Tíminn - 21.11.1964, Side 13
LAUGARDAGUR 21. nóvember 1964
TÍMINN
^ «*%
1 J
Fréttabréf
Framhald af 7. síðu.
bezta, sem hér gerist. Grasspretta
varð víða með ágætum, og yfir-
leitt fneiri en menn höfðu gert
sér vonir um. Kalsár undanfar-
inna ára greru að miklum mun.
Nýting heyja er einnig með bezta
móti, enda höfum við ekki lengi
fengið jafn sólríkt sumar. —
Bændur eru því nú betur undir
vetur búnir en þeir hafa verið
síðustu árin.
Haustveðráttan hefur einnig
verið ágæt. Getur varla heitið að
fest hafi snjó til þessa.
Bændur hér líta nú bjartari
augum fram á veg, en þeir hafa
gert undanfarin ár, og vonast
eftir að framhald verði á góðu
árferði. — Fé fjölgar heldur, þó
í litlum stíl sé. Fleiri lömb verða
nú sett á í vetur en gert hefur
verið undanfarin ár.
Meiri ræktunarframkvæmdir
eru nú hér í hreppnum en að
undanförnu.
í vor var töluvert um endur-
ræktun gamalla túna. Kalshell-
urnar tættar upp og sáð í þær á
nýjan leik. Og í haust hefur nokk-
urt land verið brotið til nýrækt-
ar. Að þessu stuðlar tíðarfarið og
vaxandi bjartsýni á að rofin verði
þau höft, sem verið hafa á hækk-
un jarðræktarstyrks, sem við-
reisnin hefur viðhaldið þrátt fyrir
tvöfaldan kostnað, eða meir, við
þær framkvæmdir. Vonast bænd-
ur eftir að jarðræktarlagafrum-
varp það, sem landbúnaðarráð-
herrann hefur geymt vandlega í
skúffu sinni, verði nú dregið fram
í dagsljósið.
— í haust var héraðsráðunaut-
urinn hjá okkur um tíma. Tók
hann jarðvegssýnishorn úr túnum
margra býla, sem svo verða rann-
sökuð. Hefur þetta staðið til tvö
s.l. ár, en orðið óframkvæman-
legt vegna ótíðar og snjóa. Nú
byggja bændur góðar vonir við
að þeir fái út frá þessu hagnýt
ar upplýsingar um notkun tilbú
ins áburðar. Var þess löngu orð
in full þörf, því ekki var ein-
leikið hve grasspretta minnkaði
þrátt fyrir aukinn áburð. Var það
orðin örugg trú og nokkur vissa
að kjarninn ætti hér beina eða
óbeina sök á. Nú fæst vonandi
úr því skorið og bætt.
Slátrun. Hjá Kaupfélagi
Strandamanna á Norðurfirði var
í haust slátrað 3728 dilkum. Er
það 256 dilkum færra en í fyrra
Aftur varð vænleiki dilka nú mun
meiri en í fyrra. Meðalþungi nú
á slátursstaðnum var 14.70 kg. Er
það 1,2 kg. meira en í fyrra Þrátt
fyrir minni slátrun nú, verður
kjötmagn einu tonni meira en í
fyrra. — Mesta , meðalvigt varð
nú hjá Hallbert Guðbrandssyni,
Djúpuvík. Hanri lagði inn 17
dilka, sem lögðu sig að meðal-
tali 17,15 kg. (Sjálfur varð ég að
láta mér nægja að vera í öðru
sæti með 17.00 kg. að meðalvigt).
Vænar kindur: Þyngstan dilk á
sláturstaðnum átti Benedikt Val-
geirsson Árnesi. Var það tvílemb-
ingshrútur, og skilaði hann 27,5
kg skrokk. Gimbrinni móti hrútn-
um var einnig slátrað, hún lagðij
sig með 22,5 kg. skrokk. Saman
lagt vógu skrokkar þessara tví-
lembinga 50 kg. Það er góður
arður eftir eina á. Ærin. móðir
þeirra er heimalningur. grákoll-
ótt. og gengur að mestu í túni og
ekki örgrannt um að hún fái
aukabita úr búri húsmóðurinnar,
enda iaunar hún það ríkulega. Ef
hægt væri að láta ær skila því
líkum arði, mætti hafa mun færri
ær, en halda þó sömu tekjum.
í sumar, 19. júlí, efndi Sjálf-
stæðisflokkurinn tii útbreiðslu- og
skemmtifundar hér að Árnesi.
Trúboðar flokksins voru ekki
valdir af verri endanum, sem sé
beir Þorvaldur Garðar og Ingólf-
ur Jónsson ráðherra. Skemmti-
kraftar þeirra voru heldur ekki
af lakara tagi: Ævar Kvaran,
Guðmundur Guðjónsson söngvari
og Sigurveig Hjaltesteð. — Sam-
koma þessi var fjölsótt af innan-
sveitarmönnum, sem ekki eiga á
hverjum degi' völ slíkra skemmti-
krafta og nutu þeir þess vel. —
Um frammistöðu þeirra Garðars
og Ingólfs, fór þó nokkuð á ann-
an veg. Hefur mig lengi lángað
að taka það til athugunar en ekki
haft tök á því, og svo er enn.
Ræða Ingólfs var einstök í
sinni röð. Hún var byggð upp af
gífurlegu sjálfshóli og einstæð-
um ósannindum og fruntaskap í
garð þeirra, sem þess áttu engan
kost að svara fyrir sig, dauðir
og lifandi. — Fer ég ekki út í
að lýsa því náið hér. — Allt
hafði hann gert til blessunar landi
og búandi lýð, en þið andstæð-
ingar hans allt til ills og bölv-
unar . En mikið geta þessir
skemmtikraftar sem þeir kaupa
sér til fylgdar, verið meinlegir.
