hernaðar-
ástandi í Saigon þann 28. ágúst.
Nú er loks kominn friður á og
hafa stúdentar fallizt á að gefa
þHggja manna stjórninni tíma
til að reyna að koma festu á
stjórn landsins, undir forystu
Khanh, hvort sem það nú tekst.
I
T f M I N N, miðvikudaginn 2. september 1964
6