Tíminn - 02.10.1964, Page 3
í SPEGLITÍMANS
Kosningabaráttan er nú í fullum gangi í Bandaríkjunum með
öllu því, sem lienni fylgir, en eins og kunnugt er verða fram
bjóðendur þar að kyssa ósköpin öll af börnum og taka í hendur
fólksins af mikium móði, þannig að þeir eru oft alblóðugir á
höndunum að Ioknum látunum. Myndin er tekin af Johnson
forseta þegar hann kom til Warwick á Rhode Island, og litla
stúlkan sem fær koss frá forsetanum heitir Diane Rooney og er
sex ára gömul.
Cassius Clay, heimsmeistari
í þungavigt, æfir nú af miklu
kappi fyrír bardagann við fyrr
verandi heimsmeistara, Sonny
Liston, en sá ieikur fer fram
í Boston 16. nóvember. Cass
ius dvelur um þessar mundir
á Miami Bech í Flórida, og
æfir hann þar ásamt bróður
sínum, Ruddy.
Warren-skýrslan um morðið
á John F. Kennedy, forseta
Bandaríkjanna, hefur vakið
mikla athygli upp á síðkastið.
Sumir eru ánægðir með skýrsl
una, en aðrir telja hana ekki
sannfærandi. Meðal þeirra síð
astnefndu er frú Margurite Os-
wald, móðir Harvey Oswalds,
sem Warren-skýislan telur að
hafi einn myrt forsetann. Eft-
ir að hafa leSið skýrsluna sagði
frú Oswald, að hún hefði á
engan hátt cannfærzt um sekt
sónar síns við lesturinn.
*
Bandaríska stjórnmálakonan
Clare Boothe Luce, sem um
þessar musndir er í París, hélt
ræðu þar nýlega og skýrði þar
frá því, að hún hefði hætt við
að bjóða sig fram í New York
gegn þeim Robert Kennedy og
Kcnneth Keating eftir að hafa
„ráðfært“ sig Við Manhattan-
símaskrána. f henni eru nefni
lega 348 menn sem bera nafn
ið Kenndy, 64 hita Keating en
aðeins 6 bera nafnið Luce!
Hamingjan hefur löngum ver
ið hverful, og fegurðin líka.
Það fékk stúlkan á myndinni,
Pauline Voyce, 18 ára, að reyna
nýlega. f fyrra var hún kjör
in „Miss Royal Air Forces
Associtation" af 3.000 fyrrver-
andi hermönnum, sem tóku
þátt í héimsstyrjöldinni síðari,
en þeir halda futnd á hverju
ári | Ostcnd í Belgíu, og kjósa
þar m.a. fegurðardrottningu.
En fyrir nokkrum dögum var
hún ásamt fjölskyldu sinni og
unnusta í ferðalagi í Belgíu og
við Namur livolfdi bílnum og
þau meiddust öll mikið. Paul-
ine meiddist aðallega á andlit'i,
og bendir allt til þess að ör
verði í andliti hennar allt henn
ar líf.
Stúlkan fagra á myndinni er þekkt undir nafninu Nico, og er hún sögð vel þess virði að á hana sé horft. Og það bætir enn, að
hún talar hægt og með mjög djúpri og fallegri rödd. Fullu nafni heitir hún Nico Otzak, og hefur margra þjóða blóð í æðum sér,
dálítið pólskt, smávegis tyrkneskt og aftur í ættum er hún af Rússum komin, einnig mun hún að einhverju Ieyti þýzk. Og
ekki verður annað sagt, en að hún vekji athygli þeirra, sem hana hitta. ítalski kvikmyndaleikstjórinn Fellini réði hana samstumd
is til að leika í kvikmynd sinni „Dolce Vita“, ljósmyndariuin David BaRey kom henni straxx í „Vouge“, hið fræga tímarit, og nú hef-
ur Andrew Oldham, sá sem hefur bítlaliljómsveitina „The Rolling Stones“ á sínum snærum, fengið hana til þess að syngja inn
á hljómplötu. Söngur hennar er mjög sérkennilegur. Hún stendur alveg kyrr og syngur með sterkri og harðri röddu, sem minnir
á Marlene Dietrich, nema hvað söngur hennar er mun harðari. Þetta er í fyrsta sinn, sem húrn hefur sungið inn á plötu, en Nico
söng fyrir nokkru í „Bláa Englinum‘.‘, sem er næturklúbbur, í New York.
