Tíminn - 21.11.1964, Síða 11

Tíminn - 21.11.1964, Síða 11
LAUGARDAGUR 21. nóveiaber 1964 tíminn n menn þörfnuðust þeirra sem handverksmanna. Smiðir eru jafn nauðsynlegir á skipi og sjómenn. Það var ekki nema eðlilegt, að uppreisnarmenn gættu var úðar gagnvart þeim, sem eftir voru í skipinu og ekki höfðu tekið þátt í uppreisninni. En samt sem áður sýndu flestir há- setarnir okkur engan fjandskap..Churchill skipaði okkur að standa uppi á þilfari, fyrir framan siglutré, þangað til Christ- ian hefði ákveðið, hvað við okkur skyldi gera. Burkitt var lát- inn laus. Hann og Thompson fóru nú að egna okkur og gera gys að okkur, ennfremur McCoy og John Williams. Um stund leit svo út, sem til tíðinda drægi á þilfarinu, og það er ekki vafi á því, að uppreisnarmenn hefðu sigrað, ef í skærur hefði slegizt. En sem betur fór, kom Christian öllu á réttan kjöl. Hann kom á framþiljur og var mjög brúnaþungur. — Gætið starfs yðar, Thompson, sagði hann skipandi. — Burkitt, ef þér gætið yðar ekki, læt ég binda yður aftur. — Ætlið þér að haga yður þannig? spurði Thompson. Það verður ekkert af því, skal ég segja yður. Við höfum ekki gert uppreisn í því skyni, að þér farið að leika Bligh skip- stjóra. — Nei, það var sannarlega ekki tilætlunin, sagði Willi- ams, og það mun yður brátt verða ljóst. Christian horfði á þá þegjandi stundarkorn, og það var auðséð á honum, að hann var umhverfi sínu fullkomlega vax- inn. Mótþróaseggirnir voru ekki sérlega upplitsdjarfir. Marg- ir hásetanna voru á næstu grösum og meðal þeirra var Alexander Smith. — Skipið öllum að koma á afturþiljur, Smith, sagði Christian. Hann fór upp á stjórnpallinn og gekk þar um gólf, meðan skipshöfnin safnaðist saman á afturþilj- um. Svo sneri hann sér að skipverjum. — Það er eitt, sem við verðum að ákveða strax, sagði hann rólegur — og það er, hver á að verða skipstjóri á skip inu. Ég hef náð skipinu á mitt vald með yðar aðstoð, og við höfum losað okkur við harðstjóra þann, sem hefur hrjáð okk ur og kvalið. En gerið ykkur hér eftir ljóst, hverhig ástandið er. Við erum uppreisnarmenn. Ef eitthvert af skipum Hans Hátignar nær okkur á sitt vald, verðum við allir drepnir. Og það getur komið fyrir, máske fyrr en okkur grunar. Ef herra Bligh verður svo heppinn að komast til Englands, verður skip sent þegar í stað til þess að leita að okkur. Ef engar fregnir verða komnar af Bounty eftir tvö ár, þá verður samt sem áður sent skip af stað til þess að leita að okkur og grennslast eftir orsök þess, að við komum ekki aftur. Við erum ekki einasta uppreisnarmenn, við erum líka sjóræningj ar, því að við höfum rænt einu af hinum vopnuðu skipum Hans Hátignar. Við getum aldrei framar komið heim til Eng- lands — nema þá sem fangar. Og þá eru örlög okkar útkljáð. • Kyrrahafið er stórt, og það er svo lítið kannað, að við þurf- 32 um aidrei að láta taka okkur, nema við séum óvarkarir. Eins og á stendur, er okkur nauðsynlegt að hafa foringja — for- ingja, sem allir hlýða skilyrðislaust. Það ætti ekki að þurfa að segja enskum sjómönnum það, að ómögulegt er að stjórna skipi án aga, hvort sem um er að ræða sjóræningjaskip eða annað. Ef ég á að stjórna Bounty, þá vil ég láta hlýða mér. Hér mun ekkert óréttlæri eiga sér stað. ÉG mun ekki hegna neinum að ástæðulausu, en ég vil ekki heldur. að mér sé sýndur neinn mótþrói. Það er sjálfsagt, að þið fáið að ákveða sjálfir, hver á að verða skipstjóri á Bounty. Ef meirihluti ykkar vill hafa ein- hvern annan skipstjóra en mig, þá segið bara til. Þá skal ég víkja fyrir honum. En ef þið viljið, að ég sé skipstjóri, þá munið, hvað ég hef sagt. Ég krefst skilyrðislausrar hlýðni. Churchill tók fyrstur til máls: — Jæja, piltar, hverju svar ið þið svo? — Ég greiði atkvæði með herra Christian, hrópaði Smith. Allir voru á sama máli og Smith, nema Thompson og Williams, en þegar Christian krafðist þess, að þeir greiddu atkvæði, greiddu