Tíminn - 26.11.1964, Side 2
TIMINN
FIMMTUDAGUR 26. nóvember 1964
Miðvikudagur, 25. nóv.
NTB-Saigon. Hernaðarástandi
hefur nú verið lýst yfir í Sai-
gon, en þar hafa veríð miklar
óeirðir í gær og í dag. Skóla-
æska Búddatrúarmanna gerði
mikið uppþot í dag og þurfti
lögreglan á aðstoð fallhlífaher-
manna og slökkviliðsbíla að
halda en allt kom fyrir ekki og
neyddust lögreglumennirnir til
að flýja. Alls særðust 30 lög-
reglumenn.
NTB-París. Sá yngsti af fimm
burunum, sem fæddust í Frakk
landi í fyrradag, lézt í dag, og
var það drengur. Þrír þeírra,
sem eftir lifa, eiga í miklum
erfiðleikum með að ná andan-
um og er ástand þeirra talið
hættulegt. Sá elzti af fimm-
burunum virðist alveg hafa náð
sér á strik.
NTB-París. Franska ! ríkis-
stjórnin endurtók í dag kröfu
sína um að samkomulag náist
ínnan ríkja EBE um kornverð
ið fyrir 15. des. næstkomandi.
Málið var rætt á ríkisstjórnar
fundi í Frakklandi í dag.
NTB-London. Verkfalli hafn-
arverkamanna, sem átti að hefj
ast 1. des. í Bretlandi, hefur
nú verið aflýst. Vinnuveitend-
ur hinna 65.000 hafnarverka-
manha, hafa gengizt inn á það,
að fara eftír niðurstöðum
n'efndar úr ríkisstjórninni, sem
rannsakað hefur vinnuaðstæð-
ur verkamannanna.
NTB-London. Brezki nazista-
flokkurinn tilkynnti í dag, að
hann mundi ^mota kynþátta-
vandamálið til áð koma í veg
fyrir að Gordon Walker verði
kjörinn í neðri deild þingsins
í aukakosningum, sem haldnar
verða í kjördæmi hans.
NTB-Cairo og Sofia. Súdan
hefur beðið öryggisráð S. Þ. að
halda fund sem fyrst vegna
ástandsins í Kongó. Fleiri
hundruð afrískir og belgískir
stúdentar stofnuðu til uppþota
við bandaríska og belgíska
sendiráðíð í Sofía. Rúður voru
brotnar í sendiráði USA og lög
reglunni tókst með naumindum
aö koma í veg fyrir, að hópur
stúdentanna ryddist inn í belg-
íska sendiráðið.
NTB-London. Englandsbanki
skýrði frá því í kvöld, að 11
stórir bankar hér og þar í heim
inum hefðu látið Englands-
banka hafa 21 mílljarð dollara
til umráða um óákveðinn tíma.
Er þetta gert ‘il að þurfa ekki
að leggja á óþarfa skatta. Það
sýndi sig í dag og í gær, að
hækkun forvaxtanna dugði
ekki til að tryggja stöðu punds
NTB-London. Wilson forsæt-
isráðherra lýsti því yfir í neðri
deild brezka þingsins í dag, að
hinar 16 sprengjuþotur, sem
lofaðar höfðu verið S-Afríku
yrðu sendar áleiðis, en það
væri líka síðasta vopnasending
Bretlands til Suður-Afríku.
400 MANNS VORU ENN OFLUTT-
FRÁ STANLEYVILLE í DAG
úðar ástæður að ræða.
Kínverjar gagnrýna í dag mjög
aðgerðir Belga og Bandaríkja-
manna í Kongó og segja þær
hreina hemaðarárás. Kosygin, for
sætisráðherra Sovétríkjanna, sagði
í ræðu í dag, að þó að Sovétríkin
vildu lina spennuna í alþ.ióðamál
urn, gætu þau ekki gengið fram
hjá því, að vopnavald í bjónustu
imperialismans bældi niður frels-
isbaráttu fjarlægra þjóða eins
NTB—Stanleyvile, 24. nóv.
I kvöld höfðu rúmlega þúsund
Evrópubúar og Bandaríkiamenn
verið fluttir til Leopoldville. Var
þá eftir að flytja 400 manns í
dag voru nokkrar óeirðir í borginni
og lítur úf fyrir, að það muni taka
hersveitir ríkisstjórnarinnár þrjá
til fjóra daga að koma ró á. Upp-
reisnarmenn. skutu á fjórar banda
rískar flugvélar með flóttamenn
innanborðs, en engin þeirra laskað
ist svo, að hún þyrfti að snúa aftur
til Stanleyville.
