Tíminn - 11.11.1964, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 11. uóvember 1964
TÍMINN
MINNING
Lovísa og Lárus Fjeidsted
í DAG verða kvödd hinztu
kveðju frá Dómkirkjunni í Reykja-
vik hjónin, Lárus Fjeldsted hæsta
réttarlögmaður og kona hans frú
Lovísa Ágústsdóttir, Fjeldsted.
Þau létust hér í Reykjavík 7. þ.
m. Frú Lovísa í Landspítalanum,
nokkru fyrir dögun 7. nóv. Lárus
um miðaftan þess sama dags.
Þegar mér barst fregnin um lát
frú Lovísu, brá mér, slík eru við-
brögð flestra, sem spyrja lát góðs
■nnar, enda þótt hvíld sé kær þeim,
kveður.
Lg hafði að vísu vitað, að frú
toovísa hafði um langt skeið átt
’dð vanheilsu að stríða, en hún
Háði þá baráttu með þeirri hetju-
Amd og slíkri rósemi hugans, að
ftún í þessum efnum villti oft um
fyrir jafnvel okkur, sem þekktum
hana vel. Okkur fannst hún alltaf
vera frískari en hún í raun og
veru var Þess vegna virtist vina-
hópnum, að þrátt fyrir háan ald-
ur hennar væri enn nokkur spöl-
ur til leiðarloka.
Sú varð þó ekki raun á. Við and
lát frú Lovísu Fjeldsted kvaddi
göfug kona þennan heim. Ástvin-
ir hennar og vinir misstu mikið,
en þó að sjálfsögðu eiginmaður-
inn mest, því ást og gagnkvæm
móður minnar og naut ég þess .alla
tíð. Ég var heimilismaður um all
langt skeið á fallega heimilinu
þeirra að Tjarnargötu 33.
Heimilisbragurinn var eftir-
minnilegur og lærdómsríkur. Hús-
bóndinn glæsimenni, ekki ein-
vörðungu að vallarsýn, heldui og
í allri framkomu. Um hann mátti
segja, að hann var hógvær og af
hjarta lítillátur. Ég heyrði hann
aldrei þá þrjá áratugi, sem ég
þekkti hann, mæla styggðaryrði
til nokkurs manns, heldur færði
hann jafnan allt til betri vegar.
Það var góður«.og gagnlegur skóli,
sautján ára pilti, að umgangast
Lárus Fjeldsted og heimili hans.
Framkoma hans öll og viðbrögð
voru vissulega til eftirbreytni.
Fyrr í þessari grein er minnst
á hjónaband frú Lovísu og Lár-
usar. Það var vissulega einstakt
í sinni röð.
Það bar hæst sérstök umhyggja,
er hjónin báru hvort fyrir öðru,
eftirtektarverð virðing og hlýja í
sérhverri setningu, sem sögð var.
Frú Lovísa var vel menntuð
gáfukona og með mikilli sæmd
stjórnaði hún heimili þeirra hjóna
í 52 ár.
Hún var fædd 8. júní 1885 á
viriðing ríkti í hjónabandi þeirra,
enda fór svo að áður en dagur
var liðinn, var Lárus Fjeldsted
allur. Hann lézt að heimili eldri
sonar síns og tengdadóttur rúm-
um hálfum sólarhring eftir andlát
konu sinnar.
Lárus Fjeldsted hafði undanfar
ið ekki getað sinnt málflutnings-
störfum vegna vanheilsu. Sjöundi
nóvember varð honum, hálf níræð-
um, ofraun.
Brottför Lárusar Fjeldsted kom
flestum á óvart. Kapitulaskiptin,
sem morgunfregnin flutti þennan
nóvemberdag, virtist nægjanleg
þessari fjölskyldu, þó ný þáttaskil
væru ekki á næsta leiti. En á
hinu mikla taflborði lífs og dauða
er aldrei spurt um mannsins vilja.
