Tíminn - 21.11.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 21.11.1964, Blaðsíða 16
Laugardagur 21. nóvember 1964 237. tbl. 48. árg. SPRENGING UM BORÐ í ESJU UT AF HORNI MB-Reykjavík, 20, nóvember. Sprenging varð í vélarrúmi m. s. Esju afffaranótt sl. mánudags, er skipiff var á leiff frá ísafirði til Siglufjarffar og meiddist einn smyrjarinn, en þó verður að telja aff hann og fleiri, er voru stadd ir í vélarrúminu, hafi sloppiff vel. Rörbútar, sem þeyttust um vélar- rúmiff, sjást á mynd GE hér aff ofan. Óhappið varð klukkan 03.37 hinn 16. þessa mánaðar. Esja var þá stödd út af Horni á leið frá ísafirði til Siglufjarðar. 1. vél- stjóri og smyrjari stóðu við krana á lofthleðsuröri og var vélstjór- inn að skrúfa frá hnum, er spreng ingin varð í rörinu. Virðist ein- hver eldfim blanda hafa myndazt í rörinu. Rörið tættist í sund- ur og hluti úr því þeyttist um vélarrúmið. Straukst hann _ við enni smyrjarans, Guðna Ólafs- sonar, og olli talsverðum skurði á enninu. Hefur þar ekki mátt miklu muna, að ekki færi ver. Ekki olli óhapp þetta töfum á ferðum skipsins, sem nú er kom- ið til Reykjavíkur. MB-Reykjavík, 20. nóvember. Meitillinn h. f. í Þorlákshöfn hefur ákveffið aff láta reisa þar nýja 2500 mála sfldarverksmiðju og er gert ráff fyrir aff hún verffi tilbúin síffari hluta næsta árs. Frá þessu segir í fréttatilkynn ingu frá fyrirtækinu um aðalfund þess, sem haldinn var fyrir 9 dögum. Er þar getið tveggja stór mála, sem lágu fyrir fundinum. Annað er aukning á afkastagetu frystihússins, sem unnt er að framkvæma án nýrra bygginga með nýjum vélum og bættri skipu lagningu og byggingu geymslu- tanka, þar sem geyma má fisk leng ur en nú tíðkast, í kældum krapa pækli. Var samþykkt að vinna að þessari framkvæmd með það fyr ir augum, að hin aukna afkasta- geta frystihússins geti komið að gagni á næstu vetrarvertíð. Hitt málið er bygging nýrrar síldar- og fiskimjölsverksmiðju, í stað þeirrar, sem nú er fyrir hendi, en gamla verksmiðjan ann ar ekki lengur vinnslu sívaxandi hráefnis, auk þess sem vinnsla feitfisks er óframkvæmanleg í henni. Þegar hefur verið fengin lóð undir verksmiðju, sem getur Framhald á 15. siðu Undirbúa síldar- söltun í Höfnum SS-Höfnum, 20. nóv. Nú er í undirbúningi hér síldar söltun. Þaff er Eggert Ólafsson, sem veriff hefur með fisksöltun undanfariff, og lætur nú stækka fiskhús sitt um 120—130 ferm. í þeim tilgangi aff láta salta þar sfld í ve*ur. f fyrra flakaffi og Kassi karlsins! Þetta er kassinn eða kistán,. sem kassamaðurinn svonefndi, fannst í á flugvellinum í Róm fyrir nokkrum dögiun, og þaff er lögreglumaffur, sem virffir hann fyrir sér á myndinni. Á farmskírteininu, sem fylgdi kassanum stóð: „Til viffkom- and-i affila: Sendiráff arabíska sambandslýffveldisins stafffestir hér með, að sendiráðspakki nr. 33 inniheldur diplómatapóst sendiráðsins til utanríkisráðu- neytisins í Cairó.“ En eins cg öllum er nú kunnugt af frétt- um var enginn póstur í kassan um heldur lifandi maffur. Að- búnaður hans hefur veriff sæmi legur, þótt kassinn hafi ef til vill veriff dálítið þröngur! rúnnsaltaffi Eggert nokkur hundr- uff tunnur, og var þaff í fyrsta sinn, sem síld hefur verið söltuð hér. Illar gæftir hafa verið hér að undanförnu og aflaleysi, og frysti húsið því einungis starfrækt þeg ar fiskur hefur fengizt. Búizt er við að síld verði fryst fram yfir áramót, og bátamir eru nú bún- ir að fá síld einum þrisvar sinn- um. Síðast liðna tvo vetur hefur síld verið fryst hér, en hana verð ur alla að flytja landveg frá Keflavík, Grindavík og Sandgerði, þar sem bátar, yfir 20 tonn, geta ekki landað hér. Hafnarskilyrðin eru svo léleg, að jafnvel 20 tonna bátar geta ekki komizt inn í höfnina þegar lægst er í sjó. Á stórstraums- fjöru t. d. komast þeir ekki inn og verða að bíða fyrir utan þar til fellur að. DANIR ÆRAST VEGNA ÓSIGRA Segja áhorfanda hafa barið leikmann í hnakk- snn meðan stóð á keppni. Alf-Reykjavík, 20. nóvember. Sem kunnugt er af fréttum, er danska handknattleiksliffið Ajax, núverandi Danmerkurmeistari, í keppnisferð hér á vegum Vals. Danimir hafa nú leikið þrjá leiki og beðið miklar ófarir, tapað tveimur leikjum með 11 marka mun hvorum, en í einum leikn- um tókst dönsku meisturunum aff ná jafntefli viff 2. deildar liff- iff Val. Dönsku leikmennirnir hafa illa kunnaff aff taka mótlætinu og dönsk blöff vilja sem minnst gera úr hinum síóru sigrum íslenzkra handknattleiksmanna. Út í öfgar slær þó, þegar blaðið BT birtir frétt í fyrradag, og er höfð eftir varaformanm Ajax, sem einnig er leikmaffur meff liffinu, en hann skýrir frá því, aff einn áhorfenda aff Hálogalandi hafi ráðizt að hon- um og slegið hann tvívegis í hnakkann með kreftum hnefum, en horfiff síffan í mannhafiff. Þetta átti aff hafa skeff í leik Ajax gegn Val. — Hefði ég ekki verið í æfingu, er enginn vafi á því, að ég hefði fengið að liggja í gólfinu. Ég átt aði mig fljótlega, en hinum æsta áhorfenda heppnaðist að lcomast undan. Þessi orð eru höfð eftir vara- formanni Ajax, Ove Andersen, í BT. Þessi ummæli koma afar ein- kennilega fyrir, því enginn aff Hálogalandi varð var við þennan athurff og ekkert minntust dönsku leikmennirnir á hann eftir leikinn. Hér virffist því um algeran til- búning að ræffa af hálfu þessa for ystumanns Ajax í þeim eina til- gangi að breiða yfir ofarir liðsins. En fréttaflutningur eins og þessi er vítaverffur og í hæsta mát ó- íþróttalegur. Virffast danskir iþróttamenn alls ekki þola mót- læti af hálfu ísl. íþróttamanna, af hverju svo sem þaff stafar. Danska liðið Ajax leikur sinn síðasta leik hérlendis í íþróttahús inu á Keflavíkurflugvelli klukkan 17 (laugardag) og mætir þá úr- valsliði HSÍ. ONSDAG 18. novembcr 1964 Vatnsrennslið eykst stöðugt ED-Akureyri, 20. nóvember. Enn heldur vatnsmagnið á Laugalandi áfram að aukast og er vatnið sem þar kemur úr jörðu nú orðið 83 stiga heitt og í morg un var magnið orðið 12.6 sek- úndulítrar. Virtist mönnum það halda áfram að aukast í dag. Bor inn er nú kominn niður á 420 metra dýpi. Eins og fram hefur komið í blaðinu er talið, að 60— 80 sekúndulítra af 70—95 stiga heitu vatni þurfi til hitaveitu fyrir Akureyri og er því þegar fenginn um sjotti hluti þess vatnsmagns úr holunni á Laugalandi. Reykjan.kjördæmi Formenn Framsóknarfélaganna í Reykjaneskjördæmi eru beðnir um að mæta á stjórnarfund í kjör- dæmissambandinu í Tjarnargötu 26, kliikkan 16 á sunnudag. — Gik amok og s dansk spiller ned Dramafisk episode onder Ajax’ anden kamp pð Islands-turneen, da Ove Andersson to gange blev ramt af en tilskuers knytnœveslag i nakken — Kampen, der blev transmifferet i den islandske radio, sluttede 27—27

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.