Tíminn - 13.09.1964, Síða 2

Tíminn - 13.09.1964, Síða 2
Laugardagur, 12. sept. NTB-Helsingfors. — Mynduð hefur verið ný stjórn í Finn- landi undir forsæti Jóhannesar Virolainen úr Agraflokknum, finnska bændaflokkum. Ráð herrar eru 15 og hefur Agra- flokkurinn 7 þeirra, Sameinaði flokkurinn 3, en finnski og sænski þjóðarflokkarnir 2 hvor. Tekur þessi stjórn við af embættismannastjórninni, sem farið hefur með völd síð- an í desember í fyrra. Meirihluti hinna fjögurra borgarflokka í þinginu er 113 þingsæti á móti 81. Finnsk blöð ræða í dag um hina nýju stjórn og segir t.d. blaðið Helsingin Sanomat, að veikleiki stjórnarinnar sé sá, að Agraflokkurinn hafi ákvörð- unarvaldið í stjórninni á sama hátt og í fyrri stjórn Karja- lainen. Það, sem mesta athygli vek- ur, er, að sjö ný nöfn eru á ráðherralistanum og að maður úr finnska þjóðarflokknum hef- ur með höndum hið vanþakk- láta starf fjármálaráðherra. NTB Saigon. — Utanríkisráðu- neyti S.-Vietnam skýrði frá því 1 dag', að utanríkisráðherrann, Phan Huy Quat hefði sent for- seta Öryggisráðs S.þ. og fram- kvæmdastjóra S.þ., U Thant, bréf, þar sem mótmælt er, að vopnaðar hersveitir frá Kam- bodju hefðu farið inn yfir landamæri Vietnam ‘ hinn 5. september. Segir í bréfinu, að þetta sc í fyrsta sinn, sem stórskotalið og flugher frá Kambodju hafi farið inn yfir landamæri S. y Vietnam á sama tíma og her- I sveitir Viet-cong hófu árás á hersveitir S.-Vietnam. í gær | kom til mikilla bardaga milli 1 herja Viet-cong og stjórnar- | herjanna í S.-Vietnam og féllu g 32 úr stjórnarliðinu, en 41 úr liði kommúnista. Fjöldi manna særðist. NTB-Singapore.. — í gær kon til mikilla óeirða í Singapore, og í morgun logaði allt í átök- um í kinverska hluta borgar- innar. Fjölmennt lögreglulið var kallað á vettvang og varð það að beita táragassprengjum til að dreifa mannfjöldanum, sem hélt mótmælafundi þvert ofan í fyrirskipanir yfirvalda Hersveitir vopnaðar vélbyss um, lokuðu öllum vegum inn í kinverska hlutann, en herþyrl ur sveimuðu yfir, viðbúnar að grípa inn í. ef tii alvarlegra átaka kæmi. Útvarpið í Singapore hefur hvatt fólk í borginni til að halda sig innan dyra, meðan mesta ólgan varir ú borginni, og er búizt við, að útgöngu- bann verði fyrirskipað seinna í dag. ÞÁTTUR KIRKJUNNAR „AIIt eins og blómstriB eina" Haustblærinn hefur andað á blóm og grös. Sú stemming, sem gagntók skáldið, sem orti um „dauðans óvissan tíma“ og blómstrið eina sem „á snöggu augabragði afskorið verður fljótt“ og „lit og blöð niður lagði“, læðist alls staðar inn í vitundina. Haustblærinn og dauðans blær, djúpur og vær verða eitt í hugsun og tilfinningu þeirra, sem á annað borð nenna að hugsa. „í dag eru allir svanir í sárum sumarið liðið og komið haust“. Nei, sumarið er ekki enn þá liðið, en haustið kallar. Þús- undlitir þess birta dýrð lífs og dauða í senn. Er ekki septem- ber auðugastur að fegurð allra mánuða árs á íslandi, og ilm- urinn frá bliknandi gróðri ger ir hvert kvöld að bænastund, hvern stað að helgidómi með „mystik“ og