Fráfall Lárusar Fjeldsted kom,
eins og fyrr segir óvænt — og skil
ur eftir, eins og alltaf — undir
slíkum kringumstæðum sem hér,
sorg og söknuð En^u að síður
finnst mörgum. sem til þekktu,
eðlilegt og samkvæmt öllu lífi
Fjeldsted hjónanna, hjónabandi
þeirra og haming.iu, að einmitt
svona skyldi endirinn verða
Þau voru svo nátengd hvort
öðru — svo mikið fyrir hvort ann-
að — að jafnvel dauðanum tókst
ekki að aðskilja þau.
Þegar Fjeldsted-hjónin eru
kvödd hinztu kveðju þá þakka
margir þeim vináttu og tryggð.
I 30 ár nákvæmlega hefur hús
öessara góðu hjóna staðið mé) og
nínu fólki opið sem sannk2llað
vinaheimili. Dyr þeirra voru fyrst
opnaðar fyrir mér haustið 1934,
þegar ég fór í skóla hér í Reykja-
vík. Frú Lovísa var góð vinkona
Raufarhöfn, dóttir hjónanna Ág-
ústar, kaupmanns, Þorsteinssonar,
og Katrínar Þorsteinsdóttur, Ág-
úst dvaldist á Raufarhöfn sem
verzlunarstjóri og eftir það nokk-
ur ár á Siglufirði, við sömu störf.
Síðan fluttist Ágúst með fjöl-
skyldu sína til Reykjavíkur, þar
sem hann rak verzlun um árabil.
Frú Lovísa lauk námi frá Kvenna
skólanum á Akureyri 1903 og prófi
frá Verzlunarskólanum í Reykja-
j vík 1907, en jafnframt námi stund
| aði hún skrifstofustörf í Keykja-
I vík. Á árunum frá 1907 til 1912
| starfaði hún á skrifstofu Heild-
verzlunar Garðars Gíslasonai m.
a. í Skotlandi um 2ja ára skeið.
Hinn 20. september 1912 giftist
1 hún Lárusi Fjeldsted, yfirréttar-
! málaflutningsmanni.
i Lárus Fjeldsted var fæddur 7.
! september 1879 að Hvítái-völlum
| í Borgarfirði. Foreldrar hans voru
1 Andrés Fjeldstel, óðalsbóndi þar
og kona hans Sesselja Kristjáns-
i dóttir frá Vallarkoti. Sigurðsson-
ar.
Lárus Fjeldsted varð stúdení ár
ið 1900. Hann tók embættispróf í
lögfræði frá Kaupmannahafr.arhá
skóla 1908. Hann var settur sýslu
maður í Gullbringu- og Kjósai sýslu
og bæjarfógeti í Hafnaifirði á ár-
unum 1908—1909.
Eftir það rak nann málafiutn-
ingsskrifstofu i Reykjavík. Yfirrétt
armálaflutningsmaður -arð hann
1908. Auk mikilla starfa og um-
sýslu sem málaflutningsmanns-
starfið kallaði á, gegndi Lárus
Fjeldsted ýmsum störfum öðrum
Hann ^at m. a. > bankaráði Út-
vegsbankans og stjórn Sjóvátrygg
ingafélags íslands tneira en þrjá
áratugi. Hann var heiðursfélagi í
Lögmannafélagi íslands og hann
var sæmdur fjölda heiðursmerkja,
íslenzkra og erlendra.
Fjeldsted-hjónin eignuðust fjög
ur börn, og eru þrjú þeirra í lífi:
Katrín, búsett í Ameríku, Ágúst
hæstaréttarlögmaður og Lárus,
stórkaupmaður, báðir búsettir í
Framhald á 15. síðu
Nokkrir lciSangursmanna viS þyrluna.
Ovenjulegir fíutningar
á lifandi laxi úr Þverá
- Fluttur með þyrlu úr Þverá við Tvídægru ti! Norðt.
Nýlega áttu sér stað ó-
venjulegir flutningar í Borgarfirði,
er lifandi lax var fluttur með
þyrlu frá efsta hluta Þverár inn
við Tvídægru til Norðtungu.
Þyrlan flutti 16 leiðangursmenn,
að meðtöldum flugmönnum og
aðstoðarmönnum þeirra, til þess-
arar laxatöku inn á öræfin, en
meðal þeirra voru Haukur Þor-
leifsson, aðalbókari, og fr-lagar
hans í Fiskiræktarfélagi Langár,
Pétur Snæland, Hafsteinn Sigurðs
son, Jósef Reynis og Friðrik Þor-
steinsson, húsgagnasmíðameistari,
en auk þes voru með í förinni
Magnús bóndi Kristjánsson form.
Fiskiræktarfélags Þverár sem
leiðsögumaður, og Stefán Jónsson
frá Vatnsholti.
Var laxinn tekinn með fyrirdrátt
arnetum efst í Þverá, settur í
þar til gerð vatnsker og fluttur
lifandi til byggða í þyrlunni Er
hér um að ræða sérstæða tilraun
1 laxaeldi, sem Fiskiræktsrfélag
Langár er að gera.
Tíminn náði tali af nokkrum
þeim mönnum, sem að þessum
flutningum stóðu, og sögðu þeir
að hér væri um að ræða li? í
samfelldu átaki, sem verið er
að gera í fiskiræktarmálum Lang-
ár. Fyrir þrem árum var gerður
stór laxastigi í Skuggafossi, neðar-
lega í Langá,, en upp þann foss
hafði lax gengið en þá oft mikið
skaddaður. Hefur stiginn gefið
mjög góða raun og gengur nú lax
inn óhindrað upp í ána.
Um 15 km. ofar í ánni er
Sveðjufoss. Upp hann hefur lax
aldrei komizt enda er hann 14
metra hár. Ofan við þennan foss
hafa á undanförnum árum verið
settir nokkrir tugir þúsunda af
sumaröldum aliseiðum af ýmsum
stofnum í ána og samtímis hafnar
framkvæmdir við að gera laxa-
stiga í Sveðjufossi, og standa von
ir til að honum verði lokið þegar
fyrstu laxamir ganga úr sjó af
þessum seiðum.
Þegar lax kemst upp Sveðiufoss
opnast stórt svæði til hrygningar
fyrir laxinn í efri hluta árinnar.
Éinnig er sá möguleiki fyrir hendi
að opna laxinum leið upp í Langa
vatn og árnar inn af því og er
þá allt vatnasvæði Langár lax-
gengt.
Efri hluti Langár liggur all
hátt yfir sjó eða um 200 metra
og hafði því Fiskiræktarfélag
Langár mikinn hug á því að ná
í laxastofn, sem hrygndi -vo hátt,
en það er einmitt í Þverá upp á
svonefndum ,,Störum“, sem lax
hrygnir i 400 metra hæð eða
hærra en nokkur laxastofn á ís-
landi svo kunnugt sé.
Að fengnu leyfi Fiskiræktarfé-
lags Þverár og Þórs Guðjónssonar
veiðimálastjóra, sem sýndi málinu
mikinn. velvilja, var ákveðið að
reyna að flytja laxinn eða frjóvg
uð hrogn úr honum til byggða.
Var nú úr vöndu að ráða með
flutninginn, því engum farartækj
um er fær þessi leið. Að flytja
laxinn lifandi eða hrogn úr hon
um á hestum, sem er 6—7 klst.
lestarferð reyndist miklum erfið-
leikum bundið og stakk þá ein-
hver upp á því að reyna að fá
þyrlu til flutninganna, og fyrir
sérstakan velvilja varnarliðsins
varð þessi hugmynd að veruleika
16. þ. m.
Gekk ádráttur og flutningur á
laxinum að óskum, og má geta
þess til gamans að þyrlan flaug
þessa vegalengd, frá efsta hluta
| Þverár til Norðtungu, á 10—15
1 mínútum.
Verða nú hrogn kreist úr laxin
um í haust, og seiðin alin upp í
laxaeldistöðinni að Vatnsholti og
þeim síðan sleppt í Langá haust-
ið 1965. Má búast við því at lax
af þessum seiðum gangi fullvaxinn
úr sjó í Langá árin 1963—1970.
Þeir félagar eru vongóðir um
að tilraun þessi takist vel og tóku
það sérstaklega fram, að án vel-
vilja varnarliðsins, • varnarmála-
! nefndar og veiðimálastjóra hefði
þetta ekki tekizt.
Laxinn tekinn úr Þverá.