Tíminn - 21.11.1964, Blaðsíða 12

Tíminn - 21.11.1964, Blaðsíða 12
LAUGARDAGUR 21. nóvember 1964 12 TMVIINN MINNING Steinunn Þorsteinsdóttir húsfreyja, Kverná í dag verður gerð frá Setbergs- kirkju á Snæfellsnesi útför Stein unnar Þorsteinsdóttur húsfreyju að Kverná. Steinunn lézt í sjúkra- húsinu í Stykkishólmi þann 15. þ. m. Með henni er fallin í valinn mikilhæf sæmdarkona, er skilaði sínu dagsverki með prýði. Steinunn Þorsteinsdóttir fædd- ist að Kirkjufelli í Eyrarsveit 11. jan. 1888, dóttir hjónanna Guð- bjargar Oliversdóttur og Þorsteins Bárðarsonar bónda og oddvita að Gröf í Grundarfirði. Ólst hún upp með foreldrum sínum til ellefu ára aldurs, er hún missti föður sinn, en var eftir það hjá móður sinni, þar til hún iór að vinna fyr ir sér í vist á heimilum í nágrenn inu. Árið 1911 verða þáttaskil í lífi Steinunnar Þorsteinsdóttur því þann 26. ágúst giftist hún Ás- mundi Jóhannssyni á Kverná, dugnaðar og myndarmanni. Bund- uzt þau þá þeim böndum, er enzt hefur þeim, þar til lífi hennar lauk nú, eða í rúmlega 52 ár. Verkefni það, sem Steinunn Þor- steinsdóttir tókst á hendur e, hún gerðist húsfreyja að Kverná, hefur reynzt mikið. Heimilið hefur verið fjölmennt. Börn þeirra hjóna urðu 9 og af þeim komust 8 yfir fermingarald- ur. Ásmundur lærði til skipstjórnar 1915 og fór með handfærabáta úr fjarlægum verstöðum í fyrstu á vélbát úr Grafarnesi eftir að vélbátaútgerð hófst þaðan. Var hann síðast með m.b.. Jóhann Dagsson frá Grafarnesi 1945 auk þess, sem hann tók þátt í sveitar stjórn og fleiri tímafrekum félgsmálum. Það féli því oft í hlut Steinunn ar húsfreyju, að vera bæði hús- freyja og húsbóndi á heimilinu, annast stjórn þess bæði utan og innan, sjá um uppeldi barnanna og annað sem til féll á hinu fjöl- menna og gestrisna heimili. Að öllum störfum sínum gekk hún m'eð festu og ró. Heimili þeirra var alla tíð myndarheimili enda bæði hjónin mikið atorku- fólk. Jörðina sína Kverná bættu þau mjög, er hún nú að vera stór- býli. Synir þeirra Jóhann og Þor- steinn hafa staðið þar fyrii stór um framförum nú síðustu árin, en þeir eru þar nú bændur ásamt Ásmundi. Eins og fyrr er frá skýrt eignuðust þau Iýverná-hjónin 9 böm, af þeím dó éinn sonúrinn Kristfinnur þriggja ára, og tveir synir uppkomnir, Búi 17 ára og Vilhjálmur fulltíða, en hann fórst með m.s. Rafnkatli úr Garðinum, sem fórst á öndverðum vetri 3 960, frá konu og ungum börnum Var af þeim báðum mikill mannskaði, þar sem hvorutveggja voru atorku menn. Ekki sízt var fráfali Vil- hjálms harmdauði. Börn þeirra, sem á lífi eru, eru auk bændanna á Kverná Þor- steins og Jóhannesar.Ásta, Hallfríð ur, Kristrún og Friðrik sem öll eru búsett í Reykjavík. Öl! eru Kverná-systkinin dugnaðar og myndarfólk. Eins og að framan gr getið, hafa þau Steinunn og Ásmundur á Kvemá átt farsæla samleið í 52 ár, staðið hlið við hlið í önn dags- ins og hvergi dregið af séi við störfin. f heild hafa þau notið mikillar hamingju í lífinu. Þau hafa séð störf sín ná tilgangi og geta glaðzt með velgengni og dugn aði barna sinna og barnabarnanna. Þau hafa einnig staðið hlið við hlið þegar