Margir uppreisnarmanna voru
drepnir við flugvöllinn í nótt og
einn belgískur fallhlífarhermaður
lét lífið.
Milli 30—35 Belgar og Banda-
ríkjamenn voru drepnir af upp-
reisnarmönnum í Stanleyville í
gærmorgun, er belgískir fallblífa
hermenn gerðu árás á borgina. 15-
20 þeirra voru skotnir á Lum-
umba-torginu í Stanleyville, en hin
ir í biðsalnum á flugvallarhctelinu
í borginni.
f gærkvöldi voru nokkrar óeirð
ir í útjarði Stanleyville, en ann-
ars var allt þar með kyrrum kjör
um. í nótt biðu 350 Evrópuoúar
á flugvellinum í Stanleyville eftir
flugfari til höfuðborgarinar en
hersveitir ríkisstjórnarinar og
hvítir málaliðar marséruðu um
götur borgarinar. Sovétríkin hafa
mótmælt aðgerðum í Kongó cpin-
berlega, segja þær ékki samræm-
ast reglugerð SÞ og krefjast þess
að öll hernaðarafskipti af innan-
ríkismálum Kongó verði lögð nið
ur strax. í dag segir í Izvestia, mál
gángni sovézka kommúnistaflokks
ins, að aðgerðir Belga og Banda-1
ríkjamanná i Stanleyviile séu bein j
hótun við friðinn og öryggið í
heiminum og móðgun við aðrar |
afríkanskar þjóðir. Sovézka stjórn j
.in hefur formlega afhent sendi
herrum hinna vestrænu rík.a í
Moskvu mótmælabréf og mun
bandaríski sendiherrann hata svar
að því til, að Bandaríkin þjóni
ekki neinu stjórnmálamarkmiði
með því að styðja Belga í björgun NTB-Stokkhólmur, 25. nóvember.
inni, heldur sé þarna um mann- Samband sænskra áætlunarflug-
og t.d. í Kongó og Vietnam.
Fyrsta flugvélin frá Kongó kom
í morgun til Briissel með 163
fióttamenn innanborðs. Starfs-
•menn Rauða krossins tóku á móti
'þeim á flugvellinum ásamt Albert
prins og Paolu, eiginkonu hans.
Önnur flugvél kom til Briissel
síðar í dag með flóttamenn. Bau-
douin konugur og Fabiola, drottn
ing hans, voru í opinberri heim
Framhald á bis 14.
SAMVINNU-
SKÓLANEM-
ENDUR Á
AKUREYRI
Nemendur Samvinnuskólans
komu í heimsókn til Akureyrar
dagana 8. til 11. nóv. s.l. og skoð
uðu ýmsar deildir og verksmiðj
ur KEA og SÍS eins og venja
hefur verið undanfarin ár. Nem
endurnir voru 72 auk 4 kennara,
en fararstjóri var Snorri Þor-
steinsson yfirkennari. Nemend
ur Samvinnuskólans kepptu og
í íþróttum við nemendur MA á
Akureyri. (Ljósm. GPK)
ANGELHOIMVELL!
Gáfu súrefnistæki í sjúkra-
bí! Hafnarfiarðar
SÞ-Hafnarfirði, 24. nóvember.
Starfsmenn Rafveitu Hafnar-
fjarðar hafa nýlega gefið súrefnis-
tæki til notkunar í sjúkrabifreið
bæjarins. Starfsmenn slökkviliðs-
ins hafa fyrir Jöngu óskað eftir
því að fá slík tæki í bílinn, og
hefur nú draumur þeirra rætzt.
Tækin eru af AGAgerð og kost-
uðu 4300 krónui, og eru af sömu
HÖFÐINGIJEG-
gerð og tæki þau, sem notuð eru,
í sjúkrabifreiðum í Reykjavík.
Hafa ökumenn sjúkrabifreiðar-!
innar Hafnarfirði fengið tilsögn ,
í notkun tækjanna hjá Slysa-1
varðstofunni i Reykjavik. Sjúkra-
bíllinn nýi í Hafnarfirði, sem flutt
getur þrjá sjúklinga og gæzlu-
mann, hefur reynzt mjög vel.
Kemur sér vel hve rúmgóður hann
er. því oft þarf að flytja slasað
fólk til Reykjavíkur á sjúkrahús.
manna, Svens pilotforening, hefur
gagnrýnt mjög ástandið á Bark-
ákra-flugvellinum við Angelholm,
en þar varð mesta flugslys í sögu
Svíþjóðar á föstudaginn var.
