Tíminn - 26.11.1964, Blaðsíða 1
241. tbl. — Fimmtudagur 26. nóvember 1964 — 48. árg.
MB-Reykjavík, 25. nóvember
Það er ti) nóg neyzluvatn
fyrir Reykjavík »g þéttbýlið
kringum hana um fyrirsjáan
lega framtíð — en það vofir
stórkostleg sipillingarhætta yfir
þessum dýrmætu náttúrugjöf
um, ef ekk: verður gripið til
róttækra ráðstafana þeim til
verndar, sagði Jón Jónsson
jarðfræðin.gur hjá Jarðborun-
um ríkisins í viðtali við blaðið
í dag.
Þetta kom fram í frásögn
jarðíræðingsins af borunum
eftir köldu vatni á vegum jarð-
borananna. Hann kvað Jarð-
Doranir ríkisins hafa borað
eftir köldu vatni fyrir Vatns-
veitu Reykjavíkur með ágætum
árangri. má í því sambandi
minna á holu, sem kom í góðar
þarfir þegar vatnsskortur varð
í Reykjavík í haust. en þá var
dælt úr henni 60 sekúndulítr-
um „Það er nóg neyzluvatn
á sprungusvæðinu hér fyrir of-
an borgina, fyrir Reykjavík og
þéttbýlið í nágrenni hennar
um fyrirsjáanlega framtíð“
sagði Jón, „en spursmálið er
um að~varðveita það. Sumarbú-
staðabyggingar eru nú að
skríða inn á þetta land. og a
m.k þar sem ég er kunnugast
ur þ.e. í Svíþjóð, eru þessar
byggingar taldar einhverjar al-
hættulegustu byggingar. sem
ti) eru, fyrir grunnvatnið
Kemur þar aðallega tvennt til
í fyrsta lagi það, að bygging-
ar þessar eru óvandaðar og
frárennsli frá þeim er vfirleitt
ábótavant. í öðru lagi er svo
hættan af olíunni og það er
mesta hætta, sem vofir yfir
neyzluvatnssvæði. Það er næst-
um ótrúlegt. hve olía getur
spillt neyzluvatni. Til dæmis
er talið. að einn lítri af olíu
sem fer niður á neyzluvatns-
svæði, geti eyðilegt eina millj-
ón lítra af vatni. Frágangi olíu-
Framhald á 14. siðu.
Lak Danska
r\ ,, I
raounevtio!
Olíugeymir við sumarbústað — Einn lítri af olíu getur eyðilagt
milljón litra neyzluvatns. (Tímamynd — KJ)
Aðils-Kaupmannahöfn.
MB-Reykjavík, 25. nóv.
Berlingske Aftenavis fullyrðir í
dag, að það hafi komizt yfir óska-
Iista yfir þau handrit, sem íslend-
ingar vilji fá úr dönskum söfnum.
Segir blaðið, að á þessum lista séu
alls 2120 íslenzk handrit, eða 260
fleiri, en voru á lista þeim, er
blaðið birti á sínum tíma yfir þau
handrit, sem það sagði Dani hafa
boðizt til að afhenda íslend-ingum.
Blaðið segir, að þessi íslenzki
óskalisti hafi "erið lagður fram
á löngum fundi í íslenzka sendi
ráðinu, 19. aprí) 1961, en þann
fund sájtu íslenzku prófessorarnir
Einar Ól. Sveinsson og Sigurður
Nordal og Danirnir Palle Birke-
lund landsbókavörður og prófessor
Peter Skautrup. Palle Birkilund
fullyrti fyrir stuttu í BT, að þessi
listi væri til, en þegar blaðið
spurði menntamálaráðherrann K.
B. Andersen um bennan lista, svar
aði hann því til, að hann vissí ekki
um tilveru hans.
Berlingske Aftenavis fullyrðir
að þessi listi sé til og hann sé um
100 vélritaðar blaðsíður. Á honum
séu talin upp 2120 handrit á ís-
lenzku, þar af séu 1969 rit úr Árna-
safni en 151 úr Konunglegu bók-
hlöðunni. Séu á þessum lista 260
handritum fleiri en voru á þeim
lista, er blaðið hafði áður birt yf
ir þau handrit, sem Danir byðust
til að afhenda fslendingum. Þau
hafi verið 1860, þar af 1730 úr
Árnasafni en 130 úr Konunglegu
bókhlöðunní.
Blaðið BT íullyrti s. i. laugar
dag og mánudag, að þessi óska-
listi væri til. Gætir sem fyrr lít-
illar hlýju í íslendinga garð
greinum blaðsins og segii þar, að
íslendingar hafi heimtað öll þau
handrit, sem hafi verið skrifuð
með.íslenzkri hendi, en blaðið seg
ir, að þau séu svo mörg sem raun
beri vitni, eingöngu vegna þess,
að þá hafi mikið verið um það,
að íslenzkir skrifarar hafi verið
ráðnir í vinnu, rétt eins og vélrit-
unarstúlkur séu ráðnar nú til
dags:! Framh. á bls. 14.
Hannibal Valdimarsson, for-
seti ASÍ svarar árasum
stiórnarblaðanna og a ðir
stöðu verkalýðsins að loknu
þingi Alþýðusambandsins,
sjá bls. 7.
Verið að stofna Stéttar
samband fiskiðnaðarins
Sigurður Jónasson skriiar í
dag um brautryðiandann,
Ólaf Friðriksson.
Grein Sigurðar er á bls. §.
KJ-Reykjavík, 25 nóv.
í dag var haldinn að Hótel Sögu
stofnfundur Stéttarsambands fisk-
iðnaðarins, og voni til fundarins
mættir fulltrúar víðs vegar að af
landinu og frá hinum ýmsu grein-
um fiskiðnaðarins.
Heildarsamtök fyrir allar grein
ar fiskiðnaðarins hafa ekki veríð
til fram að þessu, en Stéttasam-
band fiskiðnaðarins er hliðstætt
Landssambandi íslenzkra iðnaðar
manna hvað skipulag snertir
Stéttarsamband fiskiðnaðaríns
mun hafa ínnan sinna i/ébanda al)
ar greinar fiskiðnaðarins, svo sem
Framh. á bls. 14
Myndin var tekin i dag á stofnfundi Stéttarsambands fislciðnaðarins i Hótel Sögu
(Ljósmynd K.j.)
-V
i