Þegar Ingólfur var búinn að
lýsa afrekum sínum og síns flokks,
tók Ævar til við upplestur sinn.
Og hvað haldið þið að maðurinn
hafí valið sér að upplestrarefni?
—Kvæði Davíðs Stefánssonar um
Afríku-Kobba, þann erkiraupaira
og lygalaup. Betra gat það varla
verið, hvort sem hér réði tilvilj-
un eða skop.
Ingólfur lagði mikla áherzlu á
að menn ihuguðu mál gaumgæfi-
lega og tækju afstöðu út frá stað-
reyndum. En staðreyndalausari
ræðu eins og Ingólfur Jónsson.
Enda er það svo, að flokksmenn
hans hér í hreppnum mega ekki
heyra hann nefndan. — Ef ein-
hver byrjar á öfgafullum mál
flutningi, eiga þeii (sjálfstæðis-
menn) til að segja: „Blessaður
hættu nú, farðu nú ekki að flytja
ræðu eins og Ingálfur .Tónsson.“
Guðmundur P. Valgeirsson.
I 'II'IHIIIWM íl'lnWI1 'hll n || |i|i i ..
r\ ri^n
SKARTGRIPIR
trúlofunarhpingap
Framhald af 5. síðu.
mann, sem skýrði fyrir mér á
einfaldan hátt ástæðuna fyrir
þessum lífskjaramun. Rússar
eru þjóð, sem hefir lengi mátt
margt þola, sagði hann. Þeir
eru vanir misjafnri meðferð og
sætta sig við hana. Þannig er-
um við ekki.
Ungi maðurinn sagði enn-
fremur, að Tallin hefði komizt
hjá eyðileggingu í stríðinu, en
auk þess lægi enn ein ástæða
til mismunarins. „Við búum
fast við vesturlönd og .það veld-
ur öðrum og rýmri kröfum,"
sagði hann. Þegar búið er að-
eins 100 kílómetra frá Helsing-
fors, er auðvelt að horfa á
vestrænt sjónvarp, og er raun-
ar oft gert, var mér tjáð. Við
Vzmorie-ströndina hjá Ríga,
óma alls konar dægurlög í
ferðatækjum með útdregnum
loftnetum. Ég heyrði glymja
í einu, sem stillt var á Voice
of America, — en eigandinn
steinsvaf hjá því.
Rússneskur embættismaður
i Moskvu gaf mér eina eftir-
tektarverðustu skýringuna á
lífskjaramuninum. Hann sagði,
að auk annars lægju pólitískar
ástæður til grundvallar fyrir
meiri fjárfestingu í Eystra-
saltsríkjunum en í Rússlandi.
Ekki fór á milli mála, að þarna
var átt við ráðstafanir til að
draga úr óánægjunni, sem inn-
limunin og þvinguð samyrkja
olli í þessum löndum.
E.A.BEBG
SLÁTURHNIFAR
• vandaðir Knifar
i sérflokki
Verkfærin
sem endast
BERG’s
SPORJÁRN
ífíi
BERG’s
BOLTAKLIPPUR
ÁGÆTUR
i;i;;;i eldhúshnifur
BERG's
KOMBINASJÓNS.TENGUR
BAHCO
framleiðsla
PILTAR,
EF plD EICIÐ UNNUSTUNA /f/ /Á
ÞÁ Á ÉG HRING-ÁNA //?/ 7 A
/fór/<97? /7s/7/é//76fcSOfJ_í
S V ' \nC:----
BERG's
;;;$; bit.tengur
mjuáím
Þórður Sveinsson & Co hf. Sími 18700
Vesturbæjar-RADÍÓ
Nesveg 31. — Sími 21377
Höfum opnað verzl-
un og viðgerðar-
verkstæði á út-
varps- og sjónvarps-
tækjum o. fl.
Viðgerðarumboð fyrir:
GENERAL ELECTRIC — ZENITH — SILVANIA
— A.G.A. — FERGUSON — MONARK o.fl.
Seljum og setjum upp sjónvarpsloftnet og allt til-
heyrandi.
Seljum: Útvarpstæki, plötuspilara, segulbönd,
myndavélar, filmur og fl.
Seljum einnig sjónvarpstæki. FERGUSON. Væntan-
leg á næstunni SILVANIA og A G.A.
Sýnishorn fyrirliggjandi.
Gjörið svo vel að reyna viðskiptin. — Við kappkost-
um að veita góða þjónustu.
Vesturbæjar-RADÍO
Nesveg 31- — Sími 21377
Innréttingar
Smíðum eldhús og svefn-
herbergisskápa.
TRÉSiVIIÐJAN
Miklubraut 13.
i
KAUPFELAG EYFIRÐINGA
TIL JÓLANNA
FLÓRU-GOSDRYKKIR
Heildsölubirgðir hjá Sambandi íslenzkra Samvinnufélaga,
Hringbraut 119, II. hæð, sími 3-53-18, Reyjavík, og
lijá verksmiðjunni á Akureyri, sími 1700.
FLÓRUVöRUR ER SÖLUVARA
EFNAGERÐIN FLÓRA,
AKUREYRI
V V..
.b- . N<- A .■
r >4 v -"
«. ■ ' •
"• í T <
//•#!.