Flugmennirnir halda þvi fram, að,
margt bendi til þess, að hvorki
flugbrautarljósin né lendingarljós-
in hafi verið tendruð, þegar
sænska áætlunarflugvélin ætlaði i
að lenda þar á föstudagskvöldið. |
Fer flugmannasambandið fram á
það, að nokkur vitnanna verði
enduryfirheyrð í þessu sambandi.
Ritari sambandsins. Göte Lind-
gren segir margt benda til þess,
að flugmaður vélarinnar, sem
fórst, hafi tekið ljós frá vita fyrir
byrjun flugbrautarinnar og því
hafi hann lent á hæðinni, nokkr-
Helmingurinn seldur
Fyrii skömmu bárust Skógrækt
arfélagi íslands veglegar gjafir. ]
Þrjú fyrirtækí í Reykjavík af-!
hentu stjórn félagsins kr 30-
000,—.
Stjórn Sk-ógræktarfélags ís-
lands þakkar viðkomandi fyrir-
tækjurr góðan hug og velvild í
garð skógræktarinnai
Stjorn félagsins vill láta þess
getið að félaginu er heimilt að
taka við gjöfum, sem draga má
frá skattskyldum tekium gefanda
samkv 36. gr reglugerðar nr. 245
frá 31. des. 1963. 1
Eins og kunugt er af fréttum
hefur nýlega verið boðið út 50
milljóna króna lán ríkissjóðs í
formi verðtryggðra spariskírteina.
Forsala þeirra hófst s.l. manuuag.
Almeningur hefur tekið þessum
spariskírteinum mjög vel og ) lok
þriðja söludagsins var búið að
seija um helining út^afunnar.
Spariskírteinin sjálf verð.o tilbú
in til afhendingar hjá söluaðilum
í Reykjavík n.k. mánudag >?. fljót
lega á eftir úti á landi.
Eftirtaldir aðilar i Revsiavík
taka á móti áskriftum og ai.nast
sölu spariskírteinanna.
Seðlabanki. Isl. Landsbanki ísl.
Útvegsbanki ísl. Búnaðarbanki ísl.
Iðnaðarbanki fsl. hf. Verzl.banki,
fsl. hf. Samvinnnubanki fslands hf j
Sparisjóður Rvíkur og nágr svo j
og öll útibú viðskiptabankanna í
Rvík. ‘
Ennfremur hjá Málaflutnings-
skrifstofu Einars B Guðmundsson- j
ar, Guðlaugs Þorláksonar og Guð-
mundar Péturssonar og Kaurhöll
inni.
Sölustaðir utan Reykiav'kur
eru útibú allra bankanna og
stærri sparisj. Hægt er að nanta
skírteinin hjá flestum öðrum spari
sjóðum og innlánsdeildum.
um kílómetrum frá flugbrautinni
sjálfri. Nefnd sú í Svíþjóð, er hef-
ur með rannsókn á flugslysum að
gera, lét í gær endurtaka fyrir sig
komu flugvélarinnar á föstudags-
kvöldið. Athugaði nefndin um leið
ljósaútbúnaðinn á flugvellinum
og önnur flugvél af sömu gerð
Framhald á bls 14.
Fullveldisfagnaður
hernámsandstæðinga
Næstkomandi sunnudagskvöld
munu hernámsandstæðingar efna
til fullveldisfagnaðar í Súlnasaln-
um á Hótel Sögu. Ávörp flytja
Júníus Kristinsson og Loftur Gutt-
ormsson. Karl Guðmundsson flyt-
ur gamanþátt og Ási í Bæ glettist
við alvöru aldarinnar. Jónas
Árnason stjórnar fjöldasöng, og
flutt verður samfelld dagskrá úr
atburðasögu fullveldisársins. sem
Þorsteinn frá Hamri hefur f'-kið
saman. Savannatríóið leikur og
syngur íslenzk þjóðlög og hljóm-
sveit Svavars Gests leikur fyrir
dansi.
Sala aðgöngumiða er í Bókabúð
KRON Bankastræti, Máli og
Menningu, Laugavegi 18 og skrif-
stofu hernámsandstæðinga, Mjó-
stræti 3, opið 4,30—6,30 dag hvern
(einnig á laugardag og sunnudag).
Fundur er i miðnefnd Samtak-
anna í kvöld (fimmtudag) klukk-
an 20,30 í Lindarbæ.