sorgin hefur sótt þau heim við fráfall sonanna þriggja. Þrekið og manndómurinn, sem ein kennt hefur þau í lífinu dugði þeim þá einnig. Mest mun raunin hafa reynzt þeim, þegar Vilhiálm- ur var burtu kallaður svo óvænt og skjótt. Yfir það sár mun ekki hafa gróið að fullu, énda þá þrek ið farið að ,láta á sjá vegna aldurs þeirra. Eg dvaldi á heimili þeirra Stein- unnar og Ásmundar á Kverná hluta úr vetri vegna skólagöngu, veturinn áður en ég fermdist. Þá var forskóli ennþá í Eyrarsveit Síðan var mér sérstaklega hlýtt til þeirra Kverná-hjóna, og hafðí ég þar jafnan viðkomu, er ég var á ferð þar vestra. Voru már þær stundir er ég dvaldi þar jafnan ánægjulegar. Minnistæðust er mér þó Steinunn er ég heimsótti hana skömmu eftir fráfall Vilhjálms. Mér fannst yfirbragðið bjartara og hreinna en fyrr, gráu hárunum hafði að vísu fjölgað, en æðru- leysið festan og róin var sú sarna. Umhyggjan snerist um ungu tengdadótturina og föðurlausu sonarbörnin, Síðast kom ég að Kverná í október s.l., þá fyrst fannst mér húsfreyjunni brugðið, þreytan leyndi sér ekki þótt gestrisnin og alúðin væri slík, er ég hafði áður vanizt. Eg enda þessar línur með því að flytja aldurhnignum eigin- manni Steinunnar, börnum tengda- og barnabörnum hennar inni- legustu samúðarkveðjur. Yfir minningu Steinunnar á Kverná mun alltaf verða bjart í huga samferðafólks. Halldór E. Sigurðsson TILBOÐ OSKAST í nokkrar fólksþifreiðir, er verða sýöndar í Rauð- arárportinu, mánudaginn 23. nóvember kl- 1—3 e.h. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 s.d. sama dag. Sölunefnd varnarliðseigna. Látið nkkur stilla og herða upp nýju bifreiðina. Fylgíst vel tneð bifreiðinni. BÍLASKOOUN Sbúlagötu 32 sírni 13-10« TRAKTOR Viljum taka lítinn traktor með ámoksturstæki á leigu til áramóta- Upplýsingar í síma 16357 og 3 2676. RYÐVORN Grensásvegi ISsimi 19-9-45 Látið ekki dragast að rvð- verja >2 nljóðeinangra blf- reiðina með Tectyl Tilkynning TIL KAUPMANNA Athygli er vakin á ákvæðum 152. gr. Brunamála- samþykktar fyrir Reykjavík um sölu á skoteldum. H12. grein: „Sala skotelda er bundin leyfi slökkviliðs- stjóra, er ákveður, hve miklar birgðir megi vera á hverjum stað og hvernig þeim skuli komið fyrir“. Þeir kaupmenn, sem ætla að selja skotelda, verða að hafa til þess skriflegt leyfi slökkviliðsstjóra, og vera við því búnir að sýna eftirlitsmönnum slökkviliðsins eða lögreglunni það, ef þess er óskað. Reykjavík, 20. nóvember 1964. Slökkviliðsst jórí. Kynningar- og sölusýning Kynningar og sölusýning á málverkaeftirprentun- um eftir fræga listamenn í Lækjargötu 10 A. Opið kl. 2—6 e.h. BÓKABÚÐ ÆSKUNNAR HRÆRIVÉLAR M.400 W Mótor Verð aðeins kr. LÍTIÐ í BRAUN 3,6500° hilluna hjá okkur SMYRILL Laugavegi 170 Sími 12260 BAZAR Hjúkrunarfélag íslands hefir BAZAR og kaffisölu í Lídó næstkomandi sunnudag 22. nóvember kl. Í4. j' Margt góðra muna. STJÓRNIN. S t ú I k u r Óskum að ráða stúlkur í bókbandsvinnu. Upplýsingar hjá verkstjóranum. Prentsmiðjan Edda h.f. RAKVÉLAR 4 gerðir — Verð Q Q [) 11 f) við allra hæfi. D II ll I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.