þeir líka atkvæði með Christian. — Það er annað, sem við verðum að ákveða, hélt Christian áfram. — Meðal okkar eru nokkrir menn, sem ekki tóku þátt í uppreisninni. Þeir hefðu farið með Bligh, ef þeir hefðu komizt í bátinn . . . — Bindið þá, hrópaði Mills — þeir gera okkur einhvern óskunda, ef þeir geta. — Hér verður enginn bundinn, nema ástæða sé til, svar- aði Christian. — Það er ekki hægt að ásaka þessa menn fyrir það, þó að þeir tækju ekki þátt í uppreisninni með okk- ur. Þeir tóku þá ákvörðun, sem þeim fannst réttmæt, og það er virðingarvert, en ég mun áreiðanlega geta haldið þeim í skefjum, ef þeir reynast svikulir. Nú verða þeir sjálfir að ákveða, hvarnig þeir vilja láta fara með sig. Því næst kallaði hann á okkur, einn af öðrum, byrjaði á Young, og spurði, hvort hann mætti búast við því, að við ynnum störf okkar á skipinu, svo lengi, sem við teldumst til skipshafnarinnar. Young ákvað strax að hlýta sömu örlögum og uppreisnarmenn. — Tilviljunin hefur ákvarðað þetta mál, að því er mér við- víkur, herra Christian, sagði hann. — Þar með vil ég ekki segja það, að ég hefði hjálpað yður til þess að taka skipið, ef ég hefði verið vakandi, þegar uppreisnin var gerð. En nú, þegar þér hafið tekið skipið, er ég ánægður. Mig langar ekki sérlega mikið til þess að sjá England aftur. Þér getið farið hvert sem þér viljið^-r-og treyst því, að ég. verði með yður Meðal hinna hlutlausu var'þann einn um 'þessa ákvörðun. Við hinir lofuðum því að hlýða skipunum, og hjálpá til við starfið um borð að öðru leyti og að hafa engin brögð í tafli, svo lengi, sem við værum um borð í Bounty. Það var það eina, sem við gátum gert. Christian bannaði okkur að flýja, og ég hygg, að hann hafi búizt við, að við gerðum það strax og við fengjum færi á því. — Það er gott, sagði hann, þegar hann hafði hlustað á okkur. — Ég bið ekki um meira en þetta. En þið skiljið það, að ég verð að gera öryggisráðptafanir gegn því, að ég og menn mínir verði teknir. Og enn fremur verð ég að tilkynna ykkur, að við verðum fyrst að hugsa um okkur og því næst ykkur. Þið getið ekki búizt við því, að ég hagi mér öðruvísi. Því næst útnefndi hann yfirmenn sína. Young varð stýri- maður, Stewart annar stýrimaður, ég undirbátsstjóri, Morri EFTIR ARTHEMISE GOERTZ 43 um til þess, að vinna móti málinu. Ég bað Olympe að bera klæði á vopn hennar. Lýsti því fyrir henni hve mikill hagnaður væri að því fyrir sögunarverksmiðju mína. Hún afsagði að gera neitt. Ég þrábað hana. Þá fór hún að gráta og sakaði mig um að vinna að þessu til hagsbóta fyrir Eagranes. Loks missti ég þolin- mæðina og viðurkenndi það. Ég sagðist einnig vilja gera það fyrir Fagranes. Vesalings, aumingja Júlíen. — Ég sagði Olympe eins og var Ég geta ekki slitið mig frá Fagra- nesi. Ég geri mér ferð þangað við hvert minnsta tækifæri. Ég ge* aðeins horft á Palmýru, talað rð hana. verið í návist hennar. Hún gefur mér aldrei undir fót- inn, ekki minnstu vitund. Öðru nær. Hún er vingjarnleg, en óvinn andi. Hún elskar engan annan en föður Mirjam. Ég fullvissaði Olympe um, að ekkert væri milli okkar annað en þetta, sem ég ræð ekki við. En hún vill ekki trúa mér. — Nei, sagði Viktor. Og bætti við með sjálfum sér: Hún ætlar sér ekki að trúa þér. Hún ætlar sér að gera harmleik úr þessu: Eftir að ég hef gefið þér beztu ár ævi minnar, sem trúföst eigin- kona og ástrík móðir . . . og svo framvegis. Júlíen hélt áfram: — Mér er ekki Ijóst sjálfum. hvernig það atvikaðist. En ég er veíkur maður. gjörningum háður. Ég vaki, sef, anda eingöngu fyrir Palmýru. Það breytir engu, þótt ég viti, að þetta er vonlaust . . . Hann þagnaði andartak, svo hélt hann áfram, eins og hann yrði að úthella hjarta sínu. — Það væri kannski, ef Olympe væri öðruvisi . . . þú ert læknír. Þú skilur það. Hún er ein þeirra kvenna, sem aldrei hafa fundið neina fullnægju í samlífi hjóna- bandsins. Það er hugsunarháttur hennar sem