Tíminn - 11.11.1964, Blaðsíða 2
TÍMINN
MIBVIKUDAGUR 11. nóvember 1964
1 'ÍIÐJUDAGUR, 10. nóv.
r-'TR—London. Opinber tilkynn
? C hefur nú verið gefin út um
h'?! í London, a ð sovézki
r% escostarfsmaðurinn Vladimir
■ nomarev hafi fehigið hæli
Iit sem pólitískur flóttamaður.
momarev hvarf fyrir liálfum
i um niámuði en hann
* ,-faði við kennslumáladeild
íesco í París.
T TB—Saigon. Mikil flóð eru
r i í miðhluta S/Vietnam og
' "a margir iátið iífið af völd
' n þeirra. Rúmlega 10,000
r anns eru nú á fiótta frá flóða
« æðunum, en fjöldi þorpa og
i' eja er á kafi í vatni. Banda-
ilsku hersveitirnar í S.-Viet-
■ im eru önnum bafnar við
í,'örgunar- og hjálparstarfsemi,
*m alvarlegast er ástamdið í
Thu Yen, þorpi sem er 350
Lm. fyrir norðan Saigon.
TB—London. Alþjóðahreyf-
:ig soSialista í London til-
kynnti í dag, að nokkrir leið-
togar sosialistiskra flokka
nuundu hittast í Salzburg hinn
10. janúar n.k.
XTB—Hong Kong. Alþýðulýð
veldið Kína tilkynnti í dag, að
það hefði ákveðið, að styrkja
hersvéitir sínar, þar sem það
væri mikilvægara en gerð
nýrrar kjamorkusprengju. Her-
insi mundi verja landið gegn
árásum heimsvaldasinna.
NTB—Khartouin. Miklar óeirð
ir voru í dag í Khartoum, höfuð
borg Sudan. Þar orsakaði frétta
tilkynning, þar sem sagt var, að
l'iðsforingjar í hernum hefðu
ætlað áð gera uppreisn gegn
stjórninmi. Stjórnin hefur borið
frétt þessa til baka, þó að hún
hafi handtekið sjö unga liðs-
foringja, en allt kemur fyrir
ekki. Mikið ber á andúð gegn
Nasser og Arabíu-smveld'inu
hjá óeirðarmönnum.
NTB—Washington. Harold
Wilson, forsætisráðherra Bret
(( lands, fer í tveggja daga opin-
bera heimsókn til Washington
7. — 8. desember. Mun hanm
tala við Jhonson forseta, U
Thant og Pearson, forsætisráð-
herra Kanada. Sagt er líklega,
að Wilson haldi tii Rússlands,
er hann kemur frá USA og
þaðan til París.
ViBræðum Adenauers við de Gaulle er lokið, og hér kveður franski forsætisráðherrann, Louis Joxe, hann á
flugvellinum.
ÁRA NGURSSENNA Ð VÆNTA
NTB-París, 10. nóv.
Fyrrum forsætisi áðherra V.-
Þýzkalands, Konrad Adenauer,
flaug í dag hemileiðis frá París
að iokinni tveggja daga heimsakn.
Hann sagði blaðamönnum á flug
vellin'um í París, að hann væri
mjög ánægður með dvöl sína í
borginni og mcð einkasamtöl sín
við De Gaulle. Það var mjög gott,
að ég skyldi koma hingað, sagði
gamli maðurinn, ug árangurinn af
samtölum inínum við De Gaulle
mun koma í ljós á næstu mánuð-
um.
Hið formlega tilefni Parísar
heimsókuar Adenauers var, að
hann var gerður heiðursmeðlimur
frönsku stjómvísindaakademíunn-
ar. Á mánudaginn talaði Adenau-
er einslega við De Gaulle í klukku
tíma, en síðan bauð De Gaulle hon
um til hádegisverðar í Elysee-.iöll
inni. í dag talaði Adenauer aftur
í klukkutíma við De Gaulle og
það að eigin ósk. Hinn nýi V,-
þýzki forsætisráðheira Ludwig Er-
hard hafði falið Adenauer, að
reyna að brúa bil það, er myndast
hefur á milli Frakklands og Þýzka
lands nú að undanförnu. Eitt
helzta ágreiningsatriðið er verð á
korni innan ríkja Efnahagsbanda-
lags Evrópu og svo mótstaða
Framhald á 15. síðu.
Pravda segir mein-
ingarmuninn mikinn
NTB-Moskva, 10. nóv.
ALLT bendir nú til þess, að
viðræður leiðtoga helztu kommún-
istaflokka heimsins í Kreml hafi
ekki borið eins góðan árangur og
við var búizt. Sendinefndir erl.
kommúnistaflokkanna halda nú
heimleiðis hver á eftir annarrí og
álitið er að viðræðum sé svo til
lokið.
Tass-fréttastofan tilkynnti í
Framhald á 15. síðu.
Harold Wilson
600 komu á starfsfræðsludaginn
EJ-Reykjavík, 10. nóv.
í FYRRADAG var efnt til |
fyrsta starfsfræðsludagsins á Suð j
urlandi, og hófst hann með hátíð-1
legri athöfn í Selfossbíói, en starfs j
fræðslan var veitt á Selfossi,1
Stokkseyri, Eyrarbakka og Hvera-
gerði. Á Selfossi var leiðbeint í
um 1G0 starfsgreinum, skóla og
stofnanir, og vildu flestir fræð-
ast um flugmál, cða 180 af þeim
um 600, sem notfærðu sér þessa
fræðsiu.
Valgarð Runólfsson, skó’astjóri
í Hveragerði, setti starfsfræðslu-
daginn í Selfossbíói og gat þess, að
um 60—70 fagmenn frá Rvík leið-
beindu á þessum degi auk heima-!
manna. Ingólfur .Jónsson, ráðherra
ræddi um þýðingu starfsfræðslunn
ar, og Ólafur Gunnarsson, fj-amkv.-
stjóri dagsins, skýrði fyrirkomu-
lag^ hans.
Á Selfossi var ieiðbeint í um
160 starfsgreinum, skóla og stofn-
anir, og notfærðu um 600 ungl-
ingar sér þá fræðslu, en alls munu
um 7000 unglingar í unglinga og
framhaldsskólum á Suðurlandi.
Áhugi á starfsgreinum var mis-
jafn. Flestir vildu fræðast um
Það var oft þröngt á þingi á sýn-
ingu Samvinnuskólans, þar sem þessi
mynd var tekin af áhugasömum
gestum. (Tímamynd, KJ).
flugmál, eða 180, þar af 91 um
flugfreyjustarfið. Af öðrum starfs
greinum, skólum og stofnunum má
nefna: — Hjúkrunarstörf 55,
fóstrustörf 41, íþróttakennslu 67,
hárgreiðslu 62, tækninám 34, loft
skeytanám 36, þar af rúmlega
helmingurinn stúlkur, lögreglu-
störf 42, blaðamennsku 44, um
störf hjá Landsíma íslands 82,
leiklistarnám 42, og um bænda-
skóla 28.
Samvinnuskólinn að Bifröst var
kynntur með litkvikmynd og
myndasýningu frá starfi skóians og
sáu um 350 unglingar þá sýningu.
Margar fræðslusýningar voru í
sambandi við starfsfræðsludaginn,
og sagði framkvæmdastjóri hans,
Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur,
að dagurinn hefði yfirleitt tekizt
mjög vel.
Fyrirlestrar um
torfhús
FB-Reykjavík, 10. nóv.
Stúdentaráð Háskóla íslands hef
ur nú ákveðið að fá nokkra menn
til fyrirlestrahalds fyrir stúdenta
og alla aðra, sem áhuga kunna að
hafa á efnum þeim, sem rætt
verður um. Þrír fyrirlesarar hafa
verið fengnir, þeir Hörður Ágústs
son listmálari, sem talar um þró
un íslenzkra torfhúsa, Sveínn Ein
arsson, leikhússtjóri, talar um
leiklist og leiklistarsögu og að
lokum dr. Tómas Helgason lækn-
ir, sem talar um geðsjúkdóma.
í lögum stúdentaráðs segir m.
a. að því beri „að stuðla að vöku
þjóðarinnar í menningarmálum m.
a. með fyrirlestrahaldi." Hefur
því verið ákveðið að gera til-
raun með slíkt fyrirlestrahald.
Reynt verður að hafa fjölbreytni
sem mesta í fyrirlestrahaldinu, og
fyrirlesarar munu ekki taka
strangfræðilega á viðfangsefnium
sinum heldur leggja áherzlu á,
að sem flestir geti haft gagn og
ánægju af þeim.
Fyrirlesarinn, sem ríður á vað
ið er Hörður Ágústsson listmál-
ari, og flytur hann fyrsta fyrir-
lestur sinn á fimmtudaginn kl.
21 í I. kennslustofu Háskólans.
Ræðir hann um þróun íslenzku
torfhúsbyggínganna frá land-
námsöld og fram á 20. öld.
Annar fyrirlestur Harðar
verður 19. nóv. á sama tíma og
stað og er um uppbyggingu og
gerð húsanna á íslenzkum bónda
bæjum og fjallar Hörður síðan
nánar um hvert einstakt hús.
Þriðji fyrirlesturinn er 26. nóv.
og er hann um þróun íslenzkra
torfkirkna. Með fyrirlestrunum
sýnir Hörður litskuggamyndir og
einnig svarthvítar myndir og
teikningar.
Síðustu fjögur árin hefur Hörð
ur unnið að rannsóknum á bygg
ingum íslenzkum úr torfi og gert
það með styrk frá Vísindasjóði, en
rannsóknirnar ná fram að þeim
tíma er timbur kemur til sög-
unnar sem byggingarefni. Öllum
er heimill aðgangur að fyrirlestr-
unum.
Skagafjörður
Aðalfundur Framsóknarfélags
Skagfirðinga verður haldinn á
Sauðárkróki laugardaginn 21. nóv.
og hefst kl. 2 e. h. Á fundinum
mæta alþin^ismennirnir Björn
Pálsson og Olafur Jóhannesson og
Jón Kjartansson, forstjóri. Um
kvöldið verður skemmtisamkoma
á vegum Félags ungra Framsóknar
manna í Skagafirði, sem hefst kl.
8.30. Þar flytur ræðu Steingrím
ur Hermannsson, framkvæmdastj.
/