Tíminn - 02.10.1964, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGtiR 1. okt.
NTB-Peking. — Rúm hálf
miijóiv manna tók í dag þátt
í hátíðahöldunum í Peking,
vegna 15 ára afmælis kín-
verska al])ýðulvðveldisins. Við
: taddir liátíðahöldin voru einn
ig 3000 erlendir gestir frá rúm
lega 70 Iöndum. Helztu lciðtog
ar kínverska alþýðulýðveldis-
ins, ásamt hinum erlcndu gest-
úm, virtu fyrir sér á Tienan--
men-tnrgihu, tveggja tíma
glæsilega hátíðasýningu, ekki
var minnst á kjarnorkusprengj
una, sem allur heimurinn hjóst
við, að sprenffd mundi verða
á þessitm hátíðisdegi.
NTB-Valpariso, 1. okt. •—
De Gaulle kcrn í dag til Chile
og var ákaft fagnað af íbúun-
um. Hann mun öveljast í Chile
í tvo daga, en það er sjötta rík-
ið, sem hann heimsækir á
ferð sinni um Suður-Ameríku.
NTB-Reuter. Nýjit Delhi. —
Forsætisráðherra Tndlands, Lal
Bahadur Shastri, skýrði frá því
í Nýju Dclhi í dag, að hann
mundi hitta forseta Pakistans,
Gyub Khan-, 13. október n. k.
er hann verður á heimleið frá
ráðstefnu óháðra ríkja í Kairo.
NTB-New York. — Frá og
með miðnætti s.l. nótt eru 60
þústtnd amerískir hafnarverka-
menn <í verkfa’ili, Johnson for-
setl var búinn að banna þetta
vérkfáli á forsendum Taft-
ílartley-iaganna, en því var
ekki sinnt. Fjö.’dinn allur af-
skrifstofufólki ".f hafnarskrif-
stofunum hefur í dag, fermt og
affermt skip, sem nauðsynlega
hafa þurft að komast leiðar
sinnar.
NTB-Stokkhólmi, 1. okt. —
Við talningu mankjörstaðaat-
kvæða í Svíþjóð kom í ljós,
að kommúnistar höfðu bætt
við sig bremur þingmönnum,
og social-demókratar, sem áð-
ur höfðu unnið þ:já menn, töp
)tðu nú fjórurn, og hafa því
tapað einn sæti. Ékki munu
þcssar niðursföður breyta
stjórnmálaástand'nu í landinu.
NTB-Wasihngton. — Þrír
hvítir menn hafa verið hand-
teknir í Missi.-sippi í sam-
handi við sprengjuárás, sem
gerð var á Negraheimili í borg
inni Movomb fyrir skömmu.
NTB-Kairo. — Utanríkisráð
herrar 44 óháðra ríkja, þ. e.
ríkja, sem ekki eru í neinum
'•ílo’asamböndnm. hittust í dag
í Kairo, og þar munu þeir
dvelja í fimm daga og ræða
ýmis vandamál.
NTB-Limbe. — Fyrrverandi
utanríkisráðherrn í stjórn Hast
ings Banda, hefur nú samkv.
nýjum lögum, verið bannað að
fara lengra en sex km. út. fyr-
ir heimili sitt. Kennslumálaráð
herrann hefur nýlega sagt sig
úr stjórninni og hefur gagn-
rýnt Banda opinberlega.
NTB-Moskva. — Ákveðið
hefur verið, að Indónesía kaupi
meiri vopn af Snvétríkjunum.
en Sukarno, Indónesíuforseti.
er nýkominn helm úr tveggja
daga heimsókn i Moskvu.
ÁTTA ÞÚS EINTAKA BÆKUNGUR
GEGN AFHENDINGU HANDRITANNA
Aðils, Kaupmannahöfn, 1. okt.
Handritamálið er í dag aftur
efnii í forsíðufrétt hjá Berlingske
Aftenavis. f fréttinni scgir, að af-
hendiatg handritanna mundi verða
voðaleg mistök, en svo stendur
ofðrétt: Nefnd sú, sem mynduð
hefur verið með mestu leynd og
unnið að því í sumar, að handritin
verði framvegis varðveitt í Árna-
safni í Kaupmamnahöfn, hefur í
dag gert störf sín opinber. Hún
hcfur sent frá sér bækling í 8000
eintökum, en í honum er skýrt
frá gangi handritamálsins í stuttu
máli.
f bæklingnum kemur í ljós, að
nefndin telur það óhætanlegan
HAUSTSILDAR-
VERÐIÐ KOMIÐ
Blaðinu barst í dag svohljóðandi
fréttatilkynning frá Verðlagsráði
Sjávarútvegsins.
„Verðlagsráð sjávarútvegsins
hefur að undanförnu unnið að
ákvörðun lágmarksverðs á fersk-
síld veiddri við Suður- og Vest-
urland, tímabilið 1. október 1964
til 28. febrúar 1965. Á fundí ráðs-
ins í nótt, náðist samkomulag um
fersksíldarverðin sem hér segir:
Síld til heilfrystingar, söltunar og
flökunar pr. kg. kr. 1.70
Verð þetta miðast við það
magn, er fer til vinnslu. Vinnslu
magn telst innvegin síld, að frá
dregnu því magni er vinnslustöðv
arnar skila í síldarverksmiðjur.
Vinnslustöðvarnar skulu skila úr-
gangssíld í verksmiðjur, seljend
um að kostnaðarlausu, enda fái
seljendur hið auglýsta brapðslusíld
arverð.
Þar sem ekki verður við komið
að halda afla báta aðskildum í
síldarmóttöku, skal sýnishorn gilda
sem grundvöllur fyrir hlutfalli
milli síldar til framangreindrar
vinnslu og síldar til bræðslu milli
báta ínnbyrðis.
Síld ísvarin til útflutnings í skip
og síl.d í niðursuðuverksmiðjur |
pr. kg. kr. 1.55
Verð þetta miðast við innvegið
magn, þ. e. síldina upp til hópa.
Síld til vinnslu í verksmiðju
pr. kg kr. 1.02
Síld til skepnufóðurs
pr. kg. kr. 1.25
Verðin eru öll miðuð við, að
seljandí skili sildinni á flutnings-
tæki við hlið veiðiskips.
Seljandi skal skila síld til
H bræðslu í verksmiðjuþró og greiði
kaupandi kr. 0.03 pr. kg. í flutn-
ingsgjald frá skipshlið.
Auk framangreindra lágmarks-
verða hefur ráðið ákveðið verð
á smásíld (5—10) stjk. í kg.)
Framh á 15 síðu
skaða, ef handritin verða afhent,
og hún er smeyk um að ákvörpun
í þessu máli verði tekin í flýti og
án góðrar samvinnu á milli dóms-
valdsins, vísindamanna og lög-
fræðinga. í bæklingnum segir, að
það verði að gera þá lágmarks-
kröfu til hins nýja þjóðþings, að
það taki ekki ákvörðun um málið,
án þess að taka tillit til þarfa vís-
indanna og athugasemda sérfræð-
inga.
Meðlimir nefndarinnar eru: dr.
phil. Jóhannes Bröndum-Nielsen,
formaður, málaflutningsmaðurinn
H. G. Carlsen, dr. phil. Erik Dal
bókavörður, ritstjóri Konunglega
bókasafnsins dr. phil. Arild Hvidt-
feldt, Erik Jörgensen stud. mag.,
bókasafnsstjórinn Erik Jersgaard,
borgarhókavörðurinn, Kr. Lind-
bo-Larsen. Háskólayfirkennarinn
Agneta Loth ritstjórinn Herlui
Nielsen, Erling Ladewig Peter
sen dr. phil. aðstoðarmaður, og dr.
phil. háskólakennari Niels Skyum-
Nielsen.
Frá afhendingu Beufort gúmbjörgunarbátslns, er fór fram í Grandaverl h.f. Frá vlnstrl, Henry Hálfdánarson,
Lárus Þorsteinsson, Ásgeir Óskarsson hjá Grandaveri, og Jón GuSbjartsson. (Tlmamynd, KJ).
Sófu
til kennslu
KJ-Reykjavík, 1. okt.
í gær afhenti Jón Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri Heildverzlunar
Kristjáns Ó. Skagfjörð, Sfysavarna
félagi ísiands að gjöf gúm-
björgunarbát af BEAUFORT gerð
til notkunar við kennslu um með
ferð gúmbjörgunarbáta á námskeið
um Siysavarnafélagsins.
Gjöfinni veittu móttöku þeír
Henry Hálfdánarson, skrifstofu-
stjóri Slysavarnafélagsins og Lár
us Þorsteinsson, erindreki hjá
félaginu. Bátur þessi er allur hinn
vandaðasti að gerð og búnaði.
Hann er ekki hringlaga eins og
flestir gúmbjörgunarbátar hafa
verið hingað til, heldur með vísi
að stefni og skut, sem á að gera
auðveldara að stýra honum og
róa.
Kemur gjöf þessi í góðar þarfir
núna, þar sem þeir Lárus Þor-
steinsson og Jón Alfreðsson hjá
Slysavarnafélaginu lögðu í dag
upp í ferð um Vestfirði, þar sem
þeir munu halda námskeið í með-
ferð gúmbjörgunarbáta, og lífgun
úr dauðadái með öndunaraðferð-
inni í öllum sjávarþorpunum á
Vestfjörðum næstu daga. Nám-
skeið þessi eru haldin á vegum
Slysavarnafélags íslands.
Nýjar námsgreinar
í Námsflokkunum
FB-Reykjavík, 1. okt.
UM MÁNAÐAMÓTIN hefja
Námsflokkar Reykjavíkur 26.
starfsár sitt, og í vetur verða
kenndar þar tvær jtýjar náms-
greinar, bókmennlakyntiing, sent
ekki hefur verið kennd áður, og
svo sænska, en hún hefur ekki
Sjónvarpsefniö fundiö
NTB-Öslo, 1. október.
Hið horfTia sjónvarpsefni
norsku blaðamannanna, sem við-
staddir voru heræfingar NATO á
Atlantshafi fyrir skömmu, er nú
komið fram. Kom það til nopka
sjónvhrpsins í gær í pósti frá
London, en ellefu dögum áður var
það sent með flugvél frá æfingar-
stöðvum NATO til Keflavíkur.
Sjónvarpsefnið var sent með sér-
stökum háraðspósti og er öllum
hulin ráðgáta, hvernig það gat
lent með venjulegum pósti.
Heræfingar NATO fóru fram fyr
ir austan austurströnd íslands, og
þegar norsku blaðamennirnir
sendu sjónvarpsefni sitt áleiðis
með flugvél til Keflavíkur. gerðu
þeir ráð fyrir, að það mundi
verði notað í sjónvarpinu dag-
inn eftir. Svo varð þó ekki, en
norska sjónvarpið segist þó
kannski geta notað efnið núna
með því að gera um það sérstaka
dagskrá.
verið kennd undanfarin ár. Alls
geta menn valið mr. 15 bóklegar
námsgreinar og 5 verkiegar að
þessu sinni.
í dag hringdum við í Ágiist Sig-
urðsson ,skólastjóra námsflokk-
anna, og spurðum hann lítilshátt-
ar um starfsemina á komandi
vetri, en námsflokkarnir hafa ver
ið mjög vinsælir meðal almenn-
ings þap 25 ár, sem þeir hafa
starfað, og í fyrra voru nemend-
ur til dæmis ekki færri en 1100,
og kennarar voru þá 26.
Tveir nýir flokkar verða í vet-
ur. Bókmenntakynning heitir ann
ar, og verða kynntar erlendar bók-
menntir, tekin fyrir einstök tíma
bil, og síða valin t.ii lestrar verk,
sem eru sérstaklega einkennandi
fyrir þau. Ágúst sagði, að reynt
yrði að nota íslenzkar þýðingar,
þar sem þær væru fyrir hendi, en
annars yrði eflaust notazt við
Norðurlandaútgáfur á verkunum.
Kennari verður Ólafur Jónsson,
Framh. á 15. síðu
Greinar í
Tímanum
um Eskimóa
Prófessor Svend Frederik
sen frá Washington, sem
nú er staddur hér á landi,
mun skrifa tvær greinar í
Tímann um líf og trúarhug-
myndir Eskimóa. Frederik-
sen hefur verið prófessor í
Bandaríkjunum síðan 1948,
hefur ferðazt mikið um Al-
aska, Kanada og Grænland
og safnað heimildum um
líf og hætti Eskimóa. Hann
mun einnig flytja hér fyrir
iestra um svipuð efni, þann
fyrri í Háskólanum í dag
kl. 5.30 e. h. og hinn síðari
á morgun, laugardag kl. 2 e.
h. á sama stað. Frederiksen
er fæddur í Grænlandi af
dönsku foreldri og þekkir
mjög vel til þjóðlífs Eski-
móa.
T ( U I N M föctncUnlno O nWtöhsr 19&d