dul, sem sannar að sjálfur Guð gengur hjá í kvöldblænum. „Standi ég haustkvöld á há- fjallabrún meðan hjartað til upphæða snýr, lesi ég dagroðans síðustu dá- semdarrún, ó, hve dauðinn mér sýnist þá hýr“. Dauðinn, er hann ekki ógn- valdur mannslífs og mann- kyns? Er hann ekki óvínur alls, sem lifir? Það finnst manni sannarlega oft. Það nær engin rómantík og óskhyggja að fegra hann í augum þess, sem „syngur Guði sitt sætasta lag“ og biður • „að lofa henni enn þá að lifa einn dag og leika sér“ henni eða honum, sem eru að deyja svo ung og fögur eins og fíflinn eða morg unfrúín, sem leyfðu sér að springa út við brosgeisla sólar á frostköldum september- morgni, fæðast og brosa að- eins til að blikna og deyja. En er samt ekki dauði og líf eitt? Er eða væri lífið nokk uð og nokkurs virði án dauð- ans? Er hann ekki samkvæmt kristinni lífsskoðun aðeins fæðing til æðra ljóss, inn á hærra stig ódauðleikans? Er ekki dauðinn aðeins hið stærsta og átakaþrungnasta, hið helgasta, sem gefur lífínu gildi, og þá um leið gjöf, dýr- mæt gjöf úr náðarhönd þess kraftar, sem við nefnum Guð og uppsprettu lífsins? Gætum við hugsað okkur ljós án myrk urs, líf án dauða? Þetta eru margar spurning- ar, sem hver verður að svara eftir sinni lífsskoðun, sinni reynslu og hugsun. En eitt er víst þær og svörin við þeim gilda sízt handa þeim, sem standa í sporum ekkjunnar við hlið Nain borgar. Þar ríkir og ræður sorgin ein. Og huggun er ekki annað en vissan um líf ástvinarins, ef ekki hér til heilsu og starfs að nýju, eins og henni hlotnaðist, þegar drengurinn vaknaði af dauða dvalanum, þá í öðrum heimi, veröld þar sem aftur sé unnt að finnast. Himinvissan, vissan um MBMMBBCMIMaMW framhaldslíf hefur líka alltaf verið eit taf aðalsmerkjum krístinnar lífsskoðunar, krist- innar trúar. „Guð er ekki Guð dauðra heldur lifenda“, segir Kristur sjálfur, og strikar þar með yfir allar síðari kenning- ar um grafarsvefn. En svörin við spurningun- um, sem eru í þessari hugleið- ingu gætu orðið auðveldari þein\ sem hafa í huga þessa gömlu helgisögn. Einu sinni komu menn fram fyrir Guð með mikla bæn: „Drottinn, tak þú dauðann brott af jörðinni. Við erum sviptir ástvinum á eínu andar- taki. Sorg og harmur yfir hermdarverkum dauðans nísta að innstu hjartarótum. Misk- unna oss, Drottinn Guð“? Og Drottinn bænheyrði börn sín. Allir drógu andann léttara. Það var þungri byrði létt. En smámsaman þvarr þessi míkla gleði, sem gripið hafði hjörtu manna í fyrstu. Sjúklingar kvörtuðu yfir því, að einginn nálgaðist nú rekkju þeirra framar með balsam svefns og friðar, sem svæfði hverja þraut. Gamla fólkið var stórhneyksl að á æskulýðnum, sem nú gekk óhrætt á alls konar glæpaslóð- um. Og unga fólkið var brjálað yfir körlum og kerlingum, sem fylltu gjörsamlega veröldina og stóðu hvarvetna í vegi fyrir framförum þess og frama. Það væri raunar hvergi rúm fyrir eftir komendur og niðja. Of- fjölgun fólks á jörðinni varð ægilegt vandamál hvernig sem verðlaunum var útbýtt til piparmeyja og ógiftra. Léttúðaskríll og glæpalýður gaf sér nú lausari taum en nokkru sinni fyrr. Ekkert var að óttast .Starfsgleði og starfs- löngun hvarf mjög fljótlega. Allir höfðu tímann fyir sér. Ekkert rak á eftir til átaks og dáða. Tilveran fylltist af ónytj ungum og iðjuleysingjum. Kærleikur og ástúð hvarf fyr ir algjörri eigingirni. Enginn þekkti sorg og söknuð framar né þær kenndir, sem af þeim skópust. Mannlíf jarðar varð laust við sorgina, en þekkti þá ekki heldur gleðina. Mennirn ir komust undrafljótt á þrep dýrsins, engin þrá, engin gleði, engin átök. Þungur dofi kæru- leysis og hugsunarleysis lamaði hverja sál, lán eins og mara yf- ir öllu mannlífi jarðar, eftir að dauðinn hafði lagt niður starf sítt. Og ekki leið á löngu, áður en nefnd var send til Guðs með eindregna og ákveðna bæn. „Ó, Drottinn, gef þú oss dauðann aftur.“ En samt við- urkennir ekki kristin trú dauð ann sem endi, heldur aðeins þáttaskil í lífinu sjálfu, eilífð- inni. Þannig verður blómstrið eina, sem blikna á september nótt, en rís að nýju á maí- morgni að tákni þeirrar gjaf- ar, sem dauðinn er í mildum blæ haustkvöldsins með ilm ei- lífðar að vitum okkar. Rvík, 7.9. 1964. Árelíus Níelsson. Árás á saklaust félk í sæiuhúsi Það eru orðnar háværar raddir hér í okkar litla þjóðfélagi um vaxandi skrílmennsku. Árásir manna á saklaust fólk innan og utan veggja í byggð og óbyggð. Það virðist svo að uppvaxandi kynslóðir reyni vísvitandi að forð ast allt, sem heitir háttvísi. Ég fullyrði að það, sem nú á sér stað með framkomu manna, hefði ekki hvarflað að fólki fyrir 25—30 árum. En hvers vegna vex þessi ómenning svo ört? Fyrst og fremst held ég, að það eigi ræt- ur sínar að rekja til þeirra hlífð- ar, sem almenningur sýnir þessum lýð og eigum við þá öll sökina. Það fyrnist fljótt sem við lesum í blöðum um að ráðizt hafi verið á þennan og hinn og framið alls- konar ódæði á saklausu fólki. .Nöfn og myndir af slíkum mönn- um eru aftur á móti stimpill, sem seint máist af þeim. Almenningur krefst þess, að birt séu nöfn og myndir, en hverjir halda þá hlífi skildi yfir þessum lýð? Nei, góðir borgarar! Látið ekki lengur dynja á ykkur saurkast í orði og verki án þess að bera hönd fyrir höfuð. Þó að ég skrifi þessa grein til birtingar í blöðunum, veit ég fyr- irfram, að nöfn þeirra, sem eiga í hlut, verða ekki birt, ef að vanda lætur. En þá verð ég að skrifa undir rós, sem þýðir að saklausir liggja undir sökinni. Mennirnír, sem urðu valdir að því, að ég tek mér penna í hönd, eru allir úr Vík í Mýrdal og höf- um við, sem urðum fyrir árás þeirra, sent nákvæma skýrslu um atburðinn til sýslumanns Skaftfell- inga hr. Einars Oddssonar í Vík, þar sem tekið er fram, að tilefni bréfsins er það, að okkur finnst takmörk fyrir því, hvernig fólk má haga sér gagnvart öðrum mönnum í siðmenntuðu þjóðfél- agi. Það vill svo til, að ég, sem skrifa þetta, hef tugi ára reynzlu að baki um sambúð manna í sæluhúsum og undantekningar- laust hefur fólk sýnt háttvísi og hjálpfýsi í hvívetna, enda munu allir sannir ferðamenn líta á sælu hús, sem friðhelgan stað Það er því furðulegur dólgsháttur, að áð- ast á fólk í sæluhúsum, þar sem ekkert er hægt að flýja undan árásarmönnum. Laugardaginn 5. sept. s.l. vor- um við, Máni Sigurjónsson, organ leikari, Magnús Bl. Jóhannsson, tónskáld og undirrituð, sem öll störfum í Tónlistardeild Ríkisút- varpsins, stödd í sæluhúsi Ferða- félags íslands í Landmannalaug- um ásamt starfsfólki Veiðar'færa- verzlunarinnar „Geysír" í Reykja- vík og höfðum öll leyfi frá frk. Helgu Teitsdóttur, skrifstofu- stjóra, til að dvelja í húsinu. Þar sem löng leið var fyrir höndum daginn eftir, sunnud. 6. sept. kom okkur saman um að ganga til náða kl. 22:00 og vakna kl. 7 að morgni. Tvær stofur eru í húsinu og sváfum við útvarpsfólk í ann- arrí, en Geysisfólk í hinni. Það þarf ekki að lýsa þeim menningar brag sem einkennir sæluhús F.í. og verður seiht metið það óhemju starf, sem bak við liggur. Það er að ganga vel um þau og haga sér þar, eins og siðmenntaðir menn. Þegar við vorum að koma okkur í háttinn, var bifreið rennt í hlað, nr Z—244 og með henni þrír umræddir piltar úr Vík. Þeir sátu í bílnum og höfðu einhver orða- skifti við Geysismenn í mesta bróðerni. Að nálægt hálfum tíma liðnum kom einn Víkurpilta ínn til okkar og spyr: „Megum við sofa hérna inni í nótt“? „Já, alveg sjálfsagt“, svöruðum við. Enn leið stund, sem svarar hálfum tíma, en þá komu þeir allir inn og skriðu í „kojur". Hófu þeir þá upp rödd sína og sungu við raust milli þess, sem þeir raus uðu um miður uppbyggilegt sam- ræðuefni með þar tilheyrandi orð bragði. Gekk svo lengi vel, þar til Máni reis upp við dogg og sagði: „Ef ykkur langar til að syngja, viljið þið þá gera það annarsstað- ar en hér“. Við þessi orð Mána, æstust þeir um helming, hækk- uðu sönginn og byrjuðu svo ræðu sína yfir okkur þrem, með þeim sóðalegasta og viðbjóðsleg- asta munnsöfnuði, sem íslenzk tunga býr yfir, blótsyrðum, klámi og persónulegum svívirðingum, sem ekki er hægt að láta á prent, en sem fyrr er sagt, höfum við sent sýslumanni orðrétta skýrslu um atburðinn. Gekk svo úm langa hríð, þar til mín þolinmæði brast. Ég reis úr rekkju og skipaði þeim að fara út, nema að þeir gætu sýnt skriflegt leyfi um að mega dvelja í húsinu. Skriðu þeir þá úr „koj- unum“ og létu dólgslega mjög, sem og þeir létu rigna yfir mig ókvæðisorðum. Þá fór ég og vakti upp Geysismenn okkur til hjálp- ar, og tókst bílstjóranum, Sigur- birni Bjarnasyni að koma þeim út úr húsínu. En sú sæla stóð ekki lengi, því eftir skamma stund, komu þeir inn í eldhús og töluðu mikið um þá vanvirðu, sem þeim, Skaftfellingum! væri sýnd, með því að reka þá út. Síðan skriðu þeir í „kojur" aftur og tóku saman ráð sín um það, hvernig þeir ættu að koma fram hefndum. Þau orð eru heldur ekki setjandi á prent. Vitni að þeim, auk okkar eru fyrrnefndur bílstjóri Sigur- björn og Guðmundur Harðarson úr hópi Geysismana*. Klukkan 5 voru þeir að Framhald á síðu 13. 2 T í M I N N, sunnudaglnn 13. september 1964

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.