gerir, þú skilur. Hún skoðar hina líkamlágu ást sem illa nauðsyn frá karlmanns- ins hálfu og finnst hún vera písl- arvottur, sem verður að gegna skyldu sínni. Henni finnst það syndsamlegt og skammarlegt að njótast — ég veit ekki hvort ég hef gert þér það Ijóst sem . . .? — Jú, Viktor kinkaði kolli. — Ég skil við'hvað þú átt. Júlíen virtist nokkuð rórra, er hann hafði létt á huga sínum. — Hún hefur gert mig útlægan úr svefnherbergi okkar. Framveg is verð ég að sofa í hægri álm- unni en hún í hínum enda húss- ins. Þetta var hið venjulega fyrir- komulag hjá hjónum sem orðin voru sundurþykk. Út á við var aldrei minnst á skilnað. Almenn- ingur vissi ekki um neitt ósam- komulag. Maður og kona féllust á að búa undii sama þaki, en sitt í hvoru herbergi. 19. KAFLI Nanaine hélt á bréfi í hendinni. þegar hún mætti til morgunverð- ar næsta mánudag. — Alcide frændi þinn vill tala við þig á miðvikudaginn, skilaði hún til Viktors. — Það þykir mér leiðinlegt. Ég get ekki talað við Alcide frænda minn á miðvikudaginn. Sá dagur hentar mér ekki. — Mér þætti gaman að vita. hvers vegna ekki. Þú sem hefur ekkert við bundið. Ekkert sem þörf er á. — Ég þarf að bíða eftir erfiðri fæðingu. Ég get elcki farið héðan, fyrr en sjúklingur minn hefur lok- ið þvi af. — Ó. Það birti yfir svip hennar. — Mínerva de Gerbeau Vignaud? — Nei. Frú Gaspard, kona mosatökumannsins. — Aldrei hef ég nú heyrt ann- að eins. hrópaði hún með hyl- djúpri fyrirlitningu í rómnum. — Má ég spyrja, hvort þú ætlir að stofna frama þínum í tvísýnu, fyrir það eitt, að mosatökumanns kerling ætlar að fara að ala barn? — Ég ætla að tefla heimsókn minni í tvísýnu ekki frama mín- um. - Við skulum ekki þrátta um það. Iívenær væntir þessi kona sín? — Það getiu orðið hvenæi sem er. — Gott. Fyrst þú gerir henni þann greiða að setja yfir henni, vonast ég til þess, að hún geri mér þann greiða aftur á móti, að eignast barn sitt fyrir miðvikudag. Ég ætla að skrifa frænda þínum, að hann megi búast við þér. — Ekki get ég ábyrgst það. — Meðan þú ert í New Orleans, hélt hún áfram án þess. að gefa gaum að síðastá tilsvari hans, er bezt að þú leggir drög fyrir að iáta opna fjölskyldugröfina. Þú segir, að Súlíma sé orðin svo iangt leidd, — og við látum greftra hana þar. — Já,. Um þetta gátu þau að minnsta kosti orðið á einu máli. — Ég er nýbúinn að vitja hennar. Það er aðeins um nokkra daga að ræða. Súlíma hafði þjónað duRocher fólkinu i um það bil hálfa öld og átti nú að fá sómasamlega útför, sem dyggu hjúi sæmdi. Kolagerðarmanninum hafði ekki versnað í handleggnum, en hon- um hafði ekki batnað heldur. Allt af rann vilsa úr sárinu þrátt fyr- ir nákvæmustu varúðarráðstafan- ir læknisins. Hann úðaði karból- vatni um herbergið í hvert sinn, er hann gerði að sárinu og eyddi heílum skukkustundum við sótt- hreinsun og gerilsneyðingu. Hann var farinn að líta á Philo Fanchon eins og orrustu, sem hann varð að vinna, og þennan morgun olli það honum áhyggjum. hversu lítið hefði áunnist. Á heimleið nam hann staðar við víkina til að ræða við Mirjam. Hún kom á móti honum með hund inn á undan sér. — Hafið þér haft mikiö að gera? — Já, hvernig vitið þér það? — Þér hafið ekið svo hratt upp á síðkastið. Eg kannast við hljóð- ið í vagninum yðar á veginum. Og ég þekki hófatak Rougettes. — Hvernig gengur starfið hjá yður? — Það gengur ágætlega. Ég þarf ekkert að.flýta mér. — Yður dvaldist þó lengi fram eftir á laugardaginn. Narcisse hafði gleymt að sækja mig. Hann staðnæmdist á leiðinni tíl að heimsækja Bíbí hjá frú Vigée. Og begar hann loksins kom, var hann með ýmsar skrítiiega afsakanir. Hann er ástfanginn. Hún leit til hans. — Var Leon mjög illa farinn? — Ekki verr en hann hafði til unnið. — Á ég að segja yður sannleik- ann? - Já. — Ég sigaði hundinum á hann. Ég kæri mig ekki um að neinn kyssi mig. Það hefur enginn gert

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.