J
T í M I N N, föstudaginn 2. október 1964. —
Skattarnir og ríkis-
stjórnin
Hér var í gær birtur útdráttur
úr gréin um skattamálin, er
nýlega birtist í Einherja, blaði
Framsóknarmanna á Siglufirði.
Auk þess var í sama blaði Ein-
herja dregið upp glöggt dæmi
af því, hvaða aflciðingar það
hefur haft, að ríkisstjórnin
felldi umreikninginn svonefnda
úr s.kattalögunum. Einherji
segir:
„Til ársins 1960 voru þau á-
kvæði í skattalögum, að um-
reikna skyldi tekjur og per-
sónufrádrátt cftir vísitölu til
að forðast að skattabyrðin færi
vaxandi með vaxandi dýrtíð,
þ.e. verðbólgudraugum, var
ekki Ieyft að leggja skatta á
menn. Það var fyrsta verk nú-
verandi fjármálaráðherra að
láta nema þetta burtu úr skatta
lögunum. Auk þess var svo, mú
s.l. ár, skattstiiginn hækkaður
og skattþrepunum fækkað. Allt
þetta var gert á móti vilja
Framsóknarmanna, og breyt-
ingartillögur þeiiTa felldar. En
allt var þetta gert til að koma
skattþunganum af herðum
þeirra, sem raunvemlega höfðu
hæstar tekjur og yfir á bök
þeirra, sem höfðu miðluings-
tekjur. Og nú gat fjármálaráð-
herra og verbólgupúkinn tekið
til starfa og unnið bak við
tjöldin. Ráðherrann byrjaði að
lækka skattana og afnema af
þurftartekjum, eins og þær
voru 1959, en skattur var
nokkur hundruð kr., cm um
leið var lækkað á hátekju-
mönnum um jafnmörg þúsund
og liundruðin voru hjá hinum.
Svo kom verðbólgan og sá um
að þurftarlaunin hækkúðu að
krónutölu svo mikið, að ráð-
herranm fékk hærrí uipphæð ’
ríkissjóð af raunverulegum
þurftartekjum en áður. Og þar
með gat skollaleikurinn hafizt.
Og nú stendur leikurinn scm
hæst, sem bezt sést af eftirfar-
andi dæmi: Kennari, sem hafði
110 þús. kr. tekjur 1962, o-g
þurfti að borga af því í útsvar
og skatta 17 þúsund kr., hafði
165 þús. kr. 1963 og þarf að
borga í útsvar og skatta af því
nú um 58 þús. kr., og fær þó
H ívilnun í útsvari nú, vegna veik
inda. Tekjuaukningin er 55
þús. kr., en þar af hirðir hið
opinbera 41 þús. kr., eða yfir
80% af tekjuaukningunni. En
ráðherrann situr á bak við
tjöldin, gælir við verðbólgu-
drauginn og leitar frétta um,
hvað verðbólgan muni aukast.
Kemur svo fram á sviðið og
segir; ég verð enn að lækka
skattana. Tjaldið fellur, og
draumur íhaldsstjórnari'nnar
hefur orðið að veruleika.
Sigluf jörður
í sama blaði Einherja er ít-
arlega rætt um atvinnumálin
á Siglufirði. í greinarlokin
segir:
„Það er að vísu rétt, að
meirihluti bæjarstjórnar Siglu-
fjarðar hefur sýnt einstakt
s'innuleysi í atvinnumálum
bæjarims, en það er ekki nóg,
jafnvel þó hann hristi nú af
sér slenið. Hér þarf einnig að
koma til sjálfsögð og skyn-
samleg aðstoð ríkisvaldsins, en
ríkisvaldið hefur hér brugðizt
algjörlega. Gleggsta dæmið þar
um er Niðurlagningarverk-
smiðjan. Ilún þarf að taka til
starfa, og afla verður fram-
HTambald